Óðinn - 01.03.1908, Qupperneq 7

Óðinn - 01.03.1908, Qupperneq 7
ÓÐINN 99 Bóndinn Björn hinn gamli1) ballur klerkum þótti og heldur hlutsamur, með braki og tygjabramli á biskupsstólinn sótti háfur handóður, af honum var og Helgafellsstaður rændur, hrifsað margt og rúðir smærri bændur, um yfirgang af þegn og' þýi vændur. — Vjer þurfum ekki’ að hlífast við þá frændur. Af þeim ættlegg standa alt á vora daga dýrri Christi kvon eg fann ærinn vanda, er það rakin saga að þungs var þaðan von; reyndar er Björn Þorleifsson oss þægur2 3) — því hef jeg orðið honum lengstum vægur,— en Björn í Ögri aldrei var oss hægur, ófyrirleitinn, berorður og slægur. Harka og hyggjan kalda hans i löngu stríði oss var óþörf skrift, líkt og undiralda cirarlaus á víði upp hefur öllu lyft, buldri hann og uppsteyt öllum veldur, allur lýður virðist makt hans seldur, brýnir leikmenn, bætur engar geldur og — bannfæringar taka’ ekki’ á hann heldur. Er því ekki úr vegi, að þess ljái kostinn, sje til raunar reynt, hvort kirkjan megna megi meir eða ættarrostinn, þótt sózt liaíi lijer til seint. Þá er víst, fyrst ekki’ er öðru’ að ýta og engin lög nje dómar mega lilíta og svcrðin ekki bannfæringar bíta, bezt að láta aílið þrætum slíta, Og efndir á því gera afdrif málin hljóti, fylgt með kappi fram, enda ör upp skera austur að Markarfljóti og suður að Hvítskeggshvamm; mcð Fúsa8) munum vjer eiga við austan-hali, ábótinn4) yfir Nesjamönnuin tali, 1) F. e. Björn Forleifsson ríki (d. 1467) móðurfaðir Björns íögri. 2) Björn Porleifsson yugri á Reykhólum gaf sig undir áraburð Stefáns biskups, móti Birni Guðnasyni frænda sínum. 3) Vigfús lögmaður Erlendsson á Hllðarenda (d. 1521). 4) Ögmundur Pálsson ábóti í Viðey, síðar biskup. en sonur Snorra1) Snæfellingum smali og snúi síðan móts við oss i Dali. Af mun ekki veita, og aldrei valda baga, gerist glíman hörð, víðar liðs að leita og láta saman draga bragna’ um Borgarfjörð, er ekki smcikir kikni’ í geira glammi og gæti sjeð, þótt dreyrði’ úr eins mannshrammi. Þar er bezt að síra Helgi í Hvammi2) hafi sig um liðsafnaðinn frammi«. II. Sól yflr láði leikur, ljómi og' sumarblíða fyllir löndin fríð, jóa rís upp reykur, reið er um hjerað víða frá ægi’ að instu hlið; til Skálholtsstaðar strej'ma rekkar hrönnum, stefnt er þangað öllum helztu mönnum, hirt er lítt, þótt öðrum slept sje önnum, - er það skylda landsetum og grönnum. Framla’ er ferðin knúin, fengnar gerðir beztar allri biskups öld, glymja beizli búin, blínnr og hringafestar, skín á reiðaskjöld; drifnir söðlar langa vegu ljóma, logar alt í dýrum fararblóma, á hjálma jafnvel gljár og skygða skjóma, af skeifnaslætti þurrar grundir hljóma. Bragnar hjá Reyðarbarmi beygja’ á hægri síðu, þar liverfur Hrafnagjá gnöguð elris garmi, og Goðaskógarnir fríðu liylja hraunin grá; gotar renna götur brunahranna, getið cr eigi farartálmananna, höldar taka hvíldir lið að kanna á Hofmannaflöt og bíða Nesjamanna. Undir Ármannsfelli upp sjer jóreyk hnikla flotnafjöld í senn, eygir ærinn á velli ábótann þar mikla, Sunda- og Sunnanmenn, — stór á hesti, glóir á gula lokka, göfgi í svipnum blönduð hörku og þolcka; hvort að lafi leggja bönd og sokka er litlu skeytt, — en klárinn fær að brokka.— 4) Sira Einar Ölduhryggjarskáld, mágur biskups, sonur Snorra i Skógarnesi. 5) Sira Helgi Jónsson i Hvammi í Norðurárdal, og síðan ábóli i Viðey.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.