Óðinn - 01.05.1908, Qupperneq 8

Óðinn - 01.05.1908, Qupperneq 8
16 ÓÐINN Kristján sál. byrjaði manna fyrstur hjer á jarðabótum í stærri stýl, sljettaði alt túnið og girti, bygði þar margar heyhlöður og á síðustu árum reisulegt timburhús. Hann Ijet og síðari árin gera allmiklar jarðabætur á hinum fornu Rútsstöðum, girða þar, sljetta og plægja. 3 árum eflir að hann kom að Þorbergsstöðum varð hann hreppstjóri Laxdælinga, og gengdi hann því starfi æfdangt á- samt oddvita-, sýslunefndarmanns og sáttasemjara- störfum. Rækti hann öll þessi störf með mestu alúð, dugnaði og skyldurækni; enda naut liann alla tíð trausts og álits hjá hreppsbúum sínum, jafnt þeim, er gjöld áttu að greiða, sem hinum, er þyggja áttu. Kristján sál. var einhver fundar- ræknasti maður sem jeg hef þekt; hann ljet sig aldrei vanta; hann var svo metnaðargjarn, að hann vildi aldrei að sagt yrði með sönnu að neitt stæði upp á hann, er honum bar að gera. Kristján sál. hafði ekki notið sjerstakrar mentunar, enda var hennar lítill kostur á uppvaxtarárum hans; lífið og reynslan voru að mestu leyti hans einu kenn- arar; en af því að honum var svo margt vel gef- ið, hæfileikarnir og framkvæmdirnar svo miklar, þá sómdi hann sjer jafnan vel, einnig í þeirra lióp, er meiri mentun höfðu ldotið, og var prýði sinn- ar stjettar. Hann var maður frjálslyndur og fram- faramaður 1 hvívetna, og álti hvert gott fyrirtæki þar vísa styrks von er hann var. Og eins og hann var nýtur og góður fjelagsmaður, eins var hann og tryggur og skyldurækinn safnaðarlimur. Hann var enginn hjegómamaður og hafði ekkert til sýnis að eins, en í lijarta sínu bar hann djúpa lotningu fyrir honum, sem stýrir vorum gangi og gefur oss lífið og lífsins kosta val. Hann var tryggur og einlægur vinur vina sinna. Kross eða heiðursmerki fjekk hann engin og var þó mak- legri en margir, er hljóta. En heiðurslaun fjekk hann af styrktarsjóði Kristjáns konungs níunda, og eins úr Ræktunarsjóði fýrir framúrskarandi dugnað í jarða- og húsabótum. ()l. 01. *f-*!*■ Kvciii’jettiníltii íi í»la,mii. Til viðbótar því, sem sagt er um kvenrjettindamálið hjer framar í blaðinu, skulu til fróðleiks tekin hjer upp nokkur at- riði úr sögu þess, eftir yflrlitsgrein, sem »Kvennablaðið« flutti um aldamótin síðustu. 1847 kom það fyrst til umræðu á þingi að breyta erfðalögunum þannig, að konur fengju jafnan arf móti karlmönnum, og 1850 voru þau lög samþykt. Pað var 7 árum áður en slíkt komst á í Danmörku. 1861 urðu konur hálfmyndugar 18 ára og almynd- ugar 25 ára. 1881 samþykti alþingi lög um, að ekkjur og aðrar ógiftar konur, sem standa fyrir búi, eða á einhvern hátt ættu með sig sjálfar, skuli hafa kosningarrjett til hrepps- nefnda, sýslunefnda, bæjarstjórna og safnaðarnefnda, ef þær eru 25 ára og fullnægja að öllu leyti öðrum þeim skilyrðum, sem lögin ákveða fyrir jþessum rjettindum. 12. maí 1882 voru þessi lög staðfest af konungi. Litlu seinna var konum veitt leyfi til að ganga undir 4. bekkjarpróf og burtfarari>róf i lærða skólanum, og til að hlusta á fyrirlestra við læknaskólann. En rjctt til embætta fengu þær þó ekki. 1899 samþykti alþingi lög um fjármól hjóna. Aðal- rjettarbótin í lögunum er, að giftar konur skuli hafa sama fjárforræði og ógiftar. Mcð lögunum var ætlast til, að hægra yrði að gera kaupmála milli hjóna en áð- ur hafði verið, en með honum mætti á ýmsa vegu tryggja fjárhagslega hagsmuni konunnar í hjónabandinu. Pau takmarka að nokku lejdi rjett húsbóndans til að ráða yfir fjelagsbúum án samþyklcis konunnar. Pau selja ýmsar ákveðnar reglur um sjereign hjóna, einkum til hagsmuna fyrir konuna. Þau veita hjónunum, og þó einkum konunni, rjett til að geta slitið fjelagsbúinu, án þess þó að það hafi skilnað hjónanna í för með sjer, °g h-yggja eigur konunnar gagnvart skuldunautum mannsins. Næsta sporið er Iög þau frá síðasta þingi, sem frá er sagt hjer að framan. Með næstu stjórnarskrárbreyt- ingu, sem nú er fyrir dyrum, fá konur að líkindum bæði kosningarrjett og kjiirgengi til jafns við karlmenn. < )rlaga-fylgj ui'. (E r f i 1 j ó ð). Ilvatráð laiisiuu/ lífs hans fræ-glóð kveykti. Lundgrá örbyrc/ð kjarksins þyrna hvesti. »Stían« garpi styrkum varp að sorpi. Stríðlynd rán hann gerði’ að león fránum. Heljar mundfang manndóms grómi brendi. Myrksýn gröf hann tungna stungum græddi. Fólát sorg mót sól ljet mynd hans fölna. Svalorð minning fal hann glcymsku bráðri. Þ. e. b. *-'A-(U'l^(7>)-vV-* »Bóndiiin á Hranni« lieitir nýtt leikrit, sem Jóhann Sigurjónsson frá Laxamýri hefur samið á dönsku, og á að sýna það næsta vetur á Dagmar- leikhúsinu í Khöfn, »Leysingu« eftir Jón Trausta er nú verið að þýða á þýsku. Það gerir H. Erkes, hinn sami sem þýtt hefur nýlega »Upp við Fossa« eftir Þor- gils gjallanda. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.