Norðurland


Norðurland - 17.12.1910, Page 3

Norðurland - 17.12.1910, Page 3
á árí hverju, 5—6 kr. fyrir hvern niann á landinu. Svona er komið! Það er engin hætta á að vér losnum úr skuldunum fyrst um sinn! Allir eru sammála um það, að stór- lán væri sjálfsagt, ef það byðist með betri vöxtum en lán þau, sem vér höf- um nú. Vér mundum þá nota það •til að borga eldri lánin. Gróðinn við þetta væri einsýnn og áhættulaus. Ágreiningurinn er að eins um það, hvort rétt sé eða nauðsynlegt að lána meira, t. d. auka skuldir landsmanna um helming. Eg held við ættum að hugsa okkur tvisvar um þetta. Minsta kosti sé ekki vert að hlaupa eftir hverjum fé- sýslumanni, sem þykist hafa einhverja fjárvon með einhverjum lítt þektum kjörum og kringumstæðum. Eg vil ekki fara lengra en svo, að vér tökum því aðeins ný lán, að vér sjáum oss vissan leik á borði, höfum athugað fyrirtækið, sem láninú skal varið til, svo vandlega sem í voru valdi stóð og höfum fulla vissu fyrir að það sé arðsamt eða algerlega óum- flýjanlegt. Þetta útilokar ekki óhjákvæmilega ný lán, jafnvel ekki miljónalán, en það útilokar lán út í bláinn, lánin, sem einkum byggjast á »trúnni« á landið. En því er miður að aðferðin úti- lokar líklega flest eða ö|I stórlán að svo komnu. Það er svo fátt á landi voru, sem hættulítið verður rekið með útlendu lánsfé. Þannig er þetta sem stendur. Von- andi að þetta breytist. Þá væri síður á- stæða til að amast við lánunum, þótt vissulega væri hitt miklu betra, að geta rekið atvinnuvegi vora með eigin eign og gróðafé. Þá fyrst er búið 1 landinu, þegar vér rekum alla atvinnuvegi vora og byggjum öll vor hús með íslenzkri eign, íslenzlcu gróðafé. En ef vel ætti að vera, ættum vér að eiga xo miljónir hjá Dpnum og hafa þaðan hálfa milj- ón í rentur á ári hverju. Og þetta er leikurinn einn, ef vér viljum og kunnum með að fara. % Útlendar fréttir. Höfn 2i. nóv. 1910. Mannalát. Nýlátinn er hér prófessor J u 1 i u s Exner, frægur málari. — í Noregi lézt fyrir skömmu Schreiner rek- tor, er allir íslenzkir skólagengdir menn kannast við af latnesku mál- fræðinni eftir hann. Yfir Atlanzhafið i flugvél hyggst þýzkur verkfræðingur, Bruecher, að komast í miðjum desember. Leggur hann upp frá Caaiz og stefnir til New-York. Norðmenn eru í þann veginn að kaupa lyfsölustaðinn í Grimstad; þar reit Ibsen fyrstu leikrit sín, þá ung- ur lyfsali. Ennfremur eru þeir að safna fé til að kaupa prestssetrið gamla í Björgan í Kvikne; þar fæddist Björn- son og ólst upp fyrstu ár æfi sinnar. Eiga hús þessi að standa til minn- ingar um mestu andans menn Norð- manna á öldinni sem leið, þá Ibsen og Björnson. Auðmaðurinn Carnegie hefir gefið 12 miljónir króna til Carnegie-stofn- unarinnar f Pittsburg á 75 ára fæðing- ardegi sínum nýverið. Venizelos, forsætisráðgjafi Grikkja, hefir í hyggju að koma á ýmsum end- urbótum meðal Grikkja. Meðal annars hefir hann ný tolllög í undirbúningi eft'r amerísku sniði. Reikningshalla fjárlaganna (10 miljónir drakma á ári; Nl. í Kjötbúðinni geta menn fengið Ostar: Kjöt niðursoðið: Fiskmeti: Sætmeti: Súrmeti: Grænmeti: Sinnep: Saft á jóla- og nýársborðið allskonar sælgæti svo sem: Schweizer, Gouda, Edam, Limborgar, Appetit, Mysu Nautakjöt, Kindakjöt, Forloren, Skildpadde 0. fl. Fiskibýting, Fiskibollur margar tegundir, Sardínur, Ansjósur, Síld, Humar, Ostrur, Marflær, Hrogn og margt fleira. Sultutau margar tegundir, Ávextir: Perur, Apricosur, Ananas, Plómur og ótal margar aðrar tegundir. Asíur, Agurkur, Rödbeder, Pickles, Pikkalilly. Rauðkál, Grænkál, Asparges tvær tegundir, Gulrætur, Persille, Selleri o. m. fl. Edik, Borðsalt, Humarlitur, Carry, Salatolía, Appel- sínusafi, Citronsafi. margar tegundir og margt og margt fleira. •J* Reykjarpípur langar mr lagleg JÓLAGJÖF T»S fást í Tóbaksverzlun JÓH. RAGÚELSSONAR. Dh FOREj^FDE BRYGGERIER5 EKTA KRONUÖL. KRON UPILSENER. EXPORT DOBBELT ÖL. ANKER uL. Vér mæjum með þessum öltegundum sem þeim fín ustu skattfríu öltegundum sem allir bindindismenn mega neyta- MQ Biðjið beinlínis um: ÍMO. De forenede Bryggeriers Öltegundir, Til jólanna fæst í 205 1 drakma er 72 aur.) kveðst hann geta lagað með nýmælum sýnum án aukinna skatta á þjóðina. Flugmaðurinn Johnstone, sá er flogið hefir hæzt allra í loft upp, datt nýlega niður úr 800 feta hæð og drapst á svipstundu.’ Uppþot í Mexiko. Á pólitiskum æs- ingafundi þar skaut kona ein á lög- reglustjórann, er ætlaði að tvístra fund- inum; dó hann samstundis. Urðu róst- ur miklar út af þessu og sló í harðan bardaga milli lögreglunnar og fundar- manna. Drápust þar um 100 manns. Þingkosningar Ensiendinira. Þeim á að veta lokið fyrst í dag. Síðustu fréttir af þeim snemma í þess- ari viku og var það eitt símað, að stjórnin mundi sigra. Nánari fréttir væntanlegar í næsta blaði. Meistaraprófi í norrænu lauk Sigurður Guðmunds- son frá Mjóadal við Kaupmannahafnar- háskóla í íyrradag. Skipströnd syOra. Enskur botnvörpungur strandaði ný- lega nálægt Skaptárós. — Ennfremur hefir rekið þar nálægt nýverið lík af manni og fundust á líkinu skipspapp- frar af þýzku skipi. Er talið víst að skipið hafi farist f hafi þar nálægt og þetta sé lík skipstjórans. Botnvörpunsrar syðra. Þeir bræður Pétur og Th. Thorstein- son hafa nýlega leigt 2 enska botn- vörpunga um aðalveiðitímann. Verða þeir þá xo botnvörpungarnir, sem Reykvfkingar gera út á næsta sumri. Laus prestaköll. Grundarþing í Eyjafirði, Kirkjubær í Hróarstungu og Eydalir í Suðurmúla- sýslu verða veitt frá næstkomandi far- dögum. Messur um hátíðarnar: Aðfangadagskvöld: Akureyri, kl. 6. e. m. Jóladag: Akureyri, kl. 10V2 f. m. Sama dag: Lögmannshlíð, kl. t e. m. Annan í Jólum: Akureyri, kl. 12 á h. Gamlaárskvöld: Akureyri, kl. 6 e. m. Nýjársdag: Akureyri, kl. 10V2 f. m. Sama dag: Lögmannshlíð, kl. 1 e. m. Á morgun verður ekki messað. Ostar: Roquefort-, Schweitzer-, Gouda- Mysu- í verzlun Sig. Sigurðssonar. Áukafundur í Gufubátsfélagi Norölendinga verður haldinn á Hótel Akureyri mánudaginn þ. 26. þ. m. kl. 4 e. h., til pass að taka ákvörðuti um skipstjórastöðuna á sjs «Jör- undur«. Stjórnin, Kjöfbúðinni Nýtt Nautakjöt af ungum gripum - Kindakjöt Reykt Kindakjöt Kæfa Rullupylsur íslenzkt smjör Tólg Medisterpylsa Wienerpylsa Servelatpylsa. Æskilegt er að bæjarbúar panti bæði Medister- og Wienerpylsur helzt ekki síðar en á miðvikudaginn 21. p. m. P ú ð u r~ Kerlingar og ýmislegt þessháttar til gamlaárskvölds ins fæst f verzlun SN. JÓNSSONAR. Ýmsar góðar jólagjafir fást í verzlun SN. JÓNSSONAR. Jóla ko r f ódýrust í verzlun Sn. Jónssonar. {

x

Norðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.