Reykjavík - 16.11.1907, Blaðsíða 3
reyrjavík
261
úr því að það boð (um 8000 kr.) kom
ekki fram fyrri en eftir að hann hafði
afsalað sór skiftaráðunum.
Yfirdómurinn hermir hór upp á
L. H. B., að skjöl málsins beri með
sór, að hann hafi, meðan hann var
skiftaráðandi, gert það, sem skjöl máls-
ins bera með sór, að hann hefir ekki
gert og gat ekld hafa gert.
Yfirdómurinn ber hór því fram í
dómi sínum alveg ósatt mál, og hvort
sem þessi ósannindi yfirdómsiris stafa
af því, að dómendurnir hafi ekki lesið
öll skjöl málsins (eins og heyrst hefir
haft eftir setudómaranum að sig hafi
hent) eða af öðrum orsökum, þá inni-
halda þau saknœm meiðyrði um L. H. B.,
meiðyrði, sem hæstiréttur telur svo
meiðandi í grein Einars Hjörl., að hann
dæmir þau ómerk og sektar fyrir þau.
Hvort þessi ósannindi yfirdómsins
eru sögð viijandi eða óviljandi, getur
engin áhrif haft á saknæmi þeirra —
að eins á refsingarákvæðin fyrir þau.
Leikmannsaugum mun varla auðið
að sjá, að dómendurnir, sem segja
þessi saknæmu og meiðandi ósannindi,
hefðu getað hjá því sloppið, ef L. H. B.
hefði stefnt þeim fyrir meiðyrði í dóm-
num, að orð þeirra hefðu orðið dæmd
ómerk og þeir sektaðir fyrir.
Hér er ekki um að tala ranga á-
lyktun eða ranga heimfærslu laga,
heldur ranghermi — og það œrumeið-
andi ranghermi. Og þó að engum
dytti í hug, að hér gæti verið til að
dreifa víssvitandi hlutdrægni pólitískrar
eða persónulegrar ofstækisæsingar eða
óvildar hjá neinum af dómurunum,
því síður öllum, þá er þó hörmulegt
til þess að vita og hrapallegt, að slíkt,
sem hór hefir fyrir komið, skuli yeta
átt sór stað í yfirdómi landsins.
Haístaréttar-dómurinn er þannig:
„Dómstóllinn verður að vera áfrý-
janda [L. H. B.] samdóma um það, að
öll umyrði þau sem kært er fyrir og
tilgreind eru í undirréttardóminum, verði
að álíta ærumeiðandi fyrir hann, þar eð
í þeim felist aðdróttun um, að hann
hafi misbeitt embættisstöðu sinni sjálf-
um sér tii hagnaðar. Eftir því sem
fyrir liggur í málinu, hefir stefndi
[E. H.[ ekki haft ástæðu til þessara
ummæla, og ber í þessu sambandi að
geta þess, að áður en til þess kom að
skera úr því, hvort 7000 króna boð
sitt í eignina yrði þegið, hafði áfrýj-
andi [L. H. B.] beðið amtmann um»
að annar skiftaráðandi yrði settur, til
að halda áfram skiftameðferð á búinu.
Því verður að fallast á það,. að öll in
tilgreindu ummæli hafa í héraðsdóm-
inum verið dæmd dauð og marklaus,
og með því að málsrekstrinum hefir
verið svo hagað1), að sitja verður við
það, að athæfi stefnda [E. H.] er í
þessum dómi [undirr.dóminum] heim-
fært undir 219. gr. hegningarlaganna
fyrir ísland, og við þá refsingu, sem
í dóininum er á kveðin, þá verður
samkvæmt kröfu áfrýjanda [L. H. B.]
að staðfesta héraðsdóminn að öllu leyti.
Auk þess verður að gera stefnda
[E. H.] að greiða áfrýjanda [L. H. B.]
málskostnað fyrir yfirdómi og hæsta-
rétti með 300 kr.
Því dœmist rétt að vera: Héraðs-
dómurinn skal óraskaður standa, þó
svo að fresturinn fyrir greiðsln sekt-
anna téljist frá hirtingu þessa hœsta-
réttardóms. Málskostnað fyrir lands-
yfirdónii og hœstarétti greiðir stefndi,
Einar ritstjóri Hjörleifsson áfrijjand-
anum, Lárusi H. Bjarnason sýslu-
manni, með 300 krónum. Til dóms-
málasjóðs greiði stefndi 10 kr.“
HefirOu borgað „Rvik ?“
Símskeyti til „Reykjavíkur".
frá Ritzaus Bureau.
Kaupm.höfn 74. Nóv., kl. 4s° e. h.
Morð og sjálfsmorð.
Sofus Rasmussen, foringi stjórnleysingja
og ritstjóri blaðs þeirra »Skorpionen«, 1
Raupmannahöfn, skaut í gær lögregluþjón,
er átti að sækja hann til að afplána hegn-
ingu, og skaut þvf næst sjálfan sig á eptir.
Ilíkisþingið rúsneslca
sett í dag með hátíðlegri viðhöfn. Flokka-
skipunin þar: 195 hægri menn, 128 miðl-
unarmenn, 41 rótnemi (svonefndir »Ka-
detter«) 15 Pólverjar, 28 vinstri menn,
14 jafnaðarmenn, 6 Múhameðstrúarmenn
m. m.
0 Sbr. hér að framan í 3.—4. dáiki 260. bls.
Ritstj.
Pgzku keisarahjónin
eru í heimsókn í Lundúnum.
Dag'bók.
16. Nóvbr.
í cSag er 100. ára afmæli Jónasai* Hall-
grímssouar, og er minnisvarði hans af-
hjúpaður kl. 2 í dag. Hann stendur til
sumars á túni Guðm. Björnssonar landlækn-
is; verður þá fluttur á sinn sama stað (við
nýju bókhlöðuna).
Bjarni Jónsson frá Vogi heldur vígslu-
ræðu, en sungnir verða söngvar eftir Jón
Olafsson og Þorst. Erlingsson við ný lög
eftír Árna Thorsteinsson og Sigfús Einars-
son. Frídagur verður í öllum skóiuut vænt-
anlega.
SVIfsliagarnir hafa uú tínt upp flesta
þá hér I bæ, er þá gátu fengið; verið ó-
mannskæðir sjálfir. En síðan veður tók að
spillast hafa afleiðingar þeirra komið fram í
ýmsum sjúkdómum, er þungt hafa lagst á
marga og sumum að bana orðið. Magaveiki,
kvef, hálsbólga hafa tekið marga á eftir
mislingunum.
Páll Melsteð var 95 ára á Míðku-
daginn, og var þá flagg á hverri stöng í
bæuum, þar á meðal 1 eða 2 grísk flota-
flögg (svo kölluð „íslenzk11 flögg) og mun
honum hafa þótt lítil virðing að peim.
Vatnsleiðslumál Reykjavíkur er nú
full-undirbúið að rannsóknum til af bæjar-
fulltrúa Jóni Þorlákssyni verkfræðing. Vatn-
ið mun mega telja víst að tekið verði úr
Gvöndar-brunnum svo nefndum uppi í Mos
fellssveit, og áætlað, að vatnsleiðslan öll
þaðan muni kosta um 420,000 krónur, (kostn-
aður við að leiða vatnið úr aðal-pípunum í
strætunum inn í húsin ekki þar með talinn;
hann bera húseigendur hver fyrir sig). —
2,032,000 af járnhólkum áætlar J. Þ. að
þurfi til vatnsleiðslunnar.
Iffiamialál. í fyrri nótt andaðist hér í
bæ frú Maren Lárusdótlir (sýslumanns á
Enni), ekkja Jóhannesar sýslum. Guðmunds-
sonar, en móðir Jóhannesar bæjarfógeta á
Seyðisfirði. — f 8. þ. m. Elinborg Pálsdótt-
ir Vídalín, námsmey á Verzlunarskólanum,
Haraldur Þórarinsson prestliugur er
kosinn prestur að Hofteigi á Jökuldal.
„Hólar“ og „Skálholt“ komu um síð-
ustu helgi og bæði farin til útlanda. —
„Yesta“ enn ókomin (nú 10 dögum eftir
tíma).
Gull og silfur hefir hvorttveggja fund-
ist í Yatnsmýrinni, og er þó minst rannsak-
að enn af því sem upp hefir komið síðan
komist varð á ca. 125 feta dýpi (nú er kom-
ið 152 fet niður). í eitthvað 3—4 sýnis-
hornum, er rannsökuð hafa verið (hvert
sýnishorn 1/4 pd.), hefir fundist dálítill gull-
vottur- Þótt eigi væri uema 1 eyris virði
i hverju pundi (og hér mun þð hafa ver-
ið meira), þá næmi það 80 lcr. í hverju tonni.
Gullnámar í Ameríku ofanjarðar, sem gefa
18 kr. úr tonni, eru taldir vinnandi. Gull-
námarnir í Makedóníu, som unnir eru þó,
gefa 9 kr.' (verkalaun þar lægri). — Holan,
sem nú er boruð, er nokkra faðma frá þeirri
í hittiðfyrra, -þar sem málmarnir fundust á
sama dýpi. Hér er þvi jarðlag með málm-
um 1. — Silfur hefir og fundist á Miðku-
dagskvöldið.
Byskupsfrúin handleggsbrotnaði (önn-
nr fram-pípan) í hálku á Vesturgötu í vik-
unni.
Gripin af handahófi
«r þíasuiidum vndorða eru
uuuuæli þau sein liée fapa á
eftip:
Ég imdirritaður hefi þjáðst í mörg
ár af matarlystarleysi og magakvefi,
en við það að neyta stöðugt Kína-
Lífs-Elexír hr. Valdemar Petersens er
ég orðinn allæknaður.
Hliðarhúsum, 20 Ágúst 1096.
Halldór Jónsson.
Meltingarðrðugleikar. Þó að eg
hafi ávalt verið sérstaklega ánægður
með yðar alkunna Elexír, verð ég samt
að kunngera yður, að ég tek ið bætta
seyði fram yfir, með því að það hefir
miklu fljótari ahrif við meltingarörð-
ugleika og virðist langtum nytsamara.
Ég hefi reynt margs konar bittera og
lyf við magaveiki, en þekki ekkert
meðal, sem hefir jafn mikil áhrif og
þægileg, og kann því þeim sem hefir
fundið það upp mínar beztu þakkir.
Fodbyskóla. Virðmgarfylst.
kennari J. Jensen...
Slýpnatæpiug;.
Ég undirsluifuð, sem hefi þrjá um
fertugt, hefi í 14 ár þjáðst af nýrna-
tæringu með þar af leiðandi óreglu í
þvaggangigum, vatnssýki og harðlífi,
höfuðverk og almennri veiklun. Ég
hefi látið skera mig upp og oft legið
rúmföst. Af og til hefi ég verið föt-
um fylgjandi, og við að neyta Kina-
Lífs-Elexírs Waldemar Petersens hefi
ég fundið að ég styrktist, svo að ég
hefi fundið tilefni til að neyta þess
reglulega. Með þessu hefir mór tekist
síðustu árin að sefa sjúkdóminn; en
hann hefir ágerst aftur hvenær sem ég
hætti að neyta elexírsins; þó hefir
verkun þess enzt lengur og lengur í
hvert sinn, svo að það er full sann-
færing min, að elexírið muni að lok-
um geta allæknað sjúknað minn.
Lambakoti, Eyrarbakka 17. Maí 1905.
Jólianna Sveinsdóttir.
Biðjið skýrlega um Waldemar Pet-
ersens ósvikna Kína-lífs-Elexír.
Fæst hvervetna á 2 kr. glasið.
Varist pftipstælingap! [3
Veðurathuganir
eftii- M. Thorberg.
Nóv. 1907 Loftvog millim. ! 1 1 Hiti (C.) •0 æ 1 *© <D > a '03 u *o D >
Eö. 8. 7 748.0 -f-0-7 A 2 Hálfsk.
1 748 5 1.0 NA 4 Hálfsk.
4 749.8 0.8 NNA 5 Smásk.
10 751.0 0.0 S 2 Hftlfsk.
Ld. 9. 7 756.6 -1-0 4 SA 1 Skýjað
1 761.5 -y-20 SSA 1 Skýlaus
4 761.1 -4-3.4 Logn 0 Skýlaus
10 759.3 -P2.4 Logn 0 Skýlaus
Sd. 10. 7 754,6 -i-0 5 Logn 0 Snjór
1 751.5 0.4 N 2 Alsk.
4 749.4 10 Logn 0 Móða
10 746 5 0.3 Logn 0 Snjór
Má 11. 7 743.1 00 SA 1 Alsk.
1 746.1 -4-1.8 N 4 Smásk.
4 746 8 -f-0.4 NNV 3 Smásk.
10 745.8 -4-1.4 Logn 0 Snjór
Þd. 12. 7 740 4 -1-1.1 NNA 3 Skýjað
1 741.5 0 8 A 2 Skýjað
4 743.5 0.3 Logn 0 Aisk.
10 747.2 -f-0.5 A 2 Snjór
Mi. 13. 7 746.7 08 SA 1 Alsk.
1 737.6 00 A 8 Regn
4 733.0 1.2 A 9 Regn
10 729.0 4 5 A 6 Skýjað
Fi 14. 7 730.4 11 ssv 7 Snjór
1 735.8 2.4 ssv 7 Hálfsk.
4 738.5 2.8 sv 5 Hálfsk.
10 744.3 1.2 sv 3 Skýjað
ۤgert Claessen,
yfirréttarmálaflutningsmaður.
Lælijarg;. 13 1S. Talsími 10.
Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5.
a--------------------------------,®
SVEINN BJÖRNSS0N
yfírréttarmálaflutningsm., Kyrkjustræti 10
tekur að sér öll rnálfærslustörf, kaup og sölu
[tf] á húsum og lóöum o, s. lrv.
Heima kl. IOV2—ll1/* og 4—5.
fyrirlestur
í Botel Sunnudaginn 17. Nóvem
ber kl. CJ/2 síðd. Efni:
Tímabil í hinu spámannlega orði, sem
snerta tíma endisins.
Allir velkomnir. Aðgangur ókegpis.
Davld Östlund.
<