Reykjavík - 30.07.1910, Blaðsíða 3
REY KJAVlK
127
Bæjarstjórn Reykjavíkur.
Fnndur 21. júli. [Framh.].
4. Beiðni Sæmundar Sveinssonar, dags.
17. þ. m., um endurgjald fyrir lóðarnám
undir vatnsæðar vísað til bygginganefndar
til álita.
5. Erindi um burtfelling á útsvari Gísla
Þorsteinssonar frá fóður hans, Þorsteini
Gíslasyni (frá Bleiðastöðum), visað til nið-
urjöfnunarnefndar.
6. Ingunni Friðriksdóttur, Laugaveg 32B,
gefið eftir útsvar hennar yfirstandandi ár,
4 kr.
7. Lögregluþjóni nýskipuðum, Runólfi
Pjeturssyni, veittur 60 kr. styrkur til ein-
kennisbúnings.
8. Reikningur hafnarsjóðs lagður fram
endurskoðaður án þess endurskoðendurhefðu
haft nokkuð við hann að athuga, og samþ.
bæjarstjórnin reikninginn.
9. Reikningur brunabótasjóðs Reykja-
víkur lagður fram endurskoðaður og áteikn-
aður á sama liátt, og var hann einnig sam-
þykktur.
10. Brunabótavirðing samþykkkt á húsi
Hjálmtjs kaupm. Sigurðssonar við Lækjar-
götu nr. 12 A, 1800 kr.
11. Formaður vakti athygli á því, að
maður sá, or hefir fengið Efl'ersey leigða í
ár til slægna, hafi leigt liana öðrum til beitar
fyrir hross. Var svohljóðandi ályktun samþ.:
„Fundurinn skorar á horgarstjóra að rann-
saka tafarlaust, hvort skilmálar fyrir leigu
Efferseyjar heimili hrossabeit þá, er þar
hefir átt sjer stað, og koma í veg fyrir, að
eyjan verði notuð til skemmda af leigjand-
Seldar fasteignir. — Þingl. 30. júní.
Halldór Kr. Þorsteinsson, skipst.jóri, fær
uppboðsafsal fyrir húseignunum nr. 23 og
25 við Lindargötu með tilheyrandi fyrir
12500 kr. Dags. 25. júní.
Þingl. 7. þ. m.
Ingibjörg Eiriksdóttir selur Bjarna báta-
smið Þorkelssyni húseign nr. 21 við Grrettis-
götu með tilh. fyrir 2700 kr. Dags. 14. júní.
Jón Sveinsson, trjesmiður, selur Hans
Jakob Hansen, bakarameistara, húseignina
nr. 61 við Laugaveg með tilheyrandi fyrir
20,000 kr. Dags. 4. þ. m.
Jón Magnússon, bóndi í Krísivik selur
Jóni slátrara Guðmundssyni húseignina nr.
25 við Njálsgötu með tilheyrandi fyrir 4500
kr. Dags. 4. þ. m.
Þingl. 14. þ. m. :
Jón Magnússon, bæjarfógeti, selur Guð-
mundi skáldi Magnússyni, 700 ferálna lóð
austan Grundarstíg, fyrir sunnan Syðsta-
Berg, fyrir 1,000 kr. Dags. 9. þ. m.
Halldór Högnason, trjesmiður, fær upp-
boðsafsal fyrir húseigninni nr. 77 A við
Laugaveg, fyrir 1,600 kr. Dags. 11. þ. m.
Þingl. 21. þ. m.:
Bæjarstjórn Reykjavikur selur Helga stein-
smið Jónssyni byggingarlóð við Laugaveg,
1650 ferálnir, fyrir 825 kr. Dags. 20. april.
Einar F. Jónsson steinsmiður, selur Jóni
kaupm. Helgasyni húseign sína nr. 7 við
Vitastíg með tilh. fyrir, 5,300 kr. Dags. 6.
þ. m.
Þingl. 28. þ. m.:
Katrin Gunnarsdóttir, húsfrú, selur Jó-
hanni kaujim. Jóliannessyni húseign sína
nr. 2 við Spítalastíg með t.ilh. fyrir 3,800 kr.
Dags. 21. þ. m.
Jóhann kaupm. Jóhannesson selur Katrinu
Gunnarsdóttur, húsfrú, húseign sína nr. 39
við Laufásveg meö tilh. fyrir 3,600 kr.
Dags. 21. þ. m.
Slæmt árferði í Svíþjóð. Það
virðist óneitanlega benda á slæmt ár-
ferði í Svíþjóð, að þar i landi hafa á
þessu ári 28,000 manna mist atkvæð-
isrjett, vegna þess að þeir hafa ekki
getað borgað skatt.
•
Alþjóðafund um trúinál á að
halda í Berlín 6.—10. ágúst í sumar,
og koma þar saman menn úr öllum
trúflokkum. Verður þar reynt að
koma á samvinnu meðal allskonar
„kirkna“.
Peir sem hafa eiinþá ekki borgað áfallinn vatns-
skatt, eru ámintir um að gera það nú þegar, áður en
farið verður að taka hann lögtaki.
Að gefnu tilefni er það hjer með brýnt fyrir hús-
eig-enditm, að þeim ber að annast greiðslu
vatnsskattsins af húsi sínu, án tillits til hvort þeir nota
það sjálfir, leigja það öðrum eða hafa þess engin not.
BÆJARGJÖLD öll, sem fallin eru í gjald-
daga en ekki borguð, svo sem aukaútsvör, lóðargjöld, sótara-
gjöld, brunabótagjöld, erfðafestugjöld o. s. frv. eru allir beðnir
að borga tafarlaust.
Gjalddagi var 1. apríl síðastl.
Afgreiðsla á Laugaveg 11, kl. 11—3 og 5—7.
Korskriv selv Deres Klædevarer
direkte fra Fabrik. Stor Besparelse. Enhver kan faa tilsendt portofrit
mod Efterkrav 4 Mtr. 130 Ctin. bredt sort, btaa, brun, gron og graa
ægtefarvet finulds Klæde til en elegant, solid Kjole eller Spadserdragt
for kun ÍO Kr. 2,50 pr. Mtr. Eller 3*/4 Mtr. 135 Ctm. bredt
sort, morkeblaa og graanistret moderne Stof til en solid og smuk
Herreklædning for kun 14 Kr. 50 0. Er Varerne ikke efter
0nske tages de tilbage. í h. b. l ár.
Aarhus Klædevæveri, Aarhus, Danmark.
W SAUÐAKJ0T **«
og slátux* næstu viku
í verzluii Siggeirs Torfasonar.
»Morðinajaland«. Eftir því sem
skýrt er frá í „Worlds 5Vork“ lítur
svo út sem Bandaríkin í Ameríku eigi
þetta nafn skilið öðrum löndum frem-
ur. Árið 1906 komu þar 118 morð
og manndráp á hverja miljón ibúa, en
í Kanada að eins 12,4, á Englandi
8,4 og Þýzkalandi 4,6 á hverja miijón
íbúa.
Forsögulegur bær. Ameríski forn-
menjafræðingurinn Boud hefir fundið
leifar af bæ í San-Jacintofjöllunum,
nálægt Coachella í suðvesturhluta
Bandaríkjanna. Þar hafa meðal ann-
ars fundizt leifar af hjer um bil 1000
steinhúsum. Fundurinn er mjög merki-
legur, ef fregnirnar um hann eru ekki
ýktar.
26
mannabúningi mínum. Þá sneri hún sjer allt i einu við, og
leit til þeirra leiftrandi augum, og þær þögnuðu alveg.
En þegar vigslunni var lokið, og við ætluðum að fara
að leggja af stað heim, þá kom það i ljós, að jeg hafði lika
alveg gleymt þvi, að hugsa um hest eða vagn handa henni.
0g Frederikka aftók með öllu, að nota vagn, sem tilheyrt
hafði heimili hennar, en nú var orðinn eign frænda hennar.
wÞá vil jeg heldur ganga«, mælti hún gröm í geði og með
þóttasvip. »Jeg hefi ekki vanizt því, að þurfa að betla«.
Mjer fannst sem jeg væri stunginn í hjartað. Og ekki
bætti það úr, þegar jeg sá, að klausturjómfrúrnar gömlu horfðu
með hæðnisglotti á konuna mína, og lesa mátti greinilega úr
svip þeirra: »Nú sjerðu það, einþykka, ófyrirlátsama barn,
hvilíkan dauðans aumingja þú hefir valið þjer, þú, sem þó
ert af göfugustu aðalsætt. Nú, já, sá sem ekki vill heyra,
hann verður að fá að þreifa á. Nú verður þú að ganga við
hlið hans, eins og hver önnur daglaunamannskona. Höfum
við máske ekki gert allt sem í okkar valdi stóð, til þess að
vara þig við þessu?«
En Frederikka stóð sem höggdofa, og hrærði hvorki
legg nje lið. Hún virti föðursystur sinar ekki einu sinni þess,
að líta á þær. Hún leit angurblíðu augnaráði á hús það, sem
hún hafði fæðst í, og alið allan sinn aldur til þessa dags, og
hún lyfti upp hvítu, fallegu höndinni sinni, eins og hún væri
að kveðja það.
»Jeg er altilbúin«, mælti hún því næst. Það voru fyrstu
orðin, sem hún hafði talað til min þetta kvöld.
Jeg náði í hann Brún minn, teymdi hann til hennar
og spurði:
»Þorir þú að setjast á bak, Frederikka? Jeg skal teyma
— þig skal ekkert illt henda«.
23
einvigi. Nú átti þvi hið mikla frumburðar-óðal, Mansdorí,
að falla i hendur f)arskyldum ættingja í hliðarlegg, þegar
faðir hennar fjelli trá, og þess var eflaust ekki langt að bíða,
þvi að hann var orðinn barn í annað sinn. Og þá varð hún
að gera sjer að góðu, að flækjast burt frá Mansdorf. Öku-
maðurinn hafði sagt Jobst frá þessu, og hann hafði bætt því
við, að hann skildi ekkert i þvi, hvað af henni ætti að verða,
þvi að fátækar aðalsmeyjar væru vanalega ekki álitnar mikið
keppikefli — biðlarnir væru ekki vanir að elta þær á röndum.
Hugarfriði mínum var nú gersamlega lokið. Hvert sem
jeg leit, þá stóð þessi tigulega stúlka i svarta sorgarbúningn-
um frammi fyrir mjer. Hvar sem jeg fór, þá gekk hún við
hlið mjer, og horfði á mig inndælu augunum sínum, og á
nóttunni sá jeg föla andlitið hennar lúta ofan að rekkju minni.
Astin var vöknuð i brjósti mjer með öllu sínu töframagni.
Jeg var tuttugu og fjögra ára, Jóhannes, og halði aldrei orðið
ástfanginn áður. Og svo skeði það ótrúlega, það, sem jeg
hafði naumast þorað að vonast eftir. Frederikka von Baben-
berg varð konan mín.
Það voru alls ekki nein Satans vjelabrögð, sem komu
þvi til vegar, engir töfrar eða galdrar. Það atvikaðist allt á
mjög eðlilegan hátt. Og þó fannst mjer sem eitthvað yfir-
náttúrlegt hefði komið fram við mig, eins og einhver dýrð-
legur kynjaviðburður, þegar jeg hjelt henni í fyrsta skifti i
faðmi mjer við sóttarsæng föður hennar. »Jeg skal vera þjer
þakklátur alla mina ævi, Frederikka« — meira gat jeg ekki
sagt, allt annað fannst mjer of fátæklegt, of lítilfenglegt á svona
hátíðlegri stundu. Og hún hlaut þá lika svei mjer að geta
skilið það, að jeg hafði helgað henni lif mitt.
Það hjelt jeg þá.
Og nú varð jeg rólegur aftur, þvi að nú vissi jeg að hún