Óðinn - 01.05.1917, Blaðsíða 5
ÓÐINN
13
Friðrik krónprins
Friðrik krónprins.
Þessi mynd er tekin af Friðriki
Danakrónprinsi 11. mars síðasll.,
en þá varð hann myndugur, 18
ára gamall. þann dag vann hann
eið að grundvallarlögunum (og að
stjórnarskrá íslands, samkv. 3. gr.
hennar?) og tók sæti í ríkisráð-
inu, því eftir að hann er myndug-
ur orðinn gegnir hann konungs-
störfum í fjarveru föður síns. En
meðan krónprinsinn er ekki mynd-
ugur, verður konungur að skipa
ríkisstjóra í hvert sinn sein hann
fer út úr landinu. Þennan dag varð
krónprinsinn foringi í fótgöngulið-
inu (sekondlöjlnant), en í haust á
hann að fara í sjóliðsforingjaskól-
ann, segja dönsku blöðin. í vor
á liann að taka stúdentspróf.
»Politiken« segir að hann hafi
lengi iðkað alls konar líkamsæf-
ingar, og einnig getur hún þess,
að hann sje hneigður fyrir söng
og sagnfræði. Hún segir að hann
sje blátt áfram í framgöngu og
vinsæll af þeiin sem kynnist hon-
um. Hann er upp alinn í Aarhus
eins mikið og í Kaupmannahöfn,
því þar höfðu foreldrar lians að-
setur áður en faðir lians tók við
konungdómi.
manna á rót sina að rekja til hundanna. Ýmsar
rannsóknir gerði hann einnig um það, hve algeng-
ur sullaveikisbandormurinn væri hjer á landi m.
m. og hann lagði ráðin á, hvernig liaga skyldl
vörnum gegn veikinni. Um þelta efni ritaði hann
ýmsar visindalegar rilgerðir, og auk þess alþýð-
legan bækling, sein þýddur var á islensku. Altaf
Ijet hann sjer umhugað um sullaveikisvarnir á fs-
landi og nutu stjórnarvöldin hans góðra ráða.
Upp frá þessu hneigðist hugur lians að dýra-
fræði. Hann lagði einkum stund á innifiaorma-
fræði og liggur töluvert eftir hann í þeirri grein;
gerðist hann kennari við dýralækningaháskólann
í Kaupmannahöfn og gegndi því starfi um langt
árabil. Vísindalegri starfsemi í dýrafræði varð
hann að liælta snemma, af því hann varð fyrir
þeirri mæðu að sjón lians depraðist svo, að hann
gat ekki notað smásjá, og skömmu siðar svo mjög
að lestur og skrift varð honum erfið.
Prófessor Krabbe var valmenni og geslrisinn.
íslendingar áttu jafnan góðu að mæta á heimili
lians, enda var kona hans svo sem kunnugt er
alíslensk, Kristín Jónsdóltir Guðmundssonar. Tveir
af sonum lians starfa í þarfir íslands, annar hjer
í Reykjavík, hinn í Kaupmannaliöfn, dugandi
menn báðir.
G. M.
(Læknablaðið).
*