Reykjavík - 20.07.1907, Page 2
174
REYKJAVlK
Oliver Twist
er heimsfrseg skáldsaga eftir Charles Dickent. Hún fæst
nú í vandaðri ísl. þýðingu hjá bóksölum víðsvegar um land
alt. Góð, hentug og mátulega dýr taekifaerisgjöf fyrir unga
og fullorðna. Menn hafa sagt um Njálu, að hvað oft sem
þeir litu í hana, lœrðu þeir eitthvað af henni. Sama má
segja um Oliver Twist: hversu oft sem hann er lesinn, finst
nóg tíl íhugunar og auk þess er bókin víða mjög skemtileg.
ef ágreiningur rís um, hvað sé sérmál
þess. Með þeim hætti telur fundurinn
að sleppa megi frekara umtali um rtkis-
ráðsákvæðið.
Samþ. 1 e. hlj.
d. Fundurinn telur að stjórnin hafi gert
rétt í því, að taka ekki þingrofsáskoranir
inna svo nefndu landvarnarmanna til
greina.
Samþ. með öllum þorra atkv.
F á n a m á 1 i ð. Fundurinn telur að svo
koinnu ótlmabært að fara fram á löggild-
ingu sérstaks fána fyrir Island.
Samþ. með öllum þorra atkv.
í lok fundarins var þessijj till. samþ.
með öllum atkv.:
Fundurinn lýsir yfir, að hann beri fult
traust til núverandi þings og stjórnar.
Á fundi 1 Breiðdalsvík 31. Maí þ.
á var samþ. eftirf, till. í sambandsmálinu:
Fundurinn álítur rétt, að Alþingi í sum-
ar velji í millilandanefndina, og ber hik-
laust það traust til þingsins, að það skipi
nefnd þessa þeim mönnum, sem treysta
má að semji upp á það eitt, er fyllilega
tryggir sjálfstæði íslands og jafnrétti við
Dani.
Samþ. með 17 atkv. gegn 1.
Ennfremur lýsir fundurinn ánægju sinni
yfir því, að stjórnin hefir ekki tekið tillit
til þess sem Landvarnarflokkurinn hefir
verið að halda fram um nauðsyn á að
rjúía þingið.
Samþ. með 16 atkv. gegn 1.
Á fundi að Ketilsstöðum, fyrir Skrið-
da!s-, Eiða- og Vallahrepp 16. Júní þ. á.
var samþ. eftirf. till. í sambandsmálinu:
a. Fundurinn telur rétt, að ið núver-
andi Alþingi tilnefni menn í nefnd til að
endurskoða ið stjórnskipulega samband
milli íslands og Danmerkur, og semji til- ,
!ögur til nýrra sambandslaga.
b. Fundurinn krefst þess að ekki verði
samið á öðrum grundvelli en þeim, að
ísland sé frjálst sambandslands Danmerk-
ur, eins og það var við Noreg eftirGamla
sáttmála. Þetta felist skilyrðislaust í Nýja-
sáttmála, jafnvei þó stjórnarvöldum hinnar
sambandsþjóðarinnar yrði falið með sam-
ningum að fara með einhver mál fyrir
íslands hönd, meðan svo þykir henta eftir
ástæðum landsfns.
Að lokum var þessi till. samþ.:
Fundurinn lýsir yfir, að hann ber fult
traust til núverandi þings og stjórnar.
• ---------------
Á fundi á Eskifirði 4. Júníþ. á. var
samþ. eftirf. till. í sambándsmálinu:
a. Með því að* eigi verður hjá því
komist, að kosið verði í sambandsnefnd
á Alþingi í sumar, skorar fundurinn á
Alþingi að samþykkja eigi sambandslögin
að fullu fyr en eftir tvö þing (frá 1909
að telja), þegar þjóðin í heild sinni hefir
átt kost á að kynna sér frumvarp nefnd-
arinnar.
b. Fundurinn skorar á ina tilvonandi
sarnbandsnefnd að semja að einságrund-
velli »gamla sáttmála«.
íslenzka, kjötid.
í „Polit." 24. f. m. er grein frá
„húsmóður" um sauðaketið íslenzka.
Hún talar þar um það sem allir vita
að satt er, hver ómatur íslenzkt salt-
•-------------------------•
ÚRSMÍBA-VINN USTOFA.
Vönduð lí v og Klukkur,
Bankastræti 12.
Helgl Hannesson.
kjöt er, það er venjulega er saltað í
kaupstöðum og selt til útlanda.
Henni virðist aftur vera ókunnugt
um það, að fyrir aðgerðir Hermanns
Jónassonar alþingismanns er nú farið
að bæta verkunina á nokkru af salt-
kjötinu.
Hún furðar sig á, að ekki skuli enn
vera flutt út fryst kjöt frá íslandi til
Danmerkur, og er það von. Þegai vér
heyrum, að fryst kjöt er flutt til Dan-
merkur alla leið frá Astralíu, og að
fryst hreindýrakjöt norskt er selt í
Kaupmannahöfn alt árið, þá furðar
mann eðlilega á, að aldrei skuli vera
flutt út fryst kjöt frá íslandi.
Auðvitað er orsökin skortur skipa
með þeim útbúnaði.
Meðal annars.
í þingræjðu í Ed. á Miðkudaginn
svaraði Jón Jakobsson dr. Valtý Guð-
mundssyni svo út af einhverjum dylg-
jum um Landsbókasafnsvarðar-starfið,
að þetta gæti hann ekki haft eftir
neinum innanþingsmanni, hann hlyti
að hafa það eftir:
þessari safnkollu lyganna,
sem í óþökk guðs og góðra manna
skreytti sig með nafni fósurjarðarinnar
og kallaði sig ísafold".
Þetta heimfærði dr. Valtýr strax
upp á ritstjóra ísafoldar persónulega,
eins og honum fyndist full ástæða til
þess; en þá gall einhver við af áheyr-
andapallinum og sagði:
„Sá á þef, sem fyrst finnur!“ og
þótti sumum það koma vel heim.
Ætli „safnkollan" gangist ekki við
nafni?
Fj ár-liorfurnar.
Fyrir nokkrum vikum tók þýzka al-
ríkið lán, 300 milíónir marka, og varð
að ganga að því að greiða í
ársvoxtu. — Hamborg er sú borg í
allri Norðurálfu, sem bezt þykir hafa
lánstraust. Nýverið þurfti bæjarstjórn-
in þar að taka lán handa bænum, en
við lá að lán það fengist alls ekki.
Ekki furða þó að Reykjavíkurbæ
veiti örðugt að fá lán!
Símskeyti til Blaðskeytasamlagsins.
(„Austri“, „Frækorn“, „Eeykjavik“).
Kaupm.Jiöfn, 19. Jídí.
Danmörk. Innanríkisráðherrann
hefir neitað að staðfesta ályktun bæjar-
stjórnarinnar um sporbrautirnar.
Friðarþingið [sem nú situr á rök-
stólum í Haag] hefir eigi getað ásátt
orðið um tillögu Bandaríkjanna (N. A.)
um að banna víkingu á ófriðartímum.
Rúsiand. Mál skal höfða gegn 169
þingmönnum, þeim er sátu fyrstu
dúmuna og rituðu undir ávarp í Wi-
borg.
Kóreu-keisari segir líklegast af sór
og fær völdin í hendur syni sínum.
[Bæjarstjórn Kaupmannahafnar ályktaði
að taka að sér allar sporbrautir í bænum,
kaupa þær og starfrækja þær svo á kostnað
bæjarins. En yfirstjórn bæjarins (magistrat)
var því mótfallinn; vildu hvorugir undan
láta, og var því málinu skotið til innanríkis-
ráðgjafans].
Ursmíðavinnustofa
Carl F. Bartels
Laugavegi 5. Talsími 137.
Tjaldbúðin á Þingvöllum.
Þeir sem pantað hafa pláz í tjaldbúð
templara á Þingvöllum 2. Ág. n. k.
eru vinsamlegast ámintir um að vitja
aðgöngumiða að þeim sem f ypst.
Nokkur pláz eru enn óseld
og ópöntuð; þeir sem ætla sér að kaupa
pláz í tjaldbúðinni, ættu að gera það
nú þegar, enda getur hæglega svo
farið að verðið á plázum hækki, þeg-
ar austur er komið, verði nokkur þá
óseld. Allir fá keypt, án tillits til
þess hvort templarar eru, eður eigi.
Aðgöngumiðar fást í afgreiðslu ísa-
foldar, á Laugaveg 68 og í Gnten-
Tberg.
Dagbók.
„Laura“ kom aðfaranótt Fimtudags
með 80 farþega, af þeim 9 Vestur-
íslendingar, er ferðast hér um að gamni
sínu; 14 útl. ferðamenn; hitt flestir
íslendingar.
„Esbjærg“, aukaskip samein. eimsk.
fél., kom í gær.
Hingað komu með „Laura“ m. a.
Svhj. Sveinbjörnsson tónskáldið frá
Edinborg, Sveinbjörn kennari Svein-
bjarnarson (Hallgrímssonar) frá Ár-
ósum.
Kommgs-Jörin austur.
Áœtlun um landferðina.
Fimtudaginn 1. Ágúst kl. 83Á um
morguninn fylkjast þingmenn á
Lækjartorgi undir ferðasveitar-
merkjum sínum.
Kl. IIY2—1 dagverður í Djúpa-
dal upp af Miðdal.
Kl. 6 komið á Þingvöll.
Föstudaginn 2. Ágúst. Þjóðhátíð á
Þingvelli.
Laugardaginn 8. Ágúst kl. 8 um
morguninn farið á stað frá Þing-
völlum.
Kl. 11—I2V2 dagverður á Laug-
arvatnsvöllum.
Farið af baki austast í Laugar-
dal og við Brúará.
Kl. 6 komið að Geysi.
Sunnudagínn 4. Ágúst kl. 12 á hád.
farið á stað frá Geysi til Gullfoss.
Kl. 5 síðd. komið aftur að Geysi.
Mánudaginn 5. Ágúst kl. 7V2 um
morguninn farið á stað frá Geysi.
Kl. 9^/2 farið af baki við brú á
Hvítá.
Kl. 11—12^/2 dagverður við Skip-
holt.
Farið af baki við Álfaskeið og
hjá Húsatóftaholti.
Kl. 7 komið að Þjórsárbrú.
Úriðjudaginn 6. Ágúst. Þjóðhátið
Rangvellinga og sýningar.
Kl. 2 síðd. farið á stað frá
Þjórsárbrú.
Viðstaða við Ölfusárbrú; þaðau
farið kl. 5.
Kl. 7 komið að Arnarbæli.
Miðkudaginn 7. Ágúst ld. 8 um
morguninn farið af stað frá
Arnarbæli.
Farið af baki undir Kömbum.
Kl. 12—l1/^ dagverður á Kol-
viðarhól.
Farið af baki austanvert við
Sandskeið.
Við Hólmsá kl. 4.
Kl. 6x/2 komið til Reykjavíkur.
Bréfaskrína.
Ér það ekki í alla staði sanngjarnt
og rétt að leigjandi skili húsinu, er
hann hefir haft á leigu, í sama ásig-
komulagi og hann flutti í það, láti t. d.
í nýjar rúður, þegar rúður hafa brot-
nað um hans leigutíma, og fleira er
brotna kann? Er hann ekki skyldur
að bæta það?
Er leigjandi ekki skyldur að hreinsa
salerni að helmingi við húseiganda, ef
báðir búa í húsinu? J.
Svar: 1. Jú hann er lögskyldur
að bæta alt, er að húsinu verður af
manna völdum, alt annað en eðlilega
fyrningu og slit.
2. Sé báðir húsfeður og hafi ámóta
stóra íbúð hvor, er það venja, að hvor
borgi að helmingi hreinsun sarneigin-
legs salernis. Sé leigjandi einhleypur
maður, er ekki venja að hann kosti
hreinsunina, nema hann hafi sérstakt
salerni fyrir sig.
Eftir þessari venju mundu dómend-
ur að öllum líkindum dæma.
Ungmennafélögin
Og
íll |» i II í» i.
„Samband Ungmennafélaga íslands"'
sækir um styrk í sumar til alþingis, til
þess að geta starfað af kappi að áhuga-
málum sínum: að efla ment íslenzkra
ungmenna, andlega og líkamlega; og
til þess að geta náð sem allra fyrst
takmarki sínu: að ísland verði hiðj
bráðasta skipað hraustum, mentuðuur
og áhugasömum æskulýð.
Hvern veg alþingi tekur í beiðni'
þessa, er eigi hægt að segja fyrir fram.
Er það þó allmikilsvert atriði, þar eð
undirtektir þess hljóta að takmarka og
ákveða skilning þess og álit á þjóð-
arþroska þeim hinum nýja, sem hafinn
er hér á landi með „Ungmennafélögun-
um“.
Hér skal að eins bent á það, senr
flestum þingmönnum á að vera kunn-
ugþ °g er því farið fljótt yfir sögu.
Ungmennafélögin norrænu eru sprott-
in upp af lýðháskólunum,— þeim jarð-
vegi, sem hollastur ogbeztur hefir reynst-
til þjóðþrifahvívetna, Það er stefna
sú, sem endurreist hefir Danmörku og:
gert að fyrirmyndarlandi á marga vegu,
og þarf eigi annað en að benda á
það, sem ritað hefir verið um lýðhá-
skóla á vora tungu, þessu til sönnunar.
Enda segja og viðurkenna Danir það
sjálfir.
í Noregi hafa ungmennafélögin um
langan tíma verið vakandisam vizka
þjóðernis og ættjarðarástar, er varið
hefir og verndað alt þjóðlegt starf,
sem stefndi landi og lýð til heilla. Hefi
ur starf þeirra blessast svo, að með
sanni hefir það að miklu leyti verið
þeim þakkað, að Notðmenn stóðu sem
einn madur gegn Svíum, er umdýrustu
þjóðareign þeirra var að ræða: frelsi
þeirra og fult sjálfstæði. — Þjóðar-
sjálfstœði og œttjarðarást hefir þar
gróið upp afstarfi ungmennafélaganna.
Ungmennafélögin íslenzku eru nýr
kvistur á þessum norrænu greinum,
og virðast þau ætla að verða bæði
væn og fjölmenn. Enn er félagshreyfing
þessi að eins hálfs annars árs hér á
landi, og munu þó þegar á legg komin
milli 15 og 20 ungmennafélög.
Það hafa ungmennafélög vor fram
yfir erlend félög samskonar, að hjá