Norðurland - 06.11.1915, Qupperneq 4
130
Nl.
Jörðin Auðnir
í Ólafsfirði í Eyjafjarðarsýslu fæst til kaups og ábúðar frá næstu
fardögum. — Lysthafendur snúi sjer til Kristjáns Nikulásson-
ar, Akureyri, fyrir 15. desember nk.
Akureyri, 4. nóvember. 1915.
Krisfján Nikulásson.
Bændur og aðrir sem vilja fá reglu-
lega
gott ver
fyrir
prjónles
ættu að fara með það beina leið í
veizlun
Carl Jföepfners.
Nafnstimpla, Peningabudda
sienet, hurðarplötur, nafnspjöld úr _ , . . _ , c
s með nokkru af penmgum o. n. henr
kopar og messing, merkivélar, brenni-
járn og þessháttar, útvegar
Halldór Steinmann.
Verðlistar með myndum til sýnis
þeim er vilja panta.
tapast. Skilist gegn fundarlaunum til
Sófusar Áruasonar verzlunarmanns.
Ritstjóri jón Stefánsson.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.
h|f Hinar sameinuðu islenzku
verzlanir Oddeyri
kaupa haustull
prjónles
og flestar
íslenzkar vörur
hæsta verði.
Oddeyri 1. nóv. 1915.
Einai GunnaiSson
Sláttuvélin
,Mac Cormick’.
Peir sem ætla sér að fá sláttuvélina „Mac Cor-
mick“ ættu að senda pantanir sínar sem fyrst,
svo vélin geti komið hingað í tíma.
Deering-sláttuvélar geta menn einnig fengið
hjá mér.
Akureyri 27.—10.—1915.
Otto Tulinius.
38
á sama augnabliki. Kúlan hefir farið gegn um hjart-
að eða lungun og hann hlaut bráðan þjáningalausan
bana. Pað var hræðileg eldhríð þann dag. A annað
þúsund lík, vinir og féndur, þöktu blóðvöllinn á litlu
svæði. Meðal hinna dauðu þekti eg mörg kærandlit
vina okkar og kunningja, þar á meðatokkar góða ...
Hér varð eg að snúa bréfinu við.
» . . . vin Arno Dotzky*.
Það steinleið yfir mig.
• *
— Nú er ófriðinum lokið Martha! Ósigurinn við
Solferino hefir eyðilagt okkur — Austurríkismenn
hafa tapað að fullu.
Pessi orð sagði pabbi við mig einn morguninn niðri
í lystigarðinum. Eg sat þar í bezta veðri í skugga
linditrjánna.
Átta dögum eftir að eg hafði fengið fréttina um
lát Arnos, flutti faðir minn út á Grumitz, búgarð
sinn í Neðra Austurríki, ásamt öllum yngri systkin-
um mfnum og Maríu frænku. Pau tóku mig með sér
þangað og því var eg nú aftur komin á æskustöðv-
ar mínar ásamt Rudolf litla. Pabbi og þau reyndu
að Iétta mér sorg mína eins og þau gátu bezt, báru
mig á höndum sér í öilu og sýndu mér lotningar-
fulla nærgætni. Reiðarslag sorgarinnar sem dundi
yfir mig sveipaði mig einhverjum helgihjúp í augum
þeirra er voru með mér daglega. Tárin sem syrgj-
andi mæður, eiginkonur, unnustur, dætur og systur
39
hinna föllnu hermanna feldu af augum daglega, voru
næst blóði hermannsins, talin hið helgasta offur
fyrir ættjörðina, svo mér fanst eg verða vör við til-
finning hjá sjálfri mér, er sagði að eg hefði offrað
ættjörðinni mínum skerf með dauða Arnos á vígvell-
inum og sú tilfinning styrkti mig mikið í því að
bera sorg mína og saknaðarsársauka. Og eg var ekki
ein um slíka sorg. Þúsundir kvenna stóðu í sömu
sporum og eg og hörmuðu ástvinina sem nú sváfu
í ítalskri mold.
Eg hafði ekki getað fengið neinar nánari fregnir
af dauða Arnos. Eftir bardagann höfðu félagar hans
fundið lík hans á vígvellinum, þekt það og grafið.
Pað var alt sem eg gat fengið að vita. Síðasta hugs-
un hans hefir vafalaust verið hjá mér og litla drengn-
um okkar og huggun hans á banastundinni hefir
hlotið að vera: Eg hefi gert skyldu mína . . . meira
en skyldu mína.
— Við höfum tapað, endurtók faðir minn, þung-
ur á svip, um leið og hann settist niður á bekkinn
hjá mér.
— Og öllum, sem eg og margar aðrar kor.ur og
menn, eigum nú að sjá á bak, er þá offrað . . . ár-
angurslaust, stundi eg upp.
— Við getum öfundað þá sem hafa fallið með
sæmd. Þeir þekkja ekki þá skömm sem við verðum
nú að þola. En við herðum okkur síðar, þó sagt
sé að það eigi að semja frið í þetta sinn.
— Guð gaefi að friðurinn kæmist á, greip eg
M. Zadig^
pvottaduft
er ómissandi hverri húsmóður. Hin
gamla aðferð að nudda þvottinn upp
úr sápuvatni er orðin úrelt, allir vita
að fatnaður og dúkar slitna óhæfilega
með þeirri þvotta-aðferð og eru þvf
að hætta við hana, en taka upp hreins-
unaraðferð með Zadigs þvottadufti í
staðinn. Duftið er leyst upp f vatni,
þvotturinn svo lagður í þann lög og
þegar hann hefir legið þar hæíilega
lengi, er aðeins skolað úr honum,
ÁN þess hann sé nuddaður. ZADIGS
ÞVOTTADUFT SPARAR þvf mikið
erfiði og tíma, SPARAR sápu og sóda
og slítur ekki þvottinum. Biðjið því
kaupmenn yðar um ZADIGS ÞVOTTA-
DUFT. Það fæst í öllum vel birgum
verzlunum og ryður sér hvervetna til
rúms.
Sápur og ilmvötn frá
JVI. Z a d i g
konungl. hirðverksmiðju f Malmö
ættu allir að kaupa,