Óðinn - 01.07.1905, Blaðsíða 2
26
ÓÐINN.
Thor E. Tnlinins.
Thor E. Tulinius, stórkaupmaður í Kaup-
mannahöfn og stofnandi og framkvæmdarstjóri
gufuskipafjelagsins »Thore«, er á síðari árum
orðinn þjóðkunnur maður hjer á landi. Skirn-
arnafn hans er Þórarinn Erlendur Tulinius og
hann er fæddur á Eskifirði 1860, sonur C. I).
Tuliniusar kaupmanns og konsúls þar, sem and-
aðist síðastl. vetur. Móðir Thor E. Tulinius and-
aðist síðastl. ár; hún hjet Guðrún, dóttir síra
Þórarins Erlendssonar prófasts á Hofi í Alfta-
firði, sem dáinn er fyrir nokkrum árum á 100.
aldursári. Er ætt sú góð og gömul, svo að Thor
E. Tulinius getur rakið móðurkyn sitt upp til
landnámsmanna. Faðir lians var Suður-Jóti að
ætt og kom úngur til íslands um miðja síðast-
liðna öld, varð síðar verslunarstjóri fyrir verslun
Örum & Wulffs á Eskifirði, en eignaðist þá versl-
un 1863 og rak hana þar til nú fyrir fáum ár-
um, er hann fjekk hana í hendur syni sínum,
Thor E. Tuliniusi. C. I). Tulinius kaupmaður
var mikilhæfur maður og svo voru þau hjón
bæði. Synir þeirra á lííi, auk Thor E. stórkaup-
manns, eru þeir Axel sýslumaður á Eskifirði og
Ottó kaupmaður á Akureyri, en dóttir þeirra,
Axelína, er gift í Ðanmörk.
Thor E. Tulinius var níu ára gamall sendur
til Danmerkur; gekk síðan á lærða skólann í Hró-
arskeldu og tók þar fjórða bekkjar próf, en hætti
þá því námi, 1875; kaus heldur að nema versl-
unarfræði og fór í kennslu til verslunarhússins
P. F. Lagoni í Faaborg. Þegar námstíminn þar
var útrunninn hjelt hann heim til toður síns og
var síðan hjá honum á hverju sumri fram til
1886, en á vetrum var hann utanlands til þess
að fullkomna sig í þekkíngu á verslunarmálum.
FZinn vetur var hann sjálfkvaðarstarfsmaður í
Prívatbánkanum í Khöfn.
Vorið 1887 settist hann að í Kaupmanna-
höfn og var fyrst 2 ár á skrifstofu G. Noacks,
er hafði á hendi smjörsölu til útlanda, og ann-
aðist Th. E. T. þar brjefaviðskifti skrifstofunnar
við Eingland. Árið 1889 setti hann á stofn sjálf-
stæða skrifstofu í Khöfn og gerðist umboðsmað-
maður íslenskra kaupmanna. Viðskifti hans
voru lítil í byrjuninni, en uxu brátt, svo að
nú sá hann sjer fært að byrja verslun sjálfur.
Hann stofnaði þá verslun í Fáskrúðsfirði, keypti
verslun á Hornafirði og aðra á Akureyri; fyrir
fáum árum bættist svo þar við verslun föður
hans á Eskifirði, svo að nú á hann 4 verslanir
hjer á landi.
Gufuskipaútgerð Tuliniusar er aðeins 7 ára
gömul. En áður hann keypti skip hafði hann
1896 leigt norskt gufuskip lilið, »Rjúkan« (250
lestir), til vöruflutnínga híngað til lands, til versl-
ana sinna. Tveim árum síðar, 1898, rjeðst hann
í að kaupa gufuskip sjálfur. Þetta fyrsta skip
hans hjet »Hjálmar« (250 lst.) og' þótti honum
þá i mikið ráðist og skipið helst til stórt. En
það kom brátt i ljós, að »Hjálmar« nægði hon-
um ekki, og strax á næsta ári, 1899, keypti hann
»Víking« (400 lst.), sem strandaði næsta ár á
Sauðárkróki. I slað hans var svo »Inga« keypt
1901 (300 Ist.) og sama ár »Mjölnir« (750 lst.),
en »Hjálmar« var seldur lil Noregs. Loks var
»Perwie« (550 lst.) keypt vorið 1902 í stað »Ingu«,
sem strandaði. Jafnframt þessum skipum hafði
Th. E. T. leiguskip i förum og hjelt uppi fösl-
um samgaungum milli útlanda, Austurlands og
Norðurlands.
Eins og sjá má á þessu fer stærð skipanna
stöðugt vaxandi. En nú vildi Tulinius einnig
fá farþegaskip og jafnframt Iiefja fastar sam-
gaungur við Reykjavík og' Vestíirði. Hann stofn-
aði því vorið 1903 hlutafjelagið »Thore« og varð
þar sjálfur aðalhlutaeigandinn og framkvæmd-
arstjóri lýrirtækisins. Hlutafjelagið tók við skip-
um hans »Per\vie« og »Mjölni« og keypti til við-
bótar »Kong Inge« og »Skotland«, sem strand-
aði í fyrra vor við Færeyjar. í stað þess keypti
fjelagið »Kong Trygve«. Auk þessara skipa
hefur tjelagið haft til jafnaðar 3—4 leiguskip i
förum híngað til lands; árið 1904 flutti það
25000 tonn með eigin skipum og 18000 með
leiguskipum.
Á tölum þeim sem hjer fara á eftir geta
menn sjeð íramfarir gufuskipaútgerðarinnar þau
7 ár sem liðin eru síðan hún var stofnuð:
Ár Skipafjöldi Lestarúm, samt. Hestöfl, samt.
1898 1 250 120
1899 2 650 320
1900 2 650 320
1901 3 1300 710
1902 2 1300 660
1903 3 2200 1245
1904 4 3200 1930