Reykjavík

Ataaseq assigiiaat ilaat

Reykjavík - 25.05.1907, Qupperneq 2

Reykjavík - 25.05.1907, Qupperneq 2
122 REYKJAVÍK í einu með tönnunum: mennirnir stóðu allir á hlemmi með festum í hornum, en Flaaten (Norðmaðurinn) stóð hærra, svo að hann tók festarendana milli tanna sér og lyfti hlemminum með mönnunum á. Þeir landarnir hafa víst lítt æft tann- afl sitt fyrri en eftir að þeir sáu Flaaten fyrir norðan. Nú gerði Jón Pálsson þá raun, að setja þijú almenn ferfætt stofuborð hvert á annað ofan og stól þar upp á og bíta svo tönnum í horn neðsta borðsins (en láta fótinn hvíla að brjósti sér) og lyfta svo öllu upp, hátt frá gólfi, og láta síga niður aftur, án þess að neyta handa. Er sízt fyrir að synja hve langt hann kemst, kornungur mað- ur, er hann temur sér tannraunir lengur. Marga sýndi Jóhannes raun þess, hver aflmaður hann er og hve vel hann hefir stælt og tamið líkama sinn. Nefna má það meðal annars, er hann tekur tvo stóla, leggur hnakkann á annað stóibakið, en hælana á hitt, og hefir ekkert annað undir sér; svo er tekinn, 300 pd. þungur steðji og settur á brjóst honum og slegin á mörg högg og þung með 15 pd. sleggju. Glíma þeirra félaga var og falleg og lipur. Hafði sinn hvora, er ég horfði á þá. Grísk fangbrögð þreyttu þeir félagar við þá Austmennina Flaaten og Leo- nardi og báru góðan sigur af þeim. í fyrsta sinni, er þeir reyndu með sér Flaaten og Jóhannes, hafði hvor- ugur sigur. Næsta dag, er þeir reyndu, féll Flaaten í fyrsta sinn. Bað hann þá Jóhannes, sem títt er, að reyna aftur; en þá æptu Reykvíkingar sumir, er við vóru: „Nei, nei!‘r Þetta var in mesta ósvinna, og sízt mundu frænd- ur vorir Norðmenn svo gera við ís- lending, er íþrótt reyndi í þeirra landi. Auðséð var og að Jóhannesi féll illa þessi ókurteisi landa sinna, og glimdi hann aðra giímu við Flaaten og féll þá fyrir Austmanniuum._— Enn reyndu þeir inn þriðja dag, og glímdi Jóhann- es þá tvær glímur við Flaaten og hafði báðar; en Jón glímdi þrjár við Leo- nardi og hafði allar. J. 01. Bókmentir. „ Gamalnorsk Ordbog med nynorsk tyding. Yed Marius Hægstad og Alf Torp‘!. — Kristiania 1906—1907. Bók þessa hafa þeir samið prófessor- arnir M. H. og A. T. og er hún bygð á orðabókum Cleasby’s, Fritzners og Sveinbjarnar Egilssonar. Bókin er ætluð þeim sem norrænu viija nema, án þeös að leggja fyrir sig málfræði, og er því slept öllum tílvitnunum, nema þar sem ný orð eða merkingar eru upp teknar, er ekki finnast tilvitnanir fyrir i inum eldri orðabókum. Orðabókin virðist taka upp öll orð, sem i Fritzner eru, en hefir styttra mál um hvert orð, en er þó mjög ljós og fullkomin. Bókin er gefin út með styrk af almannafé og því seld mjög ódýrt, verður öli 8 hefti, hvert á 80 au. — 6 hefti eru þegar út komin. Bókin er ágæt orðabók yfir fornmál vort fyrir hvern sem er. Verðið hœkhar, þá er hún er öll út komin (sem verður um áramót næstu). ÚRSMÍÐA-VINNXJSTOFA. Vönduð ír og Klukkur. Bankastræti 12. Helgi Hannesson. Jón Ólafsson bóksali hefir söluumboð á henni hér. Vér ráðum nemendum og alþýðu- mönnum, sem vilja eignast ágæta og ódýra orðbók yfir fornmál vort, til að kaupa hana. Stjórnarjrumvörpin, er lögð verða fyrir Alþingi í sumar, verða um 50, og skal þeirra hér getið : Frv. til fjárlaga. 1908 og 1909. [Tekjur taldar verða muni kr. 2,448,330, en gjöldin kr. 2,689,713. — Tekju- hallann, kr. 241,383, er áætlað að vinna megi upp með] Frunivarpi til 1. um framlengmg á gildi laga um aðflutningsgjald frá 29. Júlí 1905. — Svo er og lagt fram Frumvarp til 1. um gjáld af innlendri vindlagerð og tilbúningi á bitter. [50 kr. gjald fyrir leyfisbréf til að reka þessar iðnir. Af hverju pundi hér tilbúinna vindla og vindlinga skal greiða helming aðflutningsgjalds af tóbaki, og af hverjum pela bitters s/4 aðflutningsgjalds af bitter]. Frv. um samþykt landsreikninganna 1904 og 1905. Frv. til fjáraukalaga fyrir 1904—1905. Frv. til fjáraukalaga fyrir 1906—1907. Frv. um almennan kosningarrétt til Alþingis [„Aukaútsvarsgreiðsla skal eigi lengur vera skilyrði fyrir kos- ningarrétti (sbr. 6. gr. í stjórnar- skipunarl. 3. Okt. 1903)“] Frv. um tollvörugeymslu og tollgreiðslu- frest. Frv. um veð í skipum. Frv. um skilorðsbundna hegningar- dóma: [Refsing fyrir smávæg brot má fresta, og falla alveg niður ef inn dæmdi maður drýgir ekki annað brot næstu 5 ár. — Málið á frv. þessu, er þýtt mun úr dönsku, er svo, að réttara væri af stjórnarráð- inu að láta snara sínu eigin frum- varpi á íslenzku og prenta það svo af nýju]. Frv. um almennan ellistyrk. [Framh.] Símskeyti til Blaðskeytasamlagsins („Austri“, „Frækorn“, ,,Reykjavík“). Kaupmannahöfn, 24. Maí. írar hafa haldið þjóðfund til að ræða stjórnbótar-frumvarp það er stjórnin bauð þeim, og hafnaði fundurinn því í einu hijóði. Stjórn Bannermans er þessi ósigur mjög tilfinnanlegur. Japönsk herskip (beitiskip) eru vænt- anleg bráðlega í heimsókn til Bretlands, Frakkiands og Þýzkalands. [Það er óefað, að sjálfsstjórnarfrumvai’p það er brezka stjórnin bauð írum skorti margt á að fullnægja eðlilegum rétti þeirra og það játaði stjórnin sjálf; en hinsvegar ekki hugsandi, að fá meiru framgengt á þingi að sinni í neðri inálstofu, og engin von að lávarðastofan samþykkti einu sinni þetta. En þá hefði fyrir legið að leita úrslita"þjóðar- innar, og mun stjórnin ekki hafa treyst sér til að fá fylgi hennar til meira en þessa að siuni. En óefað hlaut það að leiða til frekari stjórnarbótar bráðum. Munu írar hafa sýnt vanhyggni í því, að þiggja ekki þetta nú, og færa sig svo áfram síðar; því að stjórnin og allir, sem henni fylgdu að þessu frumvarpi, gerðu það með þeirri meðvitund, og þeim beinum ummælum, að þetta ætti að vera byrjun, er leiða skyldi og leiða hlyti til fullrar sjálfsstjórnar]. Einka-símskeyti til „Rvk.“ Seyðisflrði, 25. Mai. Úingmálafuiidar haldinn hér í gær. Um sambandsmálið urðu æstar um- ræður. Er til atkvæða kom, varð at- kvæðatala lík á báðar hliðar, en óglögg. Heimtuðu heimastjórnarmenn því, að atkvæði yrðu greidd á ný og skýrt talið, en því var neitað og þeir öðrum fleiri ólögum beittir, svo að þeir gengu af fundi með mótmælum, um 30 að tölu. — Atkvæði fundarins því alger- lega marklaus. Fánamál og Þingvallafundur ekki nefnt á nafn. Allir lieimastjórnarmenii að- varast um, að ginnast ekki til að taka neinn þátt í kosningum til Þingválla- fundar stjórnarandstæðinga, sem verður hreinn flokksfundur. Dag-bók. „Skálkolt“ kom í gærmorgun og með þvf: Hafstein ráðherra, Þórunn fósturdóttir hans, Jón Magnússon skrif- stofustjóri, Árni Riis kaupm. og ein- hverjir fleiri. Bæjarkryggjan. Bæjarstjórnin hafði samþykt að gera samninga við félag, sem öllum kaupmönnum bæjarins á- samt sameinaða gufuskipafélaginu og Thore-félaginu gæfist kostur á að taka þátt í, um að leigja því járnbraut og sporvagna hafnarbryggjunnar ásamt vörubúri, fyrir ákveðið gjald, en félag- ið skyldi annast uppskipun með þess- um áhöldum fyrir gjald, er bæjar- stjórnin samþykkir. Út af þessu boðaði konsúll og bæ- jarfulltrúi Kr. Ó. Þorgrímsson til borg- arafundar á Þriðjudagskvöldið og bar upp tillögu til áskorunar til bæjarstjórn- arinnar um að leigja engum uppskip- unartækin. Málið var rætt frá báðum hliðum, að svo miklu leyti sem friður fékst til þess fyrir Mongólanum, sem altaf var að gjamma fram í mál manna og vildi ekki hlýða fundarstjóra til að þegja. Af vanaiegri vatnsgrautar-miskunn var dónanum þó ekki snarað út. Mesta fjölmenni var á fundinum, og var til- laga fundarboðanda samþykt með öll- um þorra atkvæða. Prestur til Skeggjastuða á Langa- nesströnd er kosinn séra Ingvar Niku- lásson (áður í Gaulverjabæ). Séra Jón Jóusson uppgjafaprestur frá Stað á Reykjanesi (f. 1829) dó á ísafirði 21. f. m. Séra Guðmundur Emil <xuð- mundsson uppgjafaprestur á Kvíabekk (f. 1865) dó 28. f. m. Yerzlunin Edinborg hefir keypt verzlunarhús Eggerts Laxdals á Akur- eyri fyrir 22,000 kr. Það er einhver bezta verzlunarlóð þar á eyrinni. Enaóss-verzlun við Héraðsflóa hefir verzlunin Framtíðin á Seyðisfirði keypt af Þorsteini Jónssyni kaupm. Grlímumaðurinn Jóhannes Jósefs- son og félagi hans Jón Pálsson þreyttu íslenzkar glímur við þá Hallgrím Bene- diktsson og Guðm. Guðmundsson í gær- kvöldi. Þeir Jóhannes og Hallgrímur unnu sína glímuna hvor; Guðmundur og Jón unnu líka sína hvor. Auk þess Úr og klukkur, að eins frá vönduðum verksmiðjum. Hyergi ódýrara eftir gæðum. jónr iiermaii§§oi, Hverfisgötu 6 glímdu þeir saman félagarnir frá Akur- eyri, og vann þá Jóhannes nokkrar glímur; fyrir það vann Jóhannes flestar glímur talsins. En það mun vera á- lit flestra, er sáu, að eigi standi Hail- grimur Jóhannesi að baki í íslenzkri glímu, þar eð hann er mýkri og lið- ugri í glímunni. Dómari var Pétur Jónsson pjátrari (einsamall?). Að glímunum loknum las Pétur upp dóminn, sem raunar enginn botnaði neitt í, en eftir samlagning, margföldun, frádrátt og deiling komst hann að þeirri niðurstöðu „að Jóhannes hefði eklá tapaðu. O. J. Ó. H-itaö í vísnabók ungrar stúlku. Að gleðjast við lífið mun sízt mann saka eða’ að súpa af gleðinnar brunni, ef lífsins alvara’ að eins fær að vaka í undir-meðvitundinni. Þetta’ er svo andskoti háfieyg heimska sem hugsast getur; spekings-asni’ eins og Einar Ben hefði’ ekki’ orkt það betur! J. .0 €ggert Claessen, yíirréttarmálaflutningsmaður. I.a'kjaí'g. 1*2 B. Talsími 16. Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5. yirnt ]. ijaarvig B j ö r g v i n (Noregi) Umboðs-sala a- v- 21ú Lifur, Hrogn, Síld, Saltfiskur, Rjúpur, Kjöt, Uli o. s. frv. ðllmn firirsprniim syaraö um liæl ókejpís. Tv j ólasaum tek ég undirrituð að mér nú þegar. Vandað verk. Saumalaun lægst í bænum. Ragnh. Clausen Jónsson, Vesturg. 22. [ah T i 1 b ú n a r [ab- L Líkkistur selur Magnús Árnason trésmiður. 1 —2 herbergi til leigu á Laugavegi 19 nú þegar. [39,41 Hinn 15. Maí p. á. andaðist hér í Reykjavík Gunnar Gunnarsson frá Flugu í Skaftártuugu i Skaftafellssýslu. Brúkuð regnkápa fundin. Eigandi vitji til Guðm. Stefánssonar næturvarðar. Keefubelgur fanst fyrir skömmu á Sel- tjarnarnesi. Má vitja til Guðmundar Ólafs- sonar í Nýjabæ. Undirritaður hefir útsölu á skilvindu, þeirri er „I> XJ heitir, frá Norra Sveriges Cenlrifugfa- briker. Skilvinda þessi hefir rutt sér feikna mikið til rúms og fengið mikla útbreiðslu; hefir meðmæli frá ýmsum merkum mönnum og efnafræðishúsum (Laboratorier), sem hafa rannsakað fitumagn það sem hún nær úr mjólkinni. „Dux 1“ skilur 100 potta og „Dux 2“ 150 potta á tímanum. Verðlisíi, sýnishorn og allar nánari upplýsingar fæst hjá einka-umboðsmanni skiivindu þess- arar fyrir ísland Tómasi Tómassyni. Sömuleiðis hefi ég umboðssölu á Reið- hjólum (,,Cycler“) bæði fyrir karla og kon- ur. Sýnishorn og allar nánari upplýsingar gefur Tómas Tómasson Bergstaðaslrœti 3. Bezt og hagkvæmast lífsábyrgðarfólag er „G1 i t n e“. Allar nauðsynlegar upplýslngar gefur umboðsmaður félagsins í Reykjavík Guðm. Bjarnason, Njálsgötu 23. [42

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.