Óðinn - 01.03.1908, Blaðsíða 5

Óðinn - 01.03.1908, Blaðsíða 5
ÓÐINN 97 Gísli J. Johnseo, bretskur konsúll og' kaupmaður í Yestmanneyjum, er fæddur 10. mars 1881. Foreldar lians voru Jóhann J. Johnsen veitingamaður í Vestmanneyj- um (f 1892) og eftirlifandi ekkja hans, Sigríður Árnadóttir, bændaættar úr Öræfum, Þegar eftir lát föður síns varð Gísli móður sinni mjög til styrktar með því að hafa mesta umsjá með veit- ingum, og smámsaman að gæta bús hennar, og liafa eftirlit með öllu utan stoks og innan. Árið 1899 byrjaði G. undir nafni móður sinn- ar dálitla verslun, og rak hana fyrstu árin fyrir hana. Verslunin blómgaðist óðum undir stjórn hans. Að fjórum árum liðnum sótti hann um og fjekk lögaldursleyfl, og tók þá að reka versl- un í sínu eigin nafni; fjekk liann þá útmæl- ingu á lóð fyrverandi verslunarstaðar »Godt- haab«, en þá verslun hafði etatsráð Bryde, eig- andi Garðverslunar í Eyjum.keypt fyrirnokkr- um árum, lagt hana svo niður* og riflð öll versl- unarhúsin. Verslun Gísla lók skjótum framförum, enda hefur fiskiafli ver- ið ágætur í Eyjurn, síð- an hann hóf verslun, og árferði golt. Gísli liefur l'ærst mikið í fang, bygt allstóra og skrautlega verslunarbúð með rúm- góðu geymslulofti og kjallara undir, auk þess 2 stór vörugeymsluhús, ennfremur fjölda smáhýsa til að salta tisk í, er hann svo hefur leigt út til ýmsra manna, bæði af meginlandi og úr Eyjum, sem sjó slunda þar; og í ár er hann að láta byggja mjög væna uppskipunarbryggju, sem er að miklu leyti steinlímd, og nær miklu lengra út í sjó en liin fyrri bryggja verslunarinnar. Verslun Gísla er nú orðin svo mögnuð, að liann fyrra ár mun hafa haft meiri verslunarveltu en hinn gamalgróni kaupm. þar í Eyjunum, etatsráð Bryde, eða jafnvel eins mikla og bæði Bryde og Norðmaðurinn Höydal, sem er 3. kaupmaður í Eyjum, og verslað hefur þar í fáein ár. Áður Gísli tók að versla hafði um nokkur ár að eins verið ein verslun í Eyjum, sem sje Brydes, og þótti mönnum allilt að búa undir þeirri ein- okun. Gísli tók strax að bæta verðlag á útlendri vöru, og er eg þess viss, að það hefur munað við- skiftamenn Eyjakaupmanna svo tugum þúsunda króna skiftir, sem G. hefur bætt vöruverð frá því hann hóf verslun. Hann hefur og breytt mjög verslunarlaginu, tlutt miklu fjölbreyttari varning af ýmsum tegundum, en áður gerðist, og svo byrj- aði hann á því, að halda húð sinni opinni til kl. 8 á kvöldum, og neyddist hin verslunin (Brydes) þá til að taka upp hinn sama sið, í stað þess sem hún áður allan fyrri liluta vetrar að eins liafði búðina opna til viðskifta 3—4 stundir á dag. Gísli er maður hæg- látur í dagfari og mjög umgengnisgóður, en þó fjörmaður; hann hefur svo mikla stjórn á geði sínu, að eigi veit jeg til að neinn hafi sjeð liann skifta skapi, og mun hann þó á stundum hal'a haft fulla ástæðu til þess, því eigi hefur hann fremur en aðrir komist hjá ýmiskonar áreitni annara manna. Yfir höfuð er viðmót hans með hinni mestu lipurð og háttprýði bæði við viðskiftamenn lians og aðra. Jeg þori eftir minni reynslu að fullyrða að hann er maðurorðheldinn og áreiðanlegur í við- skiftum, þótt einhver öfundarmaður kunni að liafa hermt annað. Auðvitað sjá stöku menn of- sjónum yfir velfarnan hans, og því, að hann nú er kominn í mjög góð etni, sem er að þakka gætni hans, framsýni, stjórnsemi, frábæru starfs- þreki, árvekni og dugnaði. Gísli hafði eigi við neina verslun verið, áður hann tók að stjórna verslun; hann hefur í engan skóla gengið, nema barnaskóla Eyjanna. IJó mun liann að ííýti við reikning og skriftir jafnsnjall

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.