Reykjavík - 12.06.1909, Qupperneq 2
122
REYKJAVIK
X
Sigurjón Ólafsson
Skólavörðustíg 4 og Klapparslig 30.
Krákubróðurs-tilhneyging B. J. ætti
þó að geta gengið of langt, eins og
hjá fyrirmynd hans meðal fuglanna,
sem allir muna hvernig fór fyrir.
£istamannasj óðurinn.
menn það ráðvendni Kínversku em-
bættismannanna. Héldu menn nú að
ekkert yrði úr járnbrautarlagningunni
um hrið.
En í vetur gaus upp fregn sú, að
Kínverjar væru búnir að fá petta mikla
lán hjá Þjóðverjum og réðu til sín
pýska verkfræðinga, og reyndist sú
fregn sönn.
Brá Englendingum mjög við þá fregn,
og varð það ekki til að mýkja skap
þeirra í garð Þjóðverja. Enda reyna
þær þjóðir nú að ríða skóna hver
niður af annari eftir megni.
Krákubróðir safiiar fjöðrum.
Ráðherrann okkar finnur til þess
að hann er orðinn ráðherra, annað
væri synd að segja.
Honum finst hann eiga alt ísland.
Ekki einungis »ísafold« og Einar
Hjörleifsson, heldur hvern kopp og
hrákadall sem landið á.
Krákubróðurs-tilhneyging hans vex
að sama skapi og ofmetnaðar-æðið.
Hvern hlut sem hugsanlegt er að
hann geti notað, og landið á, tekur
hann og brúkar án þess að gjalda
nokkra leigu fyrir, skreytir sig með
því eins og krákubróðirinn stolnu
fjöðrunum.
Honum nægir ekki að taka dýr
húsgögn, sem landið á, og brúka
þau heima hjá sér endurgjaldslaust.
Honum nægir ekki að rupla borð-
um stjórnarráðsins, og taka þau
heim til sín í borðdans.
Honum nægir ekki að rupla mál-
verkum af málverkasafni landsins,
og krækja þeim upp á veggina hjá
sér.
Nei —, nú fann hann upp um
daginn að ekki væri slikum höfð-
ingja sæmandi að aka í öðru en
kongs-vagninum — þessum vagni,
sem kostaði landið nokkur þúsund
krónur!!
Fyrst ætlaði hann að aka í hon-
um inn að Kleppi og lét spenna fyrir
hann hesta. En vinir hans réðu
honum frá förinni, meðfram af ótta
fyrir því, að hann ætti þaðan ekki
afturkvæmt.
Þá skaut ráðherra skelk i bringu,
svo hann hætti við förina.
En síðan ók hann í vagninum
upp að Vífilsstöðum, og nú má sjá
hans vegsemd aka 1 honum með
skylduliði sinu um bæinn.
Sjálfsagt þykir honum upphefð
mikil og fróun að sitja í »konung-
legu sæti«, annað getur honum ekki
gengið til, því nógir aðrir vagnar
eru til í bænum. En myndi lands-
mönnum ekki þykja viðkunnanlegra
að þessi dýri vagn yrði annaðhvort
seldur, eða geymdur svo vel, að nota
mætti hann handa góðum gestum,
heldur en láta B. J. slíta honum og
eyðileggja, fyrir þann hégómann einn,
að láta eftir Napóleons-æði sínu, og
aka í »kongs-vagni«.
Fyrir nokkrum árum gengust þeir
fyrir því Sig. Sigurðsson skáld, Jón
Sigurðsson stud. mag., Árni Eiríks-
son leikari og Þorkell Þorláksson
féhirðir, að stofnaður yrði sjóður
fyrir íslenzka listamenn.
Því var tekið vel í bænum og
söfnuðust hér á stuttum tíma loforð
fyrir liðugum 1000 kr. Nokkuð af
því fé hefir verið borgað og sett á
vöxtu.
En síðan fyrsti spretturinn var
gerður, hefir harðla lítið safnast til
Listamannasjóðsins.
Er það sjálfsagt miklu fremur að
kenna því, að fáir hafa vitað af til-
veru hans, en áhugaleysi manna.
Að listir hafi stórmikla þýðingu
fyrir menning og þroska þjóðanna
þarf nú ekki að prédika fyrir öðr-
um en Grænlendingum og Papúum
og slíku fólki, sem það í rauninni
myndi hafa afarlítil áhrif á.
Ekki skal ég því móðga íslend-
inga með því að gera það hér.
Hitt vil ég benda á, að skeytingar-
leysi manna hér um list og lista-
menn er altof mikið. Og þó við
reynum af fátækt okkar að miðla
þeim einhverju, er það vanalega svo
að þeir geta hvorki lifað né dáið
fyrir það.
Og auk þess eigum vér þingi voru
það að þakka, að slíkum veilingum
fylgja vanalega stórmóðganir til lista-
mannanna, sem gerir þeim þungbært
að taka við náðarbitunum.
Afþví er það með öllu óviðeigandi,
að þingið hafi það starf á hendi að
veita til lista, enda verður ekki af
slíkri stofnun krafist, að hún hafi
þá sérþekkingu sem til þess þarf.
Þvert á móti. Það má í flestum
tilfellum gera ráð fyrir að pólitíkin
verði þyngri á metunum en listin,
þegar um veitingu er að ræða hjá
slíkri stofnun.
Þörfin er því brýn fyrir sérstakan
sjóð, sem bæti úr þessu, brýnni hér
en nokkursstaðar annarsstaðar, sök-
um þess hve lítill markaðurinn er
hér fyrir list af hvaða tagi sem er.
Þjóðarmetnaður vor, og það sem
við þegar höfum framkvæmt í list-
um, og gefur oss vonir um gott
framhald, ætti því að sýna oss að
svo búið má ekki standa.
Þetta mun líka mörgum ljóst, þvi
á þingi kom hr. Skúli Thoroddsen
með tillögu, sem fór í þá átt að
þingið legði fram drjúgan skerf til
slíks sjóðs í eitt skifti fyrir öll.
Mér virðist það vel og viturlega
ráðið og vonast til að hr. Sk. Th.
fylgi því fast fram á þingi þegar
tækifæri gefst.
Og með þessum línum vildi ég
vekja athygli landsmanna á að slíkur
sjóður er til, og að menn geta styrkt
hann og um leið íslenzkar listir, með
því að gefa eitthvað til hans. Hver
einstakur þyrfli ekki að gefa nema
fáa aura.
Kornið fyllir mælirinn.
Hr. Þorkell Þorláksson féhirðir
veitir gjöfunum móttöku.
Ég vona að ýmsir verði til að
leggja sér þetta á minni.
Jónas Guðlaugsson.
flytur næsta haust í hið nýja skóla-
hús, sem nú er í smíðum við Frí-
kirkjuveg.
í þessu nýja húsi væntir skólinn
að geta fullnægt sanngjörnum kröf-
um tímans, bæði að því er snertir
húsnæði og kennslu.
Það er gert ráð fyrir allt að 30
heimavistum í skólhúsinu, og vonar
skólinn á þann hátt að verða við
óskum og tilmælum margra foreldra,
er senda vilja dætur sínar á skólann,
en hafa ekki átt þeim vissan neinn
góðan dvalarstað.
Ætlast er til að stúlkurnar borg-
með sér 30 kr. á mánuði, er greiði
ist fyrirfram fyrir hvern mánuð.
Umsókn um heimavistirnar sé skrif-
leg, og skulu foreldrar eða fjárráða-
menn námsstúlknanna sækja um skól-
ann fyrir þær.
Umsóknin gildir fyrir allt skóla-
árið, frá 1. okt. ár hvert, til 14. maí.
Sérhver námsmær leggi sér til 4
lök, 3 koddaver og 4 handklæði, er
sé merkt þeirra fulla fangamarki.
Einnig verður sett á stofn hús-
stjórnardeild við skólann, þar sem
kenna á allt það, er lýtur að hús-
stjórn heimila, svo sem matartilbún-
ing, þvotta, að sterkja og slétta lín,
og öll innanhússtörf. Ennfremur
nokkrar munnlegar greinar, er lúta
að húsmóðurstörfum. Námsskeiðin í
þeirri deild verða 2 á ári hverju —
frá 1. okt. til 30. jan. og frá 1. febr.
til 1. júní ár hvert.
Mánaðargjald fyrir hverja stúlku
ér 25 kr., er borgist fyrirfram. Gjaldið
lægra í þessari deild sökum þess, að
stúlkurnar vinna að innanhússtörfum.
— Þeir nemendur sæki einnig skrif-
lega, óg hver námsmær leggi sér til,
auk þess sem áður er talið, hvítar
og mislitar svuntur.
Bekkirnir verða framvegis 4, eins
og verið hefur undanfarin ár; þó
verður sú breyting á, að kennslan í
4. bekk getur ekki verið ókeypis að
sinni, sakir hins þrönga efnahags
skólans og mikils aukins kostnaðar
við rekstur hans.
Inntökuskilyrði í hvern bekk er,
að stúikurnar séu fermdar og sið-
prúðar.
Til 1. bekkjar útheimtist einungis
góð kunnátta í því, er unglingar eiga
að hafa numið til fermingar.
Inntökuskilyrði til 2. bekkjar eru,
að stúlkurnar hafi numið undirstöðu-
atriði íslenzkrar tungu.nokkuð ídönsku
og reikningi, lært höfuðgreinar í heil-
um tölum og brotum; ennfremur dá-
lítið í íslandssögu og landafræði.
Inntökuskilyrði til 3. bekkjar eru,
að stúlkurnar hafi numið nokkru meira
í öllum þeim greinum, en heimtaðar
eru til 2. bekkjar, og auk þess lært að
minnsta kosti 50 tírna í enskunámsbók
G. T. Zoéga.
í 4. bekk verður svo áframhalds-
kennsla í öllum munnlegum greinum,
sem kenndar eru í skólanum; en auk
þess geta nemendurnir átt kost á góðri
kennslu í ýmsum öðrum greinum, tungu-
málum, hannyrðum o. fl. fyrir væga
borgun.
Námsmeyjar þær, er síðastl. vetur
voru í 3. b. skólans, njóta þó ókeypis
kennslu í 4. bekk næstaskólaár, þar
eð þær vissu ekki um þetta ákvæði,
er þær gengu í 3.bekk, og bjuggust
við að halda áfram í 4. bekk.
Allar umsóknir séu komnar til
undirritaðrar íorstöðukonu skólans fyr-
ir lok ágústmánaðar.
Inntökupróf fyrir nýjar námsmeyj-
ar. sem haldið er 2. og 3. okt. ár
hvert, sker úr því, í hvaða bekk nem-
andinn getur sezt.
Reykjavík 5. júní 1909.
Ingibjöry II. Bjarnason.
(Til viðtals kl. 4-5 e. h. hvern dag).
er það, að borga »Reykjavík« fyrir
1. júlí. Borgun fyrir blaðið veitt
móttaka á afgr. bl. Smiðjustíg 7
á hverjum virkum degi frá kl. 8 árd.
til kl. 8 síðd.
Rey kj a v í k u r f r étt i r.
Tíðin
ágæt. Sólskin og gróðrarveður.
Leikhúsið
lék 2 leiki á sunnudaginn var, sem
verða endurteknir á morgun. Annað
hét „Fagra malarakonan í Marly“,
franskt kýmileikrit, vel íyndið og
skemtilegt. Hitt var „Lygasvipir"
eftir Stellan Rye, sem oft hefir verið
sýnt i Höfn og víðar. Það er ágætt
smáleikrit sem grípur á nokkuð almennu
kýli. Yfirleitt voru báðir þessir leikir
leiknir með bezta móti, eftir því sem hér
gerist.
En heyrt höfum vér að sumir bæjar-
búar — einkum hinn nýi ritstjóri
„ísafoldar" — hafi hneyxlast mjög á
„Lygasvipunum", og fundist að oft
mætti satt kyrt liggja.
J611 frá ýlúla
er kominn úr austurför sinni; segir
góða tíð og góðan afla þar eystra.
Grjafir
til heilsuhælisins hafa borist frá
Geir Zoega kaupmanni 100 kr. og
Guðmundi Þorsteinssyni frá Heiðarbæ
200 kr.
Sfórstúkuþing
halda Templarar um þessar mundir,
stendur það yfir í nokkra daga.
Aðkoinumenn
eru hér margir þessa dagana. Meðal
þeirra má nefna : Kristján H. Jónsson
ritstj., Magnús Torfason sýslumann,
Magnús Einarsson organista, Halldór
Jónasson kennara á Seyðisfirði, bræð-
urna Guðmund og Kristján Jónassyni
úr Skarðsstöð, Halldór Steinsson læknir
í Ólafsvík o. fl. — Ennfremur er ný-
kominn frá Höfn Magnús Jónsson cand.
jur., siglir hann aftur nú með „Laura*.
§am»öng
ætla þau systkinin ungfr. Elín Matthías-
dóttir og Gunnar Matthíasson að halda
hér í Bárubúð í kvöld. Hr. Gunnar
Matthíasson er nýkominn frá Ameríku,
og býr þar í bæ þeim er Seattle heitir
á Kyrrahafsströndinni.
Herra Gunnar Matthíasson hefir
mikið fengist við söng þar vestra, og
hefir ágæta söngrödd. Bæjarbúum má
því vera nýjung mikil að heyra hann,
því fátt er hér um góðar karlmanna-
raddir, og því síður vel æfðar.
Ungfr. Elín systir hans er kunnugri
fólki hér en frá þurfi að segja, og
sömuleiðis ungfr. Kristrún Hallgríms-
son, er ætlar að aðstoða við sam-
sönginn.
Vonandi að samsöngur þessi verði
því fjölsóttur. Þau systkinin fara að
samsöng þessum loknum, norður til
Akureyrar, á fund foreldra sinna. Gefst
mönnum þYÍ að líkindum ekki kostur
á að heyra þau hér nema í þetta eina
skifti.