Óðinn - 01.10.1910, Page 1

Óðinn - 01.10.1910, Page 1
OÐINN 7. BLAÐ OKTÓBKR ÍOIO. VI. Áli Jón Jakobson landsbókavörður. Hann er fæddur 6. des. 1860 á Hjaltastað í Norður-Múlasýslu, sonur síra JakobsBenediktssonar, er þá var þar prestur, en síðast í Glaumbæ, og nú býr á Hallfreðar- stöðum í Hróarstungu. Faðir síra Jakobs var síra Benedikt Jónasson prófastur á Höskulds- . stöðum í Húnaþingi, . . en móðir Ingibjörg . . dóttir Björns prests . Jónssonar í Bólstaðar- blíð. Kona síra Jak- . obs og móðir Jóns . bókavarðar er Sigríður . Jónsdóltir Halldórs- . sonar.prófasts á Breiða- . bólsstað í Fljótsldíð,. . og Kristínar Vigfús- . . . dóttur sýslumanns .. Thorarensens á Hlíðar- enda í Fljótsblíð. Hafa þau síra Jakob og frú Sigríður nú búið 16 ár á Hallfreðarstöðum,eflir að hann ljet af presls- skap. Hann varð ní- ræður i júlí í sumar, en hún er 84 ára. Jón Jakobsson kom í latnuskólann í Reykja- vík 1874 og útskrifaðist þaðan 1880. Fór svo lil báskólans í Khöfn., tók þar heimspekispróf vorið eftir og las klassiska málfræði í nokkur ár við háskólann en hætli námi og fór þá beim til Islands. Var að staðaldri í Skagafirði frá 1887 til 1895, og bjó á Víðimýri frá 1890 til vorsins 1896, en haustið áður, í desember, varð hann aðstoðar- bókavörður við landsbókasafnið og settist þá að hjer í Reykjavík. Forngripavörður var hann frá 1897 til 1907. En er Hallgrímur Melsteð lands- bókavörður andaðist, í september 1906, var Jón settur landsbókavörður og siðan skipaður í þá stöðu frá 1908. Riddari af dbr. varð hann 1907. .. 24. sept. 1885 . . kvæntist hann Kristínu Pálsdóttur alþm. Vída- líns í Viðidalstungu. Meðan Jón dvaldi í Skagafirði gegndi hann .. ýmsum opinberum .. störtum þar nyrðra og tók mikinn þátt í hjer- aðsmálum. Hann var . einn af slofnendum . Kaupfjelags Skagfirð- inga og um liríð for- maður þess. Hrepps- nefndarmaður var hann og sýslunefndannaður; póstafgreiðslumaður á . Víðimýri 1890—’96. . Fulltrúi var bann fyrir . Skagafjarðarsýslu á . . . Þingvallafundinum .. 1888. Hann var kos- inn 2. þingmaður Skag- firðinga 1892 og sat á alþingi 1898—99, enljet þá af þingmensku um stund. 1903 var hann . kosinn 2. þingmaður . Húnvetninga og sat á alþingi til 1907, en bauð sig ekki fram 1908. Á alþingi liafa honum verið falin ýms trúnaðarstörf, svo sem framsaga fjárlaga o 11. Síðast var bann 1. varaforseti efri deildar. Regar alþing kaus fyrst endurskoðanda við Lands- bankann, árið 1900, var hann kosinn til þess starfs og gegndi þvi lil ársloka 1909. Hann átti frum- kvæði á alþingi að þeirri breytingu, sem gerð var á reglugerð latínuskólans, takmörkun á latínu- Jón Jakobsson landsbókavörður.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.