Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 17.04.1909, Blaðsíða 1

Reykjavík - 17.04.1909, Blaðsíða 1
1R cy k í av í h. x, &&z/. Útbreiddasta blað laudsins. Upplag yfir 3000. Laugardag 17. Apríl 1909 Áskrifendur í b » n u m yfipJOOO. X, 21* gGT ALT FÆST 1 THOMSENS WAGASlWI. Oflia Ojj; eldavélar selur Kristján Porgrimsson. Augnlækning ók. l.rog 3. þrd. 2—3 á spítal. Baðhúsið virka daga 8—8. Biskupsskrifstofa 9—2. Borgarstjóraskrifstofa 10—3. Bókasafn Alp.lestrarfél. Póstbússtr. 14, 5—8. Bréfburður um bæinn 9 og 4. Búnaðarfélagið 12—2. Bæjarfófletaskrifstofa 9—2 og 4—7. Bæjargjaldkeraskrifstofa 11—3 og 6—7. Bæjarsiminn v.d. 8—10, sunnud. 8—7. Forngripasafnið mvd. og ld. 11—12. Islandsbanki 10—21/* og ö1/^—7. Lagaskólinn ók. leiðbeining 1. og 3. Id. 7--8 e.m. Landakotsspítalinn ÍO'/^—12 og 4—6. Landsbankinn ÍO1^—2*/». Landsbókasafnið 12—3 og 7—8. Landskjalasafnið á þrd., fmd. og ld. 12—1. Landsjóðsgj.k. 10-2, 6-6, þrjá 1. d. í m. 10-2, 5-7. Landssiminn v.d. 8—9, sunnud. 8—11 og 4—6. Læknaskólinn ók. lækning þrd. og fsd. 11—12. Náttúrugripasafnið sunnud. lx/a—21/!. Pósthúsið 8—2 og 4—7. Stjórnarráðið 10—4. Söfnunarsjóður 1. md. í mán. kl. 5. Tannlækning ók. í P.str. 14, 1. og 3. md. 11—12. „REYKJAVÍK" Árg. [minnst 60 tbl.] kostar innanlands 3 kr.; erlendia kr. 3,50—4 sli.—1 doll. Sé borgað fyrir 1. Júlí, 1 kr. afsl. Auglýsingar innlendar: & 1. bls. kr. 1,60; . og 4. bla. 1,96 — Útl. augl. 33*/»°/o hierra. — Afsláttur að mun, ef mikið er auglýit. Útgef.: Hlutafélagið „Beykjavik<(. Afgreiðslumaður og gjaldkeri LúOvik Jakobsson, Lækjargötu í A (bókverzlun Guðm. GamalielssonarJ. Talsimi 36. Rititjöri JTónas Guðlaugsson, Suðurgötu 2. TalBÍmi 199. Ritstj. „Reykjavikur4i er að hitta á skrifstofu blaðsins í Lækjargötu 6A (uppi) kl. 12—2 e. h. Talsími 36. Hpima í Snðurgötu 2 frá 4—5 e. m. Talsími 199. Afgreiðslum. og gjaldkera ,Rvíkur‘ er að hitta á virkum dögum í Laekjar- götu 6 A kl. 8—10 f. h. og kl. 12—3 og 5—6 e. h. Talsími 36. Xveðjuávarp konungs til hins nýja islands ráðgjafa (B. J.). ísafold birtir síðast svo hljóðandi ávarp til hins nýja ráðherra á rík- isráðsfundi hans 1. apr. 1909: »Áður en umræður hefjastídag í ríkisráðinu, finst Mér Eg þurfa að biðja íslenzka ráðgiafa vorn hinn nýja að vera hjartanlega velkominn. Að vísu hafa öldurnar risið liátt á íslandi við alþingiskosningarnar, og þá komið ummæli fram, sem kunna að liafa verið misskilin frá vmsum hliðum. En það er sannfæring Mín, sú er viðtal Mitt við ijðar hágöfgi hefir staðfest, að öldurnar muni lægja og misskilningurinn hjaðna, sem upp hefir risið, svo að það muni verða athugað með meiri gætni, hvernig sambandinu verði nú sem hezt kom- ið í það horf, er blessunarríkast verði íslandi og Danmörku. Til þess er Eg jafnframt viss um, að yðar liágöfgi muni vilja gera alt sem yður er unt. Með þeim orðum bið Eg yður vera hjartanlega velkominn i ríkisráð Mitt«. Ávarp þetta sannar betur en nokk- uð annað hvernig viðtal B. J. við konung og Dani hefir verið, hvermg hann hefir runnið ofan af kröfum flokks síns og afneitað fyrri stefnu sinni. Konungur talar fyrst um, að »öld- urnar hafi risið hátt á íslandi xúð síðustu kosningar, og þá komið fram ummæli sem haíi verið misskilin frá báðum liliðum«. Hér er auðvitað átt við baráttuna gegn frumvarpinu í sumar, líklega ekki hvað sízt ærsla- gang ísafoldar móti því og Dönum. En eftir samtalið við B. J. telur kon- ungur sig sannfærðan um það, að sú barátta hafi stafað af misskiln- ingi. Það kemur vel heim við þá yfirlýsingu Björns, að hann haíi að eins barist gegn Hannesi Hafstein, en alls ekki gegn frnmvarpinu. Og konungur segir enn fremur, að B. J. hafi staðfest þá sannfær- ingu sína, »að öldurnar muni lægja og misskilningurinn hjaðna, sem upp hafi risið, og framvegis verði athugað með meiri gœtni, hverníg sambandinu verði sem bezt komið í það liorf, er blessunarríkast verði íslandi og Danmörku«. Hér getur ekki verið átt við ann- að en Jiað að flokksmenn B. J. muni slakatilí kröfumsínuin, verða gætnari og nægjusamari, og kemur það á- gætlega heim við yfirlýsingu Björns Jónssonar, um að gera sig ánægð- an með statusquo, sem hann ekki hefir einu sinni rejrnt að klóra yfir. Til þess að koma þessu á, segir konungur ennfremur »er e g jafnframt viss um að yðar hágöfgi muni vilja gera alt sem yður er unt«. Björnhefir með öðr- um orðum lofað Dðnum að herjast móti kröfum þeim, sem hann og ftokkur hans setti fram í sumar. Með þeiin orðum (skilyrðum! bíð- ur konungurinn hann velkominn í ríkisráðið danska, stássstofuna, sem Björn liefir áður farið svo mörgum fögrum orðum um. Þetta hefir verið stór biti að kingja fyrir Björn, en maðurinn er svo van- ur kingingum, að sjálfsagt hefir hann ekki tekið sér það ýkja nærri. Framkoma tians öll erlíkust fram- komu Gísla, sem bauðst til að fara för á hendur Gretti sterka. Hann talaði af miklum gorgeir áður en hann fann Gretti og lést hafa ratað í miklar mannraunir við hirð Knúts helga, eins og Björn sparaði ekki stóryrðin hér heima fyrir, áður en hann fór á Dana fund. En er Gretti hitti Gisla, varð minna úr kappan- um, tók hann þá á rás, og kastaði sínu klæðinu í hvert skifti er saman dróg með þeim, þangáð til hann stóð seinast á línklæðum ein- um. Þetta ávarp konungs sýnir ljósast að Björn hefir verið orðinn fáklædd- ur af skoðunum flokksins, um það leyti sem hann öðlaðist ráðherra- stöðuna. Viðskiftum Gísla og Grettis lauk svo sem kunnugt er. Og er nú eftir að vita hvað þjóðin kann að gera við Björn. Kristján Jónsson talar i Dani. Nationaltidende 29. marz 1909. I gærkveldi gafst oss kostur á að hitta háyfirdómara Kr. Jónsson að máli. Hann skýrði oss ljúfmann- lega frá hinu og þessu til nánari skilnings á máli því er fyrir liggur. »Tvö aðalatriði, sem í raun réttri eru óskyld, hafa hér verið spyrðuð saman«, sagði háyfirdómarinn: »ann- að eru ráðherraskiftin, hitt er sam- bandslagafrumvarpið. Að öllum líkindum hefði rekið að ráðherraskiftum, þó að sambands- lagafrv. eklti hefði vakið óánægju manna. Svo var komið, að flestir voru orðnir móthverfir Hannesi Haf- stein, sem að öðru leyti er góður vinur minn. — En þetta er nú mál sem aðallega varðar oss [ íslendinga] og eg vil ógjarnan fara nánara út i það. Afstaða vor til sambandslagafrv. er aftur á móti skýr og ákveðin. Vér getum ekki gengið að þvínema með töluverðum brejúingum. Það sýnir flokkaskiftingin — 25 atkvæði gegn 13. En í þessu sambandi skal eg geta þess, að ekki ber að skoða mótspyrnuna gegn frumv. sem ósátt- fýsi af vorri hálfu, og því síður sem vott þess, að vér viljum helzt losast úr sambandí við Danmörku. Eg þori óhræddur að fullyrða — og eg sagði Hans hátign konunginum það í dag — að af öllum íbúum íslands eru að minsta kosti 99 af 100 mót- fallnir skilnaði frá Danmörku. Það má ekki leggja of mikið upp úr því, sem ábyrgðarlausir menn rita og segja. Eg ætla, að ástæðan til, að mála- úrslitin á réttarsambandi Danmerk- ur og íslands urðu svo óviðunandi fyrir alla málsaðila liafi verið sú, að hrapað var að málinu. Málið hefir verið rætt undan og ofan af, en ekki brotið til mergjar. Þegarskipundönsk-íslenzku nefnd- arinnar var gerð heyrum kunnug, ug, sagði eg við sjálfan mig: Það hefir varla mikið upp á sig. En við skildum að ineiningin var góð og Iðnaðarmenn I Munið eflir að ganga í »Sjúkrasjóð Iðnaðarmanna«. Sveinn Jónsson gjk. Heima kl. 6 e. m. — Bókhlððustig 10. biðum eftirvæntingarfullir samninga- úrslitanna. Þegar niðurstaðan varð mönnum kunn, sögðu vonbrigðin þegar í stað til sín. Og þó verð eg að segja, að menn fóru að engu óðslega. En síðan var málið gept að pólitisku ágreiningsefni — og þá risu boðaföllin. En má eg sþyrja, þegar vér hugleiðum, hversu ólíkl er ástatt í Danmörku og á íslandi, er þá ástæða til að furða sig á, að mál um afstöðu landanna sín á milli þarf nákvæmrar rannsóknar og i- hugunar við og getur ekki verið út- kljáð í einni svipan. Annars vegar er auðugt land og fjölbygt, mikil menning, hagstæð lífskjör og upp- fræðsla ötl á háu stigi. Hins vegar er hrjóstugt land og strjálbygt með óblíðu loftslagi og landslýður fátæk- ur og mjög frábrugðinn Dönum, ekki að eins hvað tungu snertir, heldur pg að skaplyndiseinkunn og þroska. Það er því óumtlýjanlegt, aðjafnvel harðar skærur eigi sér stað í við- skiftum þessara þjóða og ekki er unt að kveða þær niður í skjótri svipan. Bezta ráðið er, að báðir málsaðilar leiti lags og taki tillit til séreinkenna hvors um sig og varist að svo miklu leyti sem því verður við komið, að troða hvor öðrum um tær. Það sem vér heimtum er að eins fá sjálfir umráð og úrskurðarvald yfir sérmálum vorum*). Herra minn trúr, sala íslenzks saltfisks á Spáni og síldarverzlun vor í Noregi eru þó ekki mál, sem bræður vorir í Danmörku þurfa að vera að amstr- ast í. Látum oss ráða oss, hafa alla löggjöf í slíkum íslenzkum málum með konungi vorum. Eg lít svo á sem ekki sé viðlit að gera sér í þessari ferð voq um nokkra nið- urstöðu, að því er sambandsmálið snertir. Ef menn af hálfu Dana þykjast skilja oss og geta orðið við kröfum vorum, þá skulum við auð- vitað leggja málið með áorðnum breytingum á ný fyrir Atþingi. En AÚð búumst ekki við að fá því ráð- ið til lykta i þessari ferð — vér ger- um oss að eins von um að fá ráð- herraskiftunum knúið fram. En hvað tekur þá við, er ekkert verður úr samningunum um sambandsmál- ið«, segjum vér? Þá helzt alt í gamla horfinu fyrst um sinn, auðvitað samfara hnippingum við og við. Sjálfur kýs eg heldur status quo1) heldur en eitthvað nýtt, er menn geta ekki sætl sig við. Og þrátt fvrir erjur þær, sem búast má við, mun sambandið milli Daná og íslendinga enn hald- ast langan aldur. Fyrst það hefir tollað uppi síðan 1387, tollir það að minsta kosti meðan eg lifi2. Mérer nær að halda, að á íslandi húist ’) Auðk. af »Hvik«. 1) Hið núverandi 'stjórnarástand. 2) Sbr: hin alræmdu ummæli I.oö- víks XV.: Aprés nous le déluge!?

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.