Norðurland - 09.09.1911, Síða 2
Nl.
142
Regnkápur með nýtízkusniði, handa konum og körlum, frá kr. 12.50—22.00.
Rntnnllíirfím ncr rnn^íplin mj°g mikið úrvai í kjóia, biúsur,
Domunariau og mubbeun svuntur sængurvero fl frákr o i6alinin
Silkitau, svart og mislitt í blúsur og svunfur.
Tvisttau tvíbreitt frá kr. 0.45—0.55 alinin.
Flónel. Lasting frá kr. 035
Stór sjöl, svört og mislit frá kr. 9.75.
Höfuðklútar o. m. fl.
Nýkomið í
Brauns verzlun.
Hneykslanleg ofsókn.
Ósannindi borin út
og rekin aftur.
Á fimtudaginn fekk Norðurland svo-
hljóðandi símskeyti frá blaðinu »Ríki«
í Reykjavík:
Að undirlagi stjórnarráðsins hafa
heimas/jórnarblöðin í gœr átbreilt þau
ósannindi að Skúli Thoroddsen hafi
aldrei komið til Rúðuborgar í sumar.
Skúli sannar veru sína þar af Hótel-
reikningi (þaðan úr borginni).
Almenn gremja yfir framkomu stjórn-
atráðsins.
>1« *
*
Úr annari átt úr höfuðstaðnum hefir
»Norðurland« fengið nokkuð frekari
símfregnir af þessu.
Af góðvild sinni mikilli til Skúla
Thoroddsen, hafði stjórnarráðið símað
fyrirspurnir um Skúla til Frakklands.
Fyrst var símað til gistihússins í Rúðu-
borg, þar sem Skúli hafði dvalið og
spurst fyrir um, hvort hann helði
komið þar. Svarað hafði verið eitthvað
á þá leið, að þar könnuðust menn
ekki við það. Aftur var símað til
danska konsúlsins í Rúðuborg og hann
spurður, hvort Skúli hefði komið til
hans. Svarið hafði verið neitandi. Aft-
ur virðist stjórnarráðið hafa leitt það
alveg hjá sér, sem þó hefði verið tölu-
vert kostnaðarminna, úr því það fór
að rengja Skúla, að biðja hann sjálfan
að afhenda sér eitthvert sönnunargagn
fyrir því, að hann hefði komið til
Rúðuborgar. Ekki þurfti annað en senda
bréf eða jalnvel síma til mannsins.
Þá var sönnunin fengin. En landið
mun þykja nógu ríkt til þess að snara
út nokkrum tugum króna fyrir slíkar
fyrirspurnir og svo hossar það æfin-
lega dálítið símatekjunum, sem þurfa
að vera sem hæstar, á pappírnum. En
um þessar skeytasendingar stjórnar-
ráðsins mætti ef til vill segja það
sama, sem bæjarfógetinn hér hafði
eftir stjórnarráðinu, að þingið hefði
ekki veitt fé til þeirra.
Vitanlega sönnuðu þessar upplýs-
ingar alls ekkert. Skúla bar engin
skylda til að heimsækja danska kon-
súlinn og á gistihúsinu gat hann vel
hafa verið, þó sá sem fyrirspurninni
svaraði myndi ekki til þess. Annars
er það haft eftir Skúla, að hann muni
ekki glögt, hvort hann hafi sjálfur rit-
að nafn sitt í bók gistihússins, eða
beðið þjóninn að gera það.
Hvort stjórnarráðið hefir verið ný-
búið að fá þessi merkilegu Frakklands-
skeyti, eða það hefir geymt þau um
stund, sjálfu sér til skemtunar og
landinu til uppbyggingar, veit »Norð-
urland« ekki, en hitt er víst, að fregn-
inni um þessi »svik« Skúla er laumað
út í heimastjórnarblöðunum rétt þegar
Skúli var að leggja af stað til kjör-
dæmis síns vestra.
Þó fór hér öðruvísi en. útlit er fyrir
að til hafi verið ætlast. Skipið fór 2
tímum seinna en áætlað var, svo með
herkjubrögðum náðist til Skúla áður
en hann var alfarinn, og gat hann af-
hent í Reykjavík Hótelreikninginn, er
tekur af öll tvímæli um þetta.
Varð þar lítið úr högginu, þó hátt
væri reitt, en þeir menn, er til þess
hafa stofnað, hverir sem þeir eru,
hljóta að standa sem glópar í augum
allrar þjóðarinnar.
Væntanlega reynir ráðherrann að
gera þjóðinni einhverja grein fyrir
þessu merkilega tiltæki stjórnarráðsins.
* *
*
Auðvitað mátti búast við því, að
heimastjórnarblöðin syðra léti dönsku
mömmu vita um þessa merkilegu upp-
götvun þeirra og stjórnarráðsins, og
því hafði Skúb Thoroddsen símað í
gær um það til »Politiken«. Símskeyt-
ið var lesið upp fyrir »Norðurlandi«
í íslenzkri þýðingu, og er vonandi haft
hér rétt eftir, þó einhverju kunni að
vera áfátt.
Skeyti Thoroddsens var á þessa
leið:
Málið svona vaxtð: Danski konsúllinn
í Rouen hefir gleymt íslendingnum.Aðhann
var nokkur til var mér ókunnugt um,
enda óviðkomandi. Tók mér gistingu á
„Hotel de la Poste", sem alþingisforseti
og sýndi skilríki fyrir því og tilgangifar-
ar minnar, frá frakkneska konsúlnum í
Reykjavik. Þrátt fyrir það, þó eg hefði
titkynt komu mina, var mér eigiveitt mót-
taka að opinberri tilstuðlun. Þeir sem
smáir eru gleymast. Eg tók málinu svo,
að eg hló að, og að öðru leyti á þann
hátt, sem mér þótti við eiga.
Hér rceðir um vanhugsaða kosninga-
brellu.
Hvað er Universal?
Stjórnarskrárbreytingin
og Danir.
Fréttaritari »Norðurlands« í Kaup-
mannahöfn skýrði frá því hér í blað-
iau 5. f. m., að sagt væri frá því f
Kaupmannahafnarblaðinu »Nationa!tid-
ende«, »að Kristján Jónsson ráðgjafi
hafi átt tal bæði við konung og ráð-
gjafana, og hafi þeir allir þvertekið
fyrir, að nokkur von væri um, að ís-
lendingar fengju að kippa ríkisráðsá-
kvæðinu burtu úr stjórnarskránni.«
Sjálfstæðisblöðin syðra gerðu fyrir-
spurn til ráðgjafans um, hvað satt
væri í þessari frétt, og hefir ráðgjaf-
inn aftur látið blöð sín flytja svar sitt.
Ráðherra kannaðist við, að þetta
hefði staðið t' »Nationaltidende«, en
frásögn blaðsins væri »algjörlega röng*.
»Hann hefði aldrei talað við dönsku
ráðherrana (alla*) um stjórnarskrár-
breytinguna og alls einu sinni hefði
hún borizt í tal við forsœtisráðherrann
og hefði hann (forsætisráðherrann) ekki
látið neitt álit í Ijósi um hana, hvorki
með né móti.« Konungur hefði feng-
ið þýðingu af stjórnarskrárbreytingunni
og sé það sem sagt sé um álit kon-
ungs >algjörlega gripið úr lausu lofii.«
Að því er konunginn snertir, má
telja svar þetta fullnægjandi, enda alls
hins bezta að vænta úr þeirri átt. En
að því er snertir ráðgjafana dönsku,
þá er svarið óneitanlega æði loðið.
Kr. J. hefir »aldrei« talað við »a//a«
dönsku ráðherrana um málið. Fyrir
því gæti hann vel hafa talað við þá
flesta, og er þá alls ekkert um það
sagt, hvað þeir hafi lagt til; það eitt
sagt, að forsætisráðherrann hafi ekki
látið neitt álit f Ijósi.
Annars virðast þessi ummæli ráð-
herra vors bera það helzt með sér,
að engin veruleg fyrirstaða muni verða
þar syðra fyrir þvf, að ríkisráðsákvæð-
inu sé kipt f burtu úr stjórnarskránni,
ef íslendingar sjálfir hafa vit á því að
verða samtaka um það. Er þá ekki
ósennilegt, að greinin í »Nationaltid-
* Auðkent af »N1.".
ende« sé eftir einhvern danskan ís-
iending, sem nú, sem stundum oftar,
sé dansklundaðri en Danir sjálfir.
Ailur heimurinn þekkir Universal.
Aðvaranir og sektir fyrir
óleyfilega áfengissölu
á Siglufirði.
Tollsvik?
Strax þegar kunnugt varð á Siglu-
firði um rannsóknina á áfengismagni
á Hansaölinu, þá sem frá var skýrt í
síðasta blaði, tilkynti lögreglustjórinn
þetta veitingamönnum á Siglufirði og
aðvaraði þá um, að þeir yrðu látnir
sæta sektum, ef þeir seldu öl þetta
framvegis. Er sagt frá þessu manna
á meðal eins og stórtíðindum, að lög-
reglustjórn geri skyldu sína, að því
er áfengislöggjöfina snertir. Strax á
eftir varð eins og gjörbreyting á bæn-
um. Varla sást drukkinn maður og
sýnir þetta allglögglega, hvort »Norð-
urland« hefir ekki farið nærri um það,
að lögreglustjórninni sé einni um það
að kenna, ef Siglfirðingar »hafa ekki
lífsgrið og lima fyrir druknum útlend-
ingum«. Þó var fljótlega farið að brjóta
þetta bann lögreglustjóra, og varð það
til þess, að tveir veitingamenn Jiar
hafa verið sektaðir, þeir Þorvaldur
Atlason, er fékk 100 kr. sekt, og
Guðmundur Bíldahl, er fékk 40 kr.
sekt.
Ennfremur varð brytinn á »Courier«
uppvís að því, að verzla óleyfilega
með vínföng á Siglufirði, og hlaut fyrir
það 300 kr. sekt og 25 kr. máls-
kostnað.
Ennfremur er brytinn á »Vestra«
sakaður um að hafa gert sig sekan
í sama broti, og verður það mál út-
kljáð, þegar skipið kemur aftur til
Siglufjarðar.
Ennfremur er talið vel á veg komið
að sanna tollsvik á áfengi þar á Siglu-
firði, en það mál mun heyra undir
lögreglustjórann á Akureyri, svo ein-
hver dráttur kann að verða á því máli.
Hefir þú reynt UNIVERSAL?
Myndastytta Jóns Sigurðssonar
er loks komin til Reykjavíkur og
komin á stali í stjórnarráðsgarðinum.
Verður hún afhjúpuð á morgun. Mun
formaður nefndarinnar, Tryggvi Gunn-
arsson, ætla að tala þar, en láta syngja
eitt kvæðið enn, í þetta sinn eftir Þor-
stein Gfslason. Vonandi verður það með
hæfilegum heimastjórnarkeim, svo hægt
verði að veita því viðtöku í Skírni.
Hér með tilkynnist vinum og
vandamönnum að okkar ástkæri
faðir Sigurður fónsson audaðist
7. þ. m.
Jarðarförin fer fram, mánu-
daginn 18. þ. m., og byrjar í
Akureyrarkirkju kl. 12 á hd.
Jðhanna Sigurðardóttir.
Valgerður Sigurðardótfir.
DrykKjuKrám lokað.
Eftir símskeytum.
Fyrir dómstólum í Reykjavík hafa
undanfarið verið mál nokkur út af tveim
klúbbum, þar sem áfengisveitingar fóru
fram. Voru þeir miður vel séðir af
templurum og fleiri, en verndaðir gagn-
vart almenningsálitinu af bannfénda-
blaðinu Ingólfi. Klubbar þessir nefndust
Borgaraklúbbur og Bentzonsklúbbur.
Samkvæmt símskeyti frá stórtemplar
voru mál þessi dæmd af yfirrétti 4.
þ. m. Fekk Borgaraklúbburinn 100 kr.
sekt, en Bentzonsklúbbur 150 kr. sekt
og málskostnað að auki. Undirdómur-
inn hafði sýknað Borgaraklúbbinn.
Strax þegar dómurinn var birtur, var
báðum þessum klúbbum lokað af lög-
reglunni, en löghald lagt á vínfanga-
birgðirnar.
óXUtS£ UN/VERSAL.
í lok vertiðar
um 10. þ. m. kvað vera von á »Is-
lands Falk« hingað norður til strand-
gæzlunnar. Honum mun þá ætlað, ef
af verður, að mæla út þá staði, þar
sem talið er, að skipin »Albion« og
»Herlö« hafi verið staðin að ólöglegri
veiði, því bæði synja þau fyrir að svo
hafi verið.
Síðar.
Fálkinn kom í gærkvöldi til Siglu-
fjarðar. Hafði yfirmanni skipsins ver-
ið sýndar mælingar þær, er gerðar
voru af stað þeim, þar sem »Herlö«
var staðinn að veiðum, og taldi hann
þær að öllu leyti fullnægjandi og enga
þörf á, að hann færi á staðinn. Skip-
ið verður því vitanlega sektað.
Úr Suðurmúlasýslu.
Símað er af Seyðisfirði að þeir Jón-
arnir séu nýbúnir að halda fund á
Norðfirði. Höfðu þar komið til þeirra
um 20 sálir, en undirtektir og viðtök-
ur verið hinar daufustu.
SildarbræOsla á Hialteyri
Um þessar mundir er verið að leggja
upp allmikið af síld á Hjalteyri og þar
kominn álitlegur haugur, 7—8 þús.
máltunnur. Skipið Evreka á Siglufirði
ætlar að vinna úr þessu og að sögn
taka þarna um 20,000 máltunnur síldar,