Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 22.10.1903, Blaðsíða 2

Reykjavík - 22.10.1903, Blaðsíða 2
2 mála-ráðherra í stað Austen Gham- herlains. Enginn af þessum mönnum þykir mæna upp yfir miðlungs-menn, og er ráðaneytið talið miklu veikara en áður — svo veikt, að mjög pykir tví- sýnt, að pað lifi tólf mánuðina næstu. En pyngsta áfallið fékk þó ráða- ^neytið 2. ]>. m., er hertoginn af Devonshire sagði af sér völdum. — Hann var íorseti leyndarráðsins (Lord I*resident of the Council) og gekk þvi næst forsætisráðgjafanum sjálf- ran. Um hann er það einmælt, að itann hafi verið sá maður í stjórn- inni, síðan Chamberlain fór frá, er allir bárumest traust til. Hann varfyrri Mut ævinnar kunnur undir nafninu Hartington lávarður, og var fylgis- maður Gladstone’s, pá eins og Cham- herlain. Telja menn víst, að með honum hverfi margir af einingar- fúníónista-)flokknum frá fylgi við stjórnína í tollamálum, pví að hann er verzlanfrelsis-maður, og fór frá fyrir þá sök, að honum líkaði ekki tollstefna sú, er Balfour kom fram með í ræðu í Sheffield kvöldinu áður. Serhía. Þar hefir orðið mikils- verð breyting á, að því er ráða má af „Glasgow Herald“ 6. þ. m. En af því að blöð vantar inn í næstu daga á undan, verða eigi séð tildrögin. Pétur konungur hafði frá því hann Tíom til ríkís í vör verið algerlega á valdi bófa peirra, er myrtu fyrir- rennara hans Alexander konung; fremstu menn úr þeirra flokki hafði liann orðið að hafa fyrir ráðgjafa o. s. frv. Nú hefir hann tekið sér al- gerlega nýtt ráðaneyti, og er Gruitch hershöfðingi forsætisráðherra, en Andra Nikolitch heitir utanríkis-ráð- gjafinn, Nikola Nikolitch lögstjórnar- ráðgjafi — alls eru þeir níu inir nýju ráðgjafar, og eftir nöfnunum að dæma er enginn þeirra meðal þeirra er fyr- ir konungsmorðinu gengust. Sím- skeytí frá Serbíu 5. þ. m. segir, að flest blöð í landinu láti vel yfir inu »ýja ráðaneyti, einkum hafi ráða- neytisforsetinn almenningstraust á sér, og sé það von manna, að núsé Serbíu upp runnið nýtt og betra tímabil. Danmiirk. Ríkisþingið komsam- an í dag — segir símskeyti frá Höfn 5. þ. m. Báðar málstofur endur- kusu sömu forseta og varaforseta sem áður. Fjárlögin vóru fram lögð ®g getið um, að stjómin mundi leggja fram frv. um endurreisn Krist- jánsborgar-hallar. í Makedoníu íer fram sömu hörmungunum sernj áður. Til dæmis má þess geta, að samkv. símskeyti irá Sofía 2. þ. m. segir frá því, að 28. f. m. hafi Tyrkir myrt hvert kristið mannsbarn i borginni Mehomía (Raslog), nema hvað einir 10 karl- menn hafi komist undan á flótta. *TaIið er, að inir kristnu borgarbúar Jiafi verið um 3200. Bolgaría er sí- felt að búa her sinn, en hefir enn eigi þorað að leggja í stríð við Tyrki til hjálpar löndum sínum í Make- dóníu, enda hafa Bretar, Rúsar og Austurríkismenn látið Bolgara vita, að þeir ættu engrar liðveizlu von hjá sér, ef þeir legðu í ófrið. Japan. Yér gátum þess fyrir nokkru, að samkomulag mundi á komið milli Japana og Rúsa urn Mandsjúrí, þannig, að Japanar skiftu sér ekki af framferði Rúsa þar, ef Rúsar létu Japana hlutlausa í Kóreu. Nú má daglega lesa í rúsneskum blöðum fregnir um það, að Japanar sé sífelt að flytja herlið til Kóreu, og síðast er þess getið að mikill herskipafloti Japans liggi við Kóreu- strendur og sé að setja þar herlið á land. Sendiherra Japana í Lundúnum, Hayasjí barún, var spurður um þetta 2. þ. m., og gaf hann lítið út á, en sagði, að Japanar hefðu haft lengi herlið í Kóreu til að gæta ritsímanna í landinu. Þetta lið þyrfti oft að skifta um, og mundu liðsendingar þær, er um væri talað, ekki vera annað en nýtt lið, er kæmi í stað ins gamla. Rúsar hefðu aldrei haft á móti, að Japanar hefðu lið þar til að gæta ritsímanna í landinu, enda mundu Japanar halda þeim hætti fram, hvað sem Rúsar segðu, og hvort sem Kóreu-stjórn líkaði það betur eða ver. En er hann varspurð- ur um, hvort Japanstjórn hefði neit- að að flytja setulið sitt burt úr Kór- eu fyrri en Rúsar flyttu sitt setulið burt úr Mandsjúrí, þá kvað hann Kóreu hafa þá þýðingu fyrir Japan, að stjórn sín mundi halda þar setu- liði, hvað sem aðrar þjóðir gerðu annarstaðar. Er af þessu að ráða, að Japanar sé að leggja Kóreu undir sig þeg- jandi og hljóðalaust. Til ritstjóra „Fjallkonunnar". (Niðurl.). Þér segið, herra ritstjóri, í svari yðar: „Hr. G. E. hefir gert sór mik- ið far um að reyna að troða því inn í almenning, að legukostnaður í Landakotsspítalanum sé sanngjarn og ekki dýr. Um þetta atriði höfum vér enn sem komið er ekkert sagt. Vór höfum hvorki sagt hann sann- gjarnan né ósanngjarnan". Ég hefi einungis leyft mér að skýra málið svo satt og rétt sem óg vissi; en þér reynið stöðugt til að troða því inn í almenning, að það sé óver- andi á St. Jósefs spítala kostnaðar- ins vegna. Þér reynið eftir mætti að fæla fátæklingana frá að leggjast inn á spítalann, til þess þar að fá bót meina sinna, þrátt fyrir það þó þér vitið að hjúkrunin er góð, lækn- amir snillingar og kostnaðurinn svo lítill sem unt er, þegar ekki er um neinn opinberan styrk að ræða. Það er satt, ég hafði nærri gleymt því að minnast á þessa 3 liði, sem þér eruð alt af að endurtaka og sem þér segið að ég ekki leitist við’ að færa neinar sannanir í móti. a. „Að menn verði hvort þeir vilja eða ekki, að sætta sig við Landa- kotsspítalann. “ Jð sama má segja alstaðar þar sem einungis er einn spítali, að menn verði hvort þeir vilji eða ekki að sætta sig þann eina spítala. Og þanniger það t. d. með Holds- veikisspítalann að hinir holdsveiku verða að sætta sig við hann hvort sem þeir vilja eða ekki. b. „Að dvöl þar ineð læknishjálp og öllu meðtöldu só fátækum og snauðum mönnum ómöguleg." Ég spyr: Hversvegna ómöguleg? Yegna kostnaðarins ? Ég þykist vera búinn að sýna fram á það, að kostnaður- inn á Landakotsspítalanum er hvað einstaklingana snertir mjög svipaður því sem hann var á sjúkrahúsi Reykja- víkur. En taki maður með í reikn- inginn hjúkrun þá er systurnar hafa veitt bláfátækum ókeypis, þá verður annað uppi á teningnum; og því skil ég ekki þann ómögulegleika sem rit- stjórinn er að burðast með og reyna að troða inn í almenning, að það só frágangsök kostnaðarins vegna að vera á St. Jósefs spítala. c. „Að vér getum og eigum að koma okkur upp spítala fyrir Suður- land með fríplássum fyrir fátæka menn.“ Yið erum fáir og smáir og vona að þór, herra ritstjóri, sem þingmað- ur séuð ekki spentir fyrir að eyða landsfó eða almannafé að óþörfu. Hvað fríplássum viðvíkur, þá eru þau ekki svo óumflýjanlega nauðsyn- leg, á hvaða spítala sem er. Sveitarút- svörin okkar, eins og alstaðar ann- arsstaðar, ganga til að hjálpa hinum fátæku og ekki sizt hinum fátækustu — hinum veiku. — 12/9 — 03. Gun. Einarsson. [Misprentast hefir í 48. bl., 4. dálki, í þessari grein: „2550 kr.“ fyrir: „3550 kr.“] Búnaðar-verkfæri. Amerísku plógarnir og Ólafsdals-plógurinn, Sannleikurinn sigrar. Uppreisn fyrir St. 15. Jónsson. Verk-kunnátta og hEeypidómar. Það eru nú víst ein þrjú ár eða meira síðan Búnaðarfélag íslands keypti 4 plóga ameríska af hr. Stef áni B. Jónssyni, sem verzlar hér með amerísk búnaðarverkfæri, smíðatól o. fl. áhöld. Þegar plógarnir komu, var hr. J. .1. búfræðingur fenginn til að reyna þá.. Hr. J. J. er að líkindum sá búfræð- ingur hér um slóðir, sem kann lang- bezt að verkum í sinni grein, bæði piægingu og öðru — með þeim verk- færum, sem Jiann hefir lært að nota. Arangurinn af 'reynslu hans var sá, að plógarnir þessir frá Stefáni væri óhafandi að öllu hér fyrir vora hesta og vorn jarðveg. Hann reyndi tvo plógana; en einn var ekki svo mikið sem tekin úr umbúðunum, því að auðsætt þótti á honum að hann væri ait of þungur og óhæfilegur. Hr. J. J. lét reynslu sína í Ijós í blöðunum. Stefán svaraði og reyndi að verja plóga sína. En því var ekki sint. Fáir efuðust víst um, að bú- fræðingurinn hefði rótt, og Stefán væri bara að gylla varning sinn, þótt hann væri annaðhvort fánýtur i sjálfu sér eða ætti að minsta kosti ekki við hér. (Það er ótrúlega kröftugt. töfra-orð þetta oft um áhöld eða að- ferðir, að það „eigi ekki við hér“!). Stefán hafði skömmina af þessu öllu saman, og án efa traust-spjöll hjá þeim öllum, sem ekki þéktu hann. Að minsta kosti man ég að einn vinur minn í stjórn Búnaðarfélagsins spurði mig um, hvort óg þekti ekki þennan Stefán B. Jónsson, og hvort hann mundi ekki vera „húmbúgisti, óáreið- anlegur.“ Ég sagði þá, sem ég hefi sagt oft Yð marga aðra, að ég þekti Stefán vel bæði áður en hann fór vestur (hann hafði verið heimilis- maður hjá mér missiristíma), meðan hann var vestra og eins síðan, og að ég vildi leggja drengskap minn að- veði fyrir því, að hann væri vandað- maður, sem óg vissi, að ekki mundi víss vitandi eða viljandi rangt gera — vandaður í öllum viðskiftum, og. auk þess greindur maður og hugvits- samur. Rétt er að geta þess, að Stefáni var aldrei ger kostur á að vera við,. er plógarnir vóru reyndir. Svo er nú ekki meira um plóga þessa að segja um hríð. Þeir lágn þarna ónotaðir og óhreyfðir ár eftir ár. Búnaðarfólagið borgaði auðvitað- Stefáni plógana, en hefir víst litið- svo á, að þeim peningum, sem það hafði varið í plógana þessa, vært blátt áfram fleygt í sjóinn. En svo á síðast liðnum vetri ritar félagið hór Landbúnaðarfélaginu danska og biður það senda sór upp- svo góðan og vanan plægingamann, sem það geti beztan fengið, til að plægja lrér og kenna plægingu. Svo- fókk það upp í vor danskan mann hr. Julius Jensen. Og það er víst enginn efi á, að hann er svo fær og; kunnandi maður í sínu verki, sem frekast verður á kosið. Hann er ung- ur maður og greindur. Fyrir eitthvað hálfurn mánuði gat hr. Björn Jensson þess við mig, að nú væru plógarnir hans vinar míns^ Stefáns B. Jónssonar að komast í veg.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.