Norðurland - 20.03.1918, Page 3
Nl.
28
/ gapastokknum.
Frh. •
163.
Skýrsla sú, sem yfirskoðunarmenn hafa
fengið frá hr. Þórði Sveinssyni, var send
honum, ásamt öðrum verzlunarskjöium,
frá fjármáladeild stjórnarráðsins, og er
samin þar, en nokkru síðar en landsreikn-
ingurinn sjálfur. Réttara þykir að skýra
frá þessu, til þess að það valdi ekki mis-
skilningi.
Að öðru leyti er þéssari athugasemd
svarað með svarinu við 149. grein hér að
framan, enda snertir skýrsla þessi eigi
beinar tekjur og útgjöld landssjóðs.
Yfirskoðunarmenn víkja síðan mál-
inu til Alþingis, með tillögum dags,
2i. júlí 1917. Það var LR. vísað,
eins og getið hefir verir, til íjárhags-
neíndar (í henni voru í Nd. þeir G.
Sv., Þór. J., H. Kr., M. G. og Þorst.
M. J.). 1 nefndaráliti hennar um frum-
varp til laga um samþykt landsreikn.,
dags. 10. ág. 1917, segir svo um á-
minst atriði (þingskj. 412 við gjaida-
bálkinn í LR. 1915):
149, 163 (247 og 250 1914).
Eftir því, sem ráða má af athugasemd-
um yfirskoðunarmanna og svörum ráðherra,
er svo mikill ruglingur á reikningsfærslu
landssjóðsverzlunarinnar, að eigi má við
una. Til þess að kippa þessu í lag, virðist
eigi annað fært, en að landsstjórnin láti
gera nákvæma reikninga yfir verzlun þessa
frá byrjun, og fái þá síðan, að lokinni um-
boðslegri endurskoðun, yfirskoðunarmönn-
um til athugunar, og láti þeir síðan at-
hugasemdir með svörum og tillögum fylgja
landsreikningunum.
Með þessum íormála tór fram sam-
þykt landsreikninganna á Alþingi; en
nú er svo komið, eftir þvi, sem lesa
má í »Tímanum«, að það blað treyst-
ir eigi stjórn sinni með hinum háloj-
uðu ráðsmönnum landsverzlunarinnar
(sem blaðið þó ella segir, að komið
bafi öllu í lag), til þess að tramkvœma
þenna vilja þingsins — um einialda
reiknings-endurskoðun!
Af fiamanskráðu er það nú Ijóst,
að hér er um að ræða rugling í teikn-
ingsjœrslu, eins og fjárhagsnefndin
kemst að orði, i viðskiftum landssjóðs
og landsverzlunar, talsvert mikinn, en
heldur eigi nokkurn skapaðan hlut
annað en rugiing í reikningsfærslu.
Og enginn maður á þingi var í vaia
um það, né heldur hefi eg heyrt gerð
ar getsakir um annað af nokkrum
manni, nema nú af þeim óvandaða
strákahóp, sem iylking »Tímans« virð-
ist að nokkru mynduð af. —
Flestir munu nú geta áttað sig á,
að reikningsskekkjur muni geta kom-
ið fyrir í öðru eins bákni og lands-
verzlunin er, þar sem aðal forstaða
hennar hefir að mestu leyti fram að
þessu verið f höndum þeirra manna,
er aldrei haía áður við þvíhkt feng-
ist, og sérstaklega hefir óhæfum
mönnum verið beitt þar til verka,
sfðan er þrfmenningsstjórnin (»Tím-
ans«) kom tii valda í byrjun fyrra
árs (1917) — enda hefir þar einmitt
alt verið í sukki sfðan, vitleysurnar
hrúgast hver á annari og bókfærsla í
engu lagi, eins og vafalaust mun sýna
sig á sfðan. Stjórnin lofaði Alþingi á
sfðastliðnu sumri, eftir beinni kröfu
þess, að koma góðu lagi á landsverzl-
unina og setja hana undir hæfa for-
stjórn, en hún hefir svikist um það
— og á því á ráðherra »Tfmans«,
atvinnumálaráðherrann, aðalsökina —,
en langt verður þangað til að séð er
íyrir endann á þessu óforsvaranlega
ráðleysi. Nú fyrst hefir landsstjórnin,
tilneydd, gert gangskör að þessu, og
hefir nú, eftir því sem sjálfur *Tím-
inn< segir á öðrum stað, orðið að
skipa sérstaka rannsóknarnefnd á það
fyrirkomulag verzlunarinnar, sem stjórn-
in hefir haldið henni f, og lið hennar
tjtlið hina mestu fyrirmynd, alt þang-
að til í óefni var komið. Þessi rani -
sóknarnefnd á nú að taka að sér Í01-
stöðu landsverzlunarinnar, en eigi hef-
ir það heyrst, að henní hafi verið fal-
ið það nauðsynjaverk, að sópa út þeim
hóp ónytjunga, er þar hafa verið sett-
ir inn sem hátaunaðir brauðbftar úr
klfku atvinnumálaráðberrans, en von-
andi er að hún hafi heimild til þess.
Ef nú gengið er á lag »Tímans«
og athugað hverjum þessi ruglingur
eða reikningsskekkja (í landsverzlun-
inni) sé að kenna, þá er ekki í nein-
ar grafgötur um það að fara, að það
er þeim að kenna, er gengið hafa frá
Og gert upp þessa rcikninga. Nú veit
hver maður, sem ekki er fábjáni, að
það eru ekki ráðherrarnir, sem hafa
reikningsfærslu landsins á hendi og
þvf sízt landsverzlunarinnar, nema þá
að svo sé, að hinn ágæti atvinnumála-
ráðherra okkar hafi nú tekið hana að
sér. Um reikningsfærsluna hafa að
þessu annast skrifstofur stjórnarráðs-
ins, landsféhirðir, og svo skrifstofa
landsverzlunarinnar.
En ef nú nokkur sérstakur ráð-
herra ber »ábyrgð« (manni er spurn:
hverskonar ábyrgðf) á þessari reikn-
ingsskekkju, sem yfirskoðunarmenn
telja vera f þvf fólgna, ekki að neitt
»vanti«, heldur að •landssjóður er ial-
ina eiga meira i verzlun sinni,
heldur en sézt i landsreikningi, að
hann hafi til hennar lagt<, þá er það
vitanlega sú síjórn, er gerir upp reikn-
ingana og afhendir þá slíka. En það
var hin nýja stjórn, hin þrfhöfðaða
— stjórn »Tímans«, eins og bent
hefir verið á hér á undan. Hún sezt
í sessinn með ársbyrjun 1917, og
skilar þessum reikningum til yfir-
skoðunarmanna ekki fyr en 24 febr.
s. á. Um vorið fær þessi sama stjórn
tækifæri til þess að athuga reikning-
ana á ný og hefir þá látið endurskoða
alla landsverzlunina. Svarar hún yfir-
skoðunarmönnum þann veg, að eigi
verður annað séð en að hún telji sig
jafnvel gera fullnœgjandi grein fyrir
því, að hér sé í raun réttri ekki (leng-
ur) um neina reikningsskekkju að
rœdal Nú sé alt komið f lag.
Það virðist því, samkvæmt yfirlýs-
ingu stjórnarinnar, sem menn ætla að
»Tfminn< meti enn nokkurs, ekki
annað eftir, en að þessi leiðrétta reikn-
ingsfærsla komi glöggar fram, f næstu
landsreikningum, eins og Alþingi ætl-
aðist til. En á maður að trúa þvf, að
hin virðulega og hágáfaða — og sér-
staklega reikningsfróða — stjórn treysti
Sér ekki til þess, ogaðsérstaka »rann-
sókn« samkvæmt kröfu, sem •þing-
málajundir« (/) eigi að gera, þurfi til
þess að koma þessu þrekvirki f fram-
kvæmd?
Nei, f hyldýpi heimskunnar sér ekki
til botns.
Eða ætli menn eigi að fá að lfta
þingmenn >Tfmans« bera fram tillögu
um þetta á þingi I Við sjáum hvað
þeir gera, kempurnar.
.Framtíðar'-skemtunin siðasta.
í 10. tbl. »íslendings«, er greinar-
korn með þessari fyrirsögn, eftir ein-
hvern H. H. Þykir honum óhæfa hin
mesta, að félagið skuli bjóða fólki
slfka skemtun, er hann f öllu telur ó-
merkilega. Undanskilur hann þó að
nokkru leyti Pál Árdal, en segir að
endingu: »Þó ágóðanum af slíkum
skemtisamkomum sé varið til góðgerða,
sem er góðra gjalda vert, þá geta þó
sannarlega verið takmörk íyrir þvf, sem
boðlegt er almenningi.*
Það virðist óþarft að skriía »kritik«
um þessa skemtun og niða hana nið-
ur, fremur en aðiar slikar skemtanir,
sem haldnar hafa verið hér í bænum,
og til hefir verið stofnað í Ifkum til-
gangi, enda mun engum hafa það í
hug komið, nema þessum H. H.
Iðnaðai-
sýningu
hefir „Heimilisiðnaðarfélag
Norðurlands" ákveðið að halda#
á Akureyri síðustu dagana í júní
næstkomandi.
Óskað er eftir sem flestum,
góðum og gagnlegum, íslenzk-
um munum. Nánar upplýst síðar.
Stiórnii).
Allir vita, að litlu má hér kosta til,
svo að ágóði verði nokkur, sem telj-
andi sé, og eru það aðalskilyrðin fyrir
félögin. Var almenningi það fullljóst,
hvað í boði var, þar sem skemt-
anin hafði verið auglýst á götunum og
þar tekið fram, hvað sýnt yrði, og
hverjum því í sjálfsvald sett, hvort
hann vildi vera þar viðstaddur, og
styðja með því gott málefni.
Annars er næsta hlægilegt að fara
f þessu tilefni að fjargviðrast út af þvf,
hvað boðlegt sé hér á Akureyri. Væý
H. H. nær að veitast að ýmsu öðru
skemtanarusli, sem »boðið hefir verið
upp á« hér f bænum, ekki í góðgerða-
skyni, heldur til bagsmuna einstakra
manna.
Furðar mig á því, að ritstjóri »ís-
lendings« skuli Ijá rúm f blaði sfnu
fyrir greinar, sem stílaðar eru til þess
að sverta góðgerðafélagið »Framtíðin«,
sem einmitt nú fyrir nokkru hefir ráð-
ist f að gefa um 50—60 fátæklingum
þessa bæjarfélags að borða það sem
eftir er af vetrinum, og léttir með því
undir með mörgum fátækum fjölskyld-
um f bænum. Minnist eg ekki, að rit-
stjóri »íslendings« hafi getið þess í
blaði sfnu.
Kolur.
%
t ólafur Kristjánsson
bóndi f Hólum f Eyjafirði.
Oft birtast f blöðunum æfiminning-
ar framliðinna manna, sem að ein-
hverju eða mörgu leyti hafa þótt
framúrskarandf. Þótt nú sumir telji
æfiminningar þessar þýðingarlitlar, þá
má þó tilfæra hér eina eða tvær á-
stæður. Fyrst er þá, að þær gleðja
eftirlifandi ástvini, er þeir sjá að
hins látna er minst að vérðieikum,
og verða lfka jafnframt sem nokk-
urskonar minnisvarði. í öðru lagi ættu
æfiminningar að verða lesendum til
hvatningar, þegar upp eru taldir mann-
kostir hins látna. Virðist ekki ósenni-
legt að einhver hugsi sem svo er
hann les þær: »Þarna hefir fatlið
frá maður sem vert væri að breyta
eftir«. Ef nú þetta er rétt ályktað, þá
er alts ekki hægt að segja að æfi
minningar séu þýðingarlitlar, og þess
vegna ekki einungis rétt, heldur sjálf-
sagt, að draga opinberlega fram þau
Störf, sem unnin eiu f kyrþey með
dugnaði og hyggindum, og samkvæmt
þvi birtast hér nokkur atriði úr æfi
Ólafs sál. Kristjánssonar bónda frá
Hólum f Eyjafirði, er andaðist á
sjúkrahúsinu á Akureyri 5. febr. s. I.
eftir langa og þunga legu.
Ólatur sál. var fæddur á Ánastöð-
um f Sölvadal 28. okt. 1878. Ólst
hann upp hjá foreldrum sfnum til
fermingar aldurs. Fór hann þá burt
úr foreldrahúsum og var f ýmsum
stöðum, ýmist sem vinnumaður eða
lausamaður, og þótti ávalt mikið
koma til verka hans. Vorið 1910
réðist hann til ekkjunnar Kristjönu
Pétursdóttur í Hólum sem ráðsmaður.
Var hún þá í erfiðum kringumstæð-
um hvað efni sneiti og mikil tvfsýni
á að hægt væri að halda búinu áfram.
En er Ólafur sál. tók til búsforráða
með henni skifti skjótt um. Sá sem
þetta ritar fluttist f nágrenni við
Hóla vorið 1911 og þekti þar nokk-
urnveginn vel til frá því. Þá strax á
öðru ári voru ekki orðnir sýnilegir
erfiðleikar með neitt viðvfkjandi bú-
inu, og einmælt var að fáir mundu
efnilegri til búskapar. Venjulega var
það viðkvæðið um verk þau sem
unnin eru tilheyrandi sveitabúskapn-
um, er rætt var um hvort þetta eða
hitt væri búið nokkurstaðar: »Ólafur
f Hólum er búinn«. Þótt þetta sé
ekki löng setning felst þó æði mikið
í henni. Þetta, að vera búinn með
verk sín f tfma eða á undan öðrum,
vita flestir hversu heillavænlegt er.
Árangurinn af þessu var líka auð-
sær þarna, þvf búið blómgaðist stöð-
ugt og voru þó bæði hann og ekkj-
an heilsutæp. Hann var skjótur til
úrræða og ráðagóður og þar af leið-
andi voru mistökin fá hjá honum.
Bóngóður og hjálpsamur var hann
einnig, og dæmi til að hann hjálpaði
öðrum (borgaði skuldir o. fl.) án
þess að hann væri beðinn. Að hann
hafi hugsað um hag sveitarinnar, má
bezt sjá á þvf, sem presturinn gat
um f ræðu sinni við jarðarförina, að
hann — meðan hann var þjáður af
veikindum á sjúkrahúsinu — hefði
verið að hugsa um það, að sveitarfé-
laginu yrði á einn eður annan hátt
tryggður fóðurauki handa búpening
sfnum, þá var útlitið og harðindin
sem verst. Vorið 1915 giftist hann
ekkjunni Kristjönu og eignuðust þau
tvo drengi, sem báðir lifa. Var hann
þeím ástrfkur faðir, sem einna bezt
kom þó f ljós f veikindum konu
hans sfðastliðið sumar, er hann varð
að miklu leyti að hugsa um þarfir
þeirra bæði sem móðir og faðir, og
þar að auki þarfir alls heimilisins og
mun ekki hafa skort á að alt færi
vel og öllum heimilisþörfum sá hann
fyrir og ráðstafaði til síðustu stundar.
Kona hans hefir orðið fyrir óvenju-
miklum ástvinamissi; var áður búin
að missa tvo menn sfna og tvö börn
af mið-hjónabandi, og nú þennan
þriðja mann sinn, þennan trausta bú-
höld og góða eiginmann, sem altaf
var jafnglaður og spaugandi hvort
sem vegurinn var erfiður eða sléttur.
Er þvf engin furða þótt hans sé
saknað, ekki einungis af konu hans
og vandamönnum heldur og sveitar-
féiaginu í heild sinni, VIII.
»þjóðólfur«
gamli á nú að fara að koma út aftur
f Reykjavfk og verður ritstjóri hans
sá maður sem er einhver hinn penna-
færasti af yngri íslendingum: Sigurð-
ur Guðmundsson mag. art frá Mjóadal.
Mannslát.
Húsfrú Gróa Blöndal á Brúsastöðum
í Vatnsdal andaðist 27. f. m. Hún
var ekkja eftir Björn Blöndal frá
Hvammi og hafði verið ekkja f mörg
ár, en búið rausnarbúi á Brúsastöðum
og var heimili hennar orðlagt fyrir
ge-trisni. Hún var vel látin og hin
mesta sæmdarkona um alla hluti. Börn
hennar - eru Margrét kona Kristjáns
bónda Sigurðssonar á Brúsastöðum
og Benedikt einnig til heimilis á Brúsa-
stöðurn. Vatnsdœlingur.
Húseignin f Grundargötu 4 er
til sölu nú þegar, ásamt fjósi og hey-
skúr og stórum kartöflugarði.
Even /ohannessen.