Reykjavík - 03.09.1903, Síða 1
Útgefandi: hlutafblagib „TIeyk.iavík“
Ábyrgðarmaður: Jón Ólafsson.
Gjaldkérí og afgreiðslumaður:
Ben. S. Þórarinsson.
IRcphjavtk.
Arg (60 tbl. minst) kostar með burðaÞ-
éy i i I kr. (erlendis 1 kr. 50 au. — 2
sh. — 50 cts). Afgreiðsla:
Laugavegi 7.
FBÉTTABLAÐ — VERZLUNARBLAÐ t— SKEMTIBLAÐ — AUGLÝSINOABLAÐ.
IV. árgangur.
Fimtudaginn 3. September 1903.
42. tölublað.
ALT FÆST 1 THOMSENS MAGASÍNI.
0|na og elðavélar
selur
KRSTJÁN t>0RGÍMSS0N.
Legste
ínar nfnar °K ELDAVÉLAR frá Bornholm ávalt t-il sölu hjá Jul.
' “ og ^ Schau. Sömuleiðis eldfastur leir, og Cement í smásölu.
Godthaab
V erzlunin
Fh
(D
>
43
cd
cö
-4-J
wA.
o
Ch
Verzlunin GODTHAAB
er ávalt birg af flestum nauðsynjavörum,
flest öllu til húsbygginga, háta- og þilskipaút-
gerðar, sem selst með venjulega lágu verði.
Yandaðar vörur. LLágt verð.
tjvergi betra að verzla en í
verzl. GODTHÁAB
Q
o
(3L
trJ-
W
O
4»
CÚ
<!
CD
N
i—‘
0
0
niarv[zj9/^
qesiftpor)
Hvíta-Bandið
heldui' fundi fyrsta Mánudag í hverjum mánuði. Næsti fundur Mánudag-
7. Sept. Allir meðlimir beðnir að mæta; mikilsvert mál til umræðu.
Hvíta-Bandið heldur Tombólu snemma í Okt. næstk. Þeir, sem
viljastyðja hjúkrunarstarf félagsins með gjöfum til Tombólunnar, eru beðnir
að koma þeim til undirritaðra, sem veita gjöfunum móttöku
Agústa Svendsen, Ingibjorg Johnsen, Anna Petersen, Jarþrúðar
Jönsdóttir, Inger Frederiksen, Valgerður Bjarnarson, Anna Magnúsdóttir,
Euphemia Waage, Ingveldur Guðmnndsd., Hólmfriðnr Rósenkrmiz, Bene-
diktína Benediktsd., Guðný Guðnad., Sara Bartels, Kristín Friðriksdóttir,
Jóhanna Gcstsdóttir.
HOLLENZKIR
VINDLAR
eru alstaðar í miklu áliti.
úrval og gott verð á þeim
hjá [—43.
C. ZIMSEN,
Brúkuð ísl. frímcrki
kaupir hæsta verði
fúðvig ^a/liðason
• Edinbovg.
GHOOOLADE, ýmsar tegundir, í
pundumselur R. Felixson, Austurstr.
Prjónles alls konar, sokka vettl-
inga o. s. frv. selur **■ Felixson.
XJm nýja kortið
yflr
Seltjarnarnes og Álftanes.
Ekki heflr það mikið hjálpað, þó
ég ritaði í „Fjallkonuna" nokkrar
leiðréttingar á fyrra og minna kort-
inu yflr þessi svæði. Nú ef nýtt og
stærra kort komið út, en það er svo
langt frá að það sé betra en hitt,
að það er þvert á móti verra, og er
það leiðinlegt, þar sem kortin eru
svo falleg og mælingarnar sjálfsagt
réttar. En mælingamennirnir hafa
líklega haft einhvern óáreiðanlegan
mann til að segja sér til, ókunnugan
og hirðulausan, því ekki er við því
að búast að þeir viti hvert örnefni.
Á kortinu er nægilegt rúm fyrir
mörg örnefni, sem áttu að standa
þar, úr því einu sinni var farið að
eiga við þetta.
Á Seltjarnarnes-kortinu vantar t.a.
m. „Se]tjörn“, sem nesið dregur
náfn af, en tjörnin sjálf er sett þar;
vantar og nöfnin Nýibær, Bygggarð-
ur, Hrólfsskáli, Bakki, Bakkakot (og
líklega fleiri), en allir þessir bæir
eru teiknaðir, og nóg rúm fyrir nöfn-
in. Yantar og „Rauðará"; hún sést
hvergi, en „Rauðarárholt" og „Rauð-
arárlækur" eru þar (Rauðárá hefir af
sumum verið rituð „Reyðará", en
hitt nafnið er alt af haft og mun rétt-
ara; lækjarfarvegurinn er rauður af
járnefnum eða Okker). Þá vantar og
Skildinganes-höla, Garðana o. fl.;
Grímsstaðaholt er sett þar sem eng-
inn fær séð að sé neitt „holt." „Eft-
ersey" er daglegt latmæli fyrir „Ör-
firisey," — Þá er það enn, að „Foss-
vogur" heitir ekki eingngis vogurinn
sjálfur, heldur einnig alt það grös-
uga svæði, sem að veginum liggur
og hallar ofan frá Öskjuhlíð; þá mun
og vegurinn þar ekki rétt markaður
á kortinu: þar er sýndur gamli veg-
urinn, sem lá þétt frammi á háum
bókkum, og djúp gil, sem oft voru ó-
fær á vetrum; nýi vegurinn liggur
miklu ofar og lengra frá voginum, en
hinn veginn íer nú enginn. —
Álftaness-kortið er enn verra. Ég
bent.i á, að það eiginlega „Álftanes"
endar við Selsgarð, en þar er ritað
„Álftanes-hr(eppur), og á röngumstað,
því „ Álftaness-hreppur" nær bæði
yflr sjálft Álftanes, og svo yfir það
óeiginlega Álftanes, sem er—Garða-
hverfl og ætíð kallað svo, þó að
raunar sé ritað „Garðar á Álftanesi."
— Svo vantar margt á sjálfu Álfta-
nesi, sem öllum er kunnugt, sem þar
hafa verið. í Bessastaðanesi (það
nafn flnst ekki) vantar „Skothúsið",
það er hóll eðahæð frammi á nesirtu,
og munu fálkarar hafa hafst þar ví5
(eins og á Valhúsinu); þar er og
Músarvík. Þá vantar og nafnið á
Bessahólma, þar sem Bessi á að
vera grafinn (í miðri Bessastaðatjöm).
Báruhaugseyri stendur enn eins vit-
laust eins og á hinu kortinu: í riorð-
ur og vestur af Breiðabólsstöðum,
en hún er einmitt við suðurenda.
Báruhaugseyrartjarnar (það nafn vant-
ar); svo vantar og Akrakot, skamt
frá Breiðabólsstöðum. Þau tvö nöfn
vantar: „Báruhaugseyrarbakki" og
„Bakkakotsbakki"; „Skurðirnir" er»
á kortinu, en nafnlausir, og era
alþektir og illa ræmdir. — f
Eyvindarstaðatúni er „Grænhóll",
ómerkilegt kot, sem vel hefði mátt
missa sig. „ Aurvöllur" er ekki
nefndur, vestur af Eyvindarstaðartúni.
Nafn vantar og á „Garðaholti" og
„Garðahrauni" (þar eru tveir auð-
kendir klettar, sem kallaðir hafaver-
ið „Gálginn" eða „Gálgaklettar", þvi
þar áttu einhverjir að hafa verið
hengdir), Vantar nöfnin „Lambhúsa-
tjörn" og „Skógtjöm" (sem eru frent-
ur vogar en tjarnir); einnig „Mels-
höfða", á Hliðstanga, o. fl.
Ekki hefir þeim þóknast að breyta
rangnefninu „Jófriðarstaðir" í „Ófrið-
arstaðir", sem er réttnefni, og má
sjá það bæði í bréfi Páls Stígssonar,
í Hirðsljóra-annál, í árbókum Espó-
líns, í Johnsens jarðatali, i jai'ða-
bókinni 1847, og sjálfsagt í kyrkju-
bókum; i mínu ungdæmi heyrði ég
oft þetta nafn, en Hafnfirðingar hafa
fundið upp á þessari breytingu, lík-
lega eftir J850 eða 1880.
Annars er skaði að svo fallegkort
og að öðru leyti rétt, skuli vera fulí
af vitleysum, án þess nokkur vilji
taka leiðréttingum, ef nú hin skyldu
verða eins, svo miklu sem til þeirra.
er kostað.
Ben. Gröndal.
TEKEX, KAFFIBRAUÐ, SYLTETAU
og niðursoðnir ávextir
hjá [ — 43.
C. ZIMSEN.
ÍP&~ Tröppusteinusar- tilhöggnir til söfti.
f Lindargötu 19.
---------------------------*
ÚRSIWÍÐA-VINNUSTOFA.
Vönduð TÍR og KLUKKUR.
Bankastræti 12.
Helgi Hannesson.
♦--------------------------*•