Reykjavík - 21.01.1905, Page 1
tjtgefandi: hlctafélagib „RF.yKJAVÍK“
Ábyrgðarmaður: Jón Ólapsson.
Afgreiðslumaður:
Gubm. Gamalíblsson.
Arg. ^60 tbl. minst) kostar með burðar-
ejii 1 kr. (erlendis 1 kr. 60 aura.—
2 sh. — 50 cts). Afgreiðsla:
Hafnarstræti 16:
Útbreiddasta blað landsins.
Bezta f p é 11 a b I a ð i ð. — U p p I a g 3100.
Laugardaginn 21. Janúar. 1905.
4, A. tölublað.
STOR
EÝMKUNÁR ÚTSALA
í .EDINBORO'
byrjar þ. 20. þ. m. og verður þar selt með óvanalega ]águ niðursettu verði
ALLS K0NAR VEFNAÐARVARA 0. FL
til þess að losast við hinar eldri vörur og fá húsrúm fyrir hinar
nýju vejnaðarvörubirgðir,
sem von er á í marzmánuði, og verða sýndar og seldar í hinni stóru nýju vefnaðarvörubúð verzlunarinnar.
/
ýísgeir Sigurðsson.
VI. árgangur.
Landvarnar-gleði.
Þá er „Vestu“-pósturinn var op-
naður í gærmorgun, þá gerðist fagn-
aður mikili cg gleðilæti í herbúðum
ísafoldar og Landvarnar bandaliðsins.
Andlitin breikkuðu um kvartél og
Ijómuðu eins og solir.
Og hver var orsökin?
Blað eitt, all-ómerkilegt, í Kaup-
mannahöfn heitir „Extrabladet" og
fór að koma út í fyrra sem skríl-
útgáfa af „Politiken". Síðan um Nýjár
-er það alveg laust við hana og kem-
ur út sem sjálfstætt kvöldbiað.
í þessu blaði stóð 12. þ. m., að
„mitt í inum fjörugu umræðum
fólksþingsins í dag“ hafl háðfugl einn
-spurt, hvort íslands-ráðherrann hefði
líka sótt um lausn. „Þá varð mönn-
um skemt, því að allir vita, að Haf-
stein er sem stendur úti á íslandi
■og heflr ekki hugboð um, að hann
er ekki lengur ráðherra. Að hr.
Deuntzer hafl þó sótt um lausn fyr-
ir hann líka, það er full-áreiðanlegt“.
Þeir sem hefðu nú lesið það sem
stóð í næsta dálki á undan, rétt sam-
.síða, hefðu getað séð, að þennan dag
vóru alls engar umrœður í fólksþing-
inu. Það kom saman þann dag sem
íyrirfarandi daga, og á dagskrá stóð:
„skýrsla frá forseta". Forseti skýrði
frá, að hann hefði enga skýrslu að
gefa, og ákvað fund næsta dag með
sömu dagskrá. Þetta er að eins til
að vera til taks, þá er skýrsla kem-
ur um myndun nýja ráðaneytisins.
Sagan er blátt áfram lygasaga til
skemtunar „fyrir fólkið". Deuntzer
hefir ekki sótt um lausn fyrir hr.
Hafstein, og hann er kyrr íslands-
ráðherra sem áður, eins og vita mátti.
Hann hefði auðvitað verið sá eini
maður í þessum bæ, sem hlaut að
fá tilkynning um, ef annað hefði
verið.
En Landvarnar-gosarnir trúðu þess-
-ari einfaldlegu fregn.
Og ættjarðarást þeirra lýsti sér þá
.á einkennilegan hátt sem gleði yflr
..því, að ísland hefði verið svikið og
tælt af Dönum!
En þeim varð þetta skammgóður
■vermir. Það fregnaðist brátt, að ís-
land var ósvikið og ótælt.
við Lindargötu (Helga-
staðirj með kálgörðum
og aðgang að sjó
(vör til uppsáturs) fæst
til leigu fyrir sanngjarnt
verð frá 14. Mai næstkomandi. Menn
serriji við Þorv. Þorvarðsson prentara.
IRe^fcjavífc oö örent).
Skólavörðuhæð. Milli 40 og 50
ný hús eru í vetur bygð norðan í
Skólavörðuhæðinni. Ný gata er lögð
þar, samhliða Grettisgötu, og heitir
Njálsgata. Flest eru þessi nýju hús
smá.
Sæmundar-Edda. Hana ætlarnú
Sigurður Kristjánsson bóksali að gefa
út og sér Finnur Jónsson prófessor i
Khöfn um útgáfuna. Bokin verður
pfsntuð hér, en prófarkirnar sendar
til Khafnar.
Tjarnarbrekka. Síðastliðið ár
keyptu þeir hana í félagi Björn Ó-
lafsson augnlæknir, Eggert Briem
skrifstofustjóri og Páll sál. Briem.
Ætluðu þeir að reisa þar íbúðarhús,
hver fyrir si-g. Talað hefir verið um,
að bærinn legði veg meðfram brekk-
unni, niður við tjörnina, og yrði sá
vegur framhald Tjarnargötu. Áætl-
að hefir verið, að sá vegur mundi
kosta 4-5000 kr., og á bæjarstjórn-
arfundi 5. þ. m. buðu eigendur brekk-
unnar að leggja fram 800 kr. af
þeim kostnaði, en bæjarstjórnin vildi
ekki ganga að því boði og ekki ráð-
ast í að leggja veginn að svo stöddu.
En á þessum fundi var byggingar-
nefnd falið, að láta afmarka tjörnina
með greinilegum merkjum og, að
leggja síðan fyrir bæjarstjórnina til
lögu um skemtistíg kring um tjörnina.
„\ölundnr“. Á bæjarstjórnár-
fundi 5. þ, m. var samþ. að afsala
trésmiðafél. „Yölundi“ því af Klapp-
arlóð, er bærinn hefir nú keypt af
landsjóði fyrir 12,000 kr. Félaginu
er heimilt að nota strandlengjuna og
fjöruna framundan lóðinni og gera
þar lendingarstað og önnur mann-
virki, sem með þarf til uppskipunar,
gegn leigu, en bærinn borgar þau
mannvirki síðan, eftiróvilhallramanna
mati, ef hann telur sér hag að þeim,
þegar hann tekur ströndina til al-
menDingsnota.
Skaftafellssýsla er veitt Björg-
vin Vigfússyni umboðsmanni á Hall-
ormsstað.
Héraðslæknlr í Hróarstunguhér-
aði er nú skipaður Þorv. Pálsson
læknaskólakandídat, nú settur læknir
í Keflavík.
Sigurður Thoroddsen hefir feng-
ið veitingu fyrir kennaraembætti því
við lærðaskólann, sem hann var settur
til að þjóna í haust, er leið.
Hr. J. Ziuisen kaupm. er skip-
aður hollenzkur konsúll hér.
Austfirðinga-samsæti. 40—50
Austfirðingar hér í bænum héldu sér
samsæti í Iðnaðarmannahúsinu 14.
þ. m. Snæddu fyrst kvöldverð þar
og síðan dansað á eftir, en nokkrir
spiluðu. Jón-Ólafsson ritstj. mælti
fyrir minni Austfirðinga við borðið,
og var síðan kveðin Austfirðinga-
ríma. Hún var á þessa leið:
Gerum oss nú glaðan dag,
gumar teitir, drósir slyngar,
kveðum oss til kæti brag,
kátir jafnan Austfirðingar.
Enginn komast mun í mát,
magi neins ei þarf að springa,
heilmikið þótt hér sé át.
Hvað er það fyrir Austfirðinga ?
Þó að vel sé þetta veitt,
þurt er ketið Sunnlendinga.
Öðruvísi fanst mér feitt
feita ketið Austfirðinga.
Ef hér væri’ af Austfjörðum
ein, eða íleiri, sauðarbringa
og magáls-biti’ á borðunum,
brún þá léttist Austfirðinga.
Hér er æska, hér er fjör,
hér eru fríðar sólir hringa;
eftir glaðværð fýlu-för
fer ei neinn til Austfirðinga.
Hurðin er í hálfa gátt —
heyra mega Reykvingar
að vér berum höfuð hátt
hér sem jafnan Austfirðingar.
Bergi nú úr bollunum
blessað kaffið liljur hringa,
en karlmenn súpi’ á kollunum
— kneyfum minni Austfirðinga!
• * *
Um kl. 4 var samsætinu slitið og
luku allir upp einum munni, að
aldrei hefðu menu .-kemt sér betur
og fólk verið jafn-Katara.
Dáinn er hér í bænum 6. þ. m.
frú Guðrún Teitsdóttir, kona Snæ-
bjarnar Þorvaldssonar fyrrum kaup-
manns, 54 ára. Tvær dætur þeirra
hjóna eru á lífi: Sigríður, kona
Þórarins Þorlákssonar málara og
Ingileif, kona Jóns Jónssonar sagn-
fræðings.
Trúlofuð eru Ásgeir Gunnlaugs-
son vei-ziunarmaður og úngfrú Ing-
unn Ólafsdóttir frá Mýrarhúsum.
,Yesta,
fer beina leið til Kaupmannahafnar
Miðvikudaginn 25. Janúar, kl. 6 síðd.,
og tekur farþega og flutning þangað.
Rvík. 20. Jan. 1905.
C. Zimsen,
afgreiðslum.