Reykjavík - 20.07.1907, Blaðsíða 1
1R e $ k j a vtk.
15 löggilta blað til stj órnarvalda-birtinga á íslandi.
VIII, 55
Útbreiddasta blað landsins.
Upplag yfir 3000.
Laugardag 20. Júlí 1907.
Áskrifendur í b æ n u m
yfir 1000.
VIII., 55
'ggr ALT FÆST f THOMSEWS MAGASÍNI.
Ofna og eldavélar selur Kristján Porgrímsson.
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOQ
Verzlunin
Edinborg
í Reykjavík
Fatnaðardeildin hefir nú einkum margt
að bjóða, sem menn þarfnast nauðsynlega fyrir konungskomuna og
Þjóðhátíðina svo sem:
H.arlmannsfatnaði allsk. frá kr. 18.00—45.00.
Drengjaföt allsk. frá kr. 2.65—18.00.
Regnkápur margs konar á fullorðna og drengi.
Hattar harðir af nýjustu gerð kr. 4.50—8.25.
do. linir af nýjustu gerð kr. 2.50—5.50.
Stráliattana marg-eftirspurðu.
Drengja-yfirfrakkana makalausu.
Manchettskyrtur hv. & misl. og Milliskyrtur hv. & misl.
Sklnnlianzka sv. & misl. og allsk. liálsim og hnýti.
Drengjablússur ljósleitar og Nærföt margar teg.
Regnlilífar og göngustafir mesta úrval og ótal m. fl.
Þá viljum vér minna bændur og búhölda á
l j áblöðin makalausu í EDINBORG,
sem hvergi fást betri né ódýrari. — Ennfremur CEMENTIÐ
makalausa með hamarsmerkinu, að allra dómi hezta tegund.
,REYKJAYÍK“
Árg. [60—70 tbl.] kostar innanlands 2 kr.; erlendis
kr. 3,00—3 sh.— 1 áoll. Borgist fyrir 1. Júli. Ella 3 kr.
Auglgsingar innlendar: á 1. bls. kr. 1,50;
:3. og 4. bls. 1,25 — Útl. augl. 33V*0/# bærra. —
Afsláttur að mun, ef mikið er auglýst.
Útgef.; Hlutafélagið „Reykjavík“.
Ritstjóri, afgreiðBlumaður og gjaldkeri
Jón Ólafssoii.
Afgreiðsla Laufásvegi 5, kjallaranum.
Ritstjórn: —-— » stofunni.
Telefónar:
29 ritstjóri og afgreiðsla,
71 prentsmiðjan.
Eoftritun poulsens.
í vetur, er leið, var mikið gumað
í blöðum um endurbætur á loftritun,
er danskur maður Poulsen hefir gprt.
Ef alt það rættist, sem gefið var í
skyn að vænta mætti af uppfundning-
unni, þá hefði það verið ákaflega merki-
legt og líklegt til að gera talsverða
bylting í firðritun í heiminum.
Vér létum oss hægt um gumið að
sinni, gátum að eins um uppfundning-
una. Vér þekktum til þess, að vara-
samt er að treysta fast öllu blaðaloti,
sem borið er á nýja uppfundning, sem
verið er að selja eða gera sér pen-
inga úr á einhvern hátt. Sum blöð
verða þá ör í orði og bera mikið í
lofið af þjóðlegum metnaði, er lands-
maður á í hlut; önnur guma blátt á-
fram fyrir borgun.
Poulsen tókst að selja uppfundning
sína fyrir geipiverð — en síðan liefir
verið furðu hljótt vm hana í blöð-
nnum.
Táknin og stórmerkin, sem hún átti
að gera, hafa brugðist tii þessa.
„í vor fyrir Hvítasunnuna vóru í
danska herflotanum gerðar tilraunir i
þá átt, að bera saman Poulsens að-
ferð og gneistafirðritann (þýzka, er hafði
hér fulltrúa í Rvík 1905).
Herskipið danska „Olfert Fischer"
lá í Kaupmannahöfn og var útbúið
senditólum eftir báðum aðferðum. Hins-
vegar var „Hekla“ send á haf út og
hafði viðtöku-rittól eftir báðum að-
ferðum.
Gneistafirðritinn (Telefunken) vildu
eigendur hans ábyrgjast að ritaði á
180 kílómetra fjarlægð með 1 kíló-
watts magneyðslu, og nú átti Radio-
Ámalgamated-Telegraph-Co. (Poulsens-
fél.) að láta sitt tól gera slíkt ið sama.
Á „Heklu“ var hvor starfsmaður
frá sínu félagi að stýra tilraununum.
Árangur tilraunanna varð á þessa
leið:
1. Poulsens-tól:
Viðtöku-rif-tólið varð alls ekki notað
til neins; en heyrnartólið mátti nota
í alt að 200 kílómetra fjarlægð. Þó
var mjög svo torvelt að ná noklcru
máli í samhengi yfir svo mikla fjar-
lægð. Magneyðsla 1.8 kw.
2. Telefunken:
jRii-tólið starfaði skilmerkilega upp
að 225 kílóm. fjarlægð. í lengri fjar-
lægð varð, því miður, ekki reynt, þvi
að skipið var þá komið svo nálægt
Þýzkalandsströndum og varð að snúa
við. — Magneyðslan var 1.1 kw.“
[Eftir „Electrotekn. Tidsskr.", XX, 17].
Blygðunarlaus ósvífni.
Málgagn lyginnar flutti 17. þ. m.
svolátandi grein:
„ Símslitin.
Kaupmaður á ísafirði, Ásgeir G.
Ásgeirsson stórkaupmaður, fékk fyrir
nokkuru áríðandi símskeyti útlent
sent með hraðboða frá Stað í Hrúta-
firði, og þurfti hann að svara því
um hæl, og leggur sjálfur í ferð
norður að Stað. Þegar þar kemur
er sæsíminn slitinn.
Peir hefðu ekki orðið fgrir
slíkum búsifjum Isfirðingar, ef
samið hefði verið um loftskeyta-
samband á síðasta pingi, l stað
heimskunnar pessarara.
Svo mörg eru Lyginnar orð.
Og þetta hefir blaðsneypan brjóst-
heilindi til að setja á prent, þó að 'öll-
um hér sé fullkunnugt um, að þá er
sæsíminn bilaði hér á dögunum, »bil-
aði« jafnframt samband Marconi-
stöðvarinnar hér, svo að hún fékk
engin skegti pá um neitt frá iit-
löndum.
Af þeim einkaskeytum, sem hún tók
að sér að flytja í fyrra sumar, og oss
er kunnugt um, kom ekki meira en
helmingur talsins nokkurn tíma fram,
pó að hvert skeyti væri sent upp
aítur og aftur 3—4 kvöld í röð.
Hafi reynslan nokkurn tíma sannað
nokkurn hlut, þá hefir hún sannað það,
að pað samband var allsendis óáreiðan-
legt og óhafandi.
Heimsendanna milli.
Noregar. Stórþingið samþykti 15.
f. m. lög um að veita atkvæðisrétt ó-
giftum konum, er greiddu skatt af
400 kr. tekjum eða meiru, og eins
giftum konum, ef menn þeirra greiddu
skatt af jafnmiklum tekjum.
Forföll. Nokkrir af ríkisþingsmönn-
unum, sem ætluðu hingað að koma
með konungi, eru að fá „forföll“. Þeir
kvíða ferðinni, bæði á sjó, og þó eink-
um á landi. Meðal þeirra er tjáð hafa
forföll, eru m. a. þeir Madsen-Mygdal,
Anders Nielsen, kammerh. Alfred Hage,
Blem bóndi, Jensen-Stengaarden, gene-
ral-auditor Steffensen o. fl.
Auðvitað koma í þeirra stað vara-
menn, sem gæddir eru meira líkams-
atgerfi eða meiri hetjuhug til að hætta
sér hingað í tröllahendur.
bönsku ]»inginciinirnir, sem hing-
að koma, verða þessir:
Ur Þjböþingimi: forsetinn A. Thom-
sen, R. Andersen, Bluhme, Hamme-
rich (varam.), Carl Hansen frá Yord-
ingborg (v.), N. Jensen, N. P. Jensen,
Jensen-Sonderup, Kierkegaard, Th.
Larsen, Lindo, Madsen Halsted, P.
Madsen, Moestrup, Norhave (v.), Par-
kov (v.), Emil Petersen, Kr. Pedersen
(v.), L. Reventlov (v.), Rordam, Svei-
strup (v.), Carl Sarensen og Zahle.
Ur Landsþinginu: Yaraforseti Steff-
ensen, Andersen-Nygart, Jorg. Berthel-
sen, Bramsen, Ejsing (v.), Goos, J. L.
Hansen, Johansen, H. J. Nielsen, Nord-
by (v.), Pagh, Fr. Petersen (v.), Ram-
busch, N. Rasmussen, Schultz, Stilling
(v.) og Tolderlund.
Af ráðgjöfunum verða með: Christ-
ensen forsætisráðherra og Ole Hansen
landbúnaðar-ráðgj afi.
„östsjæll. Avis“ segir 2. þ. m.,
að allir ríkisþingsmennirnir hafi með
til ferðarinnar klofháar rosabullur, reið-
fatnað, og verði að öðru leyti vetrar-
klæddir. — Vonandi sleppa þeir héðan
ókalnir!
Hjónaband. Prófessor H. Matzen
var í byrjun þ. m. gefinn saman við
frú Helgu, fædda Bryde, síðar frú Vída-
lín, er síðastl. vetur skildi við mann
sinn.
Þingmálafundir í Suður-Múlasýslu,
er Guttormur alþm. Vigfússon hefir haldið.
Á fundi í Stöðvarfirði i. Júní var
samþ. með öllum atkvæðum eftirf. till. í
sambandsmálinu:
»Fundurinn álítur ekki að eins rétt,
heldur sjálfsagt, að þingið ísumarvelji
menn í nefnd, er fjalli um þetta mál, til
þess að þjóðinni gefist kostur á að sjá
gerðir hennar fyrir næstu kosningar.
Á fundi í Fáskrúðsfirði 2. Júní þ.
á. var samþ. eftirf. till. í sambandsmálinu:
a. Fundurinn álítur rétt, að næsta þing
tilnefni menn í nefnd, er konungur skip-
ar til að endurskoða ið stjórnskipulega
samband milli Islands og Danmerkur, og
semja tillögur til nýrra sambandslaga, og
telur æskilegt, að nefndin hafi lokið störf-
um sínum áður en næstu alþingiskosning-
ar fara fram.
Samþ. í einu hljóði.
b. Fundurinn er mótfallinn því að rlk-
issambandinu við Danmörku sé slitið og
telur að sjálfstæði þjóðarinnar yrði þá
yfirleitt miður borgið en nú er.
Samþ. með öllum atkv.
e. Fundurinn telur mest um vert, að 1
inum væntanl. sambandslögum séu skýr
og hagfeld ákvæði er tryggi rétt Islands,