Norðurland - 04.07.1917, Blaðsíða 2
» Nl.
102
Alþ i ngistíðindi.
Alþingi var sett, eins og ráðgert
var, mánudaginn 2. júlí. Séra Frið-
rik Friðriksson prédikaði í dóm-
kirkjunni við hina vanalegu guðs-
þjónustugerð. Eftir það gengu þing-
menn til alþingishússins og var þar
fyrst settur fundur í sameinuðu þingi.
wt>versum4,-menn og *Litla-þvers-
um“-menn voru sem einn maður
við forsetakosninguna og kusu Krist-
inn Daníelsson fyrir forseta, hlaut
hann 20 atkvæði eins og á auka-
þinginu í vetur, en 18 atkvæðaseðl-
um var skiiað auðum og voru þeir
frá Heimastjórnarmönnum og banda-
mönnum þeirra. þá gerði og wÞvers-
um« Sigurð Eggerz að varaforseta.
sameinaðs þings.
í neðri deild var Ólafur Briem
aftur kosinn forseti, Benedikt Sveins-
son fyrsti varaforseti og Bjarnijóns-
son frá Vogi annar varaforseti.
Skrifarar: Qísli Sveinsson og Porst.
Jónsson. í efri deifd var Q. Björn-
son kosinn forsetí, Quðjón Quð-
laugsson fyrsti varaforseti og Magn-
ús Kristjánsson annar varaforseti.
Skrifarar: Eggert Páisson og Hjört-
ur Snorrason. — Þegar kosningun-
um var iokið og búið að leggja
fram stjórnarfrumvörpin var fundar-
hvíld og þá sagt að þingmenn hefðu
farið að wbræða“ ýmisleg áform.
Varaði sá »bræðingur“ ailan síðari
hluta mánudagsins og allan þriðju-
daginn en í dag voru loks haldnir
fundir í báðum deildum.
Stjórnin lagði 20 lagafrumvörp
fyrir þingið. Er þar fyrst að teija
frumvarp til fjárlaga fyrir 1918 og
1919, ásamt hinum vanalegu fyigi-
fiskum — fjáraukalagafrumvörpum
tveimur. Um hin má í fám orðum
segja að þau séu svo, að enginn
ráðherrann hafi áður, síðan stjórnin
fluttist inn í landið, haft hugsjóna-
snauðara né stefnuiausara á borð
að bera fyrir þingið, en það er þess-
ir þrir leggja nú saman í og er það
að vísu í samræmi við annað, en þó
var ekki fjölgun ráðherra nauðsyn-
leg til þess. Annars kvað þetta vera
efni þessara frumvarpa: Breyting á
iögum um sjúkrasamiög, um slysa-
trygging sjómanna, um breyting á
ellistyrktarsjóðslögunum, um lög-
aldur (21 ár), um framkvæmd eigna-
náms, húsaieigulög fyrir Reykjavík-
urbæ, um þóknun til vitna, um laun
og aukatekjur hreppstjóra, um dýr-
tíðaruppbót embættismanna, um
einkasölu á steinoiíu (heimildariög),
löggilding mælis og vogar, heimild-
arlög um frestun á sölu þjóðjarða
og kirkjujarða, viðaukalög um korn-
forðabúr til búfjártryggingar, um
breyting á vegalögunum, um fiski-
veiðasamþyktir og lendingastaði, um
fyrirhleðslu Pverár og Markarfljóts,
um samþykt landsreikninga.
Þessar nefndir, sem lögskipaðar
NÓTUBÆKUR
(tvíritunarbœkur)
fást í prentsmiðju
Gdds fyörnssonar.
Mikið af allskonar
skófatnaði
sem verður seldur mjög ódýrt eftir gæðum, kom
með s. s. »Edina« í verzlun
3. Sigurðsson & 6. Sunnarsson.
S. Sigurdsson.
eru með þingsköpunum, voru kosn-
ar í dag:
Fjárhagsntfnd í Neðri deild: Gísli
Sveinsson, Þórarinn Jónsson, Hákon,
M. Quðmundsson, Þorsteinn. Efri
deild: H. Hafstein, Haildór Steinsen,
Sig. Eggerz.
Fjárveitinganefnd N. d.: Pétur á
Gautlöndum, Matthías, Magn. Pét-
ursson, Bjarni Vogi, Skúli, Jón á
Hvanná, Þorleitur. E. d.: Eggert
Pálsson, Jóh. Jóhannesson, Magnús
Kristjánsson, Kari Einarsson, Hjörtur
Samgöngumálanetnd. N.d.:Þórar-
inn Jónsson, Oísli Sveinsson, Björn
Stefánsson, Bened. Sveinsson, Hákon,
Þorsteinn, Þorleifur. E. d.: Quðjón
Guðlaugsson, HalHór Steinsen, Sig.
Eggerz.
Landbúnaðarnejnd. N. d. Sig. Sig-
urðsson, Stefán Fagraskógi, Pétur
Hjörsey, Einar Eyrarlandi, Jón
Hvanná. E. d.: Guðjón Quðiaugs-
son, Quðm. Óiafsson, Hjörtur.
Sjávarútvegsnefnd. N. d.: Björn
R. Stefánsson, Matth. Óiafsson, Pét-
ur Ottesen, Jörundur, Sveinn í Firði.
E. d.: Magnús Kristjánsson, Kr.
Daníelsson, Karl Einarsson.
Mentamálanejnd. N. d.: Magnús
Pétursson, Stefán Fagraskógi, Bjarni
Vogi, Sveinn Firði Jörundur. E. d.:
Eggert Pálsson, Magn. Torfason,
Ouðm. Ólafsson.
Alsherjarnefnd. N d.: Einar Arn-
órsson, Einar Jónsson, Pétur Otte-
sen, M Quðmundsson, E. Árnason.
E. d.: H Hafstein, M. Torfason, Kr.
Daníelsson.
Flokkaskifting á þinginu er svo
að Heimastjórnarmenn eru 15 eins
og áður og í kosningasambandi við
þá: Oísli Sveinsson, Einar Arnórs-
son og Magnús Pétursson. Þessir
18 tóku ekki þátt í forsetakosningu
sameinaðs þings.
Ýmisiegt er talað um óánægju
yfir stjórninni en ekki mun í bráð
vera líkur til breytinga á þeim svæð-
um.
X
Frá blóðvellinum.
Rússar hafa gert grimmileg á-
hiaup nálega á ailri herlínunni að
austan. Hafa unnið mikið á í Oali-
zíu og tekið þar um tíu þúsund
ósærða fanga.
Fimm Þjóðverjar hafa verið tekn-
ir fastir í Kaupmannahöfn fyrir að
hafa njósnað víðsvégar í Danmörku.
Bandamenn hafa nú Aþenuborg
á sínu valdi og ráða þar öliu með
Venezelos í fararbroddi. Qrikkir hafa
slitið stjórnmálasambandi við mið-
veldin og friðslitatilkynning aðeins
talin ókomin.
Utanríkisráðherra Svisslands olt-
inn úr sessi, uppvís að því að reyna
að koma á sérfriði milli Rússa og
Þjóðverja.
Kína er orðið keisaradæmi og
Hsuan-Tung orðinn keisari.
Finnlendingar krefjast af hinni
nýju stjórn Rússlands að hún sam-
þykki að Finnland fái að gerast
lýðveldi tafarlaust.
French tiikynnir að Bretar hafi
unnið af Þjóðverjum stóra lands-
spildu yið Vauxonillon.
ll m l á ð o g t ö g.
” T — Guðm. T. Hallgrlmsson héraðs-
lœknir á Siglujirði hefir dvalið i út-
löndum í vetur til þess að kynna sér
nýjustu framfarir t lœknisvisindum.
Hann kom heim til héraðs sins (frá
Reykjavik) á wEscondito“ um daginn.
— Skipherra á wWillemoes“ er
orðinn jón Erlendsson, sem undanjar-
ið hefir verið yfirstýrimaður á „Gull-
jossi“.
— wEscondito“ leiguskip landsjóðs
er fór frá Siglujirði um daginn hlað-
ið sild til Englands var skotið niður
á leiö þangað. Á skipinu voru tveir
Islendingar (hásetar). Bryti var Nielsen
jrá Baldurshaga við Reykjavik. Skip-
verjar björguöust allir lijs af.
— Seglskipið „ Akureyri“ er Pjóð-
verjar tóku nýlega (hlaðið timbri til
Sig. Bjarnasonar) á leið hingað hefir
nú verið látið laust ajtur oger vœnt-
anlegt i nœstu viku.
— Skonnortunni wStar“ hefir ver-
ið sökt í Norðursjónum. Hún var á
leið til íslands hlaðin alskonar nauð-
synjavarningi.
wVesta“ kom til Hafnarfjarðar i
fyrradag og hajði meðferðis mjög
mikinn póstflutning frá útlöndum.
— Nýkomið er til Reykjavikur jrá
Ameríku eimskip er þeir fohnson &
Kaaber keyptu þar. Pað var hlaðið
matvörum og nauðsynjavörum.
X
/Ikureyri.
>Edina< leiguskip Andrésar Guðmunds-
sonar stórkaupm. í Leith, kom hingað á mið-
vikudaginn með tunnur, salt, ullarballa o.
fl. er Stefán Sigurðsson kaupmaður hefir í
umboðssölu sbr. augl. í síðasta blaði. Hér
tekur „Edina* síld og flytur til Englands.
Pétur Jónsson alþingismaður á Gautlönd-
um, varð fyrir pví slysi er hann var á ieið
hingað, til þess að ná í >Botníu< er hann
fór á til þings, að hestur sló hann og fót-
braut, (brotnaði önnur pípan). Hann hélt
samt áfram ferðinni, svo á sig kominn
norður úr Ljósavatnsskarði og hingað og
var þá bundið um brotið.
Aðalfundur „Sambands íslenzkra sam-
vinnufélaga* var haldinn hér á Akureyri 19.
og 20. f. m. Þar vat fjöldi fulltrúa mættur
og 5 ný félög geugu í sambandið. Þar var
samþykt að félagið setti á stofn aðalskrif-
stofu í Reykjavík á þessu ári og mun ráð-
gert að Hallgr. Kristinsson flytji búferlum
þangað. í stjórn sambandsins var kosinn
Ingólfur Bjarnason kaupfélagsstjóri í Fjósa-
tungu í stað Sigurðar Jónssonar ráðherra.
»Islands Falk< kom á þriðjud. og dvaldi
hér nokkra daga. Honum stýrir nú Malthe-
Brun yfirliði f sjóliðinu danska, sem hefir
verið oft áður hér við land og er mörg-
um íslendingum að góðu kunnur. „I'álk-
inn" fór héðan til Þórshafnar á Færeyjum
en þaðan aftur til Reykjavíkur og verður
þar nokkra daga en þaðan kvað hann fara
til Kaupmannahafnar, snögga ferð í þessum
mánuði.
SLysfarír. Á fimtudaginn var vildi það
sorglega slys til, að drengur 6 ára gamall,
Sveinbjörn Vilhjálmsson að nafni, druknaði
í sundpollinum f Grófargili. Slysið skeði
síðari hluta dagsins, eftir að sundkenslunni
var hætt, en annar drengur iitlu eldri en
Sveinbjörn, var viðstaddur og sagði frá. Var
líkinu þá tafarlaust náð, en allar lífgunartil-
raunar urðu árangurslausr.
X
Héraðsfundur
Eyjafjarðarprófastsdæmis var hald-
inn á Möðruvöllum f Hörgárdal sunou-
daginn i. júlí og hélt Geir vígslubiskup
þar langan og snjailan fyrirlestur um
Luther. Þar voru hin venjulegu mál
afgreidd, en auk þeirra var samþykt
tillaga frá saínaðarfulltrúa Akureyrar,
Lárusi kaupm. Thorarensen, um að
kjósa nefnd er starfaði milli héraðs-
fundanna, til þess að búa ýmisleg
mál undir meðferð þeirra, auglýsa dag-
skrá fundanna með góðum fyrirvara
og svo framvegis. í nefndina voru
kosnir: Geir Sæmundsson prófastur,
Lárus Thorarensen og Kristján Jóns-
son I Glæsibæ.
Fiárræktarmenn
munu Þingeyingar vera taldir beztir
hér á landi og er nú farið að tfðkast
að Sunnlendingar sendi etnilega unga
menn norður, til dvalar vetrarlangt, til
þess að kynna sér fjárhirðing þar.
Sfðastl. vetur dvaldi Guðmundur Jóns-
son frá Efranesi í Mýrasýslu á Þverá
f Reykjahverfi, hjá Árna bónda Jóns-
syni sem talinn er með beztu fjár-
mönnum Þingeyinga. Sagði Guðmund-
ur, er hann var á heimleið, það vera
álit sitt, að flestir íslendingar mundu
geta lært eitt og annað af Þingeying-
um við meðferð og hirðing sauðfjár og
taldi síg hafa varið vetrinum vel.
Afgreiðsla ,Norðurlands‘
sem undanfarið hefir verið á skrifstofu
blaðsins í Hatnarstræti 11 er flutt
þaðan. Kaupendur blaðsins í Kræk-
lingahlíð, Þelamörk, Öxnadal, Hörgár-
dal, Möðruvallasókn, Hjalteyri, Ár-
skógsströnd, Hrísey, Svarfaðardal, Ól-
afsfirði, Látraströnd, Höfðahverfi og
Svalbarðsströnd eru beðnir að vitja
þess í sölubúð hr. kaupm. Sveins Sig-
urjónssonar.
Kaupendur þess f Öngulstaða- Saur-
bæjar og Hrafnagilshreppum eru beðn-
ir að vitja þess í sölubúð hr. kaupm.
Kristjáns Sigurðssonar.
Skrifstofa ritstjórans er á sama
stað og verið hefir, Hafnarstræti n.