Óðinn - 01.07.1905, Blaðsíða 8
32
Ó'Ð r-N N.
Herforírtéjar T^ússa og Japaaa.
Auk þeirra fjögra sem myndir voru af í síðasta blaði eru þetta sex aðalforíngjarnir í landher
Rússa og Japansmanna í Mansjúríu. Kúroki, Okú og Nodzú hafa stýrt þremur aðalherdeildum Jap-
ansmanna í stríðinu, en Nogi hinni fjórðu. Allir voru þeir í orustunni við Múkden, en það er hin
stærsta orusta sem nokkru sinni hefur háð verið. Hinir þrír voru foríngjar Rússa í orustinni við
Múkden undir yfirforustu Kúrópatkins. Lenewitsch kom í veg fyrir að her Rússa yrði umkríngdur þar
af Japansmönnum og varð liann yfirforíngi alls landhersins eftir Kúrópatkin.
KUROIiI
OKU
NODZU
LENEWITSCH
BILDERLING
KAULBARS
Nýjar bækur.
Vorblóm. Æskufjóö eftir Jónas Guðlaugsson. Rvík
1905. 48 bls. 8vo.
Höfundur þessara kvæða er aðeins 18 ára
gamall og enn við nám í latínuskólanum. Það er
því ekki við því að búast, að hjer sje um þrosk-
aða skáldskaparlist að ræða. En honum er sýni-
lega mjög ljett um að yrkja og lagleg tilþrif eru til og
frá innan um hókina. Verði hann vandlátur við
sjálfan sig, hugsi meir um að yrkja vel, en að
yrkja mikið, þá er fíklegt að frá honum komi
síðar góð kvæði.
Andatrú og dularöfl. 2 alþýðufyrirlestrar eftir Bjarna
Jónsson frá Vogi. Rvík 1905. 40 bls. 8vo.
Það eru nýlcga komnar hjer út 3 bækur um
þetta eíni. Al' þeim ætla jeg að þetta kver flytji
hollastar og rjettastar skoðanir á málinu. Efnið
er að mestu tekið úr riti A. Lehmanns »Overtro
og I rolddom«, en sá maður hefur mikið feingist
við að rannsaka það sem hjer hefur verið kallað
»dularfull fyrirbrigði« til þess að skýra þau sam-
kvæmt þekktum náttúrulögum, og er hann fjar-
lægur kenníngum andatrúarmanna. Það er höf-
undur þcssa bæklíngs líka og telur trú þeirra og
kenníngar eiga rót í sjálfsblekkíng.
Prentsmiðjan Gutenberg.