Reykjavík - 15.09.1906, Síða 3
REYKJAVÍK
159
er sprottin af heimsókn söngflokksins
„Heklu“ af Akureyri.
Meira gull. Canada er að verða
gull-land mikið. Fyrir skömmu gát-
um vér um nýjan gullfund í Ontario.
Nú kemur sú fregn, að kaþólskur
klerkur hafi fundið víðtæka gullnáma
á ströndum Labrador (Hellulands ins
mikla, er forfeður vorir kölluðu, er
þeir fundu Vínland).
Fjöldi fólks er lagður á stað vestan
úr landi í gull-leit, og er búizt við,
að þangað verði ámóta fólksstreymi
eins og varð til Klondyke fyrir fám
árum.
Chamberlain er mjög veikur, og
ástæða til að ætla, að sjúkdómurinn
hafi haft mjög sljóvgandi áhrif á sál
hans.
Síldyeiði Norðmanna. Síldveiðin
af bátum við Noreg hefir verið sár-
lítil, þótt skár hafi gengið en í fyrra.
Nú (15. Ágúst) komnar 12,161 tn. af
spiksíld (móti 3300 í fyrra og 4476
í hittiðfyrra). — í Norðursjönum geng-
ur reknetjaveiðin betur; síðustu viku
öfluðust 7300 tn.; alls komnar þaðan
á land 23,260 tn. — Við ísland
aflast Norðmönnum vel síldin, og eru
þaðan komnar þegar 17,030 tn. síld-
ar (mót 6522 í fyrra).
J. Nellemann, fyrv. Isl. ráðgjafi
dó í Höfn 26. f. m. Hann var laga-
maður góður, og í sumum atriðum
frjálslyndur maður, þótt hann hendi
sá ófagnaður, að verða ráðgjafi í
ráðaneyti Estrúps, inu illræmda.
Hann var jafnan vel til Islendinga.
Dalny fríhöfn. Japansstjórn hefir
kunngert öllum þjóðum, að frá 1.
Sept. þ. á. sé Dalny fríhöfn.
Samein. eimskipafélagið
og Marconi-skeytin.
Hr. ritstjóri. — í bréfi dags. 28. f. m.
skrifar ið sameinaða eimskipafélag mér
á þessa leið:
»Undir eins og vér fréttum, að e/s »Cer-
es« hafði hafði rekist á sker við Færeyj-
ar, sendum vér hraðskeyti til Marconi’s
Wireless Telegraph Co. með beiðni um
að tilkynna yður með loftskeyti þetta ó-
happ, og ráðstafanir þær er vér höfðum
gert. Vér höfum nú fengið tilkynningu
um, að þetta skeyti hafi aldrei komist til
Reykjavíkur, enda þótt það hafi verið
rétt afgreitt frá Marconistöðinni.
»Ceres« er nú 1 aðgerð og verður til-
búin að hefja ferð sína héðan þann 14.
September*.------
Með því að megn óánægja hefir ríkt
hér í bænum, bæði í blöðunum og milli
manna út af því, að ekkert loftskeyti
barst hingað um þennan atburð, bið ég
yður, herra ritstjóri, um að taka þessar
línur upp f næsta tölublað yðar heiðraða
blaðs. —
Rvík, 10. Sept. igoó.
Virðingarfyllst.
C. Zimsen,
afgr.maður ins samein. eimskipafélags.
Næsta blað á
Miðkudag'.
Aug-lýsing-ar
komi á Mánu-
dag\
Jarðarför GRÍMS sál. MAGNÚSSONAR
er ákveðin inn 19. Sept. frá iieimili
ins látna, Högnaiinsi við Bjargarstíg,
og hefst kl. lV/t árd. Itvfk U/9 1906.
Þuríður Sigurðardóttir,
Herbergi er til leigu með húsbúnaði
á Ingólfsstræti 18. hjá frú T. Holm.
Nú eru haustrigningarnar byrjaðar,
og þá er eina ráðið að fara niður í
Thomsens jVíagasín,
því, sem betur fer, er nóg til þar af
regnhlífum, galoschum,
16° Korn-spíritus 16°
Korn-spipitus er að eins til í vínTerzlun Ben. S. f ór-
arinssonar, og eftir allra reynslu sá lang-bezti, er fæst hér á landi,
enda er það sá bezti spíritus, er fram leiddur er á Norðurlöndum.
waterpoof-kápum
Og
oliufötum
handa karlmönnum, kvenfólki og
börnum, og við allra hæfi hvað
verðið snertir.
Moblur
fást hvergi vandaðri nje betri, en í
Mabeldeildinni i Melstedshúsi.
Meðal annars fást þar:
fæst i verzluninni
„OODTHAAB4í
Kommóður frá 19 kr.
Fataskápar — 20 kr.
Borð — s kr. 50 aur.
Stólar — I kr. 50 aur.
Sófar — 30 kr.
Speglar — 9 kr. 50 aur.
Chaiselongues — 55 kr.
Bufféts — 105 kr.
Skrifborð — 32 kr.
Glervöruskápar — 22 kr.
Saumaborð — 15 kr.
Servantar — I I kr. 25 aur.
Rúm — 9 kr.
Madressur — 3 kr.
Göngustafir
eru i engri verzlun jafn ódýrir og fjölbreyttir og i verzlun
Ben. S. Pórarinssonar.
Tombóla.
Iðnnemafélagið »Þráin« heldur tombólu i Báruhúsinu 22. og
23. September næstkomandi til ágóða fyrir sjóð félagsins.
Tilgangur félagsins er að efla félagslif meðal iðnnema, auka
menfVm þeirra, ræða mál þau, er snerta iðn þeirra, og veita fjárstyrk
fátækum iðnnemum til framhalds námi þeirra.
Gjöfum til tombólunnar er þakklátlega veitt viðtaka af undir-
skrifuðum meðlimum tombólunefndarinnar.
Allar möblurnar eru snotrar og
sterkar, ætlaðar til brúkunar.
Thomsens Magasín.
Hafliði Hjartarson, Hjörtur Hjartarson stud. art.,
Bókhlöðustíg 10. Bókhlöðustíg 10.
Eiríkur Jónsson, Snorri Einarsson, Guðmundur Guðnason,
Nýlendugötu 19. Bergstaðastíg 1Ó. Klapparstig 4.
Stykkishólms-bitter er altaf til í
vínverzlun Beri. S. Þórarinssonar og
hvergi eins ódýr.
Qý- HThA Thomsen-
JJ B j B 1 t l t tjt j l> « B |j
HAFNARSTR' 1718 1920 2122-K0LAS 12- LÆKJART17
• REYKJAVÍK •
cJljallaraÓQÍldin
er í
Hafnarstræti 20.
Þar fást öll vín, sem nöfnum tjáir
að nefna, kampavín, portvín, sherry,
madeira, rhinarvín, ungversk vín, líkör-
ar, cognac, rom, whisky, ákavíti,
brennivín o. s. frv.
Þar fást allar mögulegar öltegundir
frá Gamla Carlsberg, Nýja Carlsberg,
Tuborg, Kolding, Slotsmölle, Slagelse
o. s. frv.
Þar fást ótal tegundir af ljúffeng-
um, óáfengum (alkóhollausum) þrúgu-
vínum.
Þar fæst Mörk, maltextraxt, Kraft-
öl, pasteuriserað dobbeltöl o. s. frv.
Þar fást allir gosdrykkir, límonaði,
Rósenborgar-citrónvatn og sódavatn,
Apollinaris o. s. frv.
í sambandi við kjallaradeildina er
gosdrykkjaverksmiðja, sem býr til
sódavatn, citrónvatn og allar tegundir
af límonaði, allt úr heilnæmu, vél-
síuðu (filtreruðu) lindarvatni.
fyrir börn og unglinga.
Undirrritaður hefir í hyggju að stofna
barna- og unglingaskóla í samvinnu
við nokkra aðra menn um næstu
mánaðarmót. I barnadeildina verða
tekin börn frá 10 til 13 ára gömul,
en í unglinga deildina 14—18 ára
unglingar og þar kent auk dönsku
og ensku ýmsar almennar fræðigrein-
ar aðallcga í fyrirlestrum. Skóla-
gjald um mánuðinn 3 kr. fyrir börn
og 5—6 kr. fyrir unglinga.
Skólinn verður á Skólavörðustíg
nr. 5.
Menn semji sem fyrst við
cand. theol. S. Á. Gíslason,
Þingholtsstræti 11.
Ijúsnæðisskrijstojan
Grettisgcetu 36. Talsími 129
leigir út íbúðir. Innheimtir húsaleigu,
Selur hús og lóðir.
Tækifæriskaup fæst enn á nokkrum
húsum, þótt aðsóknin hafi verið afar-
mikil, — Þeir sem ekki hafa fengið
sér enn húsnæði, ættu að gefa sig
strax fram og spyrjast fyrir um slíkt
hjá skrifstofunni.
Peníngar fundust í Valhöll í sumar.
Réttur eigandi getur vitjað þeirra til Jón-
ínu Jónasdóttir, Bergstaðastræti 8.
Armhand fundið. Vitja má á Smiðju-
stfg 15._____________________
í vist
óskast stúlka, á fámennt heimili,
Ritstj. ávísar.
Carl Bartels
úrsmiður
hefur sett á fót nýja
úrsmíða-verkstofu
og útsölu á Laugavegi 5.
Miklar birgðir væntanlegar með
„Vestu“.
SJÖ®'’" Alt verk verður vandað og
samviskusamlega af hendi leyst. [—40.
Aquavit (— lífsinsvatn).
Ákaviti er hvergi eins gott og
fjólbreytt og í vínverzlun
Ben. S. Þórarinssonar.
5tór búð
með nægu geymsluplássi til leigu
í nr. 38 á Laugavegi. Menn semji
við cand. jur. Eggert Claesen,
Lækjargötu nr 12.
Vagnhestar
og
reiðhestar,
í góðu standi, fást keyptir eftir
20. September. Þeir standa á
ágætu beitilandi þennan inánnð.