Óðinn - 01.05.1908, Side 6
14
Ó Ð I N N
Grísli dbrm. Oddsson.
Gísli dannebrogsmaður Oddsson frá Lokin-
hömrum er fæddur í Meiragarði í Dýrafirði 21.
maí 1836, en íluttist með foreldrum sínum, Oddi
Gísli Oddsson
bónda Gíslasyni og Guðrúnu Brynjóifsdóttur, að
Lokinhömrum vorið 1856. Við búi i Lokin-
liömrum tók hann 1865, en hafði og' undir jörð-
ina Hrafnabjörg, og bjó þar síðan í 29 ár, eða þar
til vorið 1894 að hann flutti til Akureyja á Breiða-
firði. Hann undi sjer þó eigi í Akureyjum og
flutti því aftur vestur vorið 1898. Á Lokinhömr-
um bjó Gísli, heitinn stórbúi, liafði jafnan í heim-
ili 20—30 manns. Sjerstaklega stundaði hann fiski-
veiðar á opnum bátum, og það með frábærum
dugnaði. Jörðina bætti hann stórum og liagnýtli
svo, að á hans búskaparárum fram fleytti hún
meira en helmingi meiri peningi en dæmi voru til
áður. Hann ljet og byggja mjög reisulega á jörð-
inni. Við landsmál fjekst Gisli eigi mikið opin-
berlega, og var það bæði, að hann bjó svo afskekt
og svo hitt, að honum fanst hann eigi mega skifta
kröftum sínum, en í hreppsstjórn var hann öll þau
ár, er hann bjó í Lokinhömrum, ýmist lirepp-
stjóri, ýmist hreppsnefndaroddviti, og sýslunefndar-
maður um mörg ár. Við konungskomuna síðast-
liðið sumar var hann sæmdur heiðursmerki danne-
brogsmanna. Gísli heit. öddsson var mjög trygg-
ur vinur sínum og áreiðanlegur og vandaður í
orði og verki, og að öllu samanlögðu mun án efa
mega telja hann meðal hinna nýtustu bænda þessa
lands.
Gísli var kvæntur Guðrúnu Guðmundsdóttur,
dannebrogsmanns Brynjólfssonar á Mýrum, systur
þeirra bræðra Guðna læknis á Borgundarhólmi,
sem nýlega er dáinn, og Jóns heit. kaupm. í Flat-
ey, og liflr hún mann sinn, ásamt 3 börnum þeirra
Guðrúnu, ekkju síra Ólafs Ólafssonar, Oddi mála-
ílutningsmanni og Maríu, sem er gift vestra.
Gísli andaðist hjer í Reykjavík síðastliðinn
vetur, 18. janúar, úr hjartasjúkdómi; var fluttur
hingað veikur að vestan og lifði hjer að eins fáa
daga. Við jarðarför lians var sungið þetta kvæði
eftir Þ. G.
Hjer er til hvíldar
heiðursmaður borinn,
parfur maður úr þarfri stjett.
Höndin, sem stirðnuð
hjer á fjölum hvilir,
Juin græddi’ upp urð i gróðrarblelt.
Horfir mót hafi
hömrum girt frá skaga
býlið hans góða á berri strönd.
Grænteigur mitt i
grjóturð ber par vitni
um ötult skap og iðna hönd.
Margt ber par vestra
menjar um æfi
pessa starfsama merkismanns.
Höfðingi var hann
hjeraðs sins og stytta.
Par geyma margir minning lians.
Eignist hans líka
íslands sveitir marga ;
brátt mun pá hefjast pess bændastjett.
Viða er kalið,
víða parf að rækta
og gera úr urðum gröðrarblett.
Kveðjum með pökkum
pá, sem tiafa unnið
langan æíidag líkt og liann.
Far svo i friði!
Foldin okkar blessar
æ hvern pami mann, sem vel hjer vann.
I.
Sturlungn er nú byrjað að prcnta hjer á kostn-
að Sigurðar bóksala Kristjánssonar og er pað sams-
konar útgáfa og aí íslendingasögunum. Dr. Björn Bjarn-
arson sjer um útgáfuna.
Leiðr j etting. Rangt mánaðarnafn var á sið-
asta tölubl.: mars fyrir apríl.