Reykjavík - 25.02.1911, Side 1
1R ft \ a\> í h.
XII., 9
Laug’ardag' 25. Febrúar 1911
XII., 9
„REYKJAYÍK"
Argangurinn kostar innanlands 3 kr.; erlondis
kr. 3,50 — 4 sh. — 1 doll. Borgist íyrir 1. júli.
Aaalitingar innlendar: A *• bls- kr. 1.50;
3. °P *. bls. kr. 1,85. — Öd. augi. 33Vi0/« hærra. —
ÁfMláttur að mun, ef mikið «r auglýst.
Ritsy. 0g ábyrgðarm* Runólfeson,
Þingholtsstr. 3. T q 18 i tn i 18 8.
$grei8sla ,Reykjavíkur‘
er i
^kólastrœti 3
(beint á móti verkfræóing Knud Zimsen).
Afgreiðsla blaðsins er opin kl. 9—12
árd. og kl. 1—6 síðd. - Talsimi 199.
Rltatjórl er til viðtals virka daga
kl. 1—1. — Þingholtsstr. 3.
A lþingi.
Pingniannafrumvörp.
í síðasta blaði er getið tveggja þing-
mannafrumvarpa, er þá voru fram
komin. Siðan hafa þessi bæzt við,
öll lögð fyrir neðri deild:
3- Frumv. til lQga um lögheiti á
nokkrum stofnunum á jsiandit FJutn-
ingsmenn: J. Þork., Ben. Sv., Bjarni
frá Vogi (alstaðar þjóð i staðinn fyrir
land o. s. frv.).
4.
Flm.:
Vogi.
krumv. til laga um prentsmið/ur.
J. Þork., Ben. Sv., Bjarni frá
5. Frumv. er breylir gildandi á-
kvœðum um alm. auglýsingar og
dómsmálaauglýsingar. Flm.: J. Þork.,
Ben. Sv., Bjarni frá Vogi og Björn Kr.
6‘ ^ri"nv- til lagu um samþgkktir
um heyasetning og hey/orðabúr. Flm.:
Sig. Sigurðsson.
7. Frumv. til viðaukalaga við lög
nm verzlunarbœkur. FJm.: j£n qj
8. Frumv. um breytingar á stjórn-
nrskipunarlögum Íslands. Flutnm •
Jón Ólafsson og Jón frá Múla.
9- Frumv. til laga um breyting á
*óknargjöldum. Flutnm.: Sig. Sig-
urðsson og jón á Hvanná.
10. Frumv. til laga um búpenings-
skoðun og hegásetning. FJm.: Sig.
Sigurðsson.
11. Frumv. ttt iQga
um bregting
á lögum um aðra skipun á œðstu
nmboðsstjórn landsins. Fim.: Jón
bork., Bjarni frá Vogi, Jón á Hvanná(
Ben. Sv. og Sig. SigUrft880B (Ráft_
herra-eftirlaun 1200 kr. á árj j jafn.
mörg ár og hann hefir því embætti
gegnt).
Og í efri deild:
12. Frumv. til laga um skoðun i síld.
Sig. Hjörl.
^ögsályktunartillögur.
í síðasta blaði var getið einnar.
Siðan hafa þessar komið fram:
J neðri deild:
.,2' . Ura skilyrbi fyrir styrkveitingu
til bunaðarfjelaga. plm.: Sigi Sig.
3. m skipun 5 manna nefndar til
þess a 1 uga dómaskipun landsins og
koma með tillögur um það efni. Flm.:
Jón Þork. og M. Bl.
4. Um skipun 7 manna nefndar
1 að ílluga peningamálefni landsins
og koma með tillögur um það mál.
Flm.: M. Bl., J. Þork. og Bj. Kr.
5. Um skipun 7 manna nefndar til
að íhuga hag Landsbankans og fyrir-
komulag veðdeildarinnar. Flm.: M.
Bl., J. Þork. og Bj. Kr.
6. Um að lýsa vantrausti á ráð-
herra, og skora á hann að beiðast
lausnar þegar i stað. Flm.: Ben. Sv.,
Bjarni frá Vogi, Jón á Hvanná, Skúli
Thoroddsen og Jón á Haukagili.
7. Um að skora á landsrtjórnina
að gera nú þegar ráðstöfun til þess
að gæzlustjóri Landsbankans, sem
kosinn var af efri deild, geti tekið
sæti sem gæzlustjóri við Landsbank-
ann, og sjái um að honum verði greidd
þóknun sú, sem honum er ætluð sem
gæzlustjóra, frá þeim degi, er honum
var vikið frá starfinu.
8. Um skipun 5 manna nefndar
til að rannsaka Landsbankamálið.
Flm.. Hálfd. Guðjónsson, Sig. Gunn.,
og Björn Sigfússon.
í e f r i d e i 1 d:
1. Um skipun 5 manna nefndar
til að ransaka gerðir landsstjórnar-
innar í Landsbankamálinu og fleiri
málum. Flm.: Lárus H. Bjarnason.
2. Um að lýsa vantrausti á ráð-
herra. Flm.: Ari Jónsson, Kr. Jóns-
son og Sig. Stefánsson.
Fyrirsparn til ráðherra
hefir ein komið fram, frá Jóni á
Hvanná, um árangur af þingsályktunar-
tillögu síðasta þings um aðskilnað ríkis
og kirkju.
Rannsóknarnefntl á ráðherra.
Svohljóðandi þingsályktunartillaga frá
Lárusi H. Bjarnasyni var 22. þ. m.
samþ. í efri deild með 11 atkv. gegn 2:
„Efri deild alþingis ályktar, að skipa
5 manna nefnd til að rannsaka gerðir
landsstjórnarinnar í Landsbankamálinu
og fleiri málum. Nefndin hefir vald
til að heimta skýrslur, munnlegar og
brjeflegar, bæði af embættismönnum
og einstökum mönnum, samkvæmt 22.
gr. stjórnarskrárinnar".
Umræður stóðu yfir í 6^/a klukku-
stund, og voru oft all-harðar.
Móti tillögunni greiddu atkvæði Ari
Jónsson og Sigurður Hjörleifsson.
í nefndina voru kosnir með hlut-
fallskosningu;
Lárus H. Bjarnason,
August Flygenring,
Stefán Stefánsson,
Siguröur Stefánsson,
Sigurður Hjörleifsson.
Tantraustsyfirlýsing til ráðherra.
Hún var á dagskrá í gær í neðri
deild og hljóðar svo:
„Neðri deild alþingis álgktar, að
lýta vantrausti sinu á núverandi ráð-
herra Islandsn.
Flutningsmenn Benedikt Sveinsson,
Bjarni Jónsson frá Vogi, Jón Jónsson
á Hvanná, Skúli Thoroddsen og Jón
Sigurðsson á Haukagili.
Viðaukatillaga frá öllum sömu flutn-
íngsmönnum, nema Jóni á Haukagili:
y>og skorar á hann, að beiðast
lausnar þegar i staðn.
Umræður stóðu yfir frá kl. 12—3,
Stóra rýmingarútsalan
hjá
Arna Eiríkssyni
Austurstræti 6,
stendur yfir ennþá.
10-40§ afsláttnr af öllu.
frá 5—8 og frá 9—l1/* eftir miðnætti.
Aðalflutningsmaður var Benedikt Sveins-
son, en auk hans töluðu með tillög-
unni: Jón í Múla, Jóhannes sýslu-
maður, Skúli Thoroddsen og Jón á
Hvanná, og á móti henni ráðherra
(nærri 4 klukkustunda ræðu fyrst og
svo styttri ræður síðar), Björn Krist-
jánsson, Sigurður Gunnarsson, HáJfdan
Guðjónsson og Magnús Blöndahl. Um-
ræður voru yfirleitt hógværar. En
„Jærdómsríkar“ voru þær margar, og
lýstu sumar vel mönnunum og sum-
ar málefninu. Skaði, að geta ekki,
rúmsins vegna, flutt ágrip af sumum
þeirra.
Atkvæðagreiðsla fór þannig, að að-
altiJlagan var samþykkt með 16 atkv.
gegn 8, og viðaukatillagan með 17
atkv. gegn 7 að viðhöfðu nafnakalli.
Við aðaltillögunni sögðu:
Já: Nei:
Eggert Pálsson,
Benedikt Sveinsson,
Bjarni Jóneson,
Einar Jóneson,
Hannes Hafstein,
Jóh. Jóhannesson,
Jón á Hvanná,
Jón frá Múla,
Jón Magnússon,
Jón Ólafsson,
Jón á Haukagili,
Pjetur .Tónsson,
Sig. Sigurðsson,
Skúli Thoroddsen,
Stefán Stefánsson.
Björn Þorláksson,
Björn Kristjánsson,
Björn Sigiússon,
Hálfdan Guðjónsson,
Magnús Blöndahl,
Ólafur Briem,
Sig. Gunnarsson,
Þorleifur Jónsson,
Jón Þorkelsson, 1. þ. m. Reykvík-
inga, neitaði að greiða atkvæði, og
var þvi talinn með meiri hlutanum.
Um viðaukatillöguna fjellu atkvæði
eins, að öðru en því, að um hana
neitaði síra Hálfdan Guðjónsson einnig
að greiða atkvæði, og taldist því með
meiri hlutanum.
Ekki ljet ráðherra líklega með það,
að hann mundi taka vantraustsyfir-
lýsingu þessa til greina. Sagðist reynd-
ar hafa gefið vilyrði fyrir því á flokks-
fundi, að ef futlur helmingur sinna
flokksmanna yrði með vantraustsyflr-
lýsingu og þeir gætu komið sjer sam-
an um eftirmann sinn, þá myndi hann
máske fara frá völdum. En það væri
óverjandi, að fara úr sæti, meðan ekk-
ert útlit væri fyrir, að þeir 4, sem
um sætið kepptu, gætu komið sjer
saman um það. Annars kvaðst hann
ekkeit hafa afráðið um það enn þá,
#hverja stefnu hann tæki“.
Vandræða-forseti.
„Reykjavík“ fór í síðásta blaði þeim
orðum um kosningu séra Jens Páls-
sonar til forseta í efri deild, að hún
hefði verið „neyðarúrræði", því að
hann væri engan veginn því starfi
vaxinn. BJaðið mun einkanlega hafa
haft þar fyrir augum þá reynslu, sem
af honum var fengin í hittiðfyrra, þá
er haDn var varaforseti og gegndi um
stund forsetastarfi. Þá var sagt að
svo hefði verið spilað með hann, að
hann hefði verið látinn bera upp til
atkvæða mál, sem búið var að fella í
hinni deildinni.
Nú á Miðvikudaginn kom það í.ljós,
svo berlega sem fremst mátti verða,
að hann er ekki íorsetastöðu vaxinn,
og það af miklu alvarlegri ástæðu
heldur en þeirri, þó að hann sé svo
óskýr, að luglist við uppburð málatil
atkvæðagreiðslu. Það kom þá í Jjós,
að blint flokksfylgi leiðir hann til
þeirrar hlutdrægni, sem með öllu er
ósamboðin forseta á þingi og óhjá-
kvæmilega hlýtur að leiða til spillingar
öllum sæmilegum þingsiðum.
Það kom í ljós á þinginu í hit.tið-
fyrra, að í meiri hlutanum á þingi
höfðu slæðst inn nokkrir þeir menn,
einir þrír eða svo í neðri deild og einn
eða svo í efri deild, sem ekki kunnu
siðaðra manna háttu í orðum sinum,
en beittu sauryrðum og persónulegum
meiðyrðum um aðra þingmenn í rök-
semda stað. Slíkt þykir hvervetna
svívirðing þeim, er þann sið tíðka.
Auðíitað bregður því fyrir á fleiri
þingum en voru, að mönnum, sem
eigi kunna að stilla geð sitt, hrýtur
óþingmannlegt orð; en þá gætir for-
seti þess jafnan að taka fram í og
heimta af þingmanninum að hann taki
aftur in óþingmannlegu ummæli; geri
hann það ekki, er orðið þegar tekið
af honum og hann fær ekki að halda
áfram ræðu pinni og eigi fær hann
aftur að taka til máls á þingi í því
máli né öðru, fyrri en hann hefir aft-
urkallað ummæli sín og gert afsökun
sína. Yanræki forseti að gæta þeirrar
skyldu sinnar, að þola engum þing-
manni óþingmannlegann og ósæmileg-
ann munnsöfnuð, þá leiðir það eðlilega
til þess, að hver sá þingmaður, sem
misgert er við, tekur rétt sinn sjálfur