Norðurland - 05.01.1914, Blaðsíða 1
NORÐURLAND.
Akureyri. 5. janúar 1914.
XIV. ár.
Vetrarmorgun.
Nceturhiminn hreinn og fagur
hýran vetrarmorgun boðar.
Fjalls við brúnir blikar dagur,
bjarminn fyrsti loftið roðar.
Nóttin saman vœngi vefur,
veifar dagur Ijósatrafi;
alt er kyrt, hver andblœr sejur,
engin bára rís á hafi.
Fcerist skín af árdagseldi
yfir skörð og fjallatinda;
hnjúkar klceddir fannafeldi
fagurt gull að enni binda.
Svellabreiðu skygðir skildir
skarta vel á björtum klœðum.
Ljósir skuggar mjúkir, mildir
marka gil og drög frá hœðum.
* *
*
kjósið burtu harmi hryndi,
hverfi andans myrkrið svarta.
Fagri morgun, frið og yndi
fcerðu hverju döpru hjarta!
9áll Jónsson.
i
llm láð og lög.
Simfréttir i dag.
•— Sigurður Nordahl magister hef-
r fengið heimspekisstyrkinn úr sjóði
^Qnnesar Árnasonar, 2000 krónurá
i fjögur ár.
— Ráðherra hefir nefnt i „fána-
nefnd“ til þess að athuga og gera
'dlögur um hvernig islenzki fáninn
(,Si aðverða, þá: Guðmund Björns-
°n landlœkni, fón fónsson sagn-
^ceðing, Matthías Pórðarson forn-
^njavörð, Ólaf Björnsson ritstj. og
ýr- B. Porláksson málara. Nefnd-
’n hefir kosið Guðrnund formann og
^ntthias fyrir skrifara nefndarinnar.
— Guðm. Magnússon skáld („Jón
‘rausti“) er orðinn aðstoðarmaður
Q Þriðju skrifstofu í stjórnarráðinu.
~~ Blaðið „Reykjavík“ hætti að
ýnta út um áramótin. Verður að
UiSn sameinað „Lögrétiu.“
~~ Hagstojan tóktil siarfa 1. jan.
~~ Dráttur i lotteriinu um „Ing-
‘fshúsið“ fór fram annan dag jóla.
ntteríseðillinn 8665 hrepti húsið.
^gandi seðilsins erPórhallur Bjarna-
*°n biskup.
~~ Ólafur Magnússon bókhaldari
l° Ásgeirssons verzlun á ísafirði
Qndaðist i Reykjavik 3. þ. m.
,~~~Á gamlaárskvöld strandaði
°tnvörpungur frá Hull í Kollavík
lstra- Mannbjörg varð með miklum
vsháska.
. ~~~ >,Force“ eimskip mikið er Zöll-
*rkonsúll í New-Castle hejir haft
/ýrum undanfarin ár strandaði á
i'ð fQnesi ° nýársdag. Pað var hlað-
^Pskifrá „Miljönafélaginu. “ Farm-
i$Urn Varð bjargað að mestu en skip-
jkkga með öllu ónýtt.
bevir- kjörskrá til bœjarstjórnar í
MJavlk eru 3964 kjósendur.
Cailsbeig Jerne
mæla með
Carlsberg MLörk Skattefri
— — — —■ áfengislítið — einisvandað — bragðgott — endingargott. — — — —
Carlsberg Skattefri Porter
efnfsmestur af öllum Porter-tegundum.
Carlsberg Mineralvand
áreiðanlega bezta sódavatn.
— Á pósthúsinu í Reykjavik voru
um áramótin 600 óskilabréf. Á gaml-
ársdag og nýársdagsmorgun bar
bæjarpósturinn í Rvik út um bæinn
11619 bréf og kort.
— Nýárssundið fór fram 1. jan-
úar eins og að undanförnu. Sund-
kóngur varð Erlingur Pálsson og
synti 50 stikur á 3395 sekúndu. Pað
er i þriðja skifti sem hann vinnur
sundbikarinn svo hann fékk hann nú
að fullu til eignar. Keppendur voru
6. Erlingur fer fljótlega til Lund-
úna (með 500 kr. styrk úr lands-
sjóði) og ætlar að búa sig undir
heimskappsund i sundhöllunum þar.
— Dómkirkjuprestarnir í Rvik
söfnuðu fyrir jólin 1300 kr. og fri-
kirkjupresturinn 650 kr. et var skift
milli 500 fátœklinga til jólaglaðn-
ings.
X
Fáninn í Höfn.
Símað er í dag frá Kaupmannahöfn
til Reykjavíkurblaðanna:
Bluhme gamli kommandör (var hér
í konuugsförinni 1907) hefir skrifað
langa ritgerð i „Hovedstaden“ um
fánamálið og fylgir þvi fast fram að
fáni íslands eígi að verða alveg ó-
breyttur framvegis eins og að undan-
förnu þrátt fyrir konungsúrslcurðinn.
Tekur skarpt fram eðlismismun stað-
arflaggs eða krossfánans með Grikkja-
merkinu og islenzka fánans sem eigi
að verða. Átelur rœðu Hafsteins i rík-
isráðinu. Likir saman Dannebrog og
hinum vœntanlega íslandsfána eftir
konungsúrskurðinum.
Retta skeyti er nokkuð óljóst en það
sýnir þó að Danir eru íllir í skapi yf-
ir úrslitum fánamálsins. Annars er ritstj.
Nl. persónulega kunnugt um að Bluhme
flotaforingi er velviljaður íslandi og ís-
lendingum og segist unna þeim alls
réttlætis.
. X
Heimastlörnarfélaz Akureyrar
hélt fjölmennan fund miili jóla og
nýárs. Fundarmenn lýstu eindregið
trausti sfnu á núverandi ráðherra, en
hinsvegar kom það greinrlega fram
að menn þóttust enga ástæðu sjá til
að kasta hinu gamla flokksheiti sínu
til þess að ganga í Sambandsflokkinn
þó menn væru höfuðstefnum hans sam-
mála. Var álitið að oddvitar Sambands-
flokksins gerðu réttara f að ganga í
Heimastjórnarflokkinn en halda hinum
til streitu, vegna þess að Sambands-
flokkurinn væri »liðlaus foringjaflokk-
ur« eins og Björn ritstjóri Norðra
komst heppilega að orði. — Að lok-
um var samþykt þessi tillaga með 52
atkvæðum: >'Með þvf að Heimastjórn-
arfélag Akureyrar er í öllum höfuð-
málum sammála Sambandsflokknum er
stofnaður var á síðasta þingi, heitir
félagið Sambandsflokknum samvinnu
við næstu þingkosningar.*
Akureyri.
Brúðkaup sitt héldu á gamlárskvöld
ungfrú Margrét Valdemarsdóttir leik-
kona og Jón Þorvaldsson kennari á
Hólum f Hjaltadal.
Látin er á sjúkrahúsinu Guðríður
Egilsdóttir kaffisölukona móðir Þor-
kels Klemenz vélfræðings í Reykjavík.
Á gamlárskvöld var flugeldum skot-
ið vfða í bænum eins og nú tíðkast
um hver áramót og verja bæjarbúar
til þess talsverðu fé. Ennfremur höfðu
ýmsir yngri menn brennu mikla á
Krókeyrinni innan við kaupstaðinn.
Kosningar í bæjarstjórn Akureyrar
fóru fram á laugardaginn og var tals-
vert kapp um þær. Tveir listar komu
engum fulltrúa að og var »kvenna«-
listinn annar þeirra Kosningu hlutu:
Asgeir Pétursson kaupmaður, Otto
Tulinius konsúll, Björn Jónsson ritstj.
og Bjarni Einarsson skipasmiður.
Bjarni fónsson útbússtjóri íslands-
banka hefir fengið lausn frá bæjarfull-
trúastarfi sfnu frá 1. þ. m. og verður
því kosinn fulltrúi f hans stað bráð-
lega fyrir þann tíma er hann átti eft-
ir að sitja í bæjarstjórninni.
Afiansöng hafði Geir vfgslubiskup
Sæmundsson á gamlárskvöld, eins og
hann er vanur. Þar voru hátíðatón-
ljóð séra Bjarna á Siglufirði sungin
(og einnig við allar guðsþjónustugerð-
ir hér um hátíðina.) Kirkjan á Akur-
eyri er svo lítil að hún tekur ekki
helming þeirra er þangan vilja kom-
ast á hátíðum og er orðin megn óá-
„o-gjo yfir því meðal bæjarbúa, og
einnig er hún á óheppilegum stað í
bænum. A gamlárskvöld var bezta veð-
ur og bæjarbúar fúsir til að hlýða á
aftansöng, en margir fóru fýluferð vegna
þrengsla í kirkjunni — urðu að snúa
aftur við dyrnar.
Edvald Möller fór héðan á mánu-
daginn á vélarbát til Haganesvíkur til
þess að taka þar við forstöðu verzl-
unar »De forenede Islands Forretn-
inger«.
Brauns verzlun (Baldv. Ryel) sendi
á gamlársdag til viðskiftamanna sinna
laglegt dagatal fyrir 1914.
Söngskemtun hélt Kr. Möller frá
Blönduósi, hér í leikhúsinu, á sunnu-
daginn milli jóla og nýárs og var hún
vel sótt. Hann söng 12 lög og varð
að tvítaka sum þeirra vegna áheyrenda
er »klöppuðu hann fram« hvað eftir
annað. Möller hefir mjög góða rödá,
hljómmikla og þýða en hefir ekki enn
fengið næga æfingu. Með góðri kenslu
og hæfilegri æfingu er vafalftið að
hann gæti skipað sess meðal beztu
söngvara vorra.
Aúkafundur er í sýslunefnd Eyja-
fjarðarsýslu þessa dagana, til þess að
koma á fastan grundvöll stofnun korn-
forðabúrs með styrk úr gjafasjóði Jóns
Sigurðssonar. Það var Guðm. Guð-
mundsson dbrm. á Þúfnavöllum er
fyrstur kom hreyfingu á það mál, með
ritgerð hér í blaðinu í fyrra.
X
Farið vægilega með sKepnur!
Nú þegar snjónum hleður niður á
göturnar og veðrið er altaf vont og
gerir sérstaklega hestunum lífið súrt,
ætti hverjum þeim sérstaklega sem á
hest, að liggja þungt á hjarta að þess-
um þolinmóðu ágætis-skepnum líði
ekki ver en í hæsta lagi er nauðsyn-
legt. En það eru sorgleg sannindi að
það er eins og margir þeir sem fara
með hesta viti ekki að hestarnir hafa
næma tilfinningu og þekkja sársauka
eins og menn. Alt of oft sjást t. d.
ökumenn lemja veslings hestana af
öllum kröftum, þegar sleðinn situr
fastur í snjósköflunum og það sem
verra er, rykkja í taumana svo nærri
eru undur að hestarnir skuli ekki vera
snúnir úr hálsliðunum. Og þó menn
hljóti að sjá að hestinum sé alveg
ómögulegt að þoka sleðanum áfram
hamast þessir níðingar við misþyrm-
inguna í 10 — 15 mínútur í stað þess
að ganga í næsta hús, fá þar lánaða
reku og moka snjóinn frá sleðanum
svo hann losni.
Til allrar hamingju eru hér margir
umhyggjusamir og nærgætnir hesta-
eigendur og ökumenn sem láta sér
altaf ant um hestana, en þrátt fyr-
ir það er full nauðsyn á — fyrir
hestaeigendur — fyrir hestana — og
fyrir dýravini — að brýna sem bezt
fyrir öllum að vera nærgætinn við
hestana og að fara eins með þá og
menn vilja láta fara með sig. Ef öll-
um væri þetta hugfast, sem ekki að-
eins fara með hesta, heldur og öll dýr
og skepnur, mundu bæði menn yfir-
leitt og ekki síður mállausu vesaling-
arnir gleðjast yfir breytingunni.
Ennfremur er þess að vænta að
lögreglan taki í taumana og hafi aug-
un vel opin ef hún sér misþyrmingar
eiga sér stáð við varnarlausu skepn-
urnar — og sem hún, því miður,
líklega hlýtur að verða vör við.
«/12 >9>3' Dýravinur,