Reykjavík

Ataaseq assigiiaat ilaat

Reykjavík - 25.02.1911, Qupperneq 2

Reykjavík - 25.02.1911, Qupperneq 2
34 R E Y K J A V I K teikfjelag Reykjaviknr Haínarmálid eftir Pórfilfnr í Nesf (frumsaminn islenzkur sjónleikur) verður leikinn í Kvöld (Laugardag 25. febr.) og Sunnudag 26. febr. Kl. 8 síAd. í IAnaðarmanna* tiúainu. og, ef svo ber undir, notar einnig 6- þingmannleg meiðandi orð um þann þingmann, er forseti leyfði óátalið að syndga fyrri í þessa átt. Sé nú for- setinn óhlutdrægur, eins og forseti n. d. var í hittiðfyrra, þá leiðir of mikið umburðarlyndi til þess að sljóvga vel- sæmistilfinningu þingmanna og lækka velsæmistóninn í öllu þinginu niðurfyrir lágmark það sem löggjafarþingi er sam- boðið. í e. d. er séra Jens svo blindaður af ofstæki flokksfylgisins, að hann líð- ur flokksmönnum sínum hvers konar skítyrði og meiðyrði um mótflokksmenn sína, en vítir mótflokksmennina ef þeir gjalda líku líkt, enda þótt miklu væg- ara sé. Þetta kom Ijóslega fram í e. d. á Miðvikudaginn. Þar helti Ari Jónsson persónulegum meiðyrðum og sauryrð- um yfir Lárus Bjarnason, kvað hann hafa borið saur inn í deildina, lýsti honum sem þarfanauti deildarinnar o. s. frv. Alt var þetta algerlega að til- efnislausu frá Lárusar hendi; hann hafði ekki talað nokkurt óþingmann- legt orð. Lárus svaraði illyrðum Ara ekki öðru en því, að hann kvað Ara hafa líkt sér við farfanaut; hann sagðist ætla að senda honum orðið aftur, að eins klippa „þarfann" fram- an af og nefna hann bara naut. Þá hringdi forseti undir eins og vítti þetta orð. Síðar hélt ráðherra ræðu heila stund- æJjórð, og var sú ræða ekkert annað en tóm heiftarorð og fúkyrði til Lár- usar, en snerti alls ekki umræðuefnið einu orði. Þetta leið forseti óátalið; seildist að vísu til bjöllunnar ofurlúpu- legur og gaut homauga til ráðherra, en glúpnaði og hikaði og þorði ekki að hringja. Þetta gekk svuna til hneykslanlegs athlægis fyrir allann þingheim alt þar til ráðheira hafði svalað sér og lokið skammarokunni. Þá hringdi forseti og áminti — ekki ráðherra, sem hafði brotið þingsköpin, heldur þingmenn alment um að hafa ekki óþingmannleg orð. ðll þessi framkoma forseta hneyksl- aði jafnt alla sanngjarna menn af báð- um flokkum. Það eru vandræði fyrir e. d. að þurfa að burðast með séra Jens fyrir forseta. Það er svo lítil bót í því, þótt þeir sem manninum eru kurmug- astir telji víst, að hann hafi enga með- vitund um það sjálfur, hve óréttvís- lega hann breytir, heldur sé það fiokks- ofstækið, sem starblindar á honum sálarskjáinn. J. 01. fást fyrir að eins 58 Kr. .30 au. hjá Axel Meinliolt, Ingólfsstræti 6. Stefán B. Jónsson. [Niðurl.] ----- Hin þriðja meginástæða er sú, að háfnarbyggingin muni efla og auka fiskiveiðarnar hjer stórkostlega, og smámsaman útiloka fiskiveiðar útlend- inga hjer við land, af því að menn verði þá óragari en nú, að leggja fje í fiskiúthaldið o. s. frv. — Mikil er sú trú. — Það er auðvitað, að hafnar- byggingin hefir þýðingu fyrir fiskiveið- arnar í og umhverfis Reykjavík. En ekki er mjer kunnugt um, að menn hjer sjeu ragir að leggja peninga sína I fiskiveiða-fyrirtæki, enda hafa þau fyrirtæki yfirleitt gefið hjer mjög mik- inn arð umfram kostnað í flestum ár- um, þrátt fyrir hafnleysið og slysin sem svo oft koma fyrir; en flest þeirra hafa þó átt sjer stað utan Rvíkur- hafnar. — Hins hefi jeg meira orðið var, að menn vantar fje, til að leggja í slík fyrirtæki, sem önnur. — í þessu sambandi dettur mjer í hug, hvort það væri ekki skynsamlegra ráð, til að burtrýma fiskiveiðum útlendinga hjer, að landssjóður legði þessar 800 þúsund kr. í 8—10 botnvörpuskip með tilh. veiðarfærum, að láni gegn afborg- unum og vöxtum, eða til annara álíka aTÍvæn\egia.framleiðslu-fyrirtœkja,meb góðum kjörum, upp á endurgreiðslu með vöxtum, ef hann annars væri fær um að láta af hendi slíka fjárhæð, umfram það vanalega, heldur en að gefa þá upphæð að þarflausu til hafnargerðar- innar, í sama tilgangi. Auk þess sem Rvikur-búum gæti líklega verið meiri styrkur í því almennt, en jafnvel hafnarbyggingunni, þó hún sje einnig nauðsynleg. — Enda ætti þetta hvort- tveggja að geta orðið samfara, eftir því sem jeg iít á málið. Jeg vona nú að allir sjái, að hafnar- byggingin er alls ekki jafnt landsmál sem bæjarmál. Meira að segja, vona jeg að allir sjái, að hún er alls ekki landsmál, fremur en ótal margt annað sem ekki er talið landsmál. í því sam- bandi dettur mjer í hug bæjarbryggjan í Rvík. — Viðgerð Efferseyjar. — Haf- skipa-aðgerðarstöðin í Rvík. — Skipa- ábyrgðarfjelögin. — Hin almennu pönt- unarfjelög og kaupfjelög. — Rjómabúin. — Tóvinnuvjelar.— Sláturhús o. fl. o. fl. Þannig væri lengi hægt að telja upp, meira eða minna almenn nytsemdar- fyrirtæki einstakra manna og hjeraða, en sem einnig liafa nytsemd í för með sjer fyrir þjóðina í heild sinni. Ein aðal-ástæðan fyrir umsókn hafnarnefndarinnar um lándssjóðs- styrkinn til hafnarbyggingarinnar í Reykjavík, er sú, að ómögulegt sje að framkvæma verkiö án þessa tillags frá landssjóði, vegna þess, að tekjur fyrir- tækisins muni ekki duga til að borga meira en árlega vexti og afborganir af helmingi stofnkosfnaðarins, auk reksturskostnaðar, eftir hennar út- reikningi. — Sje þessu þannig varið j raun og veru, er auðvitað út-talað um það mál. — En sje hægt að auka árlegu tekjurnar svo, að þær nægi til að bera vexti og afborganir af 'óllum höfuðstólnum árlega, auk reksturs- kostnaðar o. s. frv.; án þess þó að íþyngja notendum hafnarinnar með því, umfram það sem tilsvarar hagnaði þeirra af fyrirtækinu að öðru leyti, — og það hygg jeg vera vel mögulegt — þá er sú ástæða fyrir iandssjóðstillaginu þar með fallin. Jeg geng nefnil. að því sem sjálf- sögðu, að hafnar-aðgerðin mundi verða þess virði, að greiða talsvert hærri gjöld fyrir notkun hennar í hverju til- felli en nú er, eða tíðkast hefir hingað til, svo framarlega sem nauðsynin á bygging hafnarinnar er eins mikil og af er látið — sem jeg efa ekki. Það virðist því óþarft, að óttast hækkun lestagjalds af skipum, vegna þess, að þá muni skipin forðast höfnina, eins og nefndin þó heldur fram ; úr því að þau hafa ekki forðast hana til muna hingað til, fyrir það lestagjald sem nú er og hefir verið; með þvi að þá fyrst ætti það að vera virkilega borgunar- vert íyrir skipin, að mega leggjast á höfninni, þegar stórfje hefir verið varið til þess að gera hana fulltrygga og að- gengilega. — Það væri því fullkomlega sanngjarnt, að mínu áliti, þó lesta- gjaldið væri hækkað um helming, frá því sem nefndin ætlast til, og nú er. — En það eitt mundi auka árstekjur hafnarinnar um 12,000 kr. Nokkuð líkt má segja um „vöru- gjaldið“ (upp- og útskipunar-gjaldið). Nokkur hækkun þess frá áætlun nefnd- arinnar ætti að þykja viðunanleg, ef þess gerðist þörf. Nefndin áætlar það innan við 5 au. á 100 pund að meðal- tali, eða 49,000 smál. (tonn) á 45,000 kr. Hve hátt það gjald er nú að meðaltali, er, að jeg held, ekki gott að segja, en líklegt þykir mjer að það sje yfir 10 au. á 100 pd. til jafnaðar. Ef það gjald yrði ákveðið, S9m svarar segjum, rúmir 8 au. á 100 pd. til jafnaðar — og það mundi hafa þótt heldur gott til þessa, til móts við 10—15—25 aura á stykkið, — Þá mundi það út af fyrir sig auka árs- tekjur hafnarinnar um alt að 36,000 kr., sem í viðbót við 12,000 kr. tekju- auka af lestagjaldinu, gerir 48,000 kr. — En það er einmitt upphæðin sem vantar, eftir áætlun nefndarinnar, til þess að hafnarbyggingin borgi sig, án landssjóðsstyrksins. — Það er 6°/o árlegir vextir og afborganir af helm- ingi stofnfjárins, 800,000 krónum. Veriö getur, að vel mætti hækka hin önnur áætluðu gjöld af notkun hafnarinnar, ef með þyrfti; en um það skal jeg ekki fást nú, með því að sú hækkun sem á er minst hjer að framan, fullnægir til þess að sýna að fyrirtækið getur borgað sig, og það vel, án fjegjafa, og það á það líka að geta gert. Hins vegar álít jeg það mjög sann- gjarna og eðlilega kröfu, að landssjóð- ur ábyrgist lán, svo sem með þarf, til hafnarbyggingarinnar, gegn þeirri tryggingu sem nefndin gerir ráð fyrir, enda ætti það að vera fullnægjandi. Jeg minnist þess nú, í sambandi við þetta mál, að jeg var staddur á fje- lagsfundi í Rvík fyrir nokkurum ár- um, þar sem hafnarmálið eða viðgerð Reykjavíkurhafnarinnar kom til um- ræðu meðal annars. Var því þá hald- ið fram af einum fundarmanni (J. Þ.), að hafnarsjóðurinn væri einfær um að standa straum af bygging hafnarinnar, eða skipakvíar í Rvík. Enginn fund- armanna mótmælti þeirri staðhæfingu á þeim fundi, enda voru sennileg rök færð fyrir henni, að því er virtist, þó jeg muni ekki að tilfæra þau nú, nje þær tölur er þar komu til greina. Síðan þetta var eru nú liðin um 5—7 ár, og hefur hafnarsjóðurinn sennilega auðgast talsvert á þeim tíma, fyrir það fyrsta um alt að 10,000 kr. ár- lega (hið árlega lestagjald), samanber áætluD hafnarnefndarinnar, auk ár- legra vaxta og vaxtavaxta af öllum eignum sínum, sem væntanlega eru á vöxtum. Það er því alls ekki ólíklegt, að hafnarsjóðurinn, sje nú orðinn fær um að takast í fang fyrirtæki þetta, fyrir eigin reikning, án fjegjafa, en með ábyrgð laDdssjóðsins fyrir því láni sem til kynni að vanta, jafnveí þó að bygging hafnarinnar, eftir fyrir- liggjandi áætlun, sje mikið dýrari, en búizt var við fyrir nokkurum árum, sem mjer er þó ókunnugt um: Hvað hefi jeg nú sagt hjer að framan ? Jeg hefi sagt og sýnt með rokum, sem jeg vona að ekki verði hrakin, að hafnarbygging í Rvík er ekki lands- mál á þann hátt sem nefndin heldur fram, heldur bœjarmál, og verðskuldar á þeim grundvelli tekið nauðsynlega aðstoð hins almenna, en ekki fjegjafir, meðfram af því, að höfnin er vel fær um að bera kostnaðinn af að byggja sig upp sjálf, ef landssjóður ábyrgist henni að láni það fje, sem til þess kann að skorta. Lán og ábyrgftir fyrir lánuna til nauðsynlegra fyrirtækja í landinu á landssjóður að velta, með |>eim beztu fejörum gera unnt er; e* íjcgjafir (styrkveitingar) í stórura stíl, á hann að forðast eins og heitan eld, undir öllum feringum- stæðum. — Annars, — já annars er framtíð vor í voða. Um íslenzkan lanðbúnað. Eftir Jén J. Bildfell. [Frh.]. Árið 1909 veittist mjer sú ánægja að heimsækja ættland mitt; jeg ferð- aðist um flestar sýslur þess, og ber því ekki að neita, að á þeim 23 ár- um, sem jeg befi dvalið hjer í Ameríku, hefir landbúnaðurinn ís- lenzki tekið mikluin breytingum, og í sumum tilfellum að mínu áliti í rjetta átt. En að um efnalegar fram- farir í þeirri grein sje að ræða, er víst vafamál. Það eru ekki fram- farir í efnalega átt, þótt framleiðsla hafi aukizt, þótt búskapurinn hafi batnað, þótt tún hafi stækkað, ef kostnaðurinn við þessar framfarir og framleiðslu, er meiri en arðurinn af henni. Ef peningar þeir, sem teknir eru til láns til þessara fram- kvæmda, ekki gera meir en borga vexti og viðhald, þá eru menn að tapa — eru að fara aftur á bak efnalega. En þetta er þó nákvæmlega það sem komið hefir fyrir í plássi því, er jeg áður dvaldi i á íslandi. Stofn bændanna hefir minkað. Skuldir þeirra hafa vaxið. Skuldlausar eign- ir þeirra minni nú en þ®r voru, og þarf þá ekki nein rök að þvi að færa, að afkoman hlýtur að vera verri; og því ver mun þetta ekki vera sjerstakt fyrir þetta ezna hjerað, heldur mun slíkt böl sameiginlegt um land allt. Og að svo sje, byggi jeg á sögusögn bændanna sjálfra, byggi það á því, að nú á undan- förnum áruin hafa bændur hópum saman þyrpst úr sveit til sjávar; landbúnaðurinn hefir verið þeim svo erfiður og arðlaus, að þeir hafa gefist upp á honum, og kosið sjer heldur tómthúsvist í Reykjavík, en »bænda- býlin þekku« í sveitum íslands. Og ef frekari sannana þyrfti við, mætti benda á skýrslu milliþinganefndar-

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.