Reykjavík - 04.02.1908, Blaðsíða 3
REYKJAVIK
19
fl
flýtir þvottinum um fullann
helming móts viö aðrar sápur.
Hún er aöeins búin til
úr hreinustu efnum.
Fylgið fyrirsojíninni sem er á
öllum Sunlight sápu umbúOum.
Sápa
nú staddur. Fer hann heimleiðis með
„Geraldine" 6. þ. m. Hann heflr beðið
þess getið hór í blaðinu, að hann sé
að hitta í húsi Sigfúsar Eymundssonar
hóksala.
Fulínaftarpróf á læknaskólanum
hafa nýlega tekrð þeir: Ólafur Þor-
steinsson■ með 2. betri eink. (139V7st.)
og Guðm. Þorsteinssou með 2. lakari
eink. (752/3 st.).
Yextir í íslandsbanka eru nú færðir
niður í 7%, eins og þeir undanfarið
hafa verið í Landsbankanum.
Húshnmi varð i Keflavík 22. f. m.
Var Það stórt hús með ibúð, bökunar-
ofni og búð, sem brann, með flestu
sem í því var. Húsið átti Helgi Ei-
ríksson bakari, og hafði hann vátryggt
hús og muni. Tvö næstu húsin skemd-
ust talsvert við brunann, en varð bjarg-
að með blautum seglum.
Alþýðulestrarfélag Reykjavíkur
hefir lánað út 2662 hækur á
tímabilinu 1. okt.—1. maí, fyrra ár
en alls á félagið um 1100 biridi, flest
islenzkar bækur. Félagið nýtur nú
300 kr. styrks árlega, er helmingur
þess styrks af aimannafé, en hinn
helmingurinn úr bæjarsjóði Reykjavík-
ur. Annars hefir felagið átt fremur
þröngt í búi. Lifað mest á fé sem
komið hefir inn á tombólum og styrk
góðra manna.
Félagið er stofnað fyrir forgöngu
þeirra Tryggva bankastj. Gunnarssonar
og Þori. adj. Bjarnason, sem báðir
hafa frá byrjun verið þess hjálparhellur.
Aðvir beztir styrktarmenn þess hafa
verið M. Stephensen landsh., Sk. Thor-
oddsen ritstj. og Sig. Kristjánsson bók-
sali. sem allir hafa gefið þvi hækur
mjög rausnarlega.
Félagið heldur opinni iestrarstofu
hvern virkari dag 1. okt.—1. maí árl.
Geta menn þar fengið að lesa blöð og
bækur, og eins fengið bækur lánaðar
heim.
fetta felag er gott og gagnlegt, og
ætti sem ílestir að styrkja það með
því, að gerast meðlimir þess, og geta
menn í því efni sriúið sér til adj.
Þorl. Bjarnason á Laufásvegi.
Látnir eru : Jón bóndi Jónsson á
Vestri-Loftsstöðum í Gaulverjabæjar-
hreppi, merkur og vel metinn maður.
Hann dó 18. f. m. á 77. aldursári.
Stefán bóndi Erlendsson á Grásíðu
í Kelduhverfi, sonur Erl. þingm. Gott-
skálkssonar i Ási í Kelduhverfi, dó 22.
f. m. Hann var vel metinn maður,
gáfaður, smiður góður og vel að sér
um margt.
Þá er og dáin merkiskonan Hálldóra
Jójisdóttir, kona Gísla Gíslasonar á
Ásgautsstöðum. Hún var á 69. ald-
ursári.
Sjálfsmorð. Stúlka nokkur, Guð-
björg Guðmundsdóttir úr Njarðvikum,
drekkti sér frá geðveikrahælinu á Kleppi
24. þ. m. Stúlkan var um þritugt,
hafði komið á geðveikrahælið í haust,
og kvað oft hafa reynt til að fyrirfara
sér. Eitthvað er ömurlegt til þess að
hugsa, að þó geðveikrahæii þetta hafi
enn ekki starfað nema rúmt missiri,
hafa tvö sjálfsmorð verið framin þar
af aumingjum þeim, sem þar er leitað
hælis til gæzlu og lækningar.
Bólu kvað hafa orðið vart bæðí í
Brest á Frakklandi og Leith á Skot-
landi. 1 Leith höfðu komið fram 12
tilfelli eftir að „Laura“ fór þaðan. Var
„Laura" því sóttkvíuð fyrst í stað, en
svo leyst úr sótthaldi er það vitnaðist,
að ekki mundi standa hætta af Leith-
sjúklingunum.
Rúmlcga 100 ára gömul kona,
Guðrún nokkur Antoníusdóttir, létzt ný-
lega í Skagafirði. Hún átti 98 ár heima
í sama hreppi, Akrahreppi, og hafði
aldrei komið í kaupstað á æfi sinni.
Hafði þó verið fróð um margt, og elzt
svo vel, að hún hafði lesið gleraugna-
laust fram til æfiloka.
Höfuðbóliö Yiðey er nú sagt
að sé seld miljónafélaginu danska A. T.
Moller & Co. (P. J. Thorsteinsson, Thor
Jensen o. fl.) fyrir 150,000 kr. Ö)1
áhöfn fylgir í kaupunum. Eggert Briem
bóndi í Viðey keypti jörðina fyrir
nokkrum árum fyrir 30,000 kr. Hefir
hann þannig grætt laglegan skilding á
sölunni. Þó mun mega draga nokkuð
frá þeirri upphæð vegna þess, sem
hann hefir lagt í byggingar og annan
kostnað, síðan hann byijaði búskap
Þar. Sagt er að Eggert Briem taki
eyna á leigu hjá félaginu um næstu
2 ár. — Er þar fallið eitt af íslands
elztu og mestu höfuðbólum, fyrir milj-
ónunum erlendu, hversu mörg sem á
eftir fara.
Samskotunum handa ekkjum og
börnum þeirra, er fórust í mannskaða-
veðrinu mikla vorið 1906, er nú hætt.
Alls hafa samskot þessi orðið 34,600
kr. Hefir verið útbýtt af þessu fé
30,400 kr., en 4,200 kr. lagt í Fiski-
mannasjóð Kjalarnesþings. Er svo
fyrir mælt, að grípa megi til þessa
höfuðstóls, til að afstýra brýnustu
vandræðum, ef stórfeldar slysfarir á
sjó beri að höndum. — íslendingar í
Ameríku eiga drjúgan þátt í því, hve
samskot þessi hafa orðið mikil.
Samsöng héldu i Báruhúsinu á
sunnudagskvöldið var, fyrir fullu húsi,
frökenarnar Kr. Hallgrímsson og Elín
Matthiasdóttir, frú ElísabetÞorkelssonog
Þórður lækrxir Pálsson. Öll leystu þau
hlutverk sitt mjög vel af hendi.
Karl Olgeirsson verzlunarstjóri
„Edenborgar" á ísafirði og frú hans
komu hingað með gufuskipinu „Norr-
öna“ á miðvikudaginn var. Biða þau
hér eftir „Ster)ing“.
Látin er í Kaupnrannahöfn frú Malis
Ásgeirsson, seinni kona Ásgeirs Ás-
geirssonar etazráðs. Hún var dóttir
Bahnsons hershöfðinga sem var her-
málaráðgjafi í Danmörku 1884—1894.
Bæjarstjórnarkosningin 24. þ. m.
Örlitla athugasemd vil ég biðja „Reykjavik“
fyrir í tilefni af grein með þessari fyrirsögn
í siðasta tbl. hennar.
Þar segir svo, að af alþingiskjósendum
hafi 471 verið Heimastjórnarmenn og 289 í
Þjóðræðisflokknum. Þessar tölur fær höf.
með því, að leggja saman atkvæðamagn
C. D. og G. listanna. En það er ekld rétt.
G-listann höfðn templarar, og meðmælendur
og kjósendur þessa lista tilheyra báðum
stjórnmálaflokkunum, og má þvi alls ekki
telja þá með í yfirliti höfundarins öðruvísi
en milli flokka. Sama má og segja um
A-listann, meðmælendur hans eru af báðum
flokkum. Yfirleitt er mjög óábyggileg skýrsla
um flokkaskipun, sem bygð er á þessum
kosningum, og sé hún gerð, á eigi síður að
telja þá lista er ónýtir urðu en hina, en
þeim sleppir höfundurinn.
Reykjavík, 29. janúar 1908.
Pétur Xophoníassou.
*
* *
Athugas. ritslj. Yér höfum ekki viljað
neita hr. P. Z. um rúm fyrir athugasemd
hans, svo hófleg sem lmn er. En hvorugt
nær nokkurri átt, hvorki að telja með ógildu
atkvæðin, er um greidd atkvæði er að ræða,
né heldur liitt, að telja kjósendur ákveðinna
heimastjórnarmanna milli flokka fyrir það
eitt, að þeir heyra til sérstökum félagsskap.
Smsi'Ilii.
Skrítin erfðaskrá. Til enska blaðs-
ins „Dayly Telegraph" ersímað 13. f. m.
frá New York :
Maður að nafni Henry Sullyvan, vel
efnaður borgari í New York í Banda-
fylkjunum, hefir gert erfðaskrá sína.
í henni ráðstafar hann likama sínum
eftir sinn dag á þann hátt, að hann
leggur fyrir þá, sem eiga að sjá um
framkvæmd eriðaskrárinnar, að láta
gera kringlótta hnappa úr beinunum,
hálfan þumlung alt að heilum þumlung
að þvermáli, ennfremur að láta súta
skinnið eða hörundið á líkamanum og
gera úr því skjóður; enn þá parta
líkamans, sem hafa má í fiðlustrengi,
á að nota í þess konar strengi, sem
vanalega eru kallaðir „kattargarnir"
(„catgut" á ensku), og spenna þá á
fiðlur. — Þá kemur svohljóðandi klausa
í erfðaskránni:
„Hérmeð gef ég mínunt elskulega
vini og félaga James Hayce hnappana,
Fjölnicnt samsæti er símað að
norðan að hgfl verið haldið á Akureyri
1. þ. m., til minnrngar um stjórnar-
bótina seinustu. Sátu það auk bæar-
manna margir úr sveitunum i kring.
O Klukkur. úr og úrfestar,
§ sömuleiðis gull og silfurskraut-
O Qripj borgar sig bezt að kaupa á
O Laugavegi nr. 12.
q Jóhann Á. Jónnsson.
OOOOOOO OOOOOOOOOOOO OOOOOOO
fiðlustrengina og hið sútaða skinn, sem
gert verður úr líki rnínu, sem áður er
sagt, og bið hann að úthluta þessu
eftir vild sinni til nánustu vina minna“.
Svo er að sjá, sem arfleifandinn hafi
ekki gert þessa erfðaskrá til að verða
„víðfrægur af endemum", heldur af
þeirri sannfæringu, að í likama manns-
ins séu góð og nytsöm efni, sem ekki
ættu að fara til ónýtis, heldur eigi að
ánafna þau vinum sínum tii minja.
Hann segist ekki trúa á þær greftr-
unaraðferðir, sem tíðkast, þær séu
heimskulegar, kostnaðarsamar og hættu-
legar fyrir heilsu eftii'lifenda, og vonar,
að margir muni fara að sinu dæmi.
Sænskur greiti hefir verið fangels-
aður fyrir stórþjófnað í bænum Kómó
á Norður-Ítalíu. Greifinn hefir framið
mörg innbrot, en þó einkum lagst á
gesti, er verið hafa honum samtíða á
gistihúsum. Meðal annara dýrgripa
stal hann síðastl. sumar hálsbandi úr
gimsteinum, er kostaði yfir 50,000 kr.,
því sta) hann af aðalskonu einni, er
hann hafði umgengist, og sátu nokkrir
menn í varðhaldi út af grun um þann
stuld, þegar greifinn var handsamaður.
Rnssland og Finnland. Rússneska
stjórnin hefir )ýst því yfir, að liðsafn-
aðurinn við landamæri Finnlands hafi
að eins verið gerður til þess, að girða
fyrir það, að rússneskir stjórnbyltinga-
rnenn kæmu sér undan til Finnlands,
og blósu þaðan að kolunum í Rúss-
landi.
En þó er geigur í mörgum, ekki sízt
Finnum, því að bæði þykir rússneska
sijórnin hafa verið staðin að tvöfeldni
oftar en einu sinni, og svo er sagt,
að hún ráði lítið við hirðina. Og það
fólk kvað ekki láta sér ait fyrir brjósti
brenna nú fremur en áður.
Konungsmord.
Sú fregn flaug her um bæinn í gær-
kvöldi, eftir fregnmiða, sem „Austii“
hafði látið gefa hér út, að frá Lissabon
hafi verið símað, að þegar konungs-
hjónin ásamt krónprinsinum og prins
Manuel óku i opnum vagni á laugar-
dagskvöldið, skutu tveir menn mörg-
um skotum á þau. Dó konungur strax
og krónprinsinn litlu síðar, prins
Manuel særðist lítið, en drottningu
sakaði ekki. Morðingjarnir voru strax
drepnir, og rnargir teknir fastir. Prins
Manuel er tekinn við ríkisstjórninni.
^íiilha velkunnandi og þrifin,
hraust og góðlynd, getur fengið góða
vistog hátt kaup hér i bæ 14. maí.
Ritstjóri tekur við tilboðum.
Stórt feröakoffort óskast til
kaups. Ritstjóri ávísar.
Netakúlur
o g
netag-arn
fæst í
Thomsens Magasíni.
661 og samstxð ibúð
fyrir fámenna fjölskyldu óskast frá 14.
mai n. k. — Nákvætn tilboð, með til-
greindri leigu-upphæð, sendist lokað á
skrifstofu „Rvikur“, merkt: Bústaður
1908, fyrir 9. þ. m.