Reykjavík

Útgáva

Reykjavík - 14.07.1906, Síða 2

Reykjavík - 14.07.1906, Síða 2
118 REYKJAYÍK tekjumönnum þyki tillaga vor hörð viðkomu. Til skýringar hugum manna skul- um vér geta þess, að maður með 2000 kr. tekjum greiddi alveg sama atvinnuskatt sem nú, þ. e. IO kr. Af 3000 kr. atvinnutekjum yrði skatt- urinn 40 kr. (nú 25 kr.); af 4000 kr. 100 kr. (nú 45), af 5000 kr. 200 kr. (nú 70), af 8000 kr. 800 kr. (nú 175 kr.), af 10,000 kr. árstekjum 1450 kr. (nú 270 kr.) o. s. frv. Enginn efi er á því, að ekki er nærri eins tilfinnanlegt að greiða 1450 kr. af 10,000 kr. árstekjum af at- vinnu, eins og að greiða 10 kr. af 2000 kr. eða 25 kr. af 3000. Raddir almennings. Smá hafskip. — Herra ritBtj. — 21. f. m. fékk ég eftir pöntun frá Noregi uý- smíðaðan fiskibát 32 f. 5 þ. langan, 11 f. breiðan, 6 feta djúpan. Var hann pantaður bjá hr. Andr. Bolstad í Egersund í Noregi, og sigldi hann honum hingað sjálfur. í bátnum er 10 hestafla Hoffmanns-mótor, sem náði 7s/4 (danskra) milna hraða á vöku (=4 klst.), og er ég í alla staði ánægður með hann. Vélin lítur mjög vel út og virðist vafalaust gerð úr bezta efni. Mik- ill sparnaður er að því, að gera má að- rensli steinolíunnar öriitið. Mig iðrar þess ekki að ég tók þessa gerð fram yfir allar aðrar, sem hér eru á boðstólum. Þvi hefi ég nú aftur keypt annan 8 hestafla Hoff- nianns-mótor, sem á að setja i opinn bát, og 3 pantanir aðrar fóru héðan samtímis til verksmiðjunnar; af þeim var einn 16 hestafla, og á að setja hann í kúttara í staðinn fyrir Dan-mótor, sem áður hefir verið notaður. — Ég get að öllu samsint því sem annar mótomotandi, hr. Kristian Thord Torbensen í Ringkpbing segir um Hoffmanns-mótorinn, að hann mun ryðja sér til rúms af sjálfum sér, hvar sem menn kynnast honum. Vestm.eyjum, 9. Júli 1906. Magnús Pórðarson. Meðal annars! Strandfcrðirnar. — Ekki kemur svo póstur úr nokkurri átt, að ekki berist oss bréf, sem krossbölva strand- ferðunum í ár og allri þeirra tilhög- un. — Það er mál, sem þingmenn fá væntanlega að heyra orð um á þingmálafundum næsta vor. Engin gerð síðasta þings er jafn- óvinsæl, og mælist jafn-illa fyrir, hjá öllum almenningi, án alls tillits til fiokka. „Dagfari44 hefir aftur og aftur verið að vitna í aðskilnaðar-áskoranir, sem ég hafi samið og sent út (1888?). — Eg skal nú fræða »Dagf.« um, að ég hefi ekki samið áskorun þá, sem send var út þá, og það var ritstjóri »Fjallkonunnar«, Valdemar Ásmundsson, sem sendi þær út um land. Þó minnir mig, að ég sendi 3—4 kunningjum mínum.einum vestra og 2—3 eystra, blöð þessi. Hitt er satt, að mér vóru sendar áskoranirnar fyrir þing 1889 með mörgum undirskriftum, til flutnings. Eg flutti þær þó ekki inn á þing, er til kom, af því að þess þurfti ekki með. Þær vóru þá búnar að vinna það hlutverk, sem frumkvöðl- ar þeirra ætluðu þeim, en það var: að sýna íslenzkum og dönskum and- stæðingum stjórnarbaráttu vorrar, hvert rekið gæti, ef svo þvert væri tekið fyrir sanngjarnar kröfur íslend- inga, sein áður hafði gert verið. Þær hófdu áhrif. Þær áttu sinn mikla þátt í, að konungkjörnir og þjóð- kjörnir þingmenn tóku höndum sam- an 1889 um að heimta landstjóra- fyrirkomulag („miðlunin" svo nefnda 1889). Að síðar kom afturkippur í málið, var annað mál. Eg var þá ekki hér á landi. En hefði stjórnin haldið á fram að skella skolleyrum við kröf- um vorum um fyllra sjálfsforræði og ekki látið undan 1903, þá hefði að líkindurn margur orðið »aðskilnaðar- maður«. En þar sem engin krafa er nú fram komin af Alþingis hendi, sem ekki er uppfylt, þá sé ég ekki ástæðu til skilnaðar. Skilnaður væri það neyðar-úrræði að mínu áliti, sem engum greindum og reyndum manni ætti að detta í hug fyrir alyöru, ef með nokkru móti er þolanlega vært í sambandinu. Og mér virðist nú vel vært, og ekki fyrirsjáanlegt að neitt muni fyrir koma, sem knúið geti oss til öyndis- úrrœða. J Ó. Landshornanna milli. Talsíminn milli Eskifjarðar og Seyðis- fjarðar xnun kosta um 30,000 kr. Af því fé leggur hr. Thor E. Tulinius til s/4, en til var ætlað að Múlasýslurnar legðu í sam- eining 1/4 (7500 kr.) til, og höfðu sýslu- fundir beggja tekið líklega í það í vor. En er til kom, skarst Norður-Múlasýsla alveg úr leik og neitaði að leggja einn eyri til. Suður-Múlas. bauð fram 4000 kr. Líklega verður það hr. Thulinius og S,- Múlasýsla, sem koma til að eiga þráðinn. Auðvitað er þetta in mesta skammsýni af Norðmýlingum. Þeirra verður sannar- lega engu minni þágan en Sunnmýlinga að lagning hans; síld og fiskur sjáumþað. En eins og nú horfir er áatæða til, að eig- endur símans ieyfi engum að talast við sjálfir í símanum, heldur láti menn afhenda skrifleg skeyti, eins og við ritsíma, og geta þeir þá neitað að flytja allar fregnir, er Norður-Múlas. megi að haldi koma, eða mönnum þar búsettum, eða þá sett á þær geipiverð, og þannig negtt Norðmýl- inga til að leggja fram sinn hlut, ef þeir vilji jafnrétti ná. Slík hreppapólitik sem þessi er mjög skammsýn og hlýtur að verða Norðmýling- um dýrust. Annars ætti síminn að geta borgað sig. Aflabrögð vóru ágæt á Austfjörðum um miðjan f. m., segir Dagf. Mótorbátar fengu um 1200 af vænum fiski á 14 klukku- stundum. Mótorbátur frá Svínaskála fékk hátt 2. þúsund. aðfaranótt 15. Júní. — 2 mótorbátar Konr. Hjálmarssonar kaup- manns á Brekku í Mjóafirði fengu 45 skpd. á S—9 dögum. — Síldarvart orðið í Reyð- arfirði. 2 Norðmenn hafa þar staurkvíar við Hólmaland. Brezkur varakonsúll á Seyðisfirði er orðinn Einar Hallgrímsson. Nlannslát. Þórun Þorláksdóttir á Hól- um í Nesjum, ekkja Jóns snikkara, en móðir Þorleifs á Hólum, -j- 1. Júni 74 ára, merkiskona. Ritsíminn. Formaður sæsímastöð- varinnar á Seyðisfirði J. P. Trap-Holm kom til Seyðisfj. 19. t. m. Segir byrjað verði seint í Júlí að leggja sæsímann, og verði lokið um miðjan ágúst; 1. Sept. verði sam- band á komið milli Seyðisfj. og útlanda. En ekki verður síminn til almennings af- nota fyrri en landsstjórnin ákveður, en það verður undir eins og landsímalagningunni verður lokið. Eru allar horfur á, að það verði heldur fyrir áætlaðan tíma. Ritsimararnir íslenzku koma til íslands í Ágúst, Reykvíkingarnir tveir hingað 23. Ágúst. Aurskriða hljóp úr Hólmatindi 24. f. m., meiri en nokkur man dæmi til; féll út, í Eskifjörð, og varð af svo mikið boða- fall, að sjór gekk á land í kaupstaðnum, hinum megin fjarðar, svo að bát hvolfdi þar við bryggju, en annar brotnaði. Einn talsímastaur féll og varð undir skriðunni. Á annan kom stór steinn, en staurinn sak- aði ekki. Reykjavík og grend. Bókmenfafélagið hélt ársfund hér 9. þ. m. kl. óll2, nákvæmlega á þeírri stund er þingmenn vóru að safnast saman á bryggjunni til að fara um borð. Virðist það undarlega til stilt, að hafa ekki fund- inn fyrr um daginn, er svona stóð á. — Stjórnin var endurkosin. 13 nýir menn gengu í félagið. — Samþykt að styrkja útgáfu ritsins „Norsk-Islándska dopsnamn frán medeltiden“ (Norsk-islenzk skírnar- nöfn frá miðöldum) með 1000 kr., ef Carls- berg-sjóður tekur að sér að gefa út þjóð- lagasafn séra Bjarna Þorsteinssonar, og selur Bókm.fél. 500 eint. á 75 au. hvert. Rekin eru lik 4 skipverja af „Ingvari", er fórst í Viðeyjarsundi í vor: Alberts Eirikssonar, Kláusar Jónssonar, Sigurðar Jóhannessonar og Stefáns Gestssonar. Vóru jarðsett, hér 10. þ. m. — Ófundin eru enn lík 5 manna af skipinu. Alþingismenn héðan af suðurlandi fóru með „Bot,nia“ 9. þ. m., svo og Sig. Jensson próf. úr Flatey. Einu þingm. héðan, sem ekki fóru, vóru Björn Krist- jánsson kaupm. og séra Magnús á Grils- bakka (var veikur). Skúli ‘Thoroddsen fer á skip á ísafirði. Séra Einar Þórðar- son fer ekki (nýkominn úr utanferð) og vafasamt um Þórarínn á Hjaltabakka. Allir aðrir er búist við að fari. Steingr. Matthíasson læknir gegnir embætti Guðm. Björnssonar meðan hann er burtu. Við Landsbankann er Kristján assessor Jónsson settur bankastjóri, en kaupmennirnir konsúl C. Zimsen og Ás- geír Sigurðsson gæzlustjórar meðan þing- menn eru ytra. Mannalát. 3. þ. m. Elín Guðmunds- dóttir, húsfreyja Þorvaldar Björnssonar frá Þorvaldseyri. — 6. þ. m. ekkjan Kristín Björnsdóttir, móðir Sigurbj. Ást- valdar Gíslasonar trúboða. E/s Oceana , um 8000 tons, frá Hamborgar-Ameríku-línunni, kom í fyrra- morgun og fór aftur næstu nótt. Ferðin er ger frá Hamborg til Hjaltlands, Fær- eyja, Reykjavíkur, Akureyrar, Spitzbergen, Noregs. — Sama skip fer aftur frá Ham- borg 2. Ágúst og kemur hingað 12. s. m,; fer þá héðan á Raufarhöfn og þaðan til Noregs. „Ziethen11, þýzkt, heræfinga-skip, kom hingað í fyrradag; fer aftur eftir helgina til Leith. E/s „Botnia“ kom 7. þ. m. frá Leith; fór aftur 9. þ. m. með þingmenn vestur og norður um land. „Hólar“ komu í fyrradag að austan. Með því kom Björgvin sýslum. Vigfússon með frú og séra Pstur Jónsson á Kálfa- fellsstað. Veðurathuganir í Reykjavik, eftir Sigbíbi BjÖKirsnÓTTUB. Júní 1906 Júlí Loftvog I millim. Hiti (C.) 4 *o -8 0 *o o> > g> 1 G0 cð . 11 Fö 6.8 751,1 10,6 SE l 10 3,9 2 750,6 11,3 SE 1 9 9 746,1 10,7 SE 2 10 Ld 7. 8 737,8 11,7 E 1 10 9,9 2 735,9 11,9 SE 1 10 9 735,9 11.3 N 1 5 Sd 8.8 740,6 10,7 0 10 9,0 2 742,9 11,7 0 10 9 745,1 11,8 SW 1 10 Má 9.8 748,1 10,4 0 10 2 750,4 11,0 w 1 4 9 754,1 11,8 NNE 1 10 Þr. 10. 8 760,5 10,4 W 1 10 2 762,3 w 1 10 9 7 Mi 11.8 762,7 12,0 S 0 10 2 760,8 12,6 SE 1 10 9 756,5 11,5 E 1 10 Fi 12.8 756,1 9,6 SW 1 10 17,1 2 753,5 11,5 SE 1 10 9 752,8 10,5 SW 1 10 Fyrirspurn. Vel væri það gert, ef einhver, sem til þekkir, vildi svara eftirfylgjandi spurning, sem „Rvík“ hefir verið beðin að flytja: 'Vill einhver heima á Islandi, er veit, hvar Þórunn Ingibjörg Sigurðar- dóttir, frá Skeggjastöðum í Svartár- dal í Húnavatnssýslu, sem seinast frétt- ist til á Staðarstað í Snæfellsnes- sýslu, á heima, — láta systur hennar, Elizabetu Sigurðardóttir í Winnipeg, Manitoba, vita það sem allra lyrst. Bréf þessu viðvíkjandi sendist til Heimskringlu, 727 Sherbrooke st., Winnipeg, Manitoba. Næsta blad kcmur á lorgii — Auglýsingar til þess verða að koma fyrir hádegi á Fimtu- dag. Ef þið viljið kaupa vönduð og ódýr vagnhjól, þá skoðið þau á Laugavi'gi 38. Guðm. Egilsson. Reiðliestur til sölii. Ritstj. ávísar. Einatt er verzlunin „G0DTHAAB“ að bæta við nýfum tegundum í álnavörudeildina. Þar á meðal nýkomið: 50 tegundir af kjóla- og svuntudúkum, ensk vaðmál, alklœði og margt fleira. Allar eru vörurnar mjög vel vandaðar að gœðum og verðið svo afarlágt, að óhœlt er að fullyrða að hvergi fœst nú eins góð og ódýr álnavara og í verzluninni GODTHAAB u

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.