Óðinn - 01.10.1910, Blaðsíða 2
50
ÓÐINN
kenslunni og afnámi grískukenslu í skólanum, og
var lengi þjarkað um þá breytingu á þinginu áður
hún næði fram að ganga.
Frá 1896—1908 var hann gjaldkeri og full-
trúi hjer á landi fyrir kaupfjelagaumboðsm. og
stórkaupmann L. Zöllner.
Halldór Briem
2. aðst.bókavörður við landsbókasafnið.
Auk aðalbókavarðar eru við landsbókasafn-
ið, síðan það fluttist í nýja húsið, tveir að-
Halldór Briem.
stoðarbókaverðir. 1. aðstoðarbókavörður er Jón
Jónsson sagnfræðingur og liefur »Óðinn« áður ílutt
mynd af honum og grein um bann (í desember
1906). En hinn er Halldór Briem, er áður hafði
lengi verið kennari við Möðruvallaskólann og síðan
við gagnfræðaskólann á Akureyri.
Halldór Briem er fæddur á Espihóli í Eyja-
firði 5. sept. 1852. Foreldrar hans voru Eggert
sýslumaður Briem og kona hans Ingibjörg Eiríks-
dóttir Sverrissonar. Halldór útskrifaðist úr latínu-
skólanum í Reykjavík 1871 og úr prestaskólanum
1875. Sumarið eftir fór hann til Ameríku og var
túlkur með stórum hóp íslendinga, er þá flutti
vestur og settist að í Nýja íslandi. Halldór dvaldi
svo vestra til vors 1877, en kom þá heim, og þó
ekki til langdvalar, því um liaustið fór hann vest-
ur aftur og settist þá að í Nýja íslandi. Þar var
})á nýbyrjað fyrsta blað Vestur-íslendinga. Það
lijet »Framfari«, og varð nú Halldór ritstjóri þess
í ársbyrjun 1878 og hjelt því starfi til janúarloka
1880. Bá stóð yfir trúmáladeilan fyrsta meðal
Vestur-íslendinga, um kenningar »Norsku synó-
dunnar« svo kölluðu, er átti sjer ötulan formæl-
anda meðal íslendinga þar sem var síra Páll Þor-
láksson. En Halldór var lienni andvígur og fylgdi
frjálslegri trúmálastefnu, er síra Jón Bjarnason
hjelt þá uppi gegn síra Páli. Varð svo Halldór
vorið 1880 prestur þess safnaðar í Nýja-íslandi,
sem hneigðist að kenningum þeirra síra Jóns, og
var prestvígður af síra Jóni Bjarnasyni á Gimli í
Nýja-íslandi 21. mars 1880. Þarna var hann eitt
ár prestur, en fluttisl til Minnesota vorið 1881.
Gegndi liann þar prestsverkum, og svo víðar hjá
söfnuðum íslendinga vestra, það ár og fram á hið
næsta, en í ágúst 1882 lijelt hann alfarinn að vest-
an og heim á leið aftur.
Hann hafði þá fengið veitingu fyrir kennara-
embælti við Möðruvallaskólann og tók hann við
því þá um liaustið. Var svo kennari við Möðru-
vallaskólann upp frá því, þar til hann var lagður
niður, eða fluttur til Akureyrar, og síðan við gagn-
fræðaskólann á Akureyri þar til í fyrra, er hann
varð 2. aðstoðarbókavörður við landsbókasafnið.
Hann hefur samið kenslubækur í sumum þeirra
námsgreina, sem hann kendi á Möðruvöllum og
Akureyri, og leikrit liefur hann samið, er sýnd
liafa verið þar nyrðra, og liefur eitt af þeim verið
gefið út lijer í Reykjavík, »Ingimundur gamli«.
Halldór kvæntist í Ameríku þarlendri konu,
er Susan heitir f. Taylor og er bróðurdóttir og
fósturdóttir Taylors ]>ess, er var leiðbeinandi ís-
lendinga á frumhýlingsái um þeirra vestra.
H.
Landsbókasafnið.
Hjer í blaðinu eru tvær myndir þaðan, önnur
aí lnisinu sjálfu, liin af lestrarsalnum.
Húsið er bæði lallegt liús og vel vandað. Upp-
drátturinn er gerður af dönskuin húsgerðameislara,
Magdahl Nielsen, og sagði liann fyrir um alt, er
að byggingunni laut, en liafði hjer fyrir sína hönd
annan húsgerðameistara, Fr. Kjörboe, er hafði yfir-