Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 05.02.1910, Blaðsíða 2

Reykjavík - 05.02.1910, Blaðsíða 2
18 REYKJAVIK f Á öskudaginn tókst það; þá var gengið til atkvæða árla nætur, og Björn greiddi sjálfum sér atkvœði — eítir því sem Skúli heflr skýrt frá í „Þjóðviljanum" ómótmælt. Björn skapaði sig þannig sjálfur sem ráð- herraefni; tilnefningin marðist í gegn á Öskudagsmorgun 1910 með einu atkvæði, atkvæði Björns sjálfs — af tému „valdalystarley8i“ eftir því sem hann sjálfur hafði að orði komist í tsafold. Þetta má að vísu heita eins konar ajálfsmyndun (generutio aequivoca). Svo að í pólitíkinni er þá sjálfsmyndun til. ®il hennar þarf ekki annað en nógu sterkan skamt af „ valdalystarleysi ‘‘. ,Hann pabbi! Maðurinn, sem þjóð- in hefir sjálf kosið í æðsta valdasæti landsins*, segja ráðherra-drengirnir. ffEf einhver talar ekki nógu virðulega um hann pabba, þá óvirðir hann þjóð- ina, sem heflr kosið hann“. Þetta segja þeir. Ég hef séð það svart á hvítu í málsskjali fyrir 2 dög- um. En — þjóðin hefir ekki kosið hann. Hann heflr kosið sig sjálfnr — flotið á sínu atkvæði sjálfs að eins. Þetta verða menn að muna til að skilja manninn rétt. Hann man það vel sjálfur. Hann veit að af 25 mönnum, meiri- hlutanum á Alþingi, var með engu móti, hvorki með fortölum né bæn- um, auðið að fá nema 12 til að kjósa bann til ráðherraefnis — minnihluta að eins —, þar til er „valdalystar- leysið" knúði hann til að kjósa sig gjálfur, svo að hann fékk heillatöluna 13 í hlut. Að hann kaus sig sjálfur og fleytti sér þannig í sætið á sínu eina at- kvœði, um það höfum vér vottorð hr. Skúla Thoroddsens í „Þjóðviljanum", vottorð, sem hvorki Björn né blað hans hafa nokkru sinni dirfst að vé- fengja — og kalla þau þó ekki ait ömmu sína! Hann er þannig ekki kosinn af meiri hluta flokks síns, því síður af meiri hluta Alþingis, og sízt af öllu af þjóðinni. Hann er kosinn af sjálfum sér, en ekki þjóðinni. Hann á sjálfs síns at- kvæði, en ekki þjóðarinnar, upphefð sína að þakka. Hann er sjódfs sín fulltrúi, en ekki þjóðarinnar. Ef því einhverjum skyidi virðast sem hann gæti hagsmuna og skaps- muna sín og sinna öllu betur en hagsmuna þjóðarinnar, þá væri það ekkert undrunar-efni. Hann veit, á hvaða grundvelli vald hans stendur — meðan það stendur! Jón Ólafsson, alþm. Frá ritlönd mii. Grikkland. Síðustu fregnir þaðan 3egja, að verið sje að semja um sættir milli Tyrkja og Grikkja í þá átt, að Tyrkir láti Krít lausa gegn hæfilegu endurgjaldi, svo og því, að stórveldin, sem haldið hafa verndarhendi yflr Krít, heiti því á alþjóðafundi, að vernda ríkisheild Tyrklands. All-róstusamt er þar enn, einkum í Aþenu, og er það herforingjasambandið, sem gengst fyrir óspektunum. Hefir það jafnvel hótað að koma af stað íullkominni stjórnarbylting, ef það mæti nokkurri mótstöðu. Annars eru frjettir þaðan mjög á slitringi. Og nú segir símskeyti 1. þ. m. að kvatt sje til þjóðfundar á Grikk- landi. Flng í Signu. 25. f. m. er símað frá Kaupmannahöfn, að flug í Signu hafl gert feiknatjón í Parísarborg. Nú segir símfregn 1. þ. m., að skaðinn, sem það hafi valdið í Parísarborg, sje metinn á þúsund miljónir franka. Samgöngumálaráðherra Dana, Jensen-Onsted, heflr beðist lausnar frá embætti sínu, segir í símskeyti til „Evíkur* 1. þ. m. Bosenstand dáinn. Einkaritari konungs, Rosenstand, er dáinn, en í hans stað kominn fyrv. stjórnardeildar- formaður Krieger, segir símskeyti til „Rvíkur" 1. þ. m. Kosningarnar á Englandi eru nú um garð gengnar, og segir símskeyti til „Rvikur" 1. þ. m., að frjálslyndi flokkurinn (stjórnarflokkurinn) hafi sigrað með litlum meirihluta. „Snásaxast á liraina hans $jörns mins“, sagði kerling Axlar-Björns (eldra) hér á árunum. Eitthvað líkt má nú segja nm Björn ráðherra og þinglið hans. Af flokksmönnum hans á síðasta þingi, sem vóru 25, að honum sjálf- um meðtöldum, hafa nú 3 þegar snú- ist í gegn honum opinberlega í banka- málinu. — Þeir eru þessir: 1. Jósef Björnsson, 2. Ól. Briem (á Skagafjarð- arfundinum), 3. Jón Sigurðsson á Hauka- gili (á Borgarness-fundinum], 4. Jón Jónsson á Hvanná (í fundarboðí Norð- mýlinga með aukaþingskröfu), 5. Krist- ján Jónsson háyfirdómari að sjálfsögðu (samkv. afstöðu sinni við bankann). Heimastjórnarmenn á Alþingi eru 15, og munu þeir allir sem einn mað- ur Ijá andstæðingum ráðherra í hin- um flokknum lið í þessu máli. Þar eru þá þegar orðnir 20 and« stæðingar ráðherra opinberlega af þingmönnum — réttur helmingur alls þingsins. Ég varð sannspár um daginn um Mýramenn. Og eins og ég sagði þá, hefl ég svo óræka vitneskju um, hvað er að gerast í landinu nú, að ég get fullyrt það, að það er að eins byrjun- in, sem enn er í Ijós komin. Hann á eftir að missa marga nýta og góða liðsmenn enn á meðal þingmanna. Undir eins og 2 neðrideildar-menn til bætast við mótflokk hans í banka- málinu, þá heflr þingið á valdi sínu að rétta sinn hlut gegn honum. En þeir verða — og þurfa líka að verða -— fleiri. Því að það er að eins í þessu eina máli, að andstæðingar ráðherra halda saman. Yér heimastjórnarmenn erum, og hljótum til næstu kosninga að verða, minnihluta-flokkur, sem ekki getur tek- ið við, og ekki vill taka við völdum án þess að vera í meiri hluta. Fyrir því þyrftu andstæðingar Björns innan „sjálfstæðisflokksins" að verða fleiri en fylgismenn hans í þeim flokki, til að geta ráðið eftirmann' Björns, er hann hröklast frá. ElJa ráða lians fylgiflskar því. — Vér heimastjórnar- menn styðjum að eins mótspyrnuna gegn honum, en viijum engan þátt eiga í ráðherra-tilnefuingu. Hitt er auðvitað, að vér reynum ekki að gera óvært neinum sæmilegum eða viöun- andi manni, er mótfiokkurinn kynni að tilnefna. Vér munum að eina líta á stjórnarathafnirnar en ekki á mann- inn persónulega. Nú er þá fyrir andstæðinga Bjöms innan meirihlutans að herða sig. Þeir og þeirra þingmenn riðu á vaðið með aukaþings-kröfuna. Vér minnihlutamenn fylgjum þeim þar í sporiö og styðjum þá. Andstæöingar Björns í meirihlutan- um hafa byrjaö vel og drengilega, unniö réttlætis verk, sem kjósendur þeirra hljóta að meta viö þá, og gert sitt til, að þjarga flokki sínum undan ámæli. Nú er ekki nema herzlumunurinn eftir. ' Þeir verða að halda áfram. Hverjir verða nú næstir? Reykvíkingar ? Láti þeir nú til sín taka! Úr þessu fara hverjir að koma af öðrum. En þeirra vegur vex ekki, sem of lengi sitja hjá og bíða eftir að veita þeim lið, sem fjölmennari verði. Jón Ólaísson, alþm. Hvað er að frjetta? Liátinn er nýskeð Einar B. Guðmands- son i HaganesTÍk, er lengi bjó á Hraunum í Fljótum. Hann var faðir Páls borgarstjóra í Reykjarík og þeirra sýstkina. „Mesti nytsemdarmaður, og fyrirmynd bænda að framtakssemi, dugnaði og fyrirhyggju*. Rannsóknarnefndsr - kostn- adurinn kvað nú vera orðinn allt að 7,200 kr. Þar af höfðu 5,000 verið borg- aðar úr landssjóði fyrir nýár, en nál. 2,200 úr Landsbankanum nú eftir nýárið. Norðmýlingar og aukaþlng. 1. þ. m. er símað af Seyðisfirði: „Þingmenn Norðmýlinga boða fulltrúafund að Eiðum 28. þ. m., að dæmi Skagfirðinga. Telja þeir í fundarboðinu nauðsyn á aukaþiugi11. EiOaskAlinn. Búnaðarskólastjóra- staðan á Eiðum i Suður-Múlasýslu er laus í næstu fardögum. Umsóknir eiga að send- ast skólanefnd Eiðaskólá fyrir 15. apríl næstk. BorgflrOlngap og bankamállO. Háyfirdómari Kristján Jónsson, þingmaður Borgfirðinga, hefir nú tilkynt kjósundum sínum, að hann verði á Akranesi 10. þ. m., til þess að gefa þeim skýrslu um banka- málið. Töluverður hugur kvað vera í Borgfirðingum að fjölmenna þangað. BúnaOarnámaakeiOIO vlO Þjórsárbrú. Eins og skýrt var frá i 2. tölubl. þessa blaðs stóð námsskeið þetta yfir frá 10.—22. f. m. Aðsókn var með minsta móti, að eins 10 nemendur fyrri vikuna, en síðari vikuna fjölgaði þeim svo, að þeir urðu 21 að tölu. Kenslan fór fram i fyrirlestrum. Hjeldu kennarar 4 íyrirlestra á dag, alla fyrri hluta dags. Siðdegis voru fundahöld og á kvöldin upplestrar og í- þróttir. PóstafgrelOslumenn þessa skip- aði ráherra 22. f. m.: Guðmund S. Th. Guðmundsson á Siglufirði, Halldór Jónsson kaupmann í Vík i Mýrdal, Iagimund Stein- grímsson á Djúpavogi og Ólaf Böðvarsson bakara i Hafnarfirði. Laus lœknlshjePuO. Flateyrar- hjerað í önundarfirði, Nauteyrarhjerað við ísafjarðardjúp og Reykjafjarðarhjerað í Strandasýslu. Árslaun í hverju hjeraði eru 1500 kr. VfltpyggingapsjóOup sjó- manna. Stjórn hans er nú fullskipuð. Sjómannafjelagið Báran kaus í hana Ottó N. Þorláksson skipstjóra, Utgerðarmanna- fjelagið Tryggva Gunnarsson fyrv. banka- stjóra, og ráðherra skipaði þriðja manninn, Magnús Guðmundsson lögfræðing. Tryggvi er formaður í stjórninni, Ottó skriíari og Magnús gjaldkeri. Botnvðrpungup strandar. f síðastliðnum mánuði strandaði enskur botn- vörpungur i Meðallandsfjörum í Skaftafells sýslu. Það Tar i náttmyrkri og vonzku- veðri. Skipverjar voru alls 11, og urðu þeir að hafast við í reiðanum i nil. 12 klukkustundir, komust ekki fyr í lanft. Einn þeirra (matsveinninn) drukknaði og annar fótbrotnaði. Þegar þeir loksins kom- ust upp i sandinn, og fóru að leita manna- byggða, biru þeir fótbrotnafjelagann sinn i fullar fjórar klukkustundir, en þá voru þeir orðnir sro uppgefnir, að þeir urðu að -skilja. hann eftir. Seint um dagisn komu þeir loki til bsejar, en þar tkildi þi engian maður, og gitu þeir þvi ekki gefið vitneskjn usn manninn, sem þeir höfðu skilið eftir. -— Dagian eftir var faril i fjörnr, og fanst þá fótbrotni maðurinn, er var e*n i lífi. Hann liggur nm þar oyitra, en hinir komu kingað suður um minaðamótin og sigldu heimleiðis með „Ceres“ 2. þ. m. 9sktaOup botnvðppungup. Ný- skeð tók varðskipið „íslanda Falk“ þýzkan botnvörpung við veiðar í landhelgi og hafði hann með sjer hingað til Reykjavikur. Hann hjet „Fritz Busse“ og var frá Geestemúnde. Hann var sektaður um 1000 kr. og afli ojp veiðarfæri npptæk. Aflinn, fullar 20 smá- lestir, var seldur hjer á uppboði, en veið- arfærin keypti sökudólgurinn aftur fyrir: nál. 900 kr. Landskjálftapnlp sem skýrt var frá í næst síðasta blaði, gerðu einnig vart við sig bæði á ísafirði og austur i Árnessýslu, en þó lang mest á Reykjanesi syðra. Þar funduet 25 hræringar, sumar mjög harðar og ægilegar. Yflrflskimatsmenn, sam skipa itti um nýir samkvæmt lögum frá síðasta þingi, skipaði ráðherra 11. f. m.: Þorstein Guðmundsson dbrm. í Reykjavik, Einar Finnbogason i Akureyri, Svein Árnason á Seyðisfirði, Kristmann Þorkelsson í Vest- manneyjum og Kristinn Magnússon á ísa- firði. Kross. Eítir tillögu ráðherra sæmdi konungur 27. desbr. siðastl. Myklestad gamln kláðalæknir riddarakrossi dannebrogsorðunn- ar fyrir kláðalækninga-tilraunir hans hjer á landi fyrir nokkrum árum. Settup lœkntp. Frá 1. þ. m. er Guðmundur Tómasson Bettur læknir í Flat- eyjarhjeraði „fyrst um sinn“. Símskeyti. Khöfn, 5. febrúar. Zahle erklærer Folketinget: Regeringen betragter Udkastet bortfaldet. 0nsker ikke Islands Stillíng forandret. Statskassen er- holder igen Trawlerboderne. Islands Minister forsikret Woga- Bjarni ingen politisk Mission. Lovet Tilbagekaldelse hvis Woga-Bjarni politiserer. Á Islenzku. Zahle skgrir þjóðþinginu frá, að stjórnín álíti sambandslagafrum- varpið fallið úr sögunni. Óskai' ekki neinnar bregtingar á réttar- -stöðu íslands. Rikissjóður fœr aftur a/s botn- vörpunga-sektanna. íslands ráðherra fullgrðir, að Voga-Bjarni hafi engin pólitísk erindi. Lofar að kalla hann heim, ef hann sje að tala um stjórnmál. [Allar samningstilraunir eru írá, drepnar af ísl. ráðherra og síðasta Þingi. ísl. ráðherra hefir eftir þessu heitið að skila Dönum botnvörpu sektahlut- anum, sem meiri hlnti siðasta alþ. samþykti, eftir beinni tillögu Björns ráðherra, að skyldi renna 1 landssjóð. Nýtt fjárlaga brot! Sæmra að láta á- kvæði alþ. 1905 vera óbreytt, en að éta nú alt ofan í sig hrátt. J. Ó.]

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.