Reykjavík - 08.06.1905, Blaðsíða 3
REYKJAVÍK
115
Norsk blöð segja ráðgjafarnir hafi
ætlað að vera við völd að eins örfáa
(5—6?) daga, til að gefa konungi um-
hugsunartíma, en leggja svo völdin
niður í hendur stórþingsins.
Þá verður engin lögleg konungs-
stjórn til, er konungur er ráðaneytis-
laus, og verður þá stórþingið að setja
á stofn bráðabirgðastjórn. — Kon-
ungur hefir þá sjálfur sett sig og
þjóðina út af grundvelli stjórnarskrár-
innar. Og með þvi að konungur er
eini sambaudsliður landanna, þá hverf-
ur sambandið, er konungur leggur
þannig niður völdin.
Norðmenn segja, að Svíar hafi
ógnað konungi til að neita staðfest-
ingar lögunum. Hann hafi og viijað,
eins og skylda hans hafi verið, koma
yfir til Kristíaniu til að semja við
þegna sína þar, en sænska ráðaneyt-
ið hafi hrætt hann frá því.
„Hann er fangi í konungshöllinni
í Stokkhólmi, og er það sárt og sorg-
legt“, segir rammasta hægriblað
Norðmanna („Aftenposten“).
Norðmenn hafa ný-tekið 40,000,000
króna ríkislán, er þeir hafa lagt í
varasjóð, ásamt 10,000,000 kr., er
þar var fyrir, og er það hersjóður
þeirra.
Við búið, að Svíar þoli ekki að
samband ríkjanna slitni og fari með
hernað á hendur Norðmönnum.
ísl. erlendis.
ölafur J. Ólafsson bókavörður í
Chicago (sonur Jóns ritstj. Ólafssonar)
varð 4. f. m. D. D. S. (Doctor den-
talis scieutiae — doktor í tannlækni-
fræði) við N. W. University í Chicago.
Tannlæknifræðis-deildin við þaHri há-
skóla er langstærsti og nafnkendasti
tanniækningaskóli í heimi.
Ólafur átti á eftir kost á að verða
auka-kennari (demonstrator) við há-
skólann, en hann hafnaði því.
Hafnardeild bókmentafél. Þar
er kosinn forseti Þorvaldur Thorodd
sen i stað dr. Valtýs Guðmundsson-
ar, en varaforseti Bogi Th. Melsted.
'Lðgfræðispróf, fyrri hluta, hafa
tekið við háskólann: Bjarni Þ. John-
son (50 st.), Einar Arnórsson (70 st.),
Magnús Sigurðsson (66 st.), Páll Jóns-
son (62 st.) og Stefán Stefánsson
(46 st.).
Einar Arnórsson, sá sem hæsta
einkunina fær, tekur prófið eftir að
eins þriggja ára lestur og er það ó-
venjulega fljótt.
Maðurinn með stöngina.
Ekki vitum vér, hvort hann heitir
Þorsteinn eða einhverju öðru nafni
þessi maður, sem Marconi-félagið sendi
hingað upp nú með „Laura“, eins
og getið er á öðrum stað í blaðinu.
En heyrt höfum vér, að landinn kall-
ar hann ýmist Þorstein stangarhögg,
eða „manninn með stöngina".
Hann hafði nefnilega með sér
viðtökittól til að taka við loftskeyt-
um og ætlar að reisa 70 álna
Janga stöng, til að festa það upp á.
Hann er nú að reyna að reisa hana
hér á túnbletti við Reyðará.
Það var heldur en ekki uppi
fjöður og fit á stjórnfjendaliðinu, er
hann kom. „Maður kominn frá Mar-
coni-félaginu til að koma hér á loft-
ritasambandi!" sögðu sumir.
„Þarna er maðurinn kominn með
tilboð frá Marconi-félaginu!" sögðu
aðrir.
„Hann Marconi er kominn!" sögðu
þeir þriðju.
„Vér eigum að fá dagleg símskeyti
frá útlöndum hvern dag fram að þing-
byrjun“, sögðu enn aðrir; „og ísafold
á að fá þau öll ein, en má miðla
Fj.konunni með sér“, sögðu sumir.
Sannorðir menn sögðu, að ritstj.
ísafoldar, svo ráðsettur stillingarmað-
ur, sem hann er, hefði verið allur á
hjólum og hoppað eins og togleðurs-
kúla allan daginn, sem Laura kom.
Menn biðu óþreyjufullir eftir fregn-
miða frá „ísafold" (ekki „Fjallkon-
unni“ — hún hefir ekki ráð á því)
um merkisviðburðinn. En enginn
fregnmiði kom.
„Mánudaginn, Þriðjudaginn kerling
sat og spann", — og Mánudaginn,
Þriðjudaginn var Þorsteinn enski á
róli með stöngina. í dag er Miðviku-
dagur, og enn rólar Þorsteinn enski
með stöngina. Upp er hún ekki
reist enn.
Hún verður það nú samt vonandi
einhvern tíma.
En hvað svo?
Er hann bara kominn til að skemta
fólkinu, þessi maður, eða hvað?
„ísaf.“ í gærkvöldi segir, að hann
sé kominn til að „venja almenning
við “ firðrita-skeyti. Það er eftir
hennar undirlagi. Hún óttaðist að
villimennirnir, landar sínir, gengju af
göflunum alveg, ef þeir fengju ekki
undirbúning með ófullkomnum loft-
ritaskeytum áður en þeir fá fullkomið
samband með síma.
Hann átti tal nýlega við hr. Götsche,
skipstjóra á „Laura“, í margra votta
áheyrn, og sagði, að hann væri ekki
kominn hingað til annars en að gora
rannsóknir um, hvort auðið væri að
koma orðsendingum hingað frá Skot-
landi; frann væri al!s elclú kominn
til að gera nein tilhoð um firðritunar-
samband milli landanna; ]>að gæli fé-
lagið ekki gert, gæti ekki kept við
sœsíma um trygt samband — því
síðnr um samband yfir land.
Þetta er vottanlegt.
Um það þarf ekki að deila.
Landshornanna tnilli.
Atkvæðatalan við þingkosning-
una á Akureyri var þessi: Magnús
með skipurn frá inu sameinaða gufusklipafélagi er nú niður sett
eins og hér segir:
Milli Aðra lei 1. plássij 2.plássi. 5. dekk. Báðar gildir 1. plássi leiðir, 6 mán. 2. plássi.
Kr. Kr. Kr. Kr. Kr.
Kaupmannahafnar og íslands 65 45 115 80
Leith og íslands 65 45 n 115 80
Færeyja og austurlandsins norð-
ur að Vopnafirði 34 18 12 36 27
Færeyja og annara hafna á
íslandi 36 27 18 54 45
Reykjavík, 5. Júní 1905.
C. Zimsen.
Afgreiðslumaður.
kaupm. Kristjánsson var kosinn með
120 atkv., en Guðm. læknir Hannes-
son fökk 77.
Frá Seyðisfirði. „Austri" frá 27.
f. m. segir þar kalda tíð og rosasama.
En 31. f. m. er kominn þar góður
afli; hafa mótorbátarnir þá undan-
farna daga fengið 4—500 af vænum
fiski í hverri ferð út. 30. f. m. fékk
sá báturinn, sem hæst aflaði, 1075,
en annar 775 og telur „Austri" það
hæstan afla, sem menn muni þar á
opna báta.
Lagarfijóts-báturinn er nú full-
smíðaður, og á hann að fara eftir
fastri áætlun um efri hluta Lagar-
fljóts í sumar, frá fljótsbotni og út
að Egilstöðum á Völlum. Fr. Gísla-
son úrsmiður á Seyðisfirði hefir smið-
að bátinn og þykir hafa vel tekist.
Báturinn er smíðaður niðri á Seyðis-
firði. Á svo að halda honum þaðan
norður á Héraðsflóa og uppeftii fljót-
inu, en það er ógreiðfær vegur og
verður að draga bátinn á landi all-
langa spotta á tveim stöðum, fyrst
fram hjá Steinboga svo kölluðum, því
þar er klettur í miðju fljóti, sem ekki
verður fram hjá komist, og siðan
fram hjá Kirkjubæjarfossi. Að bát
þessum verður mikil samgöngubót,
ef hann kemst klaklaust þangað sem
honum er ætlað að komast.
Prestskosningar. í Sauðaness-
prestakalli er sr. Jón Halldórsson á
Skeggjastöðum kosinn prestur; fékk
40 atkv., en sr. Árni á Skútustöð-
um 12 og sr. Jón á Stafafelli 1.
í Staðarprestakalli í Aðalvík er sr.
Magnús R. Jónsson á Tjörn kosinn
með 50 atkv., kand. Ásg. Ásgeirsson
fékk 8 atkv.
„Tóti“ heitir gufubátur, sem bræð-
urnir H. S. Bjarnason konsúll og P.
Bjarnason kaupm. á ísafirði hafa ný-
lega keypt og ætlaður er til ferða
um ísafjarðardjúp.
Bátaábyrgðarfélag eru útvegs-
menn við Eyjafjörð að stofna fyrir
forgöngu Páls kaupm. Bergssonar í
Ólafsfirði. Mótorbátum er að fjölga
í Eyjafirði og segir „Nl.“ að í sum-
ar verði þeim haldið þar út 12 eða 13.
Lausn frá prestsskap hefir sr.
Davíð Guðmundsson á Hofi í Hörgár-
dal fengið 31. f. m.; hefir verið prestur
í 45 ár.
ísfregnirnar, sem bárust hingað
fyrir skömmu, þarf enginn að óttast.
Skálholt varð á suðurleið hvergi vart
við ís.
Manualát. 8. f. m. dó Þorsteinn
Jónsson á Brimneshjáleigu í Seyðis-
firði, f. 1864.
16. f. m. dó á Akureyri Þórný Jóns-
dóttir, lengi ráðskona hjá Hansen
sál. lyfsala.
28. Apríl siðastl. dó Þorsteinn Jóns-
son á Brekkuborg í Breiðdal, tengda-
faðir Fr. Wathnes á Seyðisfirði, f. 1820.
20. f. m. drukknaði Helga Indriða-
dóttir yfirsetukona á Gilhaga í Skaga-
fjarðarsýslu í Svartá; var á heimlelð
frá konu, sem hún hafði setið yfir.
21. Apríl síðastl. dó Leó bóndi Hall-
dórsson á Rútsstöðum í Eyjafirði.
28. f. m. dó Teitur Andrésson tómt-
húsmaður á Seyðisfirði, fimtugur.
20. f. m. dó á ísafirði ekkjan F. M.
Vedholm, f. 1869.
5. f. m. dó á Skeggjastöðum á Jökul-
dal Þorvaldína Jónsdóttir, dóttir Jóns
bónda þar, um þrítugt.
9. f. m. dó ekkjan Margrét And-
résdóttir á Uxahrygg á Rangárvöll-
um, f. 1846.
lRe\>ftíav>ík oö örcnö.
Sáttanefndarmaður er kosinn
Klemens Jónsson landritari í stað
Jóns Magnússonar skrifstofustjóra, er
baðst lausnar.
Dáin er hér 23. f. m. húsfrú Sig-
urlaug Friðriksdóttir, kona Lúðvígs