Reykjavík - 15.06.1907, Síða 3
REYKJAVlK
145
\ SunlightSápa l
Þeir sem nota biaut-
asápu til þvotta kvíða
einlægt fyrir þvotta-
deginum.
Notið Sunlight sápu
og hún mun fiýta
þvottinum um helming.
Preföld hagsýni—
tími, vinna og penin-
gar.
FariO eftir fyrirsögninni, sem
er á tillum Sunlight sápu
umbúðum.
inn fyrir h. J nr. 133 ganga 2. og 4.
rödd í áttundum í byrjun lagsins og
aftur ganga þær í áttundum milli 5.
og 6. hendingar, og enn ganga þær í
kvintum milli 6. og 7. hendingar; eru
allar þessar villur í Jónasarbók og öll-
um trúlega haldið hór. í nr. 148 er
sama villan og í nr. 4 b; hér eru op-
nir kvintar á milli 1. og 2. raddar á
orðinu hryggi; það er líka eins ástatt
hór og þar, að Sigfús hefir í þessu lagi
hvergi vikið Jrá raddsetningunni í
Jónasarbók, nema á þessu eina orði,
en þá kom líka strax villa; það er eins
og barn, sem er að ganga með; en
strax og það sleppir sór, þá dettur það.
Ekki heflr tekizt betur til í nr. 152;
þar hefir Sigfús fylgt raddsetningu
Jónasar og Berggreens alstaðar, nema
á orðunum raustin snjalla, en þar hefir
hann slept sér snöggvast — og dottið
—, o: sett opna kvinta milli 1. og 2.
raddar.
Þetta er ljóta registrið, og þó er mikið
eftir.
Ekki skil ég að margir verði hrifnir
af breytingum Sigfúsar — auðvitað til
ins verra — á almennum lögum og vel
raddsettum eins og t. d. Kallið er komið,
Guð Jehóva, þig göfgum vér, Ó minn
guð, ég illa breytti, Syng guði dýrð, o. fl.
‘Og vel get ég ímyndað mér, að ein-
hverjir fleiri en ég sakni laganna
Heiðra skulum vér herrann Krist, Sólin
ljóma sínum skrýdd, og jafnvel lags-
ins Sá frjáls við lögmál fæddur er.
Ósamkvæmni er víða í raddaset-
ningunni; skal ég að eins taka. eitt dæmi
af mörgum. Sigfús forðast það auð-
sjáanlega að láta allar raddirnar ganga
niður á við í enda laganna og lætur
því aðra hvora milliröddina ganga upp
á við, frá 7. tón upp á grundvallartón-
inn; út á það er að vísu ekkert að
setja; en hví þá ekki að fylgja þessari
reglu einnig í enda hendinga í miðjum
lögunum, þar sem alveg eins stendur á?
Þar ganga raddirnar víða niður á við
allar fjórar, sjá t. d. í nr. 2 á orðun-
um allt vort ráð, í nr. 23 -í enda 3.
hendingar, í nr. 105 í enda 2. hend-
ingar, og víðar.
Fjölda margar smávægilegar prent-
villur eru í bókinni, en frekar eru þær
til óprýði en til skaða.
„A ég að halda áfram lengra eða
hætta?“ Mór þykir ekki von að nokk-
urt blað taki þetta syndaregistur, ef óg
lengi það til muna, og skai hér því
staðar numið. Ég tek mór orð séra
Jóns Helgasonar í munn, er hann sagði
OOOOOCH____________________
§ Klukkur. úr og úrfestar,
sömuleiðis gull og silfurskraut*
i gripi borgnr sig bezt að kaupa á
Laugavegi nr. 12.
q Jóhann Á. Jónasson.
00000000000 000000«
fyrir mörgum árum: það er „raunalegt
tákn tímanna" þetta, að slík kyrkju-
söngsbókar-útgáfa skuli vera boðin oss
á þessum tímum, og „raunalegt" að
félítill heiðursmaður skuli hafa „gengið
í vatnið “ á því að gefa þetta út, eins
og mér er sagt að Guðm. Gamalíelsson
hafi gert; en „raunalegast“ af öllu er
það, að endurskoðarinn virðist álíta svo,
sem íslenzkri alþýðu sé alt bjóðandi,
bara ef það séu nótur, því að hún hafi
ekkert vit á því, hvort það sé gott eða
illt, rétt eða rangt.
15/s — 1907.
Bjarni Þorsteinsson.
Símskeyti til Blaðskeytasamlagsins
(„AuBtri“, „Frækorn“, „Reykjavík“).
Kaupniannalwfn, 15. Júni.
Danmörk. Samein. eimskipafé-
lagið sendir e/s »La Cour« með
dönsku þingmennina-. — Koch hæsta-
réttar-dómstjóri dáinn.
Bretland. Bretastjórn hefir nú
veitt Oraníu [Búaríkinu] stjórnar-
skrá [eins og Transvaal fekk fyrir
skömmu].
Dagbók.
Ráðherrann kom heim aftur á
Miðkudaginn með „Isl. Falk“, austan
um land. — Stóðu við 2 klst. á Seyðis-
firði og 4 klst. á Eskifirði.
Eystra var tíðin svo, að alt að x/2
al. nýsnævi var á jörðu á austfjörðum
suður um Eskifjörð. Meðan „Isl. Falk“
stóð við á Seyðisfirði, féll kvartéls djúp-
ur snjór á þiljur.
„Hólar" fóru frá Akureyri kl. 9 í
fyrra morgun. Átttu að eins að
koma á ísafjörð og komu hingað í
morgun.
Prof. Marius Hægstad frá Kristí-
aníu, og sonur hans, koma hingað með
„Hólum“. Hann mun vera mestur
norrænumaðar í Noregi nú, og er þar
merkum manni og góðum dreng að
fagna.
Símaslit. Æðarfuglinn er einlægt
að slíta* símann nyrðra. En i fyrra-
dag slitnaði síminn milli Blönduóss og
Sauðárkróks af ísþunga; ís á símanum
ámóta digur eins og meðal símastólpi.
Reglulegur aðalfundur íslands
banka verður haldinn í Reykjavík
Þriðjudaginn 23. Júlímán. næst-
komandi kl. 4 e. h. á skrifstofu
bankans.
Umræðuefni eru:
1. Skýrsla fulltrúaráðsins um starf-
semi bankans.
2. F ramlögð endurskoðuð reiknings-
uppgerð með tillögu um, hvern-
ig verja skuli arðinum.
3. Tillaga um kvittun til fram-
kvæmdastjórnarinnar fyrir reikn-
ingsskil.
4. Kosning fulltrúa í fulltrúaráðið.
5. Kosning endurskoðunarmanna.
6. Tillaga um aukning á hlutafé
bankans ef lagaheimild fæst til
þess.
Aðgöngnmiðar til fundarins verða
látnir af hendi á skrifstofum sam-
kvæmt 31. gr. bankareglugerðarinn-
ar, í síðasta lagi 3 vikum fyrir aðal-
fund, og hefir Privatbankinn í
Kaupmannahöfn umboð til að at-
huga hlutabréf, sem óskað er at-
kvæðaréttar fyrir og gefa skilríki
um það til skrifstofu bankans.
Bankaráðið heldur fund á sama
stað Mánudaginn 22. Júlí kl. 5 e. li.
í bankaráðinu.
Reykjavík, 25. Maí 1907.
H. Hafstein.
Yfirlit
yfir
hag fslandsbanka 31. Maí 1907.
Activa:
Kr. a.
Málmforði.....................323,000
4°/o fasteignaveðskuldabréf . 42,900
Fasteignaveðslán .... 649,637,64
Lán gegn ábyrgð sýslu- og bæjar-
félaga.....................211,000
Handveðslán...........315,602,38
Sjálfskuldarábyrgðarlán . . 313,620,58
Reikningslán.........1,161,089,40
Víxlar...............1,682,237,25
Verðbréf....................... 2,499
Erlend mynt............ 3,679,76
Konto yfir kostnað við seðla-
gerð........................30,000
Áhaldakonto............10,293,59
Húseignir bankans 1 Reykjavík 115,814,44
Kostnaðarkonto.......15,920,30
Útbú bankans.........1,838,197,63
í sjóði................. 36,191,77
Kr. 6,751,683,74
Passi va:
Kr. a,
Hlutafé......................3,000,000
Seðlar í umferð................825,000
Innstæðufé á dálk (hlaupa-
reikning) og með innláns-
kjörum....................1,022,502,35
Vextir, disconto o. fl. . . . 82,788,23
Erlendir bankar og ýmsir
aðrir creditorar .... 1,638,637,56
Varasjóður bankans . . . 22,222,33
Óborgaður arður til hluthafa
fyrir 1905 110
Arður frá f. á. (gjald til lands-
sjóðs til varasjóðs, hluthafa
o. fl.)............... . . 160,423,27
Kr. 6,751,683,74
Fyrirspurn.
1. Hvað veitir bæjarsjóður árlega til
viðhalds opnum hlandforum í
Skuggahverfinu?
2. Ætlar heilbrigðisnefndin að breyta
þeim í gosbrunna fyrir komu kon-
ungs og ríkisþingsmanna?
3. Stendur bærinn í heild sinni fyrir
sýningu þeirri í sumar?
Vox.
Svar:
1. Ekki neitt. Heilbrigðisnefndin og
bæjarlæknirinn stuðla að viðhaldi
þeirra alveg ókeypis af einskærri
þefvísi og ættjarðarást.
2. Líklega tímir heilbr.nefnd ekki að
láta bæinn kosta upp á gosbrunna.
En hún hugsar sér víst að nota
þessi ókeypis hlunnindi sem ókeypis
„vellyktandi“, til að setja „bouket"
á bæjarþefinn.
3. Já, bæjarstjórnin öll í nafni og um-
boði bæjarins.
Jrynjólfur Jjörnsson
tarinlíTfilcnii*,
Iieima frá ÍO—* og' 4—6.
Þingholtsstrætl 18.
Peningabudda hefir tapast á „Batterí-
inu“. Skilist gegu fundarlaunum í
Smjörhúsið, Grettisgötu 1.
Ostar
eru beztir í verzlun
Einars Árnasonar.
Aðalstræti 14. Talsími 49.
Nýmjólk
líjómi
frá E n g e y
fæst í
íhomsens jlíagasíni.
Cervelat og Spege-
P,YLSUR
beztar í verzlun
Einars Árnasonar.
Talsími 49. [—45
V H Th A Thomsen-
HAFNARSTR' 17-18,19 20 21-22 ■ KOLAS l-2' LÆKJAKT- I Z
• REYKJAVIK*
Saltkjöt í tunnum og lausri vigt.
llangikjöt.
Mautakjöt, nýtt.
Ijvanneyrarsmjör.
MatarAeilðin.
Útsölumenn.
sem liafa nokkuð afgangs af nr. 3,
4 A, 10 og 16 af síðasta (7.)^árg.
»Rvíkur«, verða að endursenda af-
greiðslunni þau blöð tafarlaust (á
vorn kostnað), ella borga árgangana
fullu verði.
Afgr. „Rvíkur44.