Reykjavík

Issue

Reykjavík - 21.04.1908, Page 1

Reykjavík - 21.04.1908, Page 1
1R cv fc \ a\> t k. IX., 17 Útbreiddasta blað landsins. Upplag yfir 3000. Þriðjudag 21. Apríl 1908 Áskrifendur í b æ n u m yfir 1000. IX, 17 ALT FÆST í THOMSENS MAGASfNÍ. ""gaB < >ÍSlíl Oj£>’ eldavélar selur Kristján Porgrimsson. „SEYKJAYlK" Árg. [minnst 60 tbl.] kostar innanlands 2 kr.; erlondia kr. 3,00—3 sh.— 1 doll. Borgist fyrir 1. Júlí. Ella 3 kr. Auglýsingar innlendar: á 1. bls. kr. 1,50; 3. og 4. bls. 1,25 — Útl. augl. 33*/»0/0 bærra. — Afsláttur að mun, ef mikið er auglýst. Útgef.: Hlutafélagið „Beykjayíku. Bitstjöri, afgreiðslumaður og gjaldkeri Magnús B. Blöndal Lækjargötu 4. Talsími 61. Ritstj. er áreiðanl. að hitta heima á virkuin dögum lcl. 12—1 og 4—5 síöd. Ef einhver vanskil kunna að verða d blaðinu, pegar það er borið út um bœinn, eru þeir, sem fgrir því verða, beðnir að aðvara um það sem allra fgrst áskrifstofu blaðs- ink i Lœkfargötu Nr. 4. Talísiíini 61. Fólkseklan og innflutningur Vestur-íslendinga. [Niðurl.j. ---- Heppilegt mundi vera að hafa um- boðsmaiín af íslands hálfu í Canada, til þess að leiðbeina þeim er heirn vildu flytja, og eins til að senda hing- að heim skýrslur og tillögur er lyti að innflutningunum. Sá maður ætti að vera íslendingur, sem væri orðinn vel kunnugur vestra, og eiga heima í Winnipeg. Valið á þeim rnanni þarf að vanda sem allra bezt, því undir hans frammistöðu er svo mikið kornið hvernig innflutningurinn tekst. íslend- ingar vestan hafs munu vera misjafnir engu síður en aðrir menn, og reynir þá á samvizkusemi umboðsmannsins, að útvega oss þá eina innflytjendur, sem nokkurt mannkaup er í. Þangað til það væri komið í kring, að fenginn væri áreiðanlegur umboðs- maður vestan hafs, væri sjálfsagt heppilegt að senda mann héðan til íslendingabygðanna í Canada. Sá maður þyrfti helzt að vera vel kyntur í báð- um löndunum. Hann þyrfti að vera fær um að gefa Vestur-íslendingum greinilegar skýrslur um framfarir hér í búnaði, sjósókn og öðrum atvinnu- vegum geta gjört glögga grein fyrir afkomu manna hér eins og hún er nú, og eins og álíta má að hún ætti að geta verið, ef fyllilega og réttiiega væri notuð þau gæði, sem land vort hefir fram að bjóða. Það þyrfti að vera maður, sem bæði hefði sjálfur bjargfasta trú á landinu og kostum þess, og um leið væri fær um að koma þeirri trú inn hjá öðrum. Þess hefir verið getið til, að þótt eitthvað af Vestur-íslendingum fengist til að flytja heim, mundu margir þeirra ekki staðfestast hér, heldur fara hingað að eins að gamni sínu og hverfa svo vestur aftur, og þá máske með fleira og færra fólk með sér. Þetta er ekki óhugsandi, að fyrir gæti komið, og þyrfti því að finna ráð til að afstýra því, og teijum vér engan vafa á að það mætti takast. Enda er þess að gæta, að takist vel til með innflytj- endurna, og allrar samvizkusemi sé gætt af þeirra hálfu, sem innflutningana annast, þá liggur þar í bezta trygg- ingin fyrir því, að innflytjendurnir muni ílengjast hér, en ekki fara að flytja vestur í annað sinn. Úað hefir oft áður komið til tals að hleypa hér inn straum útlendinga, t. d. Finna, Norðmanna o. fl., og það mál hefir jafnvel komist inn á þingið. Ennþá heflr samt lítið úr þessu orðið í framkvæmdinni, nema hvað hingað kom fyrir fáum árum hópur norskra sjómanna, sem átti að stunda hér flskveiðar með hórlendum mönnum á íslenzkum fiskiskipum. Þessi tilraun gafst afarilla og heflr ekki verið við það átt síðan. Vér teljum og mjög varasamt margra orsaka vegna að fara að flytja mikið af útlendingum hér inn. Þeim vinnukrafti fylgja margir ókostir. Alt öðru máli er að gegna um Vestur-íslendinga. Þá get- um vér skoðað sem bræður vora, sem farið hafa úr landi um stundarsakir, til þess að kynna sér háttu annara þjóða og afla sér ýmissar þekkingar, er þeir svo eftir heimkomuna gjöra þjóð sína og fósturjörð njótanda og erflngja að. Guðmmidur Hannesson enn. Hr. Guðmundur Hannesson lækn- ir hefir í 15. 11)1. »Ingólfs« ritað grein, er hann nefnir »Árásir stjórnarblað- anna og árangur þeirra«, og á hún víst að vera svar upp á grein vora í 13. tbl. »Reykjavíkur« þ. á. Um áminstagrein Ingólfs er það að segja, að mestur hluti hennar er þannig lagaður, að vér sjáum litla ástæðu til að svara henni. Þar erjöfnumhönd- um ánægjuyfirtysing læknisins yfir því, hve mikið lof og vinsældir hann hafi getið sér fyrir pólitiska fram- komu sína, og á hinn hóginn harma- tölur lians yfir árásum þeim, er Verzlunin ,Edinborg‘ Reykjavlk. Hoífmamis-mótoriiin er hinn vandaðisti og sterkasti Mótor, smíðaður ná- kvæmlega sainkvæmt reynzlu síðustu ára og öllum þörfum nútímans. í stuttu máli sagt: Hoffmanns-niótorinn hefir áreiðanlega alla þá kosti, sem liægt er að heimta af fyrsta fiokks mótor. Upjilvsingar gefnar í verzl. »E.I)IIBWK(m« í Reykjavik. hann hafi orðið að þola af stjórnar- flokksmönnum, er hann á sínu snyrtilega(l) máli líkir við geltandi og urrandi rakka o. s. frv. Um fyrra atriðið er ekki annað að segja en það, að »sá hefir nóg, er sér nægja lætur«, og ef hr. lækn- irinn er ánægður með orðstír sinn, sem pólitiskur rithöfundur, þá er sízt ástæða til að rýra þá ánægju. Um síðara atriðið má segja, að mörgum mundi virðast, að hr. lækn- irinn ætti eigi að nota orð eins og »rakki« eða »seppi« um aðra menn, því framkomu hans sjálfs í grcinþess- ari virðist svipa töluvert til framkomu illa vanins seppa, sem nýbúið er að hirta, og hlaupið hefir ýlfrandi og emjandi út í horn. Eitt atriði er í grein þessari, sem er þess vert, að gerðar séu dálitlar athuganir við það. Hann segir, að á ósannindum sínum um viðlaga- sjóðinn standi svo, að hann hafi notað orðið viðlagasjóður yfir fé, sem grípa má til í viðlögum, handbært fé landsins*). Og' svo segir hann, að þegar þessa sé gætt, þá séu ummæli hans sönn, því peningaforði lands- ins hafi stórum þorrið á síðustu ár- um*). Það virðist nú í sjálfu sér vera lítil ástæða til þess fyrir Guðmund Hannesson, að reyna að gera sig heimskari og þekkingarminni um landsmál, en hann er í raun og veru, því flestum mun þ}7kja það nóg. En ef hann langar til að gera sig svo lieimskan, að liann kunni ekki að gjöra mismun á viðlagasjóði, sem er afgangurinn af tekjum landsins síðan það fékk tjárforræði, og pen- ingaforða þess, þá skulum vér ekki deila þar um við hann, heldur taka þetta yfirklór hans gilt, og setja »peningaforða« í stað »viðlagasjóðs«. Þá má samkvæmt eiginni játning hans fullyrða, að hann hafi viljandi sagt fortakslaust, að »peningaforði landsins sé nærfelt horfinn«, og skulurn vér því mest lita á, hvernig þetta kemur heim við sannleikann. Samkvæmt landsreikningunum átti landssjóður í árslok 1903 peninga- íörða kr. 549469,81 og á hlaupa- reikning í Landsbankanum 120000 kr„ samtals kr. 669469,81. í árs- lok 1906 átti lrann peningaforða alls kr. 549386,51. Á þessum þrem- ur árum hefir peningaforði landsins minkað um kr. 120083,30, eða tæp- an fimtung, og á því tímabili lrafði landið þó lagt út stórfé til framfara- fyrirtækja, eins og ritsíma og talsima, alla leið frá Seyðisfirði til Reykja- víkur. Samkvæmt þessu er þá ó- mótmælanlegt, að hr. Guðmundur Hannesson hefir víssvitandi viljað segja, að peningaforði landsins sé »nærfelt horfinn« um sarna leyti sem síðustu landsreikningar sýna, að peningaforðinn er liðlega liálf miljón króna. *) Auðkent af oss.

x

Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.