Norðurljósið - 10.08.1886, Síða 4
4 —
um allan heim; emla er liann orðlagður mælskumaður og
stjórnvitringur, og þar að auki hinn drenglyndasti í hvi-
vetna. Loksins var þó frumvarp hans fellt, og póttu það
ill tiðindi öllum frelsismönuum, því Irar hafa um margar
aldir verið undir ánauðaroki Englendinga, og eru varla
dæmi til í sögunni, að menntuð þjóð hafi íarið eins skamm-
arlega með nokkra siðaða þjóð, eins og Englendingar með íra.
Hvernig mótstöðumenn Gladstones snúast við íi-ska málinu,
ef þeir komast til valda er enn óvíst. En vili þeir í engu
vægja, má búast við upphlaupi og allskonar óspektum af
hendi íra.
Sjaldan sitja Eússar og Englendingar lengi sáttir. Nú
hafa Eússar gefið tilefni til nýrrar þrætu, með því að af-
nema frjálst verzlunarleyfi á einui höfn við Svartahatið, er
Batum heitir. Var þó samið um það í Berlínarfriðnum
1879, að höfn þessi skyldi frjáls, en undir umsjón Bússa.
24. júlí var fangelsisvist þiugskörungsins Bergs i
Kaupmannahöfn lokið. Hefir hann setið í fangelsi í 6 mán-
uði fyrir sakir, er hægri menn báru á hann, og hann var
dæmdur fyrir. Ætluðu vinstri menn að halda honum stór-
veizlu þegar hann slyppi úr varöhaldinu.
Rusla skrína.
J>að er Ijótur vani, sem margir hafa, að draga andann
um raunninn en ekki nefið. En það er líka óhollt, og
getur verið orsök brjóstveiki og fleiri sjúkdóma. Indiánar í
Ámeríku halda aldrei munninum opnum, því að þeim þykir
það Ijótt. J>eir kalla Evrópumenn „hvitmunna“ (white mouths).
Konur þeirra láta ávalt aptur munninn á börnum sínum-
þegar þau sofa, og neyða þau þannig til þess að anda um
nefið. Indíánar eru góð fyrirmynd í þessu. Mæður ættu
af fremsta megni að venja börn sín á að sofa með aptur
munninn. Enda sofa börnin þá jafnan værast. Hrot, sem
bæði er leiðinlegt og óþægilegt fyrir mann sjálfan, kemur
optast, til af því, að menn sofa með opnum munni.
jþegar Schiller var drengur, lærði hann að leika á hörpu.
Einusinni, þegar hann lék á hörpu sína, kom maður til hans,
sem var eitthvað illa við hann, og sagði: „þú leikur á
hörpu, en þú leikur ekki eins og Davíð“. „Og þú talar,
en þú talar ekki eins og Salómon“, svaraði drengurinn.
Einusinni kom maður í kaupstaðinn, og bar á bakinu
í poka kjöt, er hann ætlaði að selja. Mætti hann þá manni,
er spurði hann, hvað hann bæri í pokanum.
„7 krónur og 50 aura“, svaraði aðkomumaðurinn, því
hann heyrði ákaflega illa en hélt að hinn væri að spyrja
sig að því, hvað það kostaði, sem var í pokanum. Kaup-
staðarbúinn varð íokreiður við svarið og sagði: J>ú ert
fallegur þorskur, það væri réttast að berja þig, bannsettur
dóninn“.
„Og engum hefir nú enn komið til hugar að bjóða mér
minna en þetta, og þetta var mér boðið heima hjá mér og
víða á leiðinni“, sagði aðkomumaðurinn, því honum svndist
á hinum, að hann mundi vera að raga kjötið.
„Kú, til hvers komstu þá eíginlega hingað, eða viltu
láta berja þig meira?“
„Meira, já, það er jeg líka viss um, að eg fæ í búð-
inni“.
Auglýsingar.
irér, sem enn skuldið úrsmið Páli Eirikssyni á Sauð-
árkrók, íyrir úraðgjörðir og fleira, síðan hann var á Ak-
ureyri, eruð beðnir að borga hið bráðasta til ritstjóra blaðs
þessa, eða á einhvern hátt gjöra grein fyrir skuldunum.
Yestrfarir!
Fyrir milligöngu Allílll-Iíniinilíir lét Kanada stjórn
gera ráðstafanir til að vestrfarar þeir, er kæmu heðan af
landi í sumar með A11 an-1 í n u nn i fengi atvinnu hvar
helzt sem þeir tækju sjer bólfestu í Kanada. Að þessu
starfaði nefnd manna í Wránipeg, er stóð í sambandi við
menn á ýmsum stöðum í Kanada. Var þetta tilkynnt agent
Kanadastjórnar og leiðsögumanni vestrfaranna með Allan
línunni, hr. Baldvin L. Baldvínssyni, og hann beðinn að
senda hraðskeyti frá Leith um, hve margir vestrfarar kæmu,
hve nær þeir kæmu, og hve margir þörfnuðust atvinnu.
Með Camoens fóru nú í síðustu ferð c. 350 vestrfarar
og leið þeim öllum vel. Nægilegt rúm handa 400 vestr-
förum var á skipinu, samkvæmt vottorði sýslumanns á Seyð-
isfirði, og allir heilbrigðir samkvæmt vottorði læknisins þar,
en þaðan lagði skipið siðast hér frá landi.
Allir vesturfarar voru á einu máli um það, að duglegri
og liprari leiðsögumann væri eigi unt að fá en hr. Baldvin
Baldvinsson, og munu þeir síðan auglýsa þa , þegar ferð-
inni er lokið,
Ef nógu margir skrifa sig til vestrfarar á næsta ári
og tílkynna mér það nógu snemma, helzt fyrir októbermán.
aðar lok í haust, þá mun jeg sjá uin, að hr. Baldvin Bald-
vinsson vei-ði einnig leiðsögumaður vestrfara með Allánlín-
unni á komanda sumri, og verð ég því að skora á alla þá,
er ^yggja á Ameríku för að sumri og vilja hafa gagn af
svo góðum leiðsögumanní, að skrifa sig sem allra fyrst til
ferðarinnar bjá mjer eða undir-agentum mínum.
Sigfús Eyxnumlsson
umboðsmaður Allan-línunnar.
Xýjar bækur.
Við bókaverzlun Frb. Steinssonar á Akureyri.
Sálmabökin nýja Ev. 1886 . . bundin 3.75, í alsk. 4,00
í skrautbaudi 8,00
Sálmnsnfn eptir sr. P. Guðmundss. með mynd, Rv. 1886 b. 2,65
Formálabök lögfræðisleg eptir M. Stepb. og L. Sveinbjörn-
sen. Rv. 1886, í kápu 3,75 . . . í bandi 4,50
Hjálp í viðlögum, eptir J. Jónassen Rv. . . - — 1,00
Fornaldarsögur Norðurl. 2. bindi .... - — 4,25
Ltanför Kristjáns Jónassonar Rv. ... - kápu 0,70
Eirkjusaga eptir sr. H. Hálfdánarson Rv.
1883—5 1. og 2. bepti . . . - — 3,00
Hugvekjur til tímaskipta, eptir síra Stefán M.
Jónsson. Akureyri 1885 - — 0,50
Eyrbyggja saga Akureyri . . . í bandi 1,25
Robinson Krúsóe, skemmtisaga. Rv. 1886. í bandi 1,25—1,50
Kjartan og G-uðrún skáldsaga eptir frú Torfbildi Hólm
Rv. 1886 í kápu 0,15
- — 0,35
- — 0,25
— 0,25
— 0,40
— 1,25
. . 0,15
baudí 0,35
Maðvizkan indversk saga. Rv. 1886.
Um Harðindi eptir Sæm. Eyólfsson. Rv. 1886
Leiðarvísir til að rækta rófur eptir Sebierbeck
Rv. 1886
þingsályktun eptir þorlák Guðmundss. Rv. 1886.
Mállysing ísl. eptir "Wimmer. Rv. 1886 . . .
íslenzk sönglög eptir Helga Helgason, 1. og 2. h.
Rv. 1886.
Reikningsbók handa byrjendum eptir Jóbannes
Sigfússon. Rv. 1885
þjóðvinafélags bækur 1886:
Almanak fyrir 1887. Rv. 1886.
Andvari XII. ár. Rv. 1886.
Frelsi Rv. 1886.
Uppdráttur ísL 1 kr. og 4kr., limdur á lérept og kefli . 7,00
Enn fremur flestar eldri nauðsynjabækur, svo
sem húslestrarbækur, fræðibækur og skólabækur,
skemmtibækur og sögubækur, svo og margar útlend-
arbækur, allmargar með niðursettu verði.
Myndir af Jóni Sigurðssyni á 2,30
— — Steingrími Thorsteinssyni á
Olíumyndir í fallegri umgjörð .
Myndablöð og myndabækur, pappírsbækur og margs-
konar ritföng.
1,00
5,00
Lítið íbúðarhús á Akureyri er til sölu. Ritstjór-
inn vísar á seijandann.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll iÓnSSOFI.
Prentsmiðja B. Jónssonar.