Norðurland - 24.07.1920, Side 1

Norðurland - 24.07.1920, Side 1
Forsikrings-&Genforsikrings-A/s U RAN I A Köbenhavn. Stríðsvátrygging. Sjóvátrygging. Brunatrygging. Athugið: Iðgjöld hvergi lægri. Aöalumboösmaður á íslandi: Jón Stefánsson, Akureyri. Umboðsmenn óskast í flestum stærri kauptúnum. Jarðarför föður míns Stefáns fónassonar, sem lést þann 19. þ, m. fer fram frá heimili mínu Lundargötu 1, miðviku daginn 28. þ. m. kl. 12 á hádegi. Tryggvi Stefánsson. Horfurnar. Eg hefi tekið fram, að verð- fallshorfur væru fyrir dyrum, væru að verða augljósar og litl- ar líkur til að verðið hækkaði aftur fyrst um sinn. Enda eru nú líkur til að sölu- tregða á íslenzkum vörum frem- ur ágerist en réni er frá líður. Við megum því búast við, að erfiðir tímar fari í hönd, því verðfallinu fylgir ýmisleg kreppa, t. d. peningakreppa, lánstrausts- rénun, sparifjáreyðsla, svo um- setning bankanna minkar, og þá jafnframt harðara gengið eftir skuldum, en útlán meira af skornum skamti. Fram- kvæmdastarfsemi lamast, og svo fellur vinnukaupið þegar frá líður. Pegar þannig horfir ætti al- þýða að fara skynsamlega og gætilega að ráði sínu, draga saman seglin í tíma og aka þeim eftir vindi, ætla sér af, en flana eigi fyrirhyggjulaust út í skuldafen og öreigaástand. Eg vil t. d. bend á eitt, sem eg hefi heyrt að sumum Iand- bændum hafi komð til hugar, en sem eg tel vanhugsaða og varasama stefnu, en það er að lóa sem fæstu búfé F'haust, og leggja kapp á að útyega sér sem mest fóður til að geta fjölgað til muna, í þeirri von, að verðið liækki aftur næstu ár- in. Peir bændur, sem eru svo efnum búnir, að geta þetta án þess að hjeypa sér í skuldir, er ekki beint hægt að álasa, þótt þeir reyndu þetta, hafi þeir trú á því að þetta verði búhnykkur. En þeir sem ekki geta gert þetta með öðru móti en að hleypa sér í skuldir, eða auka skuldir, er hægt að lá slíka breytni, þar sem engar líkur eru til að verðlagið hækki aftnr, en vinnan við að afla fóðurs- ins afardýr, og erlent kraftfóð- ur ekki kaupandi. Pegar þess er og gætt, að vextir af öllu lánsfé eru orðnir afarháir og ef til vill halda áfram að hækka, er auðsætt að það dregur dilt eftir sér að fara í skuldir til að geta fjölgað búpeningi. Enn fremur tná taka tilli.t til, að bú- fé bænda er þegar orðið svo margt, að margir þeirra urðu að kaupa nokkuð af dýru kraft- fóðri síðastliðinn vetur til að geta haldið lífinu f skepnum sínum, er hætt við að sumir hafi farið í skuldir fyrir þau fóðurkaup. Því nær engar hey- fyrningar eru heldur til frá fyrra ári. Hvaða vit væri í því, að fara nú alment að fjölga kvikfé í haust vegna verðfalls- ins. Pótt vel heyist í sumar, sem enn er þó engin vissa fyrir, þá veitir bændum eigi af að vera öllu betur undir veturinn búnir en í fyrra, svo eigi þurfi að kaupa dýrt, útlent fóður til að fóðra með fénað, sem svo er fallinn í verði, að eigi fer að borga sig að kaupa dýra mat- vöru til að fóðra hann með. Áður en nokkur alvarleg til- raun væri gerð, til að fjölga bú- fé í landinu mikið fram úr því, sem nú er, þarf heyafli vor að aukast til muna og trygging vetrarfóðúrsins í hörðum vetr- um að komast í betra horf en nú er, þótt ekki svo lítil fram- för hafi hinn síðasta mannsaldur orðið í því efni. ©o 'é Stoðir þjóðfélagsins. bjóðfélögin (ríkin) samanstanda af eiustaklingum. beir af þeim sem heil- brigðir eru og ná fulltíða aldri, verða flestir stoðir þjóðfélagsins, að minsta kosti einhvern tíma æfi sinnar, en mis- jafnlega eru þessar stoðir styrkar og burðamiklar. Mörgum er hætt við að viðurketina ekki gaknsetni ýmsra ein- staklinga fyrir heildina eins og vert er. Menn sjá síður kosti og gagnsemi ná- unga sinna en ókostina. Af þessu myndast einatt stéttarígur. Oftfinstafl- minni einstaklingunum þeir þróttmeiri og sem betri aðstöðu hafa náð, hlífa sér ofmikið við að bera þjóðfélags- byrðarnar svo hún leggist of þungt á sig minni máttar. F*ótt það sé eigi alment, þá eru þess dæmi, að það er talað um efna- menn og auðmenn nærri eins og þeir væru eitthvert átumein þjóðfélagsins. Pótt það álit sé, sem betur fer, eigi alment, þá þykir oft lítið til þeirra manna koma, sem virðast hafa allan hug á að nurla saman fé, en vilja eigi festa það í ótryggum fyrirtækjum eða taka með því þátt í fjárhættuspili við- skiftanna, eða festa það í tvísýnum framleiðslufyrirtækjum. Pessir menn hafa yndi af því að safna fé, það verð- ur stundum þeirra mesta ánægja í líf- inu, þeir eru oft sparsamir og neita sjálfum sér um ýmiskonar þægindi til að geta auðgast. Pessir menn eru eigi síður. heldur oft fremur stoðir þjóðfé- lagsins og heildarinnar en ýrnsir aðrir, þeir borga skatta og skyldur til heild- arinnar frekai* en þeir fátækari, eru venjulega skilvísir menn, eiga sinn þátt í því að efla viðskiftatraust þjóðarinn- ar út á við. Þeir eiga oft fé í bönk- um, sem gerir peningastofnanirnar fær- ar um að veita lán og hafa fé í velt- unni og þeir lána stundum til þarf- legra fyrirtækju, sé trygging næg. Með- an eignarrétturinn er viðurkendur frið- helgur, er ástæðulaust að lá slíkum mönnum, þótt þeir vilji ekki leggja fé til hvers sem vera skal og trúi sjálf- um sér bezt fyrir fé sínu. Hins er skylt að minnast, að þeir eru einátt með sterkari stoðum þjóðfélagsins. Annar flokkur efnamanna eru kaup- sýslumenn, gróðabrallsmenn og út- gerðarmenn. Pessum mönnum safnast sumum fé og verða oft öflugar stoðir þjóðfélagsíns. Sumir nefna þá auðvalds- sinna og þykir þeir einatt harðdrægir, er þeir vilja sjá sér farborða, og finst þeir oft hafa góðan hagnað af kaup- skap sínum, þegar séð eru út og sætt hentugum tækifærum til innkaupa og sölu, eða þegar atvinnufyrirtæki og framleíðsla er rekin með dugnaði og hagsýni, svo hún gefur góðan arð. Þessir menn seilast oft út fyrir sitt eigið þjóðfélag með viðskiftabrask sitt og mata þar krókinn í taflbrögðum viðskiftanna. Menn gæta þess ekki, að þessir menu tapa stundum og eiga ein- att mikið fé í liættu og missa vstúnd- um aleigu sína, því að ætla sér að sækja gúll í greipar Ægis og útlend- inga er eigi hættúlaust og margir hafa á því flaskað. hefir ódýrast og langstærsta úrval af alls- konar trjám, plönkum, borðum í ýms- um lengdum breiddum og þyktum, klæðningu,. gólfborðum innan þylþu- borðum, dyra- glugga- og loftlistum'o. m. fl. til bygginga. Sig’. Bjarnason. k starfsárum sínum eru þessir menn oft með öflugustu stoðum þjóðfélags- ins, koma hreyfingu á atvinnuvegina, gera oft tilraunir, sem margt má læra af, veita einatt mikla atvinnu og eru þá ekkert að gráta, þótt eitthvað fari að forgörðum og alt hepnist eigi. En til almenningsþarfa leggja þeir einatt drjúgan skerf. Þótt eg hafi bent hér á tvo flokka manna, sem eg' tel með öflugum stoð- um þjóðfélagsins og finst þe/r fyrir þaö verðskulda virðingu og velvild meðborgara sinna, viðurkenni eg, að margar eru fleiri veigamiklar stoðir þjóðfélagsins, þótt ekki séu auðsafns- menn. Mennirnir sem ala upp kyn- slóðina og manna hana, rækta landið og hirða búféð, stunda veiðiskap, dæma misklíðarmál manna, hugsa og ræða um viturlegt skipulag milli manna, reka iðnað og vinna nytsama vinnu, alt eru þetta stoðir þjóðfélagsins, sem halda uppi þeim hlífðarskjöldum, sem vernda með- limi þess fyrir tortýningu og ýmiskon- ar hörmungum, sem verndar ungviðið meðan það er að ná þroska, mýkir hörmungar sjúklinganna og styrkir hina ellihrumu, sem ekki eru sjálfbjarga. Menn ættu því eigi að hafa horn í síðu efnamannanna fyrir það eitt, að þeir eru eða taldir vera ríkir. Hitt er annað mál, þótt reynt væri að fyrir- byggja, að þeir noti auðinn (afl þeirra hluta sem gera skal) til að aftra því, að aðrir meðlimir þjóðfélagsins geti aflað sér hins daglega brauðs og rek- ið nytsama atvinnu. Að aftra slíku heyrir undir verksvið þeirra, sem marka hvert skipulag ríkja skuli í þjóðfélag- inu. CO

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.