Reykjavík - 18.06.1903, Page 4
4
Œíítabtóttr.
Eftir Plausor.
1.
Nýjasta nýtt.
Blessuð sé vor bæjarstjórnin nýja,
berist hennar lofgjörð upp til skýja
fyrir starf það eitt, sem nú er unnið,
en það er þessi þétti og haldgóði bygg-
ingamefndar vefur, sem hún hefir
ofið sjálf og spunnið.
Hann er ekki’ úr hnaki neinu táinn,
en hreinu þeli eins og stjórnarskráin,
brigðu ei né hrukku nokkra hefur,
þvi hann or svo hárfínn, heflaður og
sléttur eins og fínasti
,'köngulóar vefur.
Nú er eftir þessa voð að þæfa —
þar til sjáum fulltrúana hæfa;
gæfa var að hljóta svona haga.
hugvitsama, framsýna og byggingafróða
meistara til að öengja þessa makalausu
samþykt upp á
visindanna snaga.
Gvöndur Jak. er allra þeirra æztur,
og svo honum landritarinn næstur;
annar þeirra af afli Framsókn styður;
hinn þar á móti er gallharður Albirting-
ur og er því ekki von að standi’ af
gerðum þeirra friður.
Yilja þeir ef bærinn okkar brennur
burtu láta færa allar rennur,
húsin grenna, stræti’ og torgin stækka,
svo að stigarnir komist betur að þegar
eld ber að höndum, en nú eru þcir svo
stuttir að vegna þeirra verða
kofamir að lækka.
Hvergi má frá hliðum bera skugga,
hvorki opna dyr né spenna’ upp glugga;
húsin ætti helzt í jörð að grafa
og hafa allan umgang um eldhússtromp-
ana, því þá fengi fólk þó smekk af þvi
hvemig værí gegnum
eld og reyk að kafa.
Æpa menn í einu hljóði’ og klaga:
„Aldrei hef ég vitað mína daga
áður þvílíkt bæjarmönnum boðið
sem liana byggingarsamþyktina þá arna
og ætti því alvarlega að taka hana í
gegn undir eins, eða’ að minsta kosti
hreistra’ á henni roðið.“
Trésmiðirnir hrista kollinn hissa,
húseigendur vitið ætla’ að missa,
„skraddaramir skreppa út og rukka"
en skóararnir grípa byggingarsamþyktina
og rýna vandlega eftir, hvort þeir finni
þar ekki neitt, sem
betur mætti „plukka"
Engan nagla út þar sjá þeir dreginn,
engan heldur verða fastar sleginn;
sótaramir svörtum fánum veifa
og segja að stjórnarskráin sé brotin og
eignaréttur sinn skertur ef yfirvöldin
samþyktina leyfa.
Borgarar á fundum víða finnast,
ílestir þar á samþyktina minnast,
kotungarnir kvarta’ um nauman tíma
til að koma henni í lifvænlegt horf með-
an hún stendur yfir þessi
þingkosninga glíma.
Yerzlnn min er ílutt
á Laugaveg Na 1.
(Háyfirdómarahúsið gamia).
Virðingarfylst.
WUBNDAI ÍWI®1.
->*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦«í<T
Á föstudaginn fallega var barist,
Framsókn gat þar langan tíma varist,
Albirtingar engum leyfðu’ að sofa
og það var lika’ á Landvörn að sjá eftir
hádegið að hún fór að halla undir flatt
og kippast við eins og hún væri stungin
með títuprjónum eða
hefði nálardofa.
Það mun sjást á þingi voru’ í sumar
hvort þar séu’ ekki’ myndarlegir gumar
þegar skálum kampavms þeir klíngja
kappinn hann Valtýr og bankastjórinn,
Björn og Lárus, Skúli og annar
þíngmaður Rangæinga, sem talíð er að
verða muní
bergmál landshöfðingja.
En lofum þeim að lenda öllum saman,
líklegt er að verða muni gaman
svipinn á þeim sjá, og orðin heyra,
sem þeir þá mæla hver í annars garð
þegar á þing kemur, en þau getur hver
sem vill lapið upp fyrir mér því
ég segi’ ekki meira.
2.
II c i m s e n d a-v e r s.
Veröldin er að verða trýlt,
vinátta flúin, mannkyn spilt,
sakleysið grætur, syndin hlær,
Satan viðbúinn' hvessir ldær;
tröllslegar krumlur teygir hann
til þess að hremma náungann.
Astvaldur megnar ekki hót
andskotanum að berjast mót;
dugir ei andlegt hrútshorn hans
að hrufla krúnu freistararans,
gjálífi heimsins glymur hátt,
gætnir menn stynja’ og tala fátt.
Landshornauna mxlU.
Aljingiskosningar. Suður Þing-
eyjars.: létur Jónsson á Gautlönd-
um (atkv. ófrétt). —’VestUr-Skaftafells-
sýsla: tíufll. Guðmundsson sýslum.
(einn í kjöri).
Þá eru kosningaúrslitin frétt úr
öllum kjördæmum landsins nema
Norður-Þingeyjarsýslu, Norður-Múla-
sýslu og Austur-SkaftafellssýsJu. —
En rnenn þykjast vita með vissu, hvort
semZmanna skifti verða fleiri eða
færri í þessum sýslum, að þá verða
fulltrúar þeirra af sömu flokkum og
áður, nema í N.-Múlas.; þar verður
Jóhannes sýslumaður kosinn. Vinna
„framsóknar“-menn þar því eittsæti;
en „heimastjórnar“-menn unnu ann-
að í Vestur-ísafjarðarsýslu, og jafn-
ast það upp, svo að nákvæmlega
verða flokkarnir jafnt liðaðir á þingi
og í fyrra.
Öskufall. í Hróarstungu í N,-
Múlas. féll Á2 þml. þykt lag af ösku
skömmu áður en „Hólar“ fóru suð-
ur hjá síðast. Niðri í fjörðum var
askan minni, en varð þó vart.
1Rei?kja\nk oö ðvenð.
„Laura“ fór héðan til útlanda í
fyrradag. Með henni fóru meðal
annara: yfirdómari Jón Jensson og
Ólafur Hjaltesteð.
Mistur nokkurt lá hér yfir bænum
nokkra daga kring um helgina. Sumir
menn þóttust finna brennistéinslykt
með mistrinu.
En hitt er vist, að margir urðu varir
við örfínt sandryk eða ösku í lofti.
Mátti stundum finna það glögt und-
ir tönn, ef maður gekk stundarkorn
úti með opinn munn, og flest-allir
munu hafa kent talsverðan sviða í
augum af því. Er þáb flestra manna
ætlun, að þetta stafi af eldgosinu
eystra. Því að þótt gola væri af hafi,
það lítil hún var, er mistrið var, þá
gat askan hafa borist vestur hærra
í lofti, en komið niður er gola blés
þvi til baka aftur. Hér var hiti og
þurviðri með mistrinu, en til sóiar
sá ekki.
Bezta blaðið.
Hvers er óskað? Hvað er falt?
Hvað 'er nú að frétta?
„Reykjavíkin" öllum alt
ávalt segir þetta.
Hver liefir sér nú heitmey fest?
Hvað er leyft og bannað?
„Reykjavík" er blaða bezt
bæði’ um það og annað.
Henni’ að treysta’ er hvergi valt,
hún því sannleik þræðir.
„Reykjavíkin" alla’ um alt
alla jafna fræðir. Lector.
Hálslín
alls konar:
Flibbar,
Manschettur,
Brjóst,
Manschet-skyrtur
— hvítar og mislitar, • —
S 1 i p s i
margar tegundir,
Brjósthnappar,
Manschethnappar
og alt því um líkt.
Alt vandað og með hezta vcrði.
Fæst í
3. p. T. JJryíe’s verzlnn.
Herhergi nokkur fyrir einhleypa
eru til leigu frá 1. Júlí í
AUSTURSTRÆTI 10
Eitthvað um missiris-tíma hefl ég*
við og við, þegar ég hefi fundið þörf’
á því, hagnýtt Kína-Lífselixír
herra Waldemar Petersens handa
sjúklingum mínum. Ég hefi kom-
ist að raun um, að það er ágætt
meltingáriyf, og hefi orðið var við
heilsusamlegar afleiðingar þess íýms-
um efnum, svo sem við meltingar-
leysi og veika meltingu, sem oft hefir
verið samfara velgju og uppköstum,
við þyngslum og þrengslum fyrir
brjósti, taugaslappleika, og við algengri
hjartveiki, og get ég mælt með því.
Kristíanía,
IJr. T. Rodian.
Neytendurnir áminnast rækilega
um, að gefa því gætur sjálfra sín
vegna, að þeir fái hinn ekta Kína
lífs-elixír með merkjunum á miðan’um,
Kínverja með glas í hendi og flrma-
nafninu WaldemarPeterssen, Frederiks
havn- og í grænu íakki ofan á
stútnum. Fáist elixírinn ekki hjá
þeim kaupmanni, sem þér verzlið við,
eða verði krafist hærra verðs fyrir
hann en 1 krónu 50 au., eruð þér
beðnir að skrifa mér um það á skrif-
stofu mína á Nyvei 16, Köbenhavn.
Waldemar Petersen,
Frederikshavn.
A LAUFÁSVEGI 4
fást eingöngu danskir rammalistar af beztu
sort, Spegilgler, Rúðugler, Veggjamyndir,
Líkkistumyndir.
Enn fremur smíðaðar M0bler, Speglar
og Likkistur úr vönduðu efni, o. fl., o. fl.
Pappírinn frá Jóni élafssyni.