Norðurland - 03.10.1914, Qupperneq 1
NORÐURLAN D.
38. blað.
Akureyri 3. oKtóber 1914.
XIV. ar
Gjalddagi »norðurlands«
var fyrir i. maí. Kaupendur eru beðn-
ir að muna eftir að borga blaðið..
Sérstaklega eru þeir sem enn skulda
fyrir síðasta árgang ámintir um að
láta það ekki dragast lengur.
Símfréttir af strtðinu.
Fimtudag 10. sept.
Varakonungur Indlands símar að
hann hafi sent fjölda herliðs til
1 styrktar Bretum og eina miljón
sterlingspunda til herkostnaðar.
Búið er að kjósa nýjan páfa í
stað Píusar X. Fyrir valinu varð
ítalskur kardináli og kallar hann
sig Benedikt XV.
London. Símað er fr» Róm, að
einn hershöfðingi Serba, Vukowitch
að nafni, hafi tekið borgina Togi í
Bosníu og rekið paðan á flótta 10,000
af herliði Austurríkismanna, en tek-
ið nokkuð til fanga Þessi borg var
afar-ramlega víggirt og er talið að
taka hennar hafi mjög mikla hern-
aðarlega þýðingu fyrir afstöðu hers
1 Bosníu.
Símað var frá París í nótt, að þrátt
fyrir það þó Þjóðverjar auki herlið
sitt í Frakklandi afskaplega, sé þó
afstaða sambandshersins viðunandi
Þjóðverjar láta undan Frakkaher um
miðja herlínuna. Framsókn Breta og
Frakka sækist hægt, en sígandi.
Hægra megin í herlínunni hafa ó-
vinirnir (Þjóðverjai) ekki gert nein
áhlaup.
í Vogesafjöllunum og yfirleitt í
Elsass er engin veruleg breytíng í
afstöðu hersins.
Eitt af stærstu kaupförum heims-
ins wOceanic" eign White-Starlín-
unnar strandaði í nótt við norðaust-
drströnd Skotlands Skipið fórst með
öllu en allri skipshöfninni varð
bjargað.
London, föstudaginn 11. septbr.
Opinberlega er tilkynt frá flota-
málastjórninni að brezki flotinn hafi
sópað yfir alian Norðursjóinn í gær
°g dag. Fjandmennirnir (Þjóðverjar)
gerðu ekki neina tilraun til að hefta
tl>r brezka flotans. Þýzk skip voru
%gi sjáanleg á hafinu.
Opinberlega er tilkynt, að í fram-
“aldsorustunni í gær, milli Sam-
bandshersins og Þjóðverja, hafi fjand-
hiennirnir (Pjóðverjar) verið hraktir
^tur á bak eftir allri herlínunni.
Jíetar tóku 12 fallbyssur af Þjóð-
^fjum og fjölda herliðs til fanga
^er þjóðverja sagður nær úrvinda
Þeytu.
Asquith forsætisráðherra Breta,
Vsti yfjr pvf f enska þinginu í dag,
® Bretland gæti hæglega sent eina
f^bjón hermanna yfir til meginlands-
'ns ennþá, ef á þyrfti að halda og
þó landvarnarlið alt ósnert enn.
?.Ins og nú stæði væru Bretar að-
'ns búnir að kveðja til herþjónustu
^ þús. manns síðan stríðið hófst.
London, laugardaginn 12. sept.
Símað er frá Róm, að Serbar hafi
brotist inn yfir landamæri Austur-
ríkis við Semlín. Herlið Austurríkis-
manna virðist orðið mjög kjarklaust
og vera á tvístringi yfirleitt.
Alsherjarorustan í Frakklandi held-
ur enn áfram. Fjandmannaherinn
(Þjóðverjar) hörfar hratt undan og
í nokkurri óreglu fyrir austan Sois-
sons (skamt frá Reims) Bretar hafa
tekið þar til fanga 1500 af þýzku
riddaraliði, margar fallbyssur og
skotvopn og mikinn vistaforða.
Ennfremur hafði mikið af þýzku
herliði falið sig í skógum, fundu
Frakkar það þar óvörum og gafst
strax upp er það fanst.
Ymisleg önnur merki eru talin
til þess að Þjóðverjar séu að missa
kjaikinn.
Bretar sækja á eftir af miklu kappi.
London, sunnudag 13. sept.
Brezkar hersveitir hafa farið frá
Mourza og voru í morgun á hraðri
ferð á eftir óvinunum (Pjóðverjum).
f einum stað tóku þeir 200 Pjóð-
verja til fanga er höfðu numið stað-
ar dauðþreyttir til að hvíla sig.
Pjóðverjar hörfa í norðaustur frá
Vitry. Fyrsti aðalher Frakka hefir
tekið alt stórskotalið fyrsta þýzka
hersins.
Flugmenn sambandshersins hafa
flogið yfir alt ófriðarsvæðið og
meðfram landamærunum og segja
að Pjóðverjar hörfi hratt undan al-
staðar á Frakklandi.
Brezkur herflokkur af Ástralíulið-
inu tók í gær eftir mikla orustu
eyna Herbertshohe. Hún var stærst
af Bismarks-eyjunum.
London mánudag 14. sept.
í morgun var símað frá París:
Opinberlega er tilkynt: Pjóðverjar
hafa yfirgefið Amiens og halda í
norðaustur. Fyrsti — annar og
þriðji aðalher Pjóðverja hraðar mjög
undanhaldinu. Fjórði aðalherinn
byrjaði að hopa í gær. Herirnir
þýzku, skilja alstaðar eftir á vígvell-
inum, særða rrienn og veika og mik-
ið af hergögnum.
Rússar og Austurríkismenn hafa
barist í 17 sólarhringa samfleytt í
Oalizia af mikilli grimd. Orustunni
lauk á föstudaginn með eindregn-
um sigri Rússa.
London þriðjudag, 15. septbr.
Frá Gent er símað: Her Belgja
gerði fádæma harða atlögu á sunnu-
daginn að her Pjóðverja við Court-
enber er liggur milli Bryssel og
borgarrústanna. Louvain (sem Þjóð-
verjar brendu). Belgir voru mörgum
sinnum liðfærri en gengu fram svo
ekki stóðst við og skeyttu ekki um
líf né dauða. Orustunni lauk svo
að Belgir klufu her Pjóðverja í tvent
og mannfallið af Pjóðverjum var
gríðar mikið.
J\Æeð því i)ú er orðin næg þörf til innanlandsvið-
sKifta fyrir seðla þá, sem landssjóður þefir gefið út
handa LandsbanKanum og þægur nærri fyrir menr) að
senda fjárhæðir til útlanda á annag hátt, þá verða þess-
irseðlar ekKi eftirleiðis innleystir erlendis fyrir reikn-
ing Landsbankans.
Reykjavík, 3. septbr. 1914.
Bankastjórnin.
A|s KÖBENHAVNS MARGARINEFABRIK
framleiðir hið vandaðasta smérlíki sem unt er að fá, notar aðeins hreint og
óskemt efni, ög litar alls ekki margarínið, en selur það hvítt eins og ásauða-
smér, svo allir geti fullvissað sig um að engu misjöfnu sé blandað í það. —
Margarínið fæst í i og 2 punda skökum, 5 °g 10 punda öskjum og stærri
dunkum og er þrátt fyrir gæði sín eitt ódýrasta smérlfki sem flutt er til lands-
ins, enda fer neyzla þess vaxandi ár frá ári. Áreiðanlegir kaupendur fá lang-
an gjaldfrest. Pantanir sendist annaðhvort beint til verksmiðjunnar, Brolægg-
erstræde 9 Köbenhavn, eða Jóns Stefánssonar Akureyri.
/ bókaverzlun
Sig- Sigurðssoiw
Akureyri er nýkomið.
Stgr. Matthfasson: Heilsufræði 3.00
JakobThorarensen Snæljós Ljóðm. 1.00
Ferðin á heimsenda 1.00
B. Sæmundsson: Dýrafræði 3.80
Matth Joch. Smáþættir 0.90
P. Þorkelsson: Frönsk samtalsbók 3.00
— — Frönsk orðabók 5 00
Valdimar Valvesson : Eðlisfræði 0.80
Alþingistfðindi 1914 2.00
Sýrpa 2. árg 1914 2 50
Sunnanfari 1914 2.50
Á refilstigum 2.25
Þúsund og ein nótt Y. Bd. 3.00
Ólaíur Daníelsson Reikningsbók 1.35
Þjóðvinafélagsbækur 1914.
Schaudorp: Ur borg og bæ.
M Bruhu: Hjónaband.
G Kamban: Hadda Padda.
Ennfremur alskonar ritföng sem
eru seld mjög ódýrt.
Frá Amsterdam er símað: Pjóð-
verjar sendu í fyrrinótt tvær nýjar
herdeildir, til styrktar herliðinu við
Courtenber, eftir ófarir þess fyrir
Belgjum.
Belgir drógu sig til baka, í skjól
virkja sinna þegar liðsaukinn kom
móti þeim því þeir voru hræddir
um að verða umkringdir af þýzka
hernum á alla vegu.
í París var opinberlega tilkynt í
gærkvöldi, að þrátt fyrir tröllaukna
þrautseigju og vörn fjandmannanna
(Pjóðverja) hafi her sambandsmanna
farið yfir Aisne og tekið fjölda af
þýzku herliði til fanga. Frá yfirher-
stjórn Frakka er tilkynt, að fimti
aðalher Þjóðverja, sem þýzki krón-
prinsinn stýrir, hafi verið neyddur
til að láta undan síga og sé nú á
undanhaldi.
London, miðvikudag 16: sept;
Símað er frá Gent. Áreiðanleg
fregn frá Bryssel tilkynnir að Pjóð-
verjar hafi aukið mikið setulið sitt
í Bryssel. Pað sé nú 6000 einvala-
liðs. Ennfremui hafi þeir gert þar
ýmsan herútbúnað. Meðal annars
sett vélafallbyssur á mörgum stöð-
um svo hægt sé að senda fallbyssu-
skot eftir endilöngum höfuðgötum
borgarinnar.
Komið er upp alvarlegt sundur-
Iyndi í þýzka hernum sérstaklega
milli hersveita frá Prússlandi og Bæ-
heimi.
f götu-uppþoti í Bryssel voru ný-
lega drepnir 30 menn. Óvíst um
hverjir hafa verið vegendur.
Frá Berlín er opinberlega tilkynt,
að í gær hafi brezkur neðansjávar-
og köfunarbátur ráðist að miklu
þýzku beitiskipi »Hela« og sökt
því. Hvert mannsbarn sem á var
lét Iíf sitt. Bretar sigldu frá þeim
fáu sem komust upp á vatns-yfir-
borðið svo allir drukknuðu. Petta
gerðist sunnarlega í Norðursjónum.
í London er opinberlega tilkynt:
Pjóðverjar halda enn fastri herstöðu
fyrir norðan Aisne í Frakklandi, en
Bretar og Frakkar sækja á af mestu
hreysti. Frakkar hafa fengið svert-
ingjahersveitir frá Algier, sem sækja
mótiPjóðverjum af hamslausri grimd
og gersamlegu skeytingarleysi um
líf eða dauða. Síðustu dægur hefir
verið alveg hvíldarlaus orusta eftir
allri herlfnunni. Her þýzka krón-
prinsins hefir enn verið hrakinn
lengra aftur.
Hreppsgjaldaseðlar,
Sóknargjaldaseðlar,
Byg§*n§arbréf jarða,
Húsaleigusamningar
Hjúasamningar,
fást í prentsmiöju
Odds Björnssonar;