Norðurljósið - 05.01.1893, Side 1
Kemur út þrisvar i mánuí)i
(5.—15.—25.), 36 blöT) á ári.
Verð 2 kr. (erlendis 3 kr.).
Gjalddagi 15. júlí.
NORÐDRLJÓSIÐ
Afgrei5slustofaí>mí///oiíss/r.5,
Uppsögn skrifleg, bundin við
áramót, ógild nema hún sje
komin til ritstjórans fyrir
1. október.
VIII. ár.
Keykjavík fimnitudaginn ð. jan. 1893.
1. biað.
Gleðilegt nýár, heiðruðu kaupendur!
í stað þess að biðja fyrirgefningar á því, að vjer
höfnm tekizt á hendur að verða blaðstjóri, og í stað
þess að koma fram fyrir yður vælandi og skælandi
yfir hörðu árferði, peningaeklu og öðru þess konar,
hikum vjer eigi við að koma fram fyrir yður hug-
glaður og vongóður um framtíð vor ogyðar, framtíð
landsins og þjóðarinnar, framtíð hvers þess manns,
sem þorir að reyna á sig og leggja krapta sina í söl-
urnar fyrir gott málefni. í stað þess að afsaka, að
vjer, óþekktur og óreyndur byrjum á starfa þessum,
og þrátt fyrir það, þótt Pjetur og Páll kunni að spá
oss ófarnaðar, hikum vjer eigi við að sýna yður
Norðurijósið, í því trausti, að allir góðir drengir Ijetti
undir bagga með oss, til að styrkja að því, að blað
vort fái útbreiðslu, svo það geti óhikað barizt fyrir
þeim málefnum, er það mun taka sjer fyrir hendur
að hreyfa við.
í stað þess að þegja, munum vjer tala. I stað þess
að líða svik og svívirðu, tælandi loforð við almenn-
ing og árásir gegn kristindóminum, hvort heldur er í
riti eða ræðu, munum vjer hefjast handa af öllum
mætti, og berjast vægðarlaust gegn hverjum þeim, er
þorir að ráðast á þá kenningu, er framar öllu öðru
vekur mannkynið tii meðvitundar um köllun sína. I-
myndið yður ekki, að vjer munum lygna aptur aug-
unum og segja: »Það er allt blessað og gott«. Þegar
annað eins birtist, eins og t. d. þegar ráðizt er jafn-
vel á grundvallaratriði alls siðgæðis, eða annað þvi
líkt. ímyndið yður ekki, að vjer álítum satt og rjett
að biðjast friðar, slá úr og í eða ganga í samband
við annað eins. Vjer viljum þúsund sinnum heldur
bardaga, hlifðarlausan, hvíldarlausan, en svikulan frið.
Blöðin eiga ekki og mega ekki synda á milli skers
og báru. Það er skylda þeirra að taka í hnakka-
dramb lyginnar, þegar hún læðist inn í híbýli manna,
afklæða hana sínum fölsku fjöðrum og kasta henni
út undir bert lopt, út á hlað, til þess að hver ærleg-
ur maður sjái til að troða hana undir f'ótunum. Blöð-
in eiga að fræða almenning fremur um það, er til
menningar horfir, og til þess að kenna lesendum sín-
um satt og rjett, gott og göfugt, en að lýsa fyrir þeim
spillingu og svívirðu, þegar það er gert á þann hátt,
að kitla tilhneigínguna til hins illa. Blöðin eiga að
innræta mönnum ættjarðarást og þor og þrek til að
berjast gegn örðugleikum lands þess, er þeir eru
fæddir í og hæfastir að lifa í samkvæmt líkamsbygg-
ingu sinni, í stað þess að styðja að því, að menn fleygi
frá sjer öllum hug og dug, og gani fyrirhyggjulaúst
í lítt kunna heimsálfu, þar sem reynslan hefir sýnt, að
»ekki er allt gull sem glóir«.
Blöðin eiga þar að auki ekki að eins að flytja skoð-
anir ritstjórans til allra þeirra, er þau lesa, heldur
einnig skoðanir lesendanna hvers til annars.
Blöðin eiga að vera sá ræðustóll, þar sem þjóðin
ræðir um þarfir sínar, bæði í almennum og einstök-
um atriðum, bæði fyrir sjerstök hjeruð og landið í
heild sinni. Blöðin eiga að vera opin fyrir öllum
þeim, er rita satt og rjett, án þess auður eða metorð
hafi þar nokkur forrjettindi, en lokuð fyrir öllum þeim,
er með lygar fara. Biöðin eiga að fræða um lífið,
ekki að eins veðuráttufar, aflabrögð og fjárheimtur,
heldur um allt, sem setjandi er í letur bæði andlegt
og líkamlegt, og geturvakið fegri hugsunarhátt,meira
siðgæði, öflugra þrek—ekki að eins uœ ráðherraskipti
og þingaþras erlendis, heldur jafnframt um öll þau
málefni, er geta rýmkað vorn einangraða og afskekkta
andlega sjóndeildarhring.
Hvernig Norðurljósinu tekst að f'ylgja þessu, verð-
ur tíðin að sýna.
I stjórnmálum mun því fylgt hiklaust, að þjóð vor
megi ekki þreytast að berjast fyrir því, að fá í'ull og
óskert yfirráð yfir öllum þeim málum, er oss eina
varðar, og vjer eigum með hyggni og stillingu en þó
ótvíræðri einurð að halda saman í þessu máli og láta
ekkert tækifæri ónotað til þess, að því þoki áleiðis,
hversu langur tími sem líður þar til vjer fáum allar
kröfur vorar uppfylltar—, að oss beri að styrkja að
því, að hvert hjerað landsins, sem hefir eitthvað sjer-
eðli í atvinnuvegum, ólíkt því sem á sjer stað annars-
staðar á landinu, eigi að fá sem rýmstan rjett til að
útkljá sín eigin mál, en að oss beri jafnframt að styðja
að því eptir megni, að þjóðin noti því betur frelsið,
sem hún verður frjálsari á pappírnum.
Norðurljósið mun mæla með atvinnumdlum, sam-
göngum á sjó og landi, gufuskipa-strandferðum og
brúabyggingum eptir megni.
Norðurljósið mun flytja frjettir, útlendar og innlend-
ar svo fjölbreyttar, sem hægt er og rúm leyfir.
Og Norðurljósið hefir margt fleira að minnast á, t
d. verzlunarmál, bindindismál og menntamál,—en nóg
mun lof'að að sinni. Látum þá lof'a meiru, er ætla
sjer ekki að efna helminginn.
-----sse------
Árið sem leið
má telja eitt af hinum harðari árum hjer á landi á
þessum mannsaldri. Yeturinn sem leið var allharður
og þar á of'an bættist, að vorið var eitthvert hið harð-
asta sem menn muna. Að sönnu var ekki hafís land-
f'astur til lengdar nema á stöku stað, en sökum kuld-
ans var grasvöxtur afarrýr víðast hvar. í júlímánuði
brá til rigninga sunnanlands og mátti því ekki heita,
að sláttur byrjaði þar fyr en í ágústmánuði, en
nyrðra var miðsumarið betra, einkum austan Eyja-
fjarðar. í ágústmánuði var blíðviðri yfir land allt, en
þó fremur kalt, en svo tóku við hríðir í september-
mánuði, og varð því nýting engan vegin góð, þá
tókvið bliðviðri í október og loks hríðir, er ollu fjár-
sköðum og mannsköðum, einkum í Húnavatnssýslu og
Borgarfirði.
Fiskiafli við Faxaflóa var hartnær enginn á vetrar-
vertíðinni, og sama má segja um sumaraflann á Aust-
fjörðum. Aptur á móti var óvenju góður vorafli og
þó einkum haustafii á Faxaflóa. — Þilskipaflinn var
frábærlega góður, eitt skip af Vestfjörðum aflaði 77
þús. fiskjar yfir sumarið.
Verzlun var með óliægasta móti: öll íslenzk vara i
lágu verði en kornvörur í hærra verði en mörg und-