Reykjavík - 08.09.1908, Qupperneq 3
REYKJAVIK
157
snætir y&wr á itiiðri leið. Qerir
alla vintiu yðar á helmingi stittri
ttma og er helmingi ódýrarl en
grænsápa.
Suniight varðveitir föt yðar frá
skemdum, höndum yðar frá því
að verða hrufóttar, og lífi yðar
frá þrælavinnu.
Hinn fullkomni hreinleiki hennar
gjörir það einungis
öruggt lyti1- fíngerða
knipiinga J/''i^\ og léreft.
um iíJ
en að þeir iæri fyrst að koma sjálfir
fram sem siðuðum mönnum sæmir,
áður en þeir ætla sér að ráða lögum
og lofum í landinu.
Innan bæjar og utan.
Fundur um sambandsmálið var
haldinn í Good-Templarahúsinu laugard.
5. þ. m. um kvöldið og var til boðið
andstæðingum frumv., þar á meðal
þingmannaefnum andstæðinga, degi
áður en fundinn átti að halda. Þing-
mannaefnin komu ekki á fundinn,
treystu sér auðsjáanlega ekki að halda
uppi svörum fyrir sínum málstað, en
hlupu til og boðuðu á fund í Bárubúð
sama kvöid andstæðinga frumv. eina.
Þeir vilja auðsjáaDlega ekki eiga orða-
stað við aðra um sambandsmálið en þá
sem eru á sama máli Og þeir, úr því
að þeir notuðu ekki þetta tækifæri.
Á fundinum skýrði Jón Jensson mjög
vel sambandslagafrumv. fyrir mönnum
og sýndi fram á hversu stórmikil
réttarbót væri í því fólgin. Auk hans
t.öluðu þingmannaefnin Guðm. Björns-
son og Jón Þorláksson og sagðist báðum
vel og að lokum hélt ráðherrann á-
gæta ræðu, allir með frumvarpinu.
Enginn af andstæðingum þeim er við-
staddir voru hreyfði neinum andmæl-
um.
Á fundi þeim,sem andstæðingar héidu
samtímis í Bárubúð, kvað séra Ólafur
Ólafsson hafa haldið svæsna ræðu móti
frumv., fulla af gífuryrðum og ósann-
indum.
Hallgr. Sveinsson Fiskup sækir
um lausn frá embætti frá 1. október
næstk. Hann hefir verið biskup lands-
ins í rúm 19 ár.
„Ceres“ kom frá útöndum norðan
og vestan um land á laugard. var.
Fjöldi farþega var með skipinu, þar á
meðal fröken Anna dóttir Kl. Jónsson-
ar landritara, frá Kaupm.höfn, Gunnl.
Þorsteinsson umboðssali, írú Jörgína
Andersen, frú Jóhanna Jónsdóttir frá
Yiðvík, alflutt. hingað til Péturs banka-
ritara sonar sins, KI. Jónsson landrit-
ari af skattanefndarfundinum á Akur-
eyri, Sighvatur Bjarnason bankastjóri,
Sigtryggur Jóhannessou kaupm. á Ak-
ureyri o. m. fl.
Grlímumeimirnir komu nú heim
úr utanför sinni, sem fræg er orðin.
Á gr ip
af ræðu Halldórs bæjarfógeta
Daníelssonar
á þingmálafundi Reykvíkinga 6. september 1908.
Hann setti fyrst ofan í við M. Th.
Blöndahl iramkvæmdastjóra, er talað
hafði næst á undan, fyrir það, að
ræða hans hefði lítið snert málefnið,
sem um ætti að ræða, en verið í
þess stað full ai gífuryrðum og að-
dróttunum. Af slíku kæmi alt of
mikið fram hjá okkur í umræðum
um opinber mál, bæði í blöðum og
á mannfundum, en það væri engra
svara vert. Það, sem hann hefði tek-
ið fram um málið, hefði alt verið fá-
nýtt, en brígslyrðum hans og getsök-
um mætti eins snúa upp á sjálfan
hann.
Efni málsins væri, að bera saman
ástandið, sem nú er, og stöðulögin.
Guðm. Björnsson landlæknir og Jón
Þorláksson verkfræðingur hefðu gert
þetta í ræðum sínum, og hann hefði
ekkert fundið athugavert við iram-
setning þeirra, en vildi þó bæta því
við, að stöðulögin væru, að sínu á-
liti, hjer gildandi, því að til þeirra
væri vitnað í 8. gr. stj.skr. 1903,
sem hefði verið samþykt at alþingi
íslendinga á 2 þingum (1902 og 1903),
og þar með væru þau orðin samn-
ingur um rjettarstöðu íslands í sam-
bandinu við Danmörku, þar sem þau
áður hefðu verið einhliða lög, vald-
boðin af Dönum.
Ræðumaður vitnaði til byrjunar-
orða frumvarpsins: »ísland er frjálst
og sjálfstætt land“ o. s. frv. og kvaðst
ekki geta betur sjeð, en að þau fælu
í sjer fullveldi okkar yfir öllum okk-
ar málum. Sá maður væri sjálfstæð-
ur kallaður, sem rjeði öllum sínum
málum og væri öðrum óháður, og
eins væri hjer.
Utanríkismálin og hermálin væru
af andstæðingum frumvarpsins kölluð
„óuppsegjanleg" mál, en þetta væri
ekki rjett. I frumvarpinu stæði ekk-
ert um það, að þau væri óuppsegjan-
leg, en það væri, þvert á móti, gert
ráð fyrir því gagnstæða í ástæðun-
um eða athugasemdunum. Þessum
málum væri að eins að því leyti
öðruvísi fyrir komið, en hinum sam-
eiginlegu málunum, að uppsögn á
hinum síðarnefndu væri bundin við
ákveðinn tíma, en engin tímatakmörk
ákveðin um hermál og utanríkismál.
Ástæðan er sú, að Dönum þykir
ekki hlýða, að setja tímabundinn
uppsagnarfrest um þessi mál, af þvf
að þeir setja þau í samband við kon-
unginn og telja frágingssök, að hafa
sameiginlegan konung án þess að
þessi mál sjeu sameiginleg. En að
því er slit á sambandinu um þessi
mál snertir, verður að fara eftir hlut-
arins eðli, og hlutarins eðli er hjer
hinn eðlilegi rjettur Islands til þess
að ráða öllum sínum máíum, og sá
rjettur er viðurkendur af Dönum,
viðurkendur í frumvarpinu með því,
að Danir hafa lýst því yfir, að þeir
vilji ekki þröngva neinum dönskum
yfirráðum upp á íslendinga.
Ræðumaður sýndi fram á það með
ljósum rökum, að deilan um þýðing-
una á orðunum í 2. tölul. 3. gr.
(„göres gældende" og „Medvirkning")
væri ástæðulaus, af því að sambandið
og hugsunin í greininni sýndi það
ljóslega, að íslenska þýðingin .væri
rjett.
Flitt! F1
1
Skóverzlnn og skösmiðavinnusloja
Lárusar G, Lúðvígssonar
er flutt úr Ingólfsstræti 3
í Pingholtsstræti 1x1*. Í2
(á neðra horni Pingholts- o-ar Bankastrætis).
Munið þetla, pvi þnð er nauðsynlegt Jwerjnm, er
kaupa viil vnndaðnn. fallegan og ódijran skófatnað.
r
1
verður haldið áfram með sama fyrirkomulagi og að undanförnu. —
Skólinn verður settur 1. okt. Öll börn velkomin frá 6 14 ára
meðan rúm leyfir. — Fermdir unglingar geta átt kost á að taka þátt
í sjerstökum námsgreinum fyrir afarlágft g-jald. — Menn, sem
ætla að nota nefndan skóla, eru vinsamlegast beðnir að gefa sig fram
sem allra fyrst, áður en rúm þrýtur. 10—14 ára börn
geta fengið inngöngu í þennan skóla án undanþágu sbr. bréf
borgarstjóra dags. 31. f. m.
Umsókn fyrir þau börn þarf helst að vera komin til mín fyrir
18. þ. ni.
Öll ritföiuí og sltólaáliölil fásl lijá undirrituðum.
Reykjavík, 7. sept. 1908.
Asgr. Magfnússon.
Lítið þótti ræðumanni til þess koma,
að sumir vildu nú gera Gamla sátt-
mála að frelsisskjali og byggja á
honum rjettindi landsins nú. Hann
sagði, að sá sáttmáli hefði altaf, þegar
hann mintist hans, freirur bakað sjer
hugraun en hugfró, því að hann væri
hið mesta afsal á rjettindum lands-
ins, sem nokkru sinni hefði farið fram,
og það, að sjálfstæði landsins hefði
síðan farið þverrandi, ætti rót sína
að rekja til þess sáttmála; sjerfræð-
ingar í þeirri grein virtust nú vera
orðnir samdóma um það, að verslun-
areinokunin, hin stærsta meinsemd,
sem gengið hefði yfir þetta land,
stafaði frá Gamla sáttmála.
Það væri fjarstæða, að ætla sjer
að byrja nýja stjórnmálabaráttu á
sllkum grundvelli. Ef frumvarpið
yrði felt og stjórnmáladeilunni haldið
áfram, gæti ekki verið um annað
að tala en skilnað. En varhugavert
væri að leggja út í þá baráttu. Frum-
varpsandstæðingar virtust ætla, að
Island gætu fengið hlutleysisviður-
kenningu hervarnalaust, en þetta væri
rangur skilningur. Einn af leiðtogum
þeirra hefði nýlega sagt við sig, er
ræðumaður hefði vakið eftirtekt hans
á þessu, að þá væri ekki annað en fá
vernd einhvers stórveldisins.
En hvað eigum við að láta í stað-
inn? hafði ræðumaður spurt.
Leyfa því t. d. fiskiveiðarjett í
landhelgi, svaraði hinn.
Nú hefði nýlega verið reiknað út
af frumvarpsandstæðingum, að Danir
mundu taka frá okkur 240 millj. kr.
með landhelgisveiðunum. En ræðu-
maður spurði, hvað menn hjeldu að
milljónirnar yrðu margar, sem t. d.
Englendingar flyttu úr landhelginni,
ef þeir fengju rjett til hennar fyrir
verndina.
í blaði, sem út kom daginn áður,
hafði ræðumaður lesið, að kjósendur
hefðu verið ámintir um að minnast
hinnar alkunnu vísu eftir Jónas Hall-
grímsson: „Veit þá engi’ að eyjan
hvíta" o. s. frv., klippa hana út úr
blaðinu og hafa hann með sjer á kjör-
fund. Þó að svo gæti virst sem í
þessu fælist nokkurskonar móðgun til
kjósenda, þar sem gert væri ráð fyrir
því, að þeir myndu ekki eftir því,
að þeir væru að greiða atkvæði um
velferð landsins og framtíð, þá gæti
samt verið gott, að hata þessa vísu
í huga, því að ræðumaður væri sann-
færður um, að Island hefði aldrei att
kost á að stfga jafnlangt skref til að
„hrista af sjer hlekkina" og til tuils
sjálfstæðis, eins og þeir ættu nú, með
því að samþykkja þetta frumvarp.
Tekjur landssímans
um 2. ársíjórðung 1908.
Símskeyti :
Innanlands ............... Kr. 2304,60
Til útlanda ..Kr. 18,762,85
Þar af hluti útlanda — 15,104,39
Hluti íslands .............. — 3658,36
Krá útlöndum hluti íslands ... — 1434,38
Símasamtöl................. — 6153,80
Talsímanotendagjald......... — 824,55
’Vextir.afgjöld ogaðrartekjur*)ca. — 1476,93
Samtals Kr. 15,852.62
*) Afgjald frá talsímafélagi Reykjavíkur
er hér meðtalið fyrir 1. og 2. ársfjórðung,
og er áætlað 750 krónur.
Reykjavík 20. ágúst 1908.
Forberg.