Norðurland - 12.07.1913, Qupperneq 1
NORÐURLAND.
28. blað. j Akureyri 12. júlí 1913. j XIII. ár.,
Cai Isbeig Biyggei Lm
mæla með
Carlsberg MLörk Skattefri
—------áfengislítið — efnisvandað — bragðgott — endingargott. — — — —
Carlsberg Skattefri Porter
efnismestur af öllum Porter-tegundum
Carlsberg Mineralvand
áreiðanlega bezta sódavatn.
Komið inn í vefnaðarvörudeildina í verzluninni
smr PARÍS tp*
á Ákureyri.
Aldrei hefir komið hér í nokkra verzlun f einu, eins mikið og fjölbreitt úr-
val af tilbúnum karlmannafatnaði. (Verð frá kr. 9.50 fyrir alfatnað)
drengjafatnaði, erfiðisfötiim, jökkum, Waterproofkápur
handa körlum konum og börnum. Nýmóðins yfirfrakkar mikið úrval.
Nærfatnaður alskonar, stærsta úrval í bænum.
Skófatnaður afarmikið úrval, þar á meðal nýmóðins dömuskór, sandalar,
»Hedebo«-skórnir frægu, sjóstígvél o. fl. o. fl.
Fataefni fást hvergi á Norðurlandi jafn fjölbreitt og ódýr.
Ennfremur mjög fjölbreytt og ódýr önnur vefnaðarvara. Gjörið svo vel
að koma inn og skoða vörurnar. Það borgar sig.
í matvöru- Og járnvörudeildinni fæst flest það er menn þarfnast.
Flestar íslenzkar vörur teknar með hæsta verði.
Virðingarfylst.
Sigvaldi Þorsteinsson.
Hjúkrunar og lækningaáhöld
nýkomin í verzlun
Jóþ. Þorsteinsson Hamborg.
Svo sem: Umtúðir, bindi, sprautur, útskolunartæki, sjúkra- og bakstra-
dúkur, hitamælar, kviðslitsumbúðir o. fl. þessh.
Ennfremur margar teg. af
öli frá »De forenede Bryggerier«, maltextrakt
með og án járns.
Frumvarp til laga
um
hagstofu íslands.
(Lagt fyrir alþingi 1913.)
1. gr.
Það skal falið sérstakri stofnun að
safna skýrslum um landshagi íslands,
vinna úr þeim og koma þeim fyrir al-
mennings sjónir. Stofnunin nefnist hag-
stofa íslands, og stendur beint undir
ráðherranum.
2. gr.
Meginatriði landshagsins, þau, er
hagstofunni ber sérstaklega að afla
sannfróðleiks um, teljast þau er nú
skal greina:
1. Fólksfjöldinn: a, manntöl, b, fæð-
ingar, hjónabönd, mannslát og fólks-
flutninga.
2. Löghlýðni: dómsmál, þar með einka-
mál, sáttanefndarmál, sakamál og
lögreglumál.
3. Atvinnuhagir landsins: a, landbún-
aður, b, iðnaður, c, fiskiveiðar alls-
konar, d, iðnaður og verzlun, þar
með viðskifti banka og sparisjóða
og annara opinberra lánsstofnana.
4. Stjórnmálaástand: a, fjárhagur lands-
ins, sýslufélaga og sveitarfélaga, b,
notkun kosningarréttar til alþingis.
5. Efnahagur og fjárhagsleg kjör lands-
manna: a, tekjur af eign og atvinnu,
b. virðingarverð jarðeigna og þing-
lesnar veðskuldir á þeim, c, virð-
ingarverð húseigna mað lóðum og
veðskuldir á þeirn, d, verð skipa
og báta og veðskuldir á þeim.
6. Opinberar eignir til almennings-
nytja, a, vegir og brýr, b, ritsím-
ar og talsímar, c, póstflutningar.
Auk skýrslna um framangreind at-
riði vinnur hagstofan að skýrslum, sem
hér eftir kunna að verða lögboðnar
eða fyrirskipaðar af landsstjórninni,
eða hagstofan sjálf óskar eftir í sam-
ráði við hlutaðeigandi stjórnarvöld.
3- gr-
Hagstofan á að aðstoða landsstjórn-
ina með hagfræðisútreikningum og
skýringum, er hún óskar eftir, og
gefa henni álit og upplýsingar, þegar
þess er leitað.
Landshagsskýrslur skulu koma út
svo fljótt sem unt er, jafnóðum og
þær eru tilbúnar frá hendi hagstof-
«nnar.
Arlega skal gefa út stuttan útdrátt
úr landhagsskýrslum sfðasta árs, með
þýðingum á eitthvert hinna þriggja
aðal-mentamála.
4- gr-
Öll þau störf viðvíkjandi söfnun og
móttöku landhagsskýrslna, samkvæmt
gildandi lögum, reglugjörðum o. fl.
er nú hvíla á stjórnarráði íslands, hefir
hagstofan á hendi eftirleiðis.
Heimilt er hagstofunni að fyrirskipa,
að skýrslur, sem hingað til hafa verið
sendar frá hreppstjórnarvöldum eða
einstökum mönnum til sýslumanns,
séu sendar beint til hagstofunnar, og
getur hún endursent til leiðréttingar
skýrslur, er henni þykja ófullnægjandi,
heimtað frekari upplýsingar, með þeim
viðurlögum, sem lög greina um vanrækslu
í því, að inna af hendi lögmæt skýrslu-
skil.
5- gr-
' Hagstofunni stýrir forstjóri, skipað-
ur af konungi, og hefir hann sér við
hönd 1 aðstoðarmann, sem skipaður
er af ráðherra.
Forstjóri hagstofunnar hefir að byrj-
unarlaunum 3000 kr., er hækka um
200 kr. þriðja hvert ár upp í 4200
kr.
Aðstoðarmaður hefir að byrjunar-
launum 2000 kr, er hækka um 200
kr. þriðja hvert ár upp í 3000 kr.
6. gr.
Til stofnsetningar hagstofunnar veit-
ast alt að 3000 kr. af landssjóði.
Arskostnaður til húsaleigu, ljóss og
ræstingar, svo og til aukavinnu, prent-
unarkostnaðar og venjulegs skrifstofu-
kostnaðar veitist á fjárlögunum fyrir
hvert ár.
7- gr-
Lög þessi öðlast gildi 1. jan. 1914.
Stúdentar
urðu ekki færri en 29 nú um mán-
aðamótin. Þeir fengu þessar einkunnir:
Einar Guðmundsson . . stig 66
Eiríkur Albertsson ... — 54
Erlendur Þórðarson ... — 72
Halldór Gunnlaugsson . . — 70
Haraldur Thorsteinsson . . — 52
Hinrik Thorarensen ... — 68
Jakob Einarsson .... — 66
Jón Benediktsson .... — 74
Jón Bjarnason..................— 78
Jón Dúason ...... — 67
Jón Sveinsson..................— 55
Karl Magnússon .... — 59
Kristján Arinbjarnarson . . — 58
Kristmundur Guðjónsson . — 57
Leifur Sigfússon .... — 69
Páll Ólafsson..................— 63
Páll Skúlason..................— 71
Ragnar Hjörleifsson ... — 60
Sigurgeir Sigurðsson ... — 57
Snorri Halldórsson ... — 70
Valgeir Bjarnarson. . ■ . . — 68
Utan skóla:
Gunnar Jóhannsson . • . stig 55
Helgi Hermann .... — 65
Kjartan Jónsson .... — 57
Páll Guðmundsson ... — 58
Rögnvaldur Waage ... —55
Sigfús Blöndal.............— 67
Tryggvi Hjörleifsson ... — 54
Þorkell Erlendsson ... —62
Einn piltur gat eigi gengið undir
stúdentspróf vegna veikinda.
Vinnubækur, tvenskonar, bæði fyrir
vinnuveitendur og verkamenn,
Vinnusamningar,
Vinnuskýrslur,
Vikuseðlar
fást í prentsmiðju
Odds Björnssonar.
Við undirritaðir umráðendur af-
réttanna í Suður-Fnjóskadal tök-
um þetta sumar og framvegis f
hagatoll 5 aura fyrfr hverja kind, sem
er tekin eftir rúning en 7 aura fyrir
hverja kind, sem rekin er fyrir rún-
ing og 2 krónur fyrir hvert trippi.
Fylgi ekki áreiðanleg tala fénu til
afréttar, þá verður hagatollur og
gangnaskil miðað við framtal fjáreig-
enda á vorhreppaskilum.
Sörlastöðum, Snæbjarnarstöðum,
Tungu og Reykjum.
21. júní 1913.
Ouðm. Ólafsson, Ólafur Pálsson,
Jón Ólafsson, Siglryggur Jónatansson,
Gunnar Jónatansson.
4 botnvörpuskip
hafa nýskeð verið sektuð f Vest-
mannaeyjum. Það var »Islands Falk«
sem skipin tók, en eftir tilvísun manna
úr landi. Alls námu sektirnar og fé
það, er fékst fyrir afla og veiðarfæri,
um 12 þús. kr.
Hér með er öllum stranglega
bannað að fara inn í mat-
jurtagarðinn við
Glerárfoss að viðlögðum
sektum.
Bændagerði 14. júní 1913.
Eigendur matjurtagarbsins.
Sklptapl-
Bátur fórst í fiskiróðri 19. f. m. á
boða undan Hafnarnesi við Fáskrúðs-
fjörð, skamt frá landi. Voru á þrír
Reykvíkingar og týndust allir: Bjarni
Hannesson formaður, af Grettisgötu
50; lætur eftir sig aldraða móður;
Tómas Halldórsson (kennara Guð-
mundssonar) skósmiður; ekkjumaður,
átti mörg börn og aldraða móður;
og Sveinn Einarsson unglingspiltur
frá Bergstaðastíg 27, átti hér foreldra
og systkyni. (Vísir.)