Óðinn - 01.03.1908, Page 4
96
ÓÐINN
Gunnar Ölafsson,
verslunarstjóri í Vík, er fæddur 18. febrúar 1864,
í Sumarliðabæ í Holtum, sonur Ólafs sál. Þórðar-
sonar og Guðlaugar Þórðardóttur konu hans. Ól-
afur er dáinn fyrir nokkrum árum, en Guðlaug
lifir enn ásamt 9 börnum þeirra af 14, er þau
eignuðust, og er Gunnar elstur þeirra er lita; en bræð-
ur hans eru þeir Jón skipstjóri í Reykjavík og
Bogi, sem er við nám í mentaskólanum.
Gunnar ólst upp hjá foreldrum sínum þar til
hann var 23 ára; fór hann þá til Reykjavíkur og
stundaði þar skósmíði 2
vetur fram að vertíð, en
stundaði sjó um vertíð-
ina. Veturna 1891—92
var hann að einhverju
leyti við bóklegt nám í
Reykjavík ; í'jeðst hann
þá um vorið 1892 versl-
unarmaður til Sturlu
kaupm. Jónssonar og
var þar til 1896, er hann
íluttist til Víkur ogvarð
þar bókhaldari við versl-
un J. P. T. Brydes. En
1899 tók hann við for-
stöðu verslunarinnar og
hefur gengt því starfi
síðan.
Af því, sem að fram-
an er sagt, sjest að G
Ól. hefur rutt sjer þá
braut sem fáum um-
komulausum unglingum
er fær, sem leita gæfunnar í höfuðstaðnum, enda
er hann hæfileikainaður mikill og dugnaður, starf-
semi og staðfesta eftir því; hefur hann mörgum
og margbreyttum störfum að gegna, auk verslun-
arinnar, og má þar til nefna, að hann hefur verið
kjörinn oddviti hreppsnefndarinnar, í sýslunefnd,
sóknarnefnd og í skólanefnd allra 3ja barnaskóla
hreppsins; hann er formaður sparisjóðsins í Vik,
sem hann er og aðalstofnandi að, formaður mál-
fundafjelagsins »Ármanns« og íshúsfjelagsins og
lestrarfjelagsins, í stjórn rjómabúsfjelagsins o. fl.
Sýnir þetta best, í hve miklu áliti hann er hjá
sveitungum sínum, og hve almenns trausts hann
nýtur. Hann er og svo vinsæll, að þar mun eng-
inn lengra komast innan þessa hjeraðs, nema ef
vera kynni Halldór Jónsson í Vík.
Gunnar er mikill áhugamaður um allar fram-
farir og hefur oft verið hvatamaður að ýmsum
framfarafyrirtækjum. Hann tekur mikinn þátt í
öllum almennum málum og sækir alla fundi
manna best. Hann er og rnjög vel máli farinn
og glöggur á rök fyrir máli sínu.
Hversdagslega er hann mjög prúður í allri
framkomu, og jafnlipur við alla, æðri sem lægri.
En hins vegar getur hann verið þjettur ' fyrir, ef
því er að skifta.
Umbætur þær sem gerðar hafa verið í land-
búnaði í Mýrdalnum má
óeíað þakka honum til
jafns við þá, er þar mest
hafa að unnið; liann
er áhugasamur um alt
slíkt og hefur sjálfur
komið sjer upp laglegu
túni þar við sandbreið-
una, og heyjar eins og
margir smærri bændur,
þótt það sje erfitt og
langt að sækja hey frá
Vík. Hús fyrir áburð
og skepnur liefur hann
reist svo góð að betri
eru óvíða. Hann hefur
einnig veitt vatni heim
í kaupstaðinn um all-
langan veg; er það leitt
í sementspípu neðan-
jarðar og er vatnsmagn-
ið svo mikið að nægir
öllum Víkurbúum, og er
slíkt mikið hagræði og hreinlætismeðal, og mun
það lengi halda nafni hans á lofti. Að sjálfsögðu
má að nokkru þakka hamingjusömu hjónabandi
og góðu heimilislífi.hve afkastamikill og nýturmaður
hann er. Kona hans er Jóhanna Eyþórsdóttir
kaupm. Felixssonar. Gestrisni þcirra bjóna og
hjálpsemi við alla, er eitlhvað eiga bágt og til
þeirra leita, er mcð þeim hætti, að seinl mun fyrn-
ast þeim er þangað hafa þurft að leyta.
V. F.
m
GUNNAH ÓLAFSSON.