Reykjavík


Reykjavík - 09.11.1901, Side 3

Reykjavík - 09.11.1901, Side 3
3 ir hans ógift (Helen) á að fá $ 1000 lífeyri árlega. Eigurnar, sem hann lét eftir sig, eru metnar milli doll. 225,000 og (Wl. 250,000, þar i talin lífsábyrgð dbH. 67,000. fá er þess #r minst, að Mc Kinley varð gjald- þrota árið áður en hann var kosinn forseti, að hann var íorseti ein 4 ár með doll. 50,000 árslaunum, þá er auðsætt, að hann hefir matað krók- inn dável á stuttum tima. — Rosevelt forseti átti að skipa sambandsdómara i Alabana í f. mán. Umsækjendur vóru margir. Hann veitti embættið Mr. Jones, fyrv. ríkis- stjóra í Alabana-ríki, og hefir það sætt mikilli athygli fyrir þá sök, að Jones er eindreginn sérveldismaður. Rose- velt hafði sagt við þingmann, sem furðaði á þessu, að hann hefði ekkert farið eftir stjórnarmalaskoðun Jones’s, en veitt honum embættið af því, að hann áliti haun hæfastan allra, sem um það sóttu. — Nú hafa stjórnirnar i Washing- ton og Lundúnum komið sér saman um nýjan samning (í stað Bulwer- Clayton samningsins) um skurðgröft gegn um Panama-eiðið. Pauncefoot lávarður lagði af stað vestur um hal til að leggja samninginn fyrir forset- ann í Washington. Líklegt er talið, að efri málstofan í Washington fallist nú á samninginn. Ganada. — Laxveiðin í British Cólumbia hefir verið meiri í ár en nokkru sinni áður. í ár hefir vorið soðinn niður lax í 60,000,000 ein- punds-dósir. — Á síðustn 7 árum hafa úr einni einustu á (Frazer Rivei) veiðst 47,000,000 fiska (laxar) — Nú hafa stjórnirnar í New Zealand og Tasma- níu (í Ástraliu) beðið Canadastjórn að senda sér lifandi laxhrogn, til að koma upp hjá sér laxaklaki, því að í Ástra- líu er enginn lax, og tilvaunir til að ílytja hrogn þangað (frá Skotlandi) hafa áður eigi hepnast. Canada stjórn heflr lofað að senda hrognin. Japan. — Samkvæmt fjárlagafrum- varpi stjórnarinnar þar, er áætað, að tekjurnemi umfram útgjöld 21,000,000 yen (1 yen = 3,75). CoilgO-fríríkið í Afriku ætlar að fara að byrja á járnbraut í Efri- Congo; hún á að verða 1000 kíló- metra löng. Fiskiveiftar vlft Labrador hafa mjög misheppnast í ár. JlandBhornanna ó milli. Ósvíiin brunatilraun. Maður i Mjóaflrði, Jón nokkur Guðmundsson á Reykjum, gerði ásamt öðrum manni tilraun t.il að kveykja í húsi sínu, þar seni 12 manns voru inni (5 fullorðnir og 7 börn). Hafði hann borað göt víða á húsið og troðið þar í tuskum vætturn í steinolíu og auk þess gert tilraun til að kveykja í þakinu, þar sem hey var undir, og tii þess að fólkið ekki kæmist út, var húsið alt hespað að utan. Við yfirheyrsluna fyrsta daginn fékk sýslumaður (Axel Tulinius) húseigandann grunaðan, en líkurnar þó ekki svo miklar þá þegar, að hann treystist til að taka hinn seka fastan. Næsta dag var þeim seka stefnt til að mæta, ásamt heimiiis- fólki hans, sn þá kom hann ekki. Fékk sýslumaður þá vissu um við yfirheyrsiuna, að Jón þessi hefði kveykt i húsinu og að annar maður (úr Norð- firði, Guðmundur að nafni, ættaður héðan sunnan úr Gullbr.sýslu) hefði verið í verki með honum. Hefir hann nú meðgengið; hafði Jón lofað hon- um 100 kr. fyrir hjálpina eða rífl. það. Var hreppstjóri þegar sendur við 6. mann til að leita Jóns. Fór hann til Norðfjarðar, því líklegast þótti, að hann hefði flúið til aðstoðarmanns síns við verkið; einnig voru menn sendir á bæi þar 1 Mjóafirðinum, en það varð árangurslaust. Telja menn nú víst, að hann hafi sioppið til Noregs um boi'ð í skipi, er lá á höfninni, er hann hvarf, en lót í haf næsta dag. Hann var húnvetnskur maður. Slys. 5. Október fórst á Mjóafirði bátur með 3 mönnum: Jóni Kon- iráðssyni (kaupm. Hjálmarssonar), Jóni Jónssyni og Sveini Runólfssyni. t Stefán Oddsson Thorarensen, fyr sýslumaður og bæjarfógeti á Akur- eyri, létst þar 15. Október. Sildarveiftin á Eyjafirði heldur í rénun, en þó talsverð enn þá og vænni en áður. Elgnir Garftarsfélagsins áSeyðis- fii'ði voru seldar á uppboði nýlega,. Sklpin voru keypt i félagi. Seyðis- fjarðarkaupstaður keypti bryggjuna með lóð og húsum fyrir 5050 kr. og þótti gjafverð. íshúsið keyptu 20 menn í fólagi á 5500 kr. En veiðarfæri og húsgögn urðu heldur dýr. Fjárkaupmafturinn, hr. Martin Poel, keypti einn fjárfarm á Seyðis- firði og sendi til Frakklands, og ann- an á Sauðárkrók. Hann kvað ætla að halda áfrarn fjárkaupum hér að ári. Heyskapartíft ágæt norðanlands síðastl. sumar, svo að menn varla muna aðra eins. Stolift var úr skemmu á Borgríms- stöðum í Breiðdal 500 kr.; brotin upp kista, er bóndinn átti, en þar voru í peningarnir. Lagði þjófurinn síðan eld í skemmuna og brann hún upp og margt fémætt í. — Sýslumaður A. Tulinius gat náð í þjófinn og 400 kr. af peningunum, en hest var hann bú- inn að kaupa fyrir 100 kr. Hann heitir Sturla Vilhjálmsson frá Dölum í Fáskrúðsfirði. Húshruili. Aðfaranótt hins 25. Okt. brann til grunna hús borgara Ólafs G. ísfeldts á Vestdalseyri á tæpri klukkustund. Litlu sem engu varð bjargað og misti húseigandinn þar alla innanstokksmuni og föt, á- samt nokkru af peningum. Ekkert vátrygt nema húsið. Kapt. llovgaard var sent þakk- lætisávarp frá Seyðfirðingnm, er hann fór heim til Danmerkur þaðan. Var ávarpið undirskrifað af 500 manna. f Ernil Möller lyfsali í Stykkis- hólmi er nýdáinn. „ Vestri * heitir hið nýja blað ís- firðinga, sem getið var áður hér í bl., og er hann uú byrjaður að koma út, Prúfiínorrænu hefir Björn Bjarna- son frá Viðfirði iokið. Ný lög staðfest af konungi 27. Sept. (áður staðf. 18): 19. Ejáraulcalög fyrir 1900 og 1901. 20. Lög um bólusetningar. 21. Lög um fiskiveiðar hlutafélaga í land- helgi ■við Ísland. ííöfuðsíaðnum. Hólar komu á Mánud. var með fjölda farþega (um 400). þar á mcðal Karl Niku- iásson dýralæknir, Magnús Pórarinsson tré- smiður (úr Bakkafirði), Jakob Jónsson verzluuarfulltrúi o. fl. Skálholt kom á Fiintudagsmorgun- inn með nokkuð marga farþega. Slys. Á Laugardagínn var fanst dauð- ur maður liér við Bæjarbryggjuna. Hann hét Guðmundur Gíslason, ættaður af Eyrar- bakka. Ekki vita menn hvernig slys þetta vildi til, en sést hafði maður þessi á ferli um morguninn. Tala bæjarbúa reyndist við mann- talið 6700. En þegar það er með talið, sem kom með „Skálholt" og „Hólum", er varla of í lagt, að höfuðstaðurinn hafium 7000 íbúa. Hvitur herðaklútur hefir síðan í sumar verið í ó ski 1 um á Lágafelli. BÚÐ mín er opin kl. 10—3 og 4—7. %3ón (Blqfsson. ~~~--7--------------------------- ' I I 1 á leið af Laugav. niður L X iN X að kirkju: tóbaksdósir, snotrar, litlar, úr horni. Góð fundarlaun. Utgef. Rvk. vísar á þann, sem týndi. Pappír og ritföng Ingólfsstræti 6 JÓW ÓIAFSSON. Sigriður Metúsalemsdótiir Kirkjustræti 2 kemiir hannyrðir eins og að undanförnu.

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.