Reykjavík - 21.05.1910, Side 3
REYKJAVlK
87
l^votturinn, sem þið sjái& þarna,
þaó er nú enginn Ijettingur, en
samt var furðu litil fyrirhöfn
við að þvo hann hvitan sem snjó.
Það var þessi hreina sápa, sem
átti mestan og bestan þátt í því.
_____________________________ 1590
Áreiðanlegir virðingarmenn.
í ráðherrablabinu stóð 11. þ. m.
þessi smágrein :
,,V©1 4 haldið. — Á Kleppi var reist
í haust fjós,hlaða og hesthús úr steinsteypu...
Kostnaðurinn varð alls 1875 kr. En mats-
menn, þeir er kjörnir vóru af stjórnarráðinu
til að meta bygginguna,mátu hana á 3900 kr.,
eða meira en helmingi meira en hún hafði
kostað. — Eyrir smíðinu stóð Sveinn Ein-
arsson steinsmiður hér í Rvík“.
Leturbreytingarnar eru eftir ráð-
herrablaðinu. í öðru málgagni er frá
því skýrt, að þessir virðingarmenn hafi
verið: Hjörtur Hjartarson snikkari og
Stefán Egilsson múrari — einhverjir
tveir blóðdyggustu skósveinar ráðherra.
Það hefir nú ekki verið neitt leyndar-
mál, að virðingar á húsum hér á landi,
og einkum hér í bæ, hafa ekki verið
sem allra áreiðanlegastar. En fyr má
nú rota en dauðrota. Fyrri getur nú
afkáralega vitlaust eða samvizkulaust
verið, en að muni meirn en helmingi.
Þegar svona fjarri er öllu lagi virð-
ing, þá getur varla nema. um tvent
verið að gera : algerlegt samvizkuleysi
virðingarmanna, eða þá alveg frá-
munalega vanþekking þeirra, er geri
þá með öllu óhæfa virðingarmenn.
„ísafold“ hefir nú brennimerkt þessa
virðingargerð, og skal henni ekki ámælt
fyrir það.
En hver sem orsökin er hér, hvort
heldur það er samvizkuleysi eða alger
skortur á viti á verkinu, þá sýnist það
eitt víst, að þeim mönnum, sem þessa
virðing hafa framið, er ekki trúandi
til neins slíks verks framar.
Jón Ólafsson, alþm.
»
Hvað er að frjetta?
Hjúskapur. 26. f. m. gaf bæjarfógeti
Ouðl. Guðmundsson saman í hjónaband
ritsímastjóra Gísla J. Ólafsson á Akureyri
og frk. Polhj Grenuold sst.
Dómar. í s. 1. yiku fjellu dómar í
undirrjetti í „vitfirrings“-máli Björns ráð-
herra Jónssonar gegn Jóni alþm. Olafssyni.
Jón dæmdur í 150 kr. sekt og ummæli um
vitfirring Bj. J. dæmd ómerk.
Þá var og dæmt meiðyrðamál Bj. Jónss.
ráðh. gegn Tr. Gunnarssyni, K. Dbr., út
af meiðyrðum á prenti. Tr. (t. dæmdur í
200 kr. sekt, og meiðyrðin ómerk.
Enn var s. d. varakonsúllinn franski hr.
Brillöin dæmdur í 100 kr. sekt fyrir skrifleg
meiðyrði um yfirdómara Jón Jensson, og
meiðyrðin ómerk.
Augnleeknirinn leggur af stað í íerð
sina kringum landíð 11. júní næstk.; kemur
til Seyðisfarðar 13. júní og dvelur þar í 10
daga, fer þaðan með „Agli“ til Akureyrar
23. júní og dvelur þar 15 daga. Með
„Floru“ fer hann þaðan 9. júlí til ísafjarðar,
og verður þar átta daga um kyrt.
Kemur aftur til Rvíkur 21. júlí. Hann
skorar á sjúklinga, að koma sem fyrst á
hvern dvalarstað, til þess að tíminn sje næg-
ur, ef til skurðlækninga kemur.
Kornforðabúr. Búnaðarfjelag íslands
víll verja alt að 1000 kr. til að styrkja
sveitir eða sýslur, sem vilja koma upp hjá
sjer komforðabúrum til skepnufóðurs. Styrk-
urinn á að nema 'fn—‘/s af kostnaðinum við
að gera skýli yfir kornið. Þau hjeruð eru
látin ganga fyrir, þar sem hætt er við að
hafís geti teppt hafnir. Umsóknarfrestur til
Nóvemberloka næstu.
Prestskosningin i Grindavík 17. þ. m.
fór þannig, að eand. theol. Brynjólfur
Magnússon var kosinn með nærri öllum at-
kvæðum.
Veitt lcekníshjeruð. Strandahjerað
er veitt Magnúsi lækni Pjeturssyni frá 1.
júlí næstk., og Nauteyrahjerað Sigvalda
lækni Stefánssyni frá 1. júní næstk.
Á mótorbát komu tveir menn í gær
austan af Eskifirði; voru 3 daga á leiðinni.
Voru að flytja bátinn hingað; fara austur
annað kvöld með „Kong Helge“. — Annar
þeirra cand. merc. Erlendur Einarsson, fór
fyrir 3 árum hjeðan austur á Eskifjörð við
annan mann á mótorbát.
RáOsmenskustarfið við heilsu-
hælið á Vífill8töðum er veitt Jóni Guð-
mundssyni á Laugalandi.
Kosninga-úrslitin
í Danmörku.
Þingkosningar fóru þar fram í gær.
simskeyti hingað í morgun segir
svo frá úrslitum :
Reformflokkurinn 35; miðlunarmenn
21; sósíalistar 24; rótnemar 20, og
hægrimenn 13. — Alls eru þingmenn
114, og er því eftir þessu einn þing-
maður utan flokka.
StjórnarfloJckurinn (rótnemar og
sósíalistar) hefir unnið ein 4 sæti.
Hann hafði áður 40. — Að ðllum lík-
indum fer Zahle-ráðaneytið frá völdum.
— » m ^ ----
Reykjavlkurfrjettir.
Gelr Zoöga kaupmaður verður átt-
ræður 26. þ. m. Ejöldi af borgurum bæjar-
ins heldur honum þann dag heiðurssamsœti
á „Hótel Reykjavík11.
Þllsklpa-afll. Út úr skránni í sið-
asta blaði yfir þilskipaafla hjer á vetrarver-
tíðinni hafði fallið:
„Hildur", eign Jóns Laxdals .... 35,000
Afll botnvðrpusklpanna is-
lensku á vetrarvertíðinni er þessi:
Snorri Sturluson..................173 þús
Ereyr.............................116
Valur............................ 40 _
Mars.............................120 —
íslendingur ..................... 98 _
Jón forseti ......................187 _
Yalurinn hyrjaði ekki veiðar fyr en 1.
Apríl.
SRríííur.
Misskilningur.
Umboðsmaður vátryggingarfjelags:
„Hvað hafið þjer hugsað yður að
vátryggja húsið hátt?“
Húseigandinn: „Helzt alla leið upp
í mæni“.
•
Yfirboð.
A. : „Jeg hefi einu sinni sjeð kafara,
sem var hálfa klukkustund í einu niðri
í sjónum".
B. : „Uss, það er ekki neitt. Jeg
hefi einu sinni sjeð einn, sem kom alls
ekki upp aftur".
„KIBENHAVNS IARGARINIFABRIK“
selur mjög ódýrt og bragðgott smjörlíki. Það er nær ólitaö og geta
neytendur þess fullvissað sig um að í því eru að eins hrein og ósvikin efni.
Verksmiðjan hefir forðabúr á Akureyri og selur að eins í stórkaupum til
útgerðarmanna, kaupmanna o. s. frv. Pantanir má ennfremur senda beint til
verksmiðjunnar í Khöfn, Áreiðanlegum kaupendum er kaupa nokkuð að mun
gefst all-langur gjaldfrestur.
Aðal-fulltrúi verksmiðjunnar fyrir ísland
Jón Stefánsson, Aureyri.
ItL
m
Pjer sem vindla reykið,
sparið peninga !
Undirritaðir panta, fyrir hvern sein óskar, afar ódýra vindla
(frá 1,40 100, plus tolli) frá elstu og beztu verksmiðju á Hollandi.
Vindlarnir eru áreiðanlega verulega góðir og geta menn sjeð sýnis-
horn hjá oss, eigi þarf að taka meira en 200 stk. í einu til þess
að fá þetta afarlága verð, sem áreiðanlega er lægra heldur en
kaupmenn nú borga fyrir vindla sína, komið sem fyrst, því fyrsta
pöntunin fer á stað eftir nokkra daga.
Virðingarfyllst.
pr. verzl. „V ÍHIl GII R“.
Laugaveg 5.
Qarl JSárusson.
<35ogi dirynjólfsson
yfirréttarmálaflutningsmaður.
Austurstræti 3.
Heima kl. 11—12 o« 4—5.
Talsími 140.
Fyrir rjetti.
Dómarinn : „Hafið þjer sakað kær-
andann, Jón Hannesson, um það, að
hann hafi stolið buddunni yðar?“
Ákœrði: „Nei, jeg hefi bara sagt
það, að ef Jón hefði ekki verið með
mjer að leita að buddunni, þá hefði
jeg kannske fundið hana“.
€ggert Claessen,
yflrréttarmálaflutningsmaður.
Pósthússtr. 17. Talsími 16.
Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5.
C rsmíðastof an
I*inelioltsst. 3, Kvik.
Hvergi vandaðri úr.
Hvergi eins ódtjr.
Fullkomin ábyrgð.
Stefán Runólfs8on.
Hálslín fæst sjerlega vel „strauað“ á
Klapparstíg 20. Hjálmrún Hjálmarádóttir.
Rauða húsið.
Eftir
W. Heimburg.
»Ulrik frændi! Ulrik frændi!« heyrði jeg kallað með
unglegri kvenröddu einhversstaðar skammt frá mjer, þegar
jeg var að fara inn um garðshliðið. Jeg litaðist um, og yfir
hjá rauðberjarunnunum kom jeg auga á ljósu lokkana henn-
ar Fríðn frænku minnar.
í raun og veru var Friða meira en blátt áfram frænka
mín. Fyrir nákvæmlega tveim árum hafði hún sem sje lofað
mjer þvi hátíðlega, þarna milli bækitrjánna niðri í garðinum,
að hún skyldi verða konan mín, þegar jeg væri orðinn læknir,
og þá hafði þessi atburður ætlað að setja allt í uppnám á
hinu friðsamlega heimili yfir-skógarvarðarins. Frændi gamli
kallaði okkur krakkabjána, og sagðist ekki mega hevra nefndar
neinar stúdentatrúlofanir, og blessað gæðablóðið hún frænka
gamla áleit vegna stöðu sinnar, sjálfsagt, að vera á sama máli og
maðurinn hennar. En í laumi reyndi hún að hughreysta
okkur, og gylla það fyrir okkur á allan hugsanlegan hátt, hve
miklu yndislegri ástarsælan hlyti að verða eftir hæfilega langan
b