Norðurland - 09.09.1911, Blaðsíða 3
143
N I
Vegna flutnings
verður verzlun Sig. Sig-
urðssonar lokuð næstk.
fimtudag og föstudag
(14. og 15. þ. m.).
Verzlun
Sig. Sigurðssonar.
Akureyrarbúar
sem þurfa að kaupa
slátur
í haust, ættu að panta pau sem
fyrst í
Carl Höepfners verzlun.
A llir sem skulda verzl-
un Sig. Sigurðsson-
ar á Akureyri, áminnast
hérmeð um að borga
skuldir sínar fyrir 10. okt-
óber n. k.
Skuldir þær, sem ekki
eru greiddar fyrir þann
tíma, eða samið um á
annan hátt, verða af-
hentar málafærslumanni
til innheimtu.
Sláfurfé
verður borgað bezt í
Carl Heepfners
verzlun.
Herferð Jörundar.
Þó »ekkert fé sé veitt til þess í
fjárlögum*, var flóabáturinn »Jörund-
ur* sendur héðan einn dagiun, til
þess að Hta eftir brotlegum fiskimönn-
um í landhelgi. Skipið tók á Siglu-
firði þá Vigfús Einarsson lögreglu-
stjóra og aðstoðarmann hans, Guð-
mund Guðlaugsson. Lagði skipið svo
út og hugði á bráð. En brotlegir
veiðimenn sáust hvergi og kom skip-
ið heim við svo búið.
Langsennilegast að frétt um þetta
hafi verið komin til Siglufjarðar á
undan skipinu, því hér var þetta á
vitorði margra manna áður, hvað tii
stóð.
Má af þessu læra, að ekki nægir
að hafa »hraðskreið skip« eða »nýti-
leg vopn«, heldur þarf líka dálítið af
fyrirhyggju.
Docentsembættlð f gruðfræðf.
Um það hafa sótt þeir séra Guð-
mundur Einarsson prestur í Olafsvík
og Magnús Jónsson cand. theol., sá
sem ágætiseinkunnina hlaut frá presta-
skólanum síðastliðið vor.
UNIVERSALer óbrigðult meðal við
gigt og taugagigt.
Dilka, veturgamalt fé og sauði
kaupir
Gránufélagsverzlur)
-5E0 móti vörum og peningum
eftir samkomulagi.
HÆNUEGG
eru keypt og borguð langhæsta verði í
brauðgerðarhúsi
C. Höepfners.
k Enn fremur hænuungar eins og að-undanförnu. A
Þurrar og hreinar
mr gærur
borgar
Gi án ufélags vei zlun
með peningum.
Erlend tíðindi.
Höfn, 17. ág. 1911.
Hœrra í loft upp en nokkur áður
hefir komist komst Frakkinn Felix ný-
lega; náði hann 3490 stikna hæð og
var rúman klukkutfma að því, en þurfti
ekki nema 12 mínútur til þess að
komast niður aftur.
Morð var nýlega framið á Jótlandi.
Varð það með þeim hætti, að nótt
eina var kallað á lögregluþjón einn,
Jensen; hélt hann að einhver þyrfti á
hjálp sinni að halda og fór því út í
myrkrið, þaðan sem kallið kom. Dag-
inn eftir fanst hann örendur með skot-
sár í höfði. Enginn veit enn, hver
framið hefir.
Nýlátnir merkismenn. Hinn heims-
frægi hollenzki málari Jozef Israels
lézt nýlega, 86 ára gamall. Hefir hann
málað fjölda mynda, er snerta líf hol-
lenzkra sjómanna, og eru þær frægar
um allan heim.
Þá er nýlátinn Norðmaðurinn J. D.
E. Lieblein prófessor, frægur mað-
ur fyrir rannsóknir sínar og þekkingu
í forn-egypzkum fræðum.
Þýzka blaðið »Deutsche Tageszeit-
ung« flutti nýlega grein um ísland og
Danmörk; minnist það á frelsisbaráttu
íslendinga og lastar Dani um leið;
segir, að Danir geri ekki annað en
reyna að kúga alla frelsis- og skiln-
aðar-baráttu íslendinga, og væri þeim
Dönum nær að skara í eld föðurlands-
ástarinnar f Slésvík.
%
Flest er notaA.
»Nota flest í nauðum skal« — —
mega þeir segja heimastjórnar-undir-
róðursmennirnir út um landið.
»N1.« frétti eina skemtilega sögu
þessu til sönnunar vestan úr Húna-
vatnssýslu, rétt nýlega. — Þar er það
borið út af undirróðursmönnum heima-
stjórnarinnar, að Björn Sigfússon um-
boðsmaður á Kornsá sé mjög andvi'g-
ur afnámi eftirlauna embættismanna,
og má nærri geta í hverjum tilgangi
þetta er gert.
Hinsvegar vita það allir kunnugir
og þeir, sem satt vilja segja, að B.
S. er einn þeirra manna á þingi —
og hefir verið svo lengi — er ákveðn-
ast fylgir fram afnámi eftirlauna em-
bættismanna, enda alt annað en vel
séður fyrir það í samábyrgðarhópnum.
A síðasta þingi studdi hann rækilega
frumvarpið um stórkostlega lækkun á
ráðherraeftirlaunum, en eins og kunn-
ugt er tókst konungkjörnu samábyrgð-
arsveitinni í efri deild að koma því
fyrir kattarnef.
íslenzk kona látin erlendis.
í sumar 30. júlí andaðist í Aars á
Jótlandi læknisfrú Þórunn Baldvinsdótt-
ir frá Bollastöðum í Húnavatnssýslu,
kona Stefáns læknis Stefánssonar. —
Guðm. Hannesson læknir ritar um
hana f »ísafo!d« meðal annars: »Hún
var fögur kona, sköruleg í framgöngu,
bæði vel gáfuð og vel mentuð, og
auk þess góð kona, góð húsmóðir og
góður íslendingur. . . . Heimili þeirra
læknishjónanna var einkennilegur alís-
lenzkur blettur þar á józku heiðunum.*
Þau voru systkinabörn frú Þórunn
sál. og ritstjóri blaðs þessa.
Universal
fæst á flestum verzl-
unarstöðum landsins.
Brúðkjólakaupin.
»Vel þarf að vanda það sem lengi
skal standa" sagði konan. — Það
er gamall þjóðar siður íslendinga,
að vanda vel til brúðarklæða fyrst
og fremst brúðgumans og þá ekki
síður brúðurinnar. Þess vegna var
það, að öldruð hefðarkona úr Þing-
eyjarsýslu, sem nýlega var hér í
bænum og hafði verðið fengin til
þess að vera í ráðum með að velja
efni í bfúðarkjól, gafst alveg upp,
um stund. Hún hafði skoðað efni
í brúðkjóla í mörgum búðum, en
gat hvergi fengið það svo henni
líkaði, því alt af var eitthvað að því,
stundurn var það að vísu fáanlegt
sem var úr allgóðu efni, en þá var
það svo rándýrt að það var ókaup-
andi og liturinn var líka ótraustur.
I slæmu skapi fór því konan inn til
vinkonu sinnar, frú N. N., sem er
nýgift hér í bænum og sagði henni
vandræði sín, þegar þær voru að
drekka kaffið. — „Já, en elsku bezta!
Hefirðu komið til Gudmanns? sagði
frú N. „Nei, það held eg ekki, eg
ruglast svo í þessum búðum," svar-
aði hin. „Sú búð er þó auðþekt,"
sagði frú N. „Það er langt hús f
Hafnarstræti, skamt innan við hafn-
arbryggjuna á Akureyri, með fimm
stórum gluggum á hliðinni, sem ait
af eru fullir með allskonar vefnaðar-
vöru. Og nú skaltu heyra! Þar á að
kaupa allar vefnaðarvörur, þar er lang-
mesl úrval, þar eru bestar vörur og
haldgóðir litir og svo er þar svo
langódýrast hlutfallslega eftir
gæðum. Þar keypti eg og maðurinn
minn í okkar giftingarföt og þar
átt þú að kaupa þetta sem þig vant-
ar." „Blessuð kondu með mér þang-
að,« sagði gamla konan. Svo fóru
þær báðnr og komu aftur út úr
búðinni mjög ánægðar á svip. Og
síðan hefir gamla konan sagt við
vinkonur sínar: *Kaupið allar vefn-
aðarvörur, hverju nafni sem nefnast í
Vefnaðarvöruverzlun
Gudmanns Efterfl.«
Veðursímskeyti til JJIs
frá 27. ágúst til 9. sept. 1911.
| Ak. Rl j ís. j Rv. Þh
s. 8.0 5-4 5-2 6.7 9-4 8-5 9-5
M. 6.0 3-2 5-4 5-1 5-5 9.0 9-4
Þ. 5-o i.S 5*4 2.2 4.2 6.0 10.2
M. 4.8 5-0 2.0 4.2 5° 7.0 8.6
F. 12.5 125 14.8 »i-5 7.6 8.3 12.3
F. 7-5 7.0 10.2 6.7 6.4 3-o 11.4
L. 7-5 7-4 6..S 6-5 7-4 7.0 11.6
S. 6-5 6.8 6.8 6.2 6-5 6.5 10.0
M. 6.7 5° 3-6 8.2 6.1 6.8 9.0
Þ. 8.8 9.0 7-5 7-4 7-5 10.0 13.0
M. 7-5 8.2 7-3 7-4 8.7 9-5 11.2
F. 7-5 6-3 7-i 8.1 8.0 8.0 10.0
F. 6.0 3-8 8.8 6.4 5'° 8.0 9.7
L. 8.2 4-5 5-i 8.2 7-3 7.6 8.4
Kl. ( . h.) 7 — 7 - 6 — 7 — 7 — 7 — 6
Slóferð kvartilsins.
Kært kvað hafa verið fyrir lögreglu-
stjóra hér nýlega, að vínkvartil hafi
verið dregið í land í Hrísey, að næt-
urlagi eftir komu skipsins »Ingólf« þar
á höfnina.
Ráðstafanir lögreglustjóra' ókunnar.
Ofiarl landsstiórnarinnar.
Stjórnarblöðin guma mikið af því að
von sé um, að sakamál verði höfðað
gegn skipstjóranum, sem flutti þá út
nauðuga sýslumanninn og hreppstjór-
ann úr Barðastrandarsýslu og eigna
það núverandi ráðherra.
Varla tekur það því að þræta um
þá »röggsemi« Iengur; nú hefir annar
orðið landstjórninni ofjarl. Skipstjórinn
er sem sé dauður og þá væntanleg^
hafin upp yfir lögin.