Norðurland - 30.09.1916, Blaðsíða 2
Nl.
162
í heild sinni í framkvæmd? Eða er E.
Á. búinn að gleypa þá flugu »íslend-
ings« að Heimastjórnarflokkurinn hafi
nú orðið »engan tilverurétt* ! !!? Það
er kynlega hugsað um flokk sem var
í mestum hluta á sfðasta þingi, og
sem vann glæsilegastan sigur við lands-
kosningarnar, flokkinn sem unnið hef-
ir nú f fleiri ár að mestu framfara-
málum þessa lands, og mun óefað
beita sér enn fyrir framfaramálin
frekar en ómyndaðir flokkar og flokks-
brot sem eru nú sum í dauðastrfð-
inu.
Eyfirzkir kjósendur! Þið [sem í mörg
ár hafið notið þeirrar sæmdar að vera
taldir einna fremstir af kjósendum þessa
lands f stefnufestu með að fylgja þeim
flokki sem öflugast hefir lyft landinu
á framfarabrautina, og kosið þann
mann til þings ár eftir ár sem hefir
verið formaður Heimastjórnarflokksins,
látið ykkur ekki þá skömm henda, að
kjósa í hans stað, mann sem ekki
vill bjóða sig fram sem Heimastjórn-
armaður fyrir þetta kjördæmi, ekki
neinn sem er eins og reir af vindi
skekinn.
Þetta er áskorun frá mér, og von-
andi munu fleiri taka undir hana.
Einar Sigfússon.
$
llm láð og lög.
i { «
— Frú Kristjana Hafstein, ekkja
Péturs amtmanns en móðir Hannesar
Hafsteins varð áttrœð að aldri 20. þ.
m. Hún hefir um mörg ár undanfarið
dvalið hjá Hannesi syni slnum og er
ern eftir vonum, þótt hún yrði fyrir
þvi slysi aö fótbrotna slðastl. vetur.
— fslenzka bibllufélagið varð 100
ára 10. þ. m., stofnað af brezkum
presti, Ebeneser Henderson, er hér
ferðaðist um land fyrir 100 árum og
þá skrifaði góða ferðasögu frá íslandi.
— Jón Helgason prótessor hefir
verið á fyrirlestraferðalagi um Dán-
mörku i sumar (eftir beiðni frá Dön-
um) og er nú nýkominn heim.
Um kosningarnar.
í Suður-Múlasýslu bjóðá sig fram,
auk þeirra, er getið var f sfðasta blaðij:
Sveinn Ólafsson umboðsmaður f Firði
og Ólafur Thorlacius læknir á Bú-
landsnesi. Fylgjast þeir fyrv. sýslu-
maður G. Eggerz og Ólafur læknir að
kosningum og bjóða sig fram í nafni
»Þversum«-flokksins. Sveinn Ólafsson
er gamall Sjálfstæðismaður, en ekki
veit »N1.« hvort hann er »þversum«
eða »langsum«.
í Árnessýslu eru tveir bændur komnir
á sóknarsviðið, auk þeirra sem áður
er getið. Þeir eru báðir gamlir Heipia-
stjórnarmenn og heita Árni í Alviðru
og Böðvar á Laugarvatni, én ekki veit
»N1.« föðurnöfn þeirra. Jón Jónatans-
son hefir dregið sig í hlé aftur og
fylgjast þeir Einar ráðherra og Gestur
fHæli nú að kosningum að sögn. Jón
Þorláksson kvað fara einn sinna ferða
og ein sagan segir, að Heimastjórnar-
menn í sýslunni styðji Einar Arnórs-
son til kosninganna og þá Jón Þor-
láksson og Sigurð búfræðing með hon-
um á vfxl.
(Ilœslleirt
timabll.
Heimastjórnarfíokkurinn
Eizti bióB- 1 Qreinileg og á-
málaflokkur I ,
landsins, I kveðin . þjóðmála-
.. ' flokkaskifting hér á
landi kemur í rauninni fyrst til sög-
unnar þegar við fengum innlenda
ráðherrastjórn 1904. Þó er Heima-
stjórnarflokkurinn eldri. Hann er í
öllu falii stofnaður á þinginu 1901,
svo að hann fylgir öldinni að heita
má. Á þinginu 1903 var hann í
sterkum meiri hluta, því kosning-
arnar þá um vorið féllu honum
mjög í vil. Hélztu menn hans, sem
í kjöri voru þá, náðu flestir kosn-
ingu, en ýmsir þeirra er mótstöðu-
menn hans höfðu mest í broddi
fylkingar, féllu eins og flugur. Það
varð því hlutskifti Heimastjórnar-
flokksins að ákveða um myndun
fyrsta innlenda ráðaneytisins. Hann
lagði til að Hannesi Hafstein yrði
falið það starf og félst konungur á
það. Heimastjórnarflokkurinn réði
því stjórn landsins eða bar ábyrgð-
ina á henni fram til þess er ráð-
herraskiftin urðu 1909 að afstöðn*-
um kosningunum 10. september
1908.
Þegar Iitið er yfir
þær framfara fram-
kvæmdir sem orðið
hafa hér á Iandi síðan í ársbyrjun
1904, getur engum manni dulist að
glæsilegasta tímabi liðer frá 1903 og
til síðari hluta ársins 1908 eða þau
árin er Heimastjórnarflokkurinn var
sterkastur og réði einn öllum fram-
kvæmdum. Þá er síminn lagður, þá
er vegamálum landsins komið í fast
framkvæmdaskipulag, brýr eru bygð-
ar yfir hverja stórána á fætur ann-
ari, vitar eru reistir með ströndum
fram, skólamálum óg fræðslumálum
þjóðarinnar er kipt í betra horf en
áður, og skattamálin tekin til með-
ferðar síðustu árin og rækilegri
rannsóknar en átt hefir sér stað áð-
ur og síðan. Með öðrum orðum: Þá
var framkvœmt mikið af þeim um-
bótum og framförum sem þjóðin
hafði áður látið sér nægja að tala
um að væru nauðsynlegar.
Hniznun - j Allir íslendingar vita
að sambandslagafrum-
varp milliríkjanefndar-
innar frá 1907 varð Heimastjórnar-
flokknum að fótakefli og hálfgerðu
fjörtjóni við kosningarnar 1908. Hann
varð þá í algerðum minni hluta og
annar flokkur tók við stjórninni yfir
landinu og þjóðinni. Þá fékk vald-
boðs- og þrælaupppeldisstefnan í
fyrsta sinn byr undir vængi í lög-
gjöf þjóðárinnar, »bannlög" eru gefin
út og staðfest tii þess að kúga þjóð-
ina, margt er fært úr skorðum af
því sem komist hafði á fastan grund-
völl síðustu árin, löggjöfin öll á
reiki, framkvæmdir til þjóðnytja Iitl-
ar 0. s. frv. Haustið 1911 fóru aft-
ur fram kosningar og fóru þær svo
að Heimastjórnarflokkurinn fékk aft-
ur álitlegan og fjölmennan meiri
hluta, en sá meiri hluti var sund-
urlaus í sjálfu sér. Flokkurinn tók
aftur við ábyrgð á stjórn landsins á
aukaþinginu 1912, en bæði þá og
sérstaklega á þinginu 1913 sýndi
lcyrstaða.
það sig að nauðsynlegt var fyrir
flokkinn að fá dálítinn tíma til þess
að kippa í lag því sem aflaga hafði
farið á síðustu árum, áður en hann
gæti verulega hafist handa til þess
að beita sér fyrir nýjum fram-
kvæmdum í þarfir lands og þjóðar.
En það ráðrúm fékst ekki, því við
kosningarnar er stjórnarskrárbreyt-
ingin olli og fóru fram 10. apríl
1914 varð flokkurinn aftur í minni
hluta ©g Iét af stjórn landsins. —
Þeir atburðir er gerst hafa undir
stjórn þeirra manna er síðan hafa
farið með völdin eru öllum í fersku
minni og munu fáir þar geta bent
á margt nýtilegt þegar frá er skilin
síðasta stjórnarskrárbreyting og út-
vegun fánans, sem þó var oddvita
Heimastjórnarflokksins mest að
þakka sem kunnugt er.
Þlóðartraust. Þjoðin hefir stöð-
Vandræðamenn. Ugt haft eindregið
traust á Heimastjórnarflokknum. Það
hefir sýnt sig hvað eftir annað, þeg-
ar hún hefir fengið tóm til að átta
sig á málunum, þótt fyrir hafi kom-
ið, að snurða hafi hlaupið á. Nú er
hátt látið af ýmsum, um að öll flokka-
skifting þurfi að breytast, gömlu'
flokkarnir eigi engan tilverurétt leng-
ur og að nýir þurfi að rísa upp.
Hverjir halda þessu fram? Svarið
er við hendina. Það eru vandrœða-
menn þeirra flokka, sem Heimastjórn-
arflokkurinn hefir sigrað, þeir sem
nú vita ekki hvar þeir eiga að vera
í umræðum um þjóðmálin, þeir sem
enga hugsjón bera fyrir brjósti til
almenningsheilla, en leggja alt kapp
á að sundra Heimastjórnarflokkr.um
til þess að geta svo freistað hinnar
pólitisku gæfu með ólátum í grugg-
inu. Ekki er neinn vafi á, að Heima-
stjórnarflokkurinn kemst óskemdur
yfir þær feigðargrafir, sem þessir
menn reyna að búa honum, og þó
að ein og ein lítilsigld sál, sem til
hans hefir talist, verði svo ósjálf-
stæð, verði svo ósjálfstæð að hverfa
undir merki vandræðamannanna, þá
gerir það ekki til. Flokkurinn er svo
mannsterkur, að hann þolir það tap.
QrundvSIIur Það Sem ÞVÍ nÚ á að
framtíBar- vera efst í hug allra
huzsióna. sannra Heimastjórnar-
manna við kosningarnar, sem eru að
fara í hönd, er að efla tlokkinn með
því að styðja einungis til kosninga
þá menn, sem eru hreinir og sannir
Heimastjórnarmenn í orðsins fylsta
skilningi, svo að flokkurinn fái hrein-
an meiri hluta að kosningunum lokn-
um og geti tekið ábyrgð á stjórn
landsins og hrundið til framkvæmda
ýmsum þeim málum, sem menn að
eins hafa látið sér nægja að tala um
að undanförnu. Það er víst, að eng-
inn annar flokkur hefir líkur til þess
að geta þetta. Og eins er hitt víst,
að Heimastjórnarflokknum ætti að
vera það auðvelt. Hann er f raun og
sannleika það afl, sem verður að vera
grundvöllur undir framkvæmd fram-
tíðarhugsjóna landsins beztu sona, ef
vel á að takast.
*
Bókaverzlui)
Kr. Guðmuijdssonar
Oddeyri
hefir fengið mikið úrval af allskonar
ritföngum, höfuðbókum, pappírs-
bsekur í folío og kvart, stílabækur
skrifbækur o. fl. o. fl.
Nýjar bækur:
Jón Laxdal: Sönglög I,
Hulda: Syngi, syngi svanir mfnir.
Valur: Brot.
Magnús Jónsson: Vestan um haf.
Jules Verne: Ökuhúsið.
Paul Heyse: Rómverska konan..
Glímubók.
Knattspyrnulög.
Þorl. H. Bjarnason: Fornaldarsaga.
Skólabækur.
Bókmenlafélagsbækur 1916.
Þjóðvinafélagsbækur 1916.
Iðunn 1916: I. og II. o. fl. o. fl.
Bókmentafélagsmeðlimir utan Akureyr-
ar eru beðnir að vitja bóka sinna sem
fyrst og borga jafnframt tillagið.
r
Frá blóðvellinum.
Rúmenar hafa unnið nokkurn
sigur á sameinuðum her Búlgara
og Þjóðverja.
Frakkar og Bretar hefja svo á-
kafa sókn á Þjóðverja í Norður-
Frakklandi að talið er að aldrei
hafi öðrum eins ógnum af tundri
og blýi rignt niður síðan sögur
hófust.
Zeppelinsáhlaup á England. Nokk-
urt tjón.
Miklar friðarhreyfingar gera vart
við sig í Austurríki.
Þjóðverjar segjast nú hafa nóg
brauð og kjöt, svo þeir séu af-
Iögufærir.
*
»Ekki Heimastjórrjarmaður«.
í sfðasta tölublaði »Nl.« eru nöfn
þingmannaefna þeirra sem talin eru í
Heimastjórnarflokknum prentuð með
skáletri á fyrstu sfðu blaðsins. Eftir
að sú hlið blaðsins var prentuð, en
áður en önnur og þriðja sfða þess
voru fullgerðar til prentunar, átti »N1.«
tal við Einar á Litla-Eyrarlandi og
spurði hvort ekki væri rétt hermt, að
hann biði sig fram sem Héirnastjórn>-
armaður, þar eð hann hefði talist til
þess flokks síðustu árin, Blaðinu til
mikillar undrunar, svaraði hann þvf
eindregið ncttandi, sagði að svo
væri alls ekki. Þvf var sett á þriðju
síðu blaðsins, leiðrétting samkvæmt
þessari skýrslu Einars og þar bætt
við, að »kjósendur vissu þá á hvaða
bekk þeir ættu að skipa honum* (nefni-
lega: að þá gæti enginn sannur Heima-
stjórnarmaður greitt honum atkvœði).
Ut af þessari smáklausu biður É,
A. blaðið fyrir eftirfarandi:
Herra ritstjóri „Norðurlands"!
Pér hafið i blaði yðar 23. þ. m.
skýrt villandi frá viðtali okkar um þing-
menskuframboð mitt. Eg tók það skýrt
fram við yður, að eg byði mig fram
hvorki sem héimastjórnar- eða sjálf-
stæðismaður; og ef þér ætlist til að
ummæli yðar verði skilin á þá leið,
að eg fylgi „Pversum"mönnum að
málum, þá er sú aðdróttun yðar al-
gerlega heimildarlaus; ifyrsta lagiaf
þvi, að eg er andvigur stjórnmála-