Reykjavík - 25.02.1908, Side 2
30
REYKJAVIK
Telja má sjálfsagt, að háttvirt Stjörn-
arráð Islands veiti -styrk nokkurn til
farar þessarar, og hann eins ríflegan
Og framast má verða, og mun þá reyn-
ast auðvelt að fá það, er upp á kynni
að vanta. Yeit ég það, af viðtali mínu
við háttvirtan ráðherra, að hann er
mjög hlyntur stefnu Ungmennafélag-
anna — og eigi sízt því takmarki þeirra,
að gera æskulýð vorn hraustan og
stæitan við íþróttir. Má því vænta
góðs eins af honum í því efni.
Hér eiga allir góðir drengir og sannir
íslendingar að ganga fram sem einn
maður. Hverju nafni sem nefnast.
Hér kemur engin flokkaskifting né
skoðanamunur til greina. Að eins ls-
land og sómi þessl Og hann viija allir
góðir drengir, hverju nafni sem nefnast.
Hægt verk ætti það að vera heilli
þjóð, að skjóta saman 3—4000 kr. á
skömmum tíma, ef viiji væri til. Gangi
stjórn vor hér á undan, sem henni ber,
er björninn unninn ! Ailir íslendingar
eiga að leggja sinn skerf, hvað lítill
sem hann er, og fá sinn skerf í þjóð-
frægð og þjóðgleði þeirri, er leiða mun
af för þessari! Og íslenzku glímurnar
munu frægar verða um veröld víða!
ull þjóðleg félög vor eiga að stofna
til skemtana og styrkja fyrirtæki þetta.
Blöð vor eiga að skora á menn að
fylgja þessu fram af kappi og brýna
fyrir alþýðu, hve mikilsvert það sé!
Þá mun alt ganga vel og máli þessu
verða ráðið til lykta á svo skömmum
tíma, að undirbúning megi hefja í
tæka tíð.
Gefl það hamingja íslands, að vór
getum nú sóð allar þær fögru afleið-
ingar til æskuþroska, þjóðþrifa og þjóð-
ræknisþroska, er hluttaka þessi mnndi
hafa í för með sér!
Sýnum nú, Islendingar, að œttjarðar-
ást vor er meira en orðin tóm! Að
vér berum þjóðheiður vorn fyrir brjósti!
Allan styrk og styrk-loforð til þessa
má senda til gjaldkera „U. M. F. í.“,
hr. Árna Jóhannssonar biskupsskrifara
í Rvík, eða þá til varaformanns Helga
Valtýssonar í Hafnarfirði.
Hafnarflrði, 17. jan. ’08.
Helgi Valtýsson.
*
« «
[Þessi grein er tekin úr „Lögréttu“ eftir
ósk höfundarins].
Kaflar úr bréfum1)
frá A. C. L., forstjóra sláturhúss ríkis-
ins í E . ., til forstjóra H. Th.
í Rvík.
i. 26. sept. '07.
.......Það gleður mig, að hr. Tómas
Tómasson er orðinn yfirslátrari hjá ykk-
ur. Bið eg yður að skila kveðju til hans
frá okkur öllum hér.
Sauðfjárslátrunin er nú byrjuð hér. Við
sendum kroppana nýja til Lundúna. Hald-
ið þér ekki, að félag ykkar gæti gert eitt-
hvað í þá átt? Eg hygg að verzlunarhús
okkar í Lundúnum .... gæti verið ykkur
til liðs í því.
Við höfum nú f nærri mannsaldur átt við
kjötverzlun, og erum gagnkunnugir hin-
um enska markaði....
2. 30. okt. '07.
Hefi veitt móttöku farmmiða yfir 55 tn.
saltkjöts frá yður. Vona, að geta komið
því í það verð, er þér stingið upp á, eink-
um, er bæði kjötið og frágangur þess er af
fyrstu tegund .... Skal eg gera allt hvað
1) Fyrir hönd „Sláturfélags Suðurlands",
leyfi eg mér hér með að beina þeirri ósk
til ritstjóra annara blaða, er styðja vilja vel-
ferðarmál bænda, að þeir einnig taki grein
þessa í blöð sín.
Björn Bjarnarson.
ÚRSMlBA-VINNUSTOFA. "
Vönduð tlr og Klukkur.
Bankastræti 12.
Helgi Hannesson.
eg get til að koma kjötinu í gott verð,
og býst við að geta það; því eg hefi ein-
mitt viðskipti við þá menn um allt Jót-
land, sem slíkrar vöru þurfa ....
3. 31. okt.
I dag hef eg sent orð góðum kaupend-
um um allt Jótland, til að fá sýnishorna-
pantanir. Eg ætla mér yfir höfuð að
vinna af alúð fyrir sláturhús yðar, og aug-
lýsa það, eins og eg get bezt; því eg hefi
mikinn áhuga fyrir málefninu ....
4. 6. nóv.
.... Dilkakjötið líkar fólki bezt. Það
selzt líka heldur betur en hitt. Eg hef
sent 12 tn., sem sýnishorn, ýmsum áreið-
anlegum kanpendum .... Vonast til að
fá 72 kr. fynr dilkakjötið og 70 kr., eða
nálægt því, fyrir sauðakjötið. I Khöfn er
nú verð á venjul. ísl. kjöti 60, í mesta lagi
62 kr.......
Hérmeð auglýsinga-klippingar úr blöð-
unum hér í bæ og Jótlandspóstinum, því
blaði, sem kemur til allra kaupmanna á
Jótlandi ....
5. 9. nóv.
Kjötið er gott og meðferðin hreinleg.
. . . . Eg hef nú sent kjöt til [6 helztu
borganna á Jótlandi], og með því kynn-
ist það um allt Jótland. Eg vona, að um-
boðsmenn yðar í Khöfn setji ekki niður
verðið á kjöti frá sláturhúsi yðar; það
mundi verða til mikils óhags .... — I
gær bauð eg ritstjórunum og ýmsum öðr-
um bæjarmönnum til morgunverðar upp
á kjötið, og luku allir lofsorði á það ....
6. 18. nóv.
. . . . Eg býst við að geta selt talsvert
meira [í vetur] af samskonar kjöti; en ef
þér hafið ekki meira aflögu nú, verð eg
nð bíða næsta árs.
Með tilliti til sölunnar hér í Danmörku,
vildi eg mega vekja athygli yðar á því, að
það væri mjög þýðingarmikið, ef maður
gæti fengið alla smásalana á útsölustöð-
unum til að hafa sama útsölu-
v e r ð. Við það yrði salan vissari.
Án efa hlýtui hið mikla upplag af ísl.
kindakjöti, sem um þessar mundir er
boðið á 60 kr. tn., að vera til mikils
hnekkis fyrir söluna á kjöti frá sláturhús-
inu ....
7. 7. des.
.... Samkeppnin er nú afarmikil. Mik-
ið af ísl. kjöti er nú selt. á 58—60 kr. tn.,
en í smásölu á 30 au. pd. (sjá meðfylgj-
andi blaða-klippinga:
[ 1) Fyrsta flokks (Prima) nýtt, ísl.
kindakjöt, 30 au. pd. — Reykt læri 45
au. pd.-----. 2) Nýtt ísl. kindakjöt kom-
ið og selst á 30—33 au. pd.J úr Khafn-
arblöðum).
Þetta er ákaflega skaðlegt; því allur
almenningur hleypur eftir lægsta verðinu,
og hyggur, að ísl. kjöt á 30 og 40 aura sé
ein og sama vara.
Eg vona, að þessir blaðaklippingar og
bréf mín geti sannfært hluttakendur í
sláturfélagi yðar, og öll þau hundruð
bænda, sem utan við það standa, um, að
þeir verði að nota sláturhúsið. Einungis
með því móti er unnt að fá verðið hækk-
að og auka tekjur framleiðendanna. Eg
hefi fastákveðið, að á kjöti því frá yður,
sem í gegnum mínar hendur gengur, sé
verðið 40 au. / framhlutum, en 45 au. í
apturhlutum (kroppanna í smásölu), og
þetta verð gildir um allt Jótl. Með þessu
móti getur maður gert sér von um að út-
vega sláturhúsinu gott verð, og um leið
glæðir það áhuga fyrir sölunni hjá útsölu-
mönnunum, er eiga að úthluta kjötinu í
smáviktum [hægra að veita þeim viðun-
andi ágóða] . . . . Eg er fús að leggja yð-
ur lið til að fá vöru yðar hækkaða f á-
liti hér í Danm., og ef við vinnum sam-
an í eindrægni, getur mikið áunnizt í
þessu efni.
8. ' 20. des.
.... Eg hefi fastlega ásett mér að gera
allt, sem í mínu valdi stendur, til að koma
verði kjötsins svo hátt, sem það í raun
og veru á skilið. — Eg sendi yður hér
með auglýsing, klippta úr Esbj.-Avis:
[Allar húsmæður ættu að reyna
fyrsta flokks kindakjöt frá hinu nýja
sláturhúsi í Reykjavlk. Þar er slátrað á
sama hátt eins og hér í Danm., og kjöt-
ið jafnast fyllilega á við danskt kjöt.
Fæst að eins hjá: [nefndir útsölu-
mennn víðsvegar um Jótl.]. Frampart-
ar 40 au., apturpartar 45 au. pundið].
Af henni getið þér séð, að útsölu-
mennirnir hér hafa allir sama útsöluverð,
og hefur það mikið að þýða. Eg hef
selt 40 tn. af fyrstu sendingunni, og er
verðið 74 kr. tunnan.
Eitt er víst — það verðið þér að at-
huga og gera kunnugt aðalfundi félags yð-
ar og stjórn þess — að skilyrði fyrir því
að framleiðendurnir á Islandi geti fengið
gott verð fyrir kjöt sitt, er, að almenn-
ingur þeirra, eða svo margir sem unnt
er, gerist hiuthafar f sláturfélagi yðar.
Það hefur valdið mér miklum óþægind-
um, og eg hef fengið mörg bréf um það,
að tunnan af ísl. kindakjöti fengist 14 til
16 kr. ódýrari annarstaðar, og mér hafa
verið send sýnishorn af kjötinu — sem
lítur allvel út —. Verzlunarhús eitt hér
í bænum, sem eg skipti við, (A. N.), hef-
ur fengið skriflegt tilboð frá bræðr. Levy í
Khöfn, um fyrsta flokks (Prima) ísl. kinda-
kjöt, frá sameignarsláturhúsi Norðurlands,
á 62 kr. tn., hingað komið. Reynist þetta
rétt, getur það komið okkur í mikinn
vanda. Úr honum kann þó að mega
greiða með því, að þér gætið þess að
senda mér að eins allra bezta
kjöt (absolut Prima Köd); því eg efast
ekki um, að norðlenzku bændurnir fara
að krefjast hærra verðs fyrir kjöt sitt, e-
þeir verða þess varir, að þér getið feng-
ið 12 kr. meira fyrir tunnuna.
Með því þér minntust á Fjón, þá hef eg
nú snúið mér til 3—4 stórra verzlunar-
húsa í O. og S. og boðið þeim nokkrar
tunnur, sem sýmshorn fyrir þetta tímabil,
svo að við eigum hægara aðstöðu þai, er
við byrjum aptur að ári. . . .
Þér getið gert yður reikning fyrir að fá
að minnsta kosti 70 kr. nettó heim [fyrir
tn.]. Eg ætla að senda upphæðina í pen-
ingum um miðjan janúar. Einnig mun eg
senda yður fyrirfram borgun fyrir send-
íng þá (35 tn.), er kemur um nýárið ...“.
*
:{c íf!
Maður sá. er bréf þessi hefur ritað,
hefur ekki haft önnur kynni af Islandi
eða fslendingum — áður en forstjóri Sf.
Sl. sneri sér til hans í sept. síðastl., fyrir
tilvísun yfirslátrara vors — en þau, að yf-
irslátrarinn, hr. T. T., lærði slátrun hjá
honum, og að hann segist hafa hlotið
þann heiður, að vera borðfélagi dr. B.
Ólsens í þingmannaveizlu í Esbj., og rætt
við hann (undir borðum?) um verzlunar-
mál.
Væri áhuginn hjá okkur ísl. bændunum,
sem verið er að vinna fyrir, eins krapt-
mikill og fjörugur fyrir þessu lífsskilyrðis-
málefni okkar, eins og hann lýsir sér hjá
þessum útlenda manni, — þá rynnum við
hraðara skeið á framfarabrautinni en nú
gerist. B. B.
Innan bæjar og utan.
Heimastjórnarfélaglð á Akureyri
hólt samsæti 1. þ. m., eins og getið
heflr verið um hér í blaðinu áður.
Nálægt 30 heldri bændur úr sveitun-
um voru þar viðstaddir og hafði fólag-
ið boðið þeim ásamt fleirum. Daginn
eftir samsætið héldu flestir bænda þess-
ara fund með sór á Akureyri, til þess
að ræða um þingmannakosningar í
Eyjafjarðarsýslu næsta haust. Þeir urðu
allir ásáttir um, að styðja til kosninga
núverandi þingmenn sína, ráðherra H.
Hafstein og Stefán bónda Stefánsson í
Fagraskógi, og lofuðu að vinna að því
hver í sinni sveit, að afla þeim fylgis.
Þeir munu eiga von á landvarnar-
kandídat norður þangað, Guðmundi
lækni Hannessyni, sem þegar kvað vera
farinn að leita hófanna hjá kjóseudum
þar. — Aðferð eyfirzku bændanna ©r
mannaleg og rétt. Þingkosningar og
undirbúningur þeirra á ekki að vera
neitt launungarmál, sem ekki megi
ræða við kjósendur nema í pukurs-
bréfum.
Bæjarstjórnarfundur var haldinn
hór 20. þ. m. Þar gerðist þetta helzt.
Asgeir kaupmaður Sigurðsson bauð
bæjarstjórninni forkaupsrétt að þrem-
ur erfðafestulöndum sinum, Helgastaða-
bletti, Hraunprýðisióð og Bókbindara-
velli fyrir 56676 kr. Bæjarstjórnin
neitaði því boði, en verzlunarhúsiA
Copland & Berrie Ltd. kaupir.
Reykvíkingum stóð til boða, að tón-
skáldið August Enna með hljóðfæra-
leikaraflokk sinn, dveldi hér í sumar
um hálfsmánaðartíma og lóti hér heyra
danska samsöngva, gegn ókeypis sam-
söngsal, samsöngshljóðfæri (flygel) og
vist fyrir fiokkinn meðan hann dveldi
hér. Því miður sá bæjarstjórnin sér
ekki fært að taka þessu tilboði, eink-
um vegna þess, að hún áleit að hér í
bænum væri enginn nægilega stór sal-
ur til fyrir þess konar samsöng.
Bæjarstjórnin samþykkti að auglýsa
til umsóknar borgarstjórastöðuna, og
skulu umsóknir um það vera komnar
til bæjarstjórnarinnar fyrir 1. maí
næstkomandi.
Þessar brunabótavirðingar samþykkti
bæjarstjórnin: Húseign M. Blöndal
Lækjargötu 6 A. 26671 kr. Bergsteins
Magnússonar Hverfisgötu 34, 14460 kr.
Ketils Þorsteinssonar Helgastöðum,
14232 kr., Guðrúnar Árnadóttir Braut-
arholti 4001 kr.
»Sterling« kom hingað af Vest-
fjörðum á föstudaginn var. Skipið gat
ekki komið við í Stykkishólmi á suð-
urieiðinni vegna óveðurs. Farþegar
voru Matth. verzlunarstj. Ólafsson í
Haukadal og Björn Ólsen á Patreks-
firði, báðir á leið til útlanda. Hing-
að komu Sigfús Blöndal verzlunai-
umb.m. i Rvík., Hans Andersen og
íþróttamennirnir Jón Lyngdal og Ólaf-
ur Kárason. „Sterling" fór til útlanda
á sunnudaginn 23. þ. m. Með skip-
inu fóru verzlunarumboðsmennirnir
Garðar Gíslason, Gunnl. Þorsteinsson
og Ph. Carstensen, ungfrú Pálína Ei-
riksd. frá Ásólfsstöðum, Tómas Snorra-
son kaupm. hér o. fl.
Botnvörpuskipið „Jónforseti" kom
hingað fyrir fáum dögum. Hafði ver-
ið úti um viku^undan Jökli og fyrir
Vestfjörðum. Aflaði um 14000 flska.
J