Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 11.03.1911, Blaðsíða 2

Reykjavík - 11.03.1911, Blaðsíða 2
42 R E YKJAVÍK 4. Þingsál. t i 11. umfjölgun viðkomustaða strandbáts- ins í V.-ísaf. sýslu. Flm.: Kr. D. 5. Þingsál.till. umaðsetja 5 manna nefnd til að íhuga stjórnarskipunarlög lands- ins. Flm.: Sig. Stefánsson, Lárus H. Bjarnason og Stefán Stefánsson (kennari). 6. Þingsál. till. um gufu- skipaferðir. Flm.: Sig. Stefáns- son, Lárus H. Bjarnason og Stefán Stefánsson. (Um að skipa 5 manna nefnd, til að athuga ferðaáætlanir sam.gufuskipatjelagsins og »Thore«- fjelagsins, og koma fram með tillögur um haganlegra fyrirkomulag á þeim en nú er). 7. Þingsál. till. um strand- ferðir og m i 11 i 1 a n d a f e r ð i r gufuskipafjelags. »Thore* Flm.: Gunnar Ólafsson. (Landsstjórn- in hlutist til um að viðunanlegt skip komi í stað „Perwie". og að viðkom- um skipanna verði fjölgað á suður- ströndinni. 8. Þ i n g s á 1.1 i 11. um i n n- setning gæzlustjóra efri d e i 1 d a r (Kr. jónss.) v i ð L a n d s- b a n k a n n. Flm.: Meiri hluti rann- sóknarnefndarinnar (L. H. Bjarnason, St. Stefánsson, Sig. Stefánsson og Aug. Flygenring). Bankamálið í efri deild. Rannsóknarnefnd sú, sem efri deild kaus til þess að rannsaka gerðir lands- stjórnarinnar f bankamálinu, heflr unnið af kappi alla tíð síðan hún vár kosin, haldið fundi á hverjum degi og stundum marga á dag, og yfirheyrt íjölda manna, er eitthvað hafa verið við málið riðnir. En mikið á hún þó óstarfað enn þá. Hún hefir nú kom- ið fram með nefndarálit um innsetn- ing gæzlustjóra efri deildar í Lands- bankann. Allir nefndarmennirnir, nema einn (Sigurður Hjörleifsson) hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að ráðherra hafi að vísu eftir 20. gr. bankalaganna frá 1885 haft að forminu til heimild til að víkja bankastjórninni frá, en gæzlu- stjórunum þó ekki nema »um stund- arsakir«. En sú heimild hafi fallið niður 1. jan. 1910, er hin nýju banka- lög frá 9. júlí 1909 gengu í gildi, því að með 8. gr. þeirra laga sje 20. gr. bakalaganna 1885 numin úr gildi með berum oröum. Ráðherra hafi því brot- ið lög, er hann varnaði hinum þing- kosnu gæzlustjórum að taka sæti í stjóm bankans eftir 1. jan. 1910. — Auk þess sýna þeir fram á það með Ijósum rökum, að ástæður ráðherra til burtvikningarinnar 22. nóv. 1909 hafi verið einskis virði. Meiri hluti nefndarinnar (þeir Lárus H Bjarnason, Stefán Stefánsson, Sig- urður Stefánsson og August Flygenring) ber þess vegna fram svohlóðandi til- lögu til þingsályktunar: „Efri deild alþingis ályktar, að skora á ráðherra, að hlutast tafarlaust til um það, að tekið verði nú þegar við Kristjáni Jónssyni háyfirdómara sem gæzlustjóra í Landsbankanum, að hon- um verði greidd lögmælt gæzlustjóra- laun frá 1. desbr. 1909, og að honum verði endurgoldinn útlagður kostnaður hans til að sækja rjett sinn og deild- arinnar gagnvart ráðherra og banka- stjórn Landsbankans". Tillaga þessi verður tekin til umræðu eftir helgina. Nýi ráðherrann. í dag er írestur sá á enda. sem konungur gaf alþingi til að koma sjer saman um nýja ráðherann, en ekki er fullsamið um það enn þá, þrátt fyrir marga fundi og mikið rifrildi. Yænt- anlega verður þó eitthvert samkomu- lag fyrir kvöldið. 1. Bíldfell og landbúnaðargrein hans. Landbúuaðargrein sú, sem verið hef- ir í síðustu blöðum, er fyrst prentuð í Lögbergi 19. jan. í vetur. Höfundur hennar er Jón Jónsson Bíldfell, sonur merkisbóndans Jóns Ögmundssonar, er lengi bjó á Bíldsfelli í Grafningi, en flutti sig til Ameríku 1886. JónBíld- fell ferðaðist hjer víða um land í hitt- iðfyrra og kyntist þá búskap og bún- aðarháttum manna. —• Ritstjóri „Lög- bergs fer svoíeldum orðum um höf- undinn og þessa grein hans: „Það er ekkert efamál, að ritgerð sú, sem birt er hjer í blaðinu á öðr- um stað, eftir herra J. J. Bíldfell, fasteignasala, muni vekja mikla at- hygli, sjerílagi meðal Austur-íslendinga, því að til þeirra er málinu snúið. Hjer er og að voru áliti um svo mikið al- vörumál að ræð, að oss virðist óhjá- kvæmilegt fyrir þjóðina heima að gefa því miklu meiri gaum, heldur en gert hefir verið, og íhuga vandlega þær skynsamlegu og góðgirnislegu lillögur, sem herra Bíldfell ber fram því við- vikjandi. Hr. Bíldfell hefir fyrir skemstu heim- sótt ætlland sitt og kynnt sjer ítar- lega ástand alt og landsháttu, sem nú eru. Hann er maður athugull í bezta lagi, og hefir orð á sjer meðal landa sinna fyrir hagsýni, hyggni og skarp- skygni; honum hefir því eigi dulist það, hvað landbúnaðinum heimastend. ur mest fyrir þrifum. Honum hefir ekki dulist, að það, sem þar skortir tilfinnanlegast, er þekking og reynsla á hinum nýrri og hagkvæmari landbúnaði ar aðferðum, sem tíðkaðar eru meðal annara þjóða. Og nú ber hann fram ýmsar tillögur. er miða að því að laga það sem að er. Hann leggur til mjög skynsamleg ráð til þess að efla land- búnaðinn á íslandi, svo að hann verði ábyggilegur og öruggur atvinnuvegur. Vjer höfum persónulega átt tal um þetta við herra Bildfell, og er kunnugt um það, að hann hefir bjargfasta trú á landkostum íslands og framtiðar- vænlegum landbúnaði þar, ef rjett er á haldið. Og hann vill að stjórnin sýni og sannfæri almenning um þetta. og vist er það ekki nema eðlilegt og vel við eigandi. Hvað gæti landsstjórn- in líka gort, sem betra væri og heilla- vænlegra fyrir atvinnuvegi landsmanna, en að stuðla að því, að þingið veitti fje til þess að koma landbúnaðinum í þolanlegt horf? Ekkert — alls ekkert. Vjer erum þeirrar skoðunar, að hr. Bíldfell hafl bent stjórn íslands á mjög hyggilegt ráð til þess. Tillögur hans eru ekkert kák. Þær eru þvert á móli skarpskygnisleg ráðagerð til stórstígra framfara, er að öllum líkindum mundu valda gagngerðri breyting á islenzkum landbúnaði, gera hann hægan, skemti- legan og arðvænlegan — spara vinnu- fólkshald, en fá þó meiri arð af ís- lenzkum bújörðum en almennt mun hafa verið álitið mögulegt. En hins vegar hlytu bújarðirnar stórum að hækka í verði við það að gróðursettir væru og girtir akurblettir á þeim, sem gæfu mikinn og notadrjúgan arð af sjer. Ekki mundu þær neitt Ijelegri til sauðfjárræktar þó að teknar væri af þeim svo sem áttatíu til hundrað ekr- ur til akurreitar. Það mundi verða hægt að framfleyta á þeim sama sauð- fjárstofni eftir sem áður, svo að ekki Þyrfti sú atvinnugrein að minka þó að kúabúið yxi. Vjer ætlum svo ekki að fara fleiri orðum um þetta að sinni, en væntum þess, að blöðin heima taki þetta mik- ilvæga mál til ítarlegrar umræðu, og í annan stað, að stjórnin láti sjer skylt að íhuga tillögur herra Bíldfells og koma upp fyrirmyndarbúi til efl- ingar íslenzkum landbúnaði, eins og hann bendir á. Vjer vitum, að hún hlýtur að víkj- ast skjótt og vel við jafn-mikilvægu velferðamáli lands og þjóðar eins og hjer er um að ræða“. HYertsem Ieiðin þin liggur, Hvort sem leiðin þín liggur um lönd eða höf, gefðu sjerhverjum sumar og sólskin að gjöf. Klappa blíðlega á barnskoll og brostu þeim mót, sem að harmana hylja við hjarta sins rót. Það er samhygðar sólskin, sem sæld veitir mest, það er langfegurst lífið og lífsyndið bezt. Sjerhvert sann-kærleiks atlot og sann-ástarhót er vort eilífa lífið og almeina bót. Hvert sem leiðin þín liggur, þá lít þangað hýr — sem að sárdöpur sorgin í sinninu býr. Sjerhvert hugtak og handtak sje hlýlegt og þýtt, sjerhvert orðtak og andtak sje ástlegt og blítt. Það er margt sem að mæðir þá mótlætis sál, sem alt finst sjer ögri sem óslíðrað stál. Hjer er heimsauðn svo helköld sem haííssins gljá þeim, sem alls lausir æðrast og engin ráð sjá. Hvert sem leiðin þín liggur, þá legðu þeim ráð, sem að dauðvona dreymir um drottins síns náð; gel þeim dug þinn og djörfung að dafna sinn þrótt; gef þeim söng þinnar sálar að syngja burt nótt. Sjerhvert vinarorð vermir sem vorsólarljós; sjerhver greiði og góðvild er gæfunnar rós. — Hvort sem leiðin þín liggur um lönd eða höf, getðu sjerhverjum sólskin og sumar að gjöf. Þ. Þ. Þorsteisson. [Heimir]. Pingvísur 1911. 12. Þd er þingmenn komu úr kirkju og gengu til þinghúss þingsetningardaginn, varð Ari viðskila við hóþinn og var lokað- ur úti. Þd kvað Einar Jochumsson: Lofið honum Ara inn, elakulegu vinir! Þetta’ er valið þægðar-skinn og þingmaður sem hinir. 13. Ara-gloría. Sþánnýr Sþarkverja-sdlmur. Gengur uþþd pd melódíu: „Margt er manna böliðv.. Ef vér tökum Ara, okkar fríðum skara eru völdin vís enn um tugi ára; eftir þrenging sára glæst oss gullöld rís. Landssjóð þá vér iendum á. Þjóðin borgar, burt flýr sorgin, buddu-orgin þagna. 2. Ef vér tökum Ara, alt hér vel mun fara, ekkert ógna’ oss grand ; franska bankann fáum, frankana vér sjáum liða yfir land; fyllast vasar, þverrar þras, Brellu-Jóni blítt menn þjóna, blómgast Frón á lánum. 3. Ef vér tökum Ara, ekkert mun hann spara sína vini við; mun hann sízt um synja, svangir þegar stynja, þeim að leggja lið. Bita feita fær vor sveit; allir digna — ofan rignir alls kyns tign á sveina. 4. Ef vér tökum Ara, Einar vor til svara verður, vit ef þver. Kjarklaus Ari’ ef kveinar, kankvis mælir Einar: „Ari, eg er hér! Á mig vona æ, minn son; mínu á bandi er öflugur andi, af sem grandi stýrir. 6. Ef vér tökum Ara, öll mun þjóðin svara : „Bravó ! bætt er mein! Ari excellence — engu sagt í glensi — það er ósk vor ein“. Veljum hann, þann vitra mann! Islandia, Arabía er þitt nýja heiti. Rdðleysingi- 14. Um vantrausts-lýsinguna flytur „Logr.“ þessar vísur: „Fóls í hami fyrstur trað fram á völlinn Bensi; vóð að Birni í von um, að verða exellensi", En sagi var, að valdalystin vasri þó mest hjd Ara. Um það er þessi visa, framhald af hinni'- „Ég skal fella’ hann“, Ari kvað. „Ekkert skuldar Bensi. En guð veit: það er gustuk, að gera mig excellenci". Svo var farið að rœða d flokkafundun- um, hver við skyldi taka, og þd var þetta kveðið: Mörgum það til rifja rann, að ræna Skúla vonum. Flestir sögðu: „Fjölskyldan er fjölmennust hjá honum“.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.