Norðurljósið - 18.10.1893, Síða 3

Norðurljósið - 18.10.1893, Síða 3
115 biður þó á Kougshavn í Færeyjum eptir frekari ráð stöfun. Gufubáturinn »Elín« heflr nú lokið ferðum sín- um í ár. A laugardaginn kom hún úr seinustu ferð- inni ofan úr Borgarnesi. Var skrantlýst um kveldið hjer á höfninni og flugeidum skotið til hátíðabrigðis. Fór á sunnudaginn til Hafnarfjarðar í vetrarvist. Skiptapi. 11. okt. fórst skip með 6 mönnum frá Vörum í Garði í fiskiróðri. Formaður Guðbrandur Þorsteinsson lausamaður í Vörum, 4 vinnumenn Einars bónda þar og 1 sjómaður úr Mýrdal. Skip komin : 14. okt. póstskipið Laura (kapt. Chri- stiansen), 15. okt. Ásta (102.40, P. H. Petersen) frá Kefla- vík; fór til Spánar í gær. -----=<Sf=---- Verzlunarfrjettir. Höfn 2. okt. 1893. SaltfLaks- salan á Spáni er iítið eitt ab batna. Seldir þar 2 farmar frá ísafirði til Barcelona á 44 og 39 kr. og 1 farmurfrá Faxaflóa til Bilbao á 39'/a kr. Til Björgvinar seldur einn farmur frá Isafirbi á 45 mörk skippundib og annar frá Faxaflóa á 42 mörk. Þar í íelst fiutningur og ábyrgðargjald frá ís- landi. 1 farmur af smáfiski frá ísafirði seldur til Genua á 37*/4 kr. Óseldir enn 13—14 farmar frá Faxaflóa og G farmar frá Vesturlandi. Á Englandi er verðib heldur ab lækka. Stór saltfiskur seldur i Liverpool á 13—12 pund sterl. tonnið. Ysa á 12 pund og bezti smáfiskur valinn til ab sendast til Genua lð’/a—15'/4—15 pund, lakari 14 pund. í Höfn lægra verð á öllum flski. Það sem kom með Laura selt þannig: stór bnakkakýldur saltfiskur frá Norð- ur- og Austurlandi 34, 33 og 31 kr., stór fískur að sunnan og vestan nr. 2 28—27^/a og 27 kr., stór hnakkakýldur vest- firzkur fiskur 48—4G kr., smáfiskur ab norðan og austau 38—35*/a—34*/4 og 38 kr. eptir gæðum. Ysa nr. 1. GO'/a kr. og langa 40 kr., allt miðab við 320 pund. Harðfiskvr nýr og góður .150 kr.; af gömlum harðfiski óseld 40 skpd., eiga að seljast á 40 kr- en ganga ekki út. Vllarsalan að glæbast: Seldir 14—1500 ballar. Ymist úr geymsluhúsum eða nýkomin með Laura í septbr. Verb- ið var: norðlenzk vorull prima 631/! e., frá Akureyri 62 a. Blönduós og Skagaströnd 59*/a e., Sauðárkrók 59 a., Borð- eyri og Stykkisbólmi 58 a , Bíldudal og ísafirði 55 a. pund- ið brutto. En óseldir ca 1500 ballar í Höfn og 6—700 á Englandi. Mislit norðlenzk vorull seld í Höfn á 43 a sunnlenzk og vestfirzk 42 a„ mislit haustull 34*/2 e , svört vorull 47 a., hvit óþvegin 441/* e., hvít haustull þvegin 48 a. pundið hrutto (þ. e. með umbúðum). Lýsi lækkar í verbi einkum liákarlslýsi ljóst gufubrætt selt á 30—29 kr. og ljóst pottbrætt á 30—281/* og 27^/a kr. eptir gæðum, dökkt hákarlslýsi 27—26, 25—24 fyrir 210 án turinu. Þorskalýsi er spurtmeira eptir og keypt á 29'/2 —SS'/a og 27 og 26 kr. eptir gæbum. Sauðakjöt er selt á 42 kr fyrir 224 pund og kaupend- ur fást enn. En af því frjetzt hefir, að Englendingar ætli að kaupa fje á íslandi í haust, hafa seljendur dregið sig í hlje meb að hjóða það, þar þeir vita ekki hvað mikib muni verða til sölu. Sauðskinn söltuð 3.20—4,00 vöndullinn (2 skinn). Þurk- uð sauðskinn Þ/a—3 kr. eptir gæbum. Sunchnagar seldir á 25 a. netto, óseldir 160—200 ball- ar. Kaupendur bjóðast ekki. Tólg 25—27 a. ab nafninu til. Ditnn bezta tegund 91/*—9 kr. og 81/2—8 kr. fyrir lak- ari vörur. Járnbrautar-æfintýri. Eptir Max Nordau. (Erh.). Jeg er læknir og þegar jeg fyrir uokkrum ár- haíði lokið námi mínu, það er að segja tekið próf, atvik- abist það þannig, að jeg rjeði at ab flytja til Ameríku og eptir að jeg hafði dvalib í New York stuttan tíma, fjekk jeg sýslunina ab vera fangelsislæknir í Auburn sem er í ríkinu New York og megið þjer geta því nærri, að ekki hafa verið margir keppinautar mínir. •Teg átti ab hafa beilbrigisumsjón i þeim hluta fang- elsisins, þar sem voru hinir óttalegustu glæpamenn, menn, sem gjarnan hefbi mátt nefna villudýr í mannsmynd, menn sem fóturn tróðu öll borgaraleg og siðferöisleg lög, menn, sem áttu ekki einn einasta kærleiksneista í brjósti sjer. Meðal glæpamanna þessara voru tveir, sem voru dæmdir til að vera æfilangt í hegningarhúsinu — þeir tveir menn skörubu fram úr öllum hinum bæbi að hreysti og skyn- semi. Þeir höfðu margsinnis reynt að strjúka en árang- urslaust, og höfbu ekki annaö fyrir en þeirra var gætt miklu vándara eptir en áður. Jeg hafbi bakaö mjer hatur af því að jeg hafði einu sinni komizt eptir, að þeir höfðu falið ýms verkfæri i fötum sínum, er þeir hötðu ætlað til þess að brjótast meb út úr fangelsinu. Verkfæri þessi voru eins og aubvitað er, tekin tiá þeim, og þannig fjell þessí tilraun um koll. Annað sinn Ijetust þeir vera veikir og voru þá fluttir á sjúkrahúsib, en þaðan áttu þeir hægra með að strjúka. en jeg gat sannaö, að ekkert gengi að þeim. Þeir voru abskildir og settir í járn, en samt sem áður var annar þeirra horfinn einn góban veburdag og hinn að tveimur dögum liðnum. Þjer getið getib nærri hvílíkt uppþot varð í Auburn er fangarnir voru sloppnir, en þegar komið var í ró og rúmur hálfur mánuður var liðinn frá því, er þeir struku, reið jeg til Cayugabridge í erindagjörðum fyrir sjálfan mig. Um hádegi náði jeg þangab sem ferðinni var heitið. Það var allra inndælasta veöur og jeg sökkti mjer niður í að horfa á hjeraðið sem breiddist út sólbjart fram undan mjer. Cayugavatnib hlasti við mjer í allri sinni einkenni- legu fegurb. Vatnið er langt og mjótt og breiðist eins og silfurband milli hinna ægilegu og skuggalegu klettastranda. Vatnið er nálægt níu mílur á lengd, en þar sem jeg kom að því, var það ekki nema fjóröungur mílu á breidd, var þar byggð öflug járnbrú yfir það, sem var meistaraverk af ameríkönskum dugnaði. Yfir brú þessa liggur Attika- og Baflála járnbrautin og er brautarstöð í litla og Ijelega bæn- um Cayugabridge. Jeg lauk störfum minum í bænum á skammri stundu og undir kvöld iagbi jeg aptur af stað heimleiðis. Ef þjer hafið nokkru sinni verið á ferð á fögru sumarkvöldi, hljót- ið þjer að vita hve skemmtilegt það er. Skuggarnir af háu og digru trjástotnunum voru farnir að lengjast og trjákrónurnar bærðust svo hægt í kvöldgolunni, ab hægara var að finna það en heyra. Meöan jeg reiö í gegnum skóginn duttu endurminning- ar frá heimili mínu og fegurstu æskustöðvum minum í huga mjer. svo jeg sinnti engu öðru: án þess að vita af hafbi jeg sleppt taumnum fram á makkann á hestinum svo- hesturinn lötraði meb mig hægt og hægt. í því sólin rann til viöar varð jeg hrifinn af fegnrð náftúrnnnar. Jeg varð hrifinn af undrun við ab horfa á hina töfrandi litprýði, er mjmdubust at sólargeislunum, er þeir tindruðu gegnum dimmgræn laufin líkt og kviknað væri i blabröndunum. Allt í einu hrökk jeg vib úr hugsunum mínum af skarki er jeg heyröi í hinum lægri kjarrskógi. Jeg þreif skamm- byssu mína og sneri mjer við, en allt í einu fann jeg að jeg var lostin voðahöggi og missti mebvitundina. Jeg lauk þó snöggvast upp augunum og virtist mjer jeg sjá eins og í draumi annan glæpamanninn er strokib hafði, um leið og hann laut niður ab mjer, en svo leið yfir mig á ný. (Framh.). Alþing-istíðindin 1893. Verð 3 kr., send kaupendum kostnaðarlaust, fást í bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar.

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/204

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.