Reykjavík - 29.07.1908, Qupperneq 3
REYKJAVIK
127
REYND HÚSMÓðlR.
veit aft hvað sem Sunlight Sápa
er brúkuð til; sparast bæði tími
og vinna.
Hvort heldur heitt eða kalt vatn
er brúkað, ekkert faer óhreinindin
*vo fljótt úr og án skemdar eins
og Sunlight Sápa.
Sunlight gerir málaða veggl,
tigulsteina, tréhluti og messing
alveg eins og nýtt vaeri.
071 '
Eining’iii.
Og þau eru gengin í eina sæng
„ísafold" gamla og „Ingólfur", og sumir
segja að þau haft „Þjóðviljann" til fóta
— svona nótt og nótt.
Og „Þjóðólfur" karlfauskurinn humm-
ar við rúmstokkinn hjá hjónunum, og
bergmálar alt sem þeim þóknast að
segja.
Og þeim þóknast að segja margt
hjónunum þeim, bæði í vöku og upp
úr svefni.
— Alt um uppkastið. —
Og alt er samræði, sammæli og sam-
lyndi í þessu hreiðri.
— Alt einskær eining. —
En við og við kemur hljóð úr horni
í herberginu þeirra — dularfuli rödd
sem kveður þetta erindi úr „Háva-
málum“ :
Eldi heitara
brennur með illum vinum
friður flmm daga,
en þá slokknar,
er hinn sjötti kemur
og versnar allur vinskapur.
Ósjálfrátt ferðalag?
ísafoldar-ritstjórinn er ákaflega æfur
við ráðherrann af því, að hann leyfir
sér að ferðast um landið og vera stadd-
ur á fundum hér og þar. Þá vantar
nú ekki ritprýðina á ísafold, þegar
þessa er getið, allt úir og grúir af
uppnefnum og fúkyrðum. Menn skyldu
því ætla, að ritstjórinn í alvöru áliti
það einhverja hina verstu óhæfu að
vera að ferðast á fundi í héruðum
landsins, og yflr höfuð að skifta sór
nokkuð af því sem fram fer út um
landið. Og það er ekki ráðherrann
einn sem fær ofanígjöflna hjá ísafold
heldur einnig allir aðrir Heimastjórn-
armenn, sem farið hafa á stjórnmála-
fundi utan sinnar sveitar.
En hvernig hagar nú sjálfur ísa-
foldarritstjórinn sér í þessu efni?
Hann fór austur á Þjórsárbrúar-
fundinn og ætlaði úr þeirri ferð aust-
ur á Seljalandsfundinn en hætti við
það þegar honum skildist, hve frammi-
staða hans á Þjórsárbrúarfundinum
hafði verið frámunalega bágborin og
sannur „bjarnargreiði" málstað hans
og fylgifiskum.
Skömmu eftir að hann kom úr
þessari frægðarför hélt hann af stað
með „Sterling" til Stykkishólms og
Flateyjar.
í Stykkishóimi dvaldi hann einn dag
til að bæta þar fyrir gömlum og nýj-
um vini sínum L. H. Bjarnason, sem
þar býður sig fram til þingmensku.
Má nærri geta, að maðurinn heflr tek-
ið nærri sór þann dag og mörgum
svitadropanum úthelt, en flest er fyrir
vin sinn vel gerandi, og þarf ekki að
efast um góðan vilja hjá þeim manni,
hverjar sem afleiðingarnar verða.
Frá Stykkishólmi hólt ritstjórinn á-
fram með „Sterling" til Flateyjar og
kom þar að kvöldi dags og átti skipið
að fara þaðan aftur að morgni, svo
að ekki var um annan tima að gera
en nóttina. En gamli maðurinn er
dugnaðarsál. Hann rauk strax í land
í Flatey til fundar við síra Sigurð
Jensson þingm. Barðstrendinga. En
sá maður er þeim ókosti búinn að
hann er bróðir Jóns Jenssonar yflr-
dómara, sem ísafold hatar nú manna
mest næst ráðherranum. Segir ekki
af viðureign þeirra kappanna annað
en það, að um morguninn kom rit-
stjórinn aftur um borð í „Sterling"
móður og máttfarinn, en talsvert glað-
legur á svip. Þóttust menn mega af
því ráða að erindi hans hefði ekki orð-
ið sem verst. Hélt hann svo með
skipinu heim til Reykjavíkur.
Ekki leið á löngu eftir heimkomu
ritstjóra, að það fór að kvisast að hann
hefði unnið síra Sigurð til að hætta
við þingmenskuframboð, en ætlaði sjálf-
ur að líta í náð til Barðstrendinga og
gerast þingmaður þeirra.
A sunnudagsmorguninn var, þegar
menn koma á fætur í Reykjavík, var
búið að tjalda á Austurvelli, á norð-
vesturhorni vallarins. Stóð tjaldið þar
allan þann dag og næstu nótt, og sást
enginn fara þar út né inn, og þótti
mörgum alt þetta kynlegt. En daginn
eftir gekk sú saga hér um bæinn, að
ísafoldarritstjórinn hefði legið í tjald-
inu allan sunnudaginn og mánudags-
nóttina undir húðfati og ekki bragðað
mat og ekki talað orð. En á mánu-
dagsmorguninn reis karl á fætur og
kallaði Gvend miðil adjutant sinn fyr-
ir sig. Ekki vita menn hvað þeim
fór á milli. En eftir litla stund fóru
þeir báðir um borð í „Ingólf" sem var
ferðbúinn til Borgarness. Höfðu þeir
með sér ferðaskrínur miklar, reiðfæri
og tjald.
Ýmsar tilgátur eru hér um þetta
ferðalag gamla Björns. Er haft eftir
þeim félögum að þeir ætli um hríð
að stunda laxveiði við Norðurá. En
önnur saga segir að þegai- karl lá í
tjaldinu hafi andi komið í tjaldsúluna
— því ekkert borð var í tjaldinu —
og hafl andinn ávarpað Björn þannig:
„Þó þú sért hin mesta fiskifæla skalt
þú nú bregða við og fara ásamt Gvendi
vini vorum upp að Norðurá og dorga
þar fyrir lax. Mun þá koma til þín
maður, sem þú ekki þekkir, því hann
er dáinn fyrir 500 árum. Hann mun
þrífa af þér laxstöngina og brjóta hana
á hrygg þér, og segja við þig eins og
sagt var við Pétur postula forðum:
„Héðan af skalt þú menn veiða*.
Hættu þá öllum laxveiða látalátum og
far 1 skyndi að fjalla baki til Barða-
strandar og boða þar evangelíum frum-
varpsfénda. Munt þú verða Pétur post-
uli annar í þínum eigin augum og
þinna fylgiflska, og komast á þing fyr-
ir Barðstrendinga".
Sagt er að ísafoldar-ritstjórinn hafl
ekki látið segja sér þetta tvisvar. Hafi
rokið á stað með miðilinn upp að
Norðurá og muni ferðinni vera heitið
vestur á land þegar fyrirburðurinn
rætist, sem enginn náttúrlega dirfist
að efa.
JE*iiig-niaiiiiaefiii
höfuðstaðarins kvað nú vera búið að
ákveða, af frumvarpsmönnum :
Guðm. Björnsson landlæknir og
Jón Þorláksson verkfræðing.
Af Landvarnar-Þjóðræðismönnum:
Jón Þorkelsson fornfræðing og
Magnús Th. Blöndahl framkv.stjóra.
Ótal fleiri hafa verið hér tilnefndir
sem þingmannaefni af flokki Land-
varnar-Þjóðræðismanna. Má t. d. minna
á vísuna sem hér gengur nú um bæ-
inn :
„ísu“-lið er illa mennt
ætlar því að senda á þing
„Hara“ drauga-dirigent
og „Dodda" yflr-vitflrring.
Til Vestmaimeyja
fór séra Ólafur fríkirkjuprestur með
„Sterling" um daginn, og kom þaðan
aftur með „Ceres“ á laugard. var.
Séra Ólafur boðaði til fundar þar í
Eyjunum og hafði fengið nokkra áheyr-
endur, mestmegnis kvenfólk og ung-
linga og um 20 kosningabæra menn.
Séra Ólafur hafði talað mjög á móti
sambandslagafrumv., en engir aðrir
höfðu tekið þar til máls nema sýslu-
maður, er var frumv. meðmæltur.
Sagt er, að séra Ólafi lítizt ekki
byrlega á í Eyjunum fyrir sig, og muni
vera hættur við að hugsa þar til fram-
boðs, enda segja gagnkunnugir menn,
að hann muni með engu móti geta
fengið fleiri en 20—25 atkvæði þar í
Eyjunum. ____________
Á Sveinsstaöafundinum
vildi Bjarni frá Vogi ekki kannast við
það, að hann vildi fá frumvarpið felt,
er ráðherrann bar það á hann.
Innan bæjar og utan.
Embættispróf í læknisfræði við
læknaskólann hér tók nýlega Sigvaldi
Stefánsson og fékk 2. einkunn.
Fyrri hluta prófs við Landbún-
aðarháskólann hefir tekið Páll Zóp-
hóníasson frá Viðvík með 1. einkunn.
Fyrri hluta prófs við Kaupm,-
hafnar háskóla hafa tekið þeir Guð-
mundur Skúlason Thoroddsen með 1.
einkunn, Björgólfur Ólafsson, Magnús
Gíslason og Vernharður Jóhannsson
með 2. einkunn.
Skipstrand. Gufuskipið „Giventu
strandaði 18. þ. m. við Langanes. Það
hefir í mörg ár verið í ferðum milli
íslands og Englands fyrir kaupfélögin
hér. í þetta sinn var það á leið til
Sauðárkróks fermt kolum, en átti að
taka þar aftur hrossafarm. Þoka var
á er skipið strandaði. Það kvað vera
svo brotið, að engin tiltök munu vera
að ná því út. Menn allir björguðust
af skipinu; með því voru þeir Jón
alþm. i Múla og L. Zöllner.
„Ceres" kom hingað frá útlöndum
á laugard. var. Með skipinu kom frá
útl. dr. Helgi Péturss. sem dvalið heflr
um hríð erlendis. Hingað komu og
þeir feðgar Einar Bessi Baldvinsson
(sonur Baldvins Einarssonar) í Altona
og Baldvin sonur hans í Berlín. Einar
er á áttræðisaldri og heflr dvalið er-
lendis síðan hann var 10 ára. Hann
hefir haft á hendi embætti í Altona,
en er nú hættur því starfl og hefir
eftirlaun. Baldvin sonur hans er em-
bættismaður í Berlín (í ríkisráðaneyt-
inu); hann er um fertugt. Þeir fara
aftur heimleiðis 1. ágúst. Baldvin fór
að Þingvöllum en gamli maðurinn heldur
hér kyrru fyrir. Vildi að eius sjá land-
ið áður en hann dæi. Margt fleira far-
þega var með „Ceres“.
Sniíili og- Rakki.
Irr, irr, bíttu hann ískrar Surtur
smali milli tannanna, og Rakki þýtur
af stað eins og ör af álmi, gjamm-
andi og geltandi.
Irr, irr — Voff, voff, kveður við
hátt og lágt, út og suður.
Surtur er að þjóna lund sinni, hann
sigar á allt sem heilbrigt er. Og Rakki
er að vinna fyrir sleikju.
Rakki átti einu sinni góða vist, bú
og buru, en var svo útsláttarsamur
og jafnframt svo grimmur, að hann
var rækur gjör frá öllu saman. Nú er
hann að vinna fyrir nýrri vist.
Irr, irr — Voff, voff.
Bj. . . og Bj. . . .
V eðupskeyti.
Samkv. athugunum kl. 7 árd.
Júlí 1908 Loftvog ( millim. et- <3 <x> o* p 3- 8. Veðrátta Hiti (C.)
(Rv. 754.2 [A 4 Regn +11.5
Bl. 755.6 Logn 0 Léttskýj +15.0
Þd. 21. < Ak. 757.1 S 1 Þoka + 14.4
Gr. 724.0 SA 3 Heiðsk. +14.0
(Sf. 758.8 Logn 0 Hálfheið + 9.2
|Rv. 751.3 SSA 1 Léttskýj +11.1
Bl. 751.3 Logn 0 Skýjað +13.9
Mi. 22. < Ak. 751.6 Logn 0 Þoka +13.4
Gr. 718.0 SA 2 Skýjað +11.5
(Sf. 753.1 Logn 0 Alskýjað + 10.8
(Rv. 750.4 Logn 0 Heiðsk. + 11.9
Bl. 751.3 Logn 0 Skýjað -12.6
Fi. 23. {Ak. 750.7 N 1 Þoka -10.3
Gr. 718.6 ASA 2 Skýjað -10.7
Isf. 752.2 NA 7 Regn - 9.4
(Rv. 752.2 Logn 0 Skýjað [-12.2
Bl. 753.2 A 4 Skýjað + 10.4
Fö.24. < Ak. 752.0 NNS 1 Þoka +10.0
|Gr. 718.7 N 1 Skýjað + 7.6
Isf. 750.8 SA 1 Skýjað +11.6
(Rv. 752.5 Logn 0 Skýjað +12.4
Bl. 755.1 ASA 5 Skýjað + 9.9
Ld.25. ? Ak. 755.1 NNA i Þoka +10.0
|Gr. 720.5 SA s Skýjað + 9.2
ISf. 754.8 Logn 0 Regn + 8.4
(Rv. 753.2 Logn 0 Alskýjað +11.0
|B1. 753.7 ANA 4 Regn + 7.4
Sd. 2«. < Ak. 752.1 Logn 0 Þoka + 9.0
Gr. 717.7 NNV 1 Regn + 6.9
(Sf. 750.5 SSA 2 Létiskýj +12.3
(Rv. 758.2 ASA 1 Skýjað +10.9
Bl. 758.5 Logn 0 Skýjað + 8.6
Má.27. < Ak. 757 1 NNA 1 Þoka +11.0
|Gr. 724 4 S 2 Skýjað +10.6
Isf. 757.5 Logn 0 Skýjað + 10.9
Aths. Veðurhæðin er reiknuð í stig-
um frá 0—12 : 0 == Logn. 1 = Andvari.
2 = Kul. 3 = Gola. 4 = Kaldi. 5 = Stinn-
ingsgola. 6. = Stinnings kaldi. 7 = Snarp-
ur vindur. 8 = Hvassviðri. 9. Stormur. 10.
= Rokstormur. 11. Ofsaveður. 12. Fárviðri.
Rv. = Reykjavík. — Bl. = Blönduós. —
Ak. = Akureyri. — Gr. = Grímsstaðir. —
Sf. = Seyðisfjörður.